Dagur - 05.08.1999, Page 1

Dagur - 05.08.1999, Page 1
Deilt uiii dreifða eignaraðild í FBA Formaður efnahags- og viðskiptanefndar blæs á áform um dreifða eignaraðild að FBA. Utanríkisráðherra tel- ur nauðsynlegt að halda þeim áformum uppi. Viðskipd með hlutabréf Fjárfest- ingabanka atvinnulífsins, FBA, voru stöðvuð á Verðbréfaþingi í gærmorgun vegna fregna um kaup nokkurra þekktra fjárfesta, á bakvið eignarhaldsfélagið Orca, á 26,5% hlut í bankanum, en þar af var 22% hlutur í eigu Kaupþings, Sparisjóðabankans og sparisjóð- anna. Vegna þeirrar leyndar sem var í gær um hverjir ættu Orca var sala á bréfunum stöðvuð. Talið var að eigendur Orca væru Jón Ólafsson í Skífunni, Pétur Björnsson, fyrrv. aðaleigandi Vífil- fels hf., Bónusfeðgar og forsvars- menn Samherja hf. Þetta hefur ekki fengist staðfest. Páll G. Páls- son sagði við Dag í gær að tilkynning um eigendurna hefði borist honum. Vegna trúnaðar eftirlitsins myndi hann ekki upp- lýsa hverjir það væru. „Dreifð aðild í há- tíðarræðum en ekki í markaðsþjóðfé- Iagi“ Davíð Oddsson, for- sætiráðherra, hefur sagt í viðtölum að sér findist það eðlilegt að eignaraðild að bankan- um væri dreifð. Vil- hjálmur Egilsson segir hins vegar í samtali við Dag að það sé engin leið til að tryggja dreifða eignar- aðild á fyrirtækjum sem eru kom- in á markað. „I upphafi sölunnar er hins vegar hægt að hafa mark- mið um dreifða eignaraðild,'1 seg- ir Vilhjálmur. Jafet Ólafsson hjá Verðbréfa- stofunni segir um markmið stjómvalda um dreifða eignarað- ild að allt slíkt tal eigi heima í há- tíðarræðum en ekki í markaðs- þjóðfélagi. „Þessi viðskipti eru í sjálfu sér engin breyting. I öllum lýðræðis- ríkjum eru verð- bréfamarkaðir frjálsir og stjórn- völd stýra því ekki, hvort sem mönnum líkar það betur eða verr,“ sagði Hall- dór Ásgrímsson, utanríkisráðherra og formaður Framsóknar- flokksins, við Dag, aðspurður hvort viðskiptin með hlutabréf FBA ógnuðu áformum stjórnvalda um dreifða eignarað- ild. „Ég tel að dreifð eignaraðild sé nauðsynleg en geri mér jafnframt grein fyrir því að erfitt er að setja reglur sem tryggja það um alla framtíð," sagði Halldór og taldi þau áform stjórnvalda óbreytt að eignaraðild að FBA ætti að vera dreifð. Afram yrði staðið að sölu bréfa ríksins eins og upphaflega var ætlað. Mikil leynd um kaupendur Af umræddum fjárfestum náðist aðeins í Jóhannes Jónsson í Bón- usi í gær. Hann sagði að við þá feðga „hafi verið rætt“ um kaup á bréfum í FBA. Að öðru Ieyti vildi hann ekki tjá sig um málið og vísaði á son sinn, Jón Ásgeir. Ekki náðist í hann í gær en í fréttum Utvarps vísaði hann því á bug að þeir feðgar væru í þess- um hópi fjárfesta. Eigendur Samherja svöruðu ekki skilaboð- um. Stóll Bjarna var orðinn heit- ur Ymsar vangaveltur hafa verið um stöðu Bjarna Ármannssonar, for- stjóra FBA, og nefndi einn heim- ildarmaður Dags að stóllinn undir Bjarna hafi verið orðinn afar heitur fyrir söluna vegna hugsanlegrar sameiningar FBA og Kaupþings. Nú væri það ekki lengur í dæminu og ætti því staða Bjarna að hafa styrkst. Milliuppgjör FBA fyrir fyrstu sex mánuði ársins er væntanlegt í dag. -áá/bjb Bjarni Ármannsson. For- stjórastóll hans var orðinn heitur. Ragnar varni Leikritið Landkrabbinn eftir Ragnar Arnalds hlaut fyrstu verðlaun í leikritasamkeppni Þjóðleikhússins. Urslit í keppn- inni voru kunngerð í gær, en til hennar var efnt var efnt í tilefni af 50 ára afmælis leikhússins sem er á næsta ári. Alls bárust 40 leikrit í keppnina. Leikritin Vatn lífsins eftir Benóný Ægisson og Undir bláhimni eftir Þórarinn Eyfjörð deildu 2. sæti og Villi- börnin á bláa hnettinum eftir Andra Snæ Magnason varð í 3. sæti. Auk þeirra verka sem hér hafa verið nefnd vöktu athygli dómnefndar þrjú verk en skv. auglýstum keppnisreglum hafa umslög með nöfnum höfunda þeirra ekki verið opnuð. Ragnar Arnalds höfundur verðlaunaleik- ritsins hlýtur 500 þús. lvr. í verð- laun og stefnt er að því að verkið verði flutt á vegum leikhússins á næsta ári. -SBS í Þjóðleikhúsinu í gærdag. Ragnar Arnalds tekur við verðlaunum fyrir verk sitt, Landkrabbinn, sem fer á fjalirnar næsta vetur í tilefni af hálfrar aldar afmæli leikhússins. mynd: hilmar. Sigurður Sigurðarson og Prins héldu uppi heiðri íslendinga. Mistök í Þýskalandi „Það er óhætt að segja að þetta hafi verið dagur hinna stóru mis- taka hjá Islendingunum," sagði Júlíus Brjánsson, tíðindamaður Dags á HM íslenska hestsins í Þýskalandi, eftir daginn í gær. Tveir knapar voru dæmdir úr leik. Auðunn Kristjánsson, sem á hestinum Baldri frá Bakka var langefstur eftir slaktaumatöltið, var dæmdur úr leik vegna ólög- legs beislabúnaðar. Sá úrskurður var kærður en að sögn Júlíusar var síðdegis í gær talin veik von um að kæran breytti niðurstöð- unni. Bestum árangri Islendinga í töltinu náðu Sigurður Sigurðar- son og Prins frá Hörgshóli, eða 9. sæti. Að vísu var íslenskur knapi í 4. sætinu, Guðni Jóns- son, en hann keppti fyrir hönd Svíþjóðar. „Þetta var mikið áfall fyrir ís- lenska landsliðið og áhorfendur hér. Hann var kominn með aðra höndina á gullið. Þetta eru mis- tök sem eiga ekki að sjást og gætu haft áhrif á sameiginleg stig íslenska landsliðsins á mót- inu,“ sagði Júlíus. Eitt kynbótagull Þá var Olil Amble, norsk kona búsett á Islandi, dæmd úr Ieik í hlýðnikeppni fyrir ólöglega hlýðniæfingu með fáki sínum. Júlíus sagði þau mistök sömu- leiðis ófyrirgefanleg. „Þetta dró úr stemmningunni á meðal Islendinganna hér. Að öðru leyti er sólarstemmning og mótssvæðið glæsilegt. Þó skortir eitthvað á þýska nákvæmni varð- andi tímasetningar," sagði Júlíus en þá stóð keppni í gæðinga- skeiði yfir. Islendingar áttu þar ágæta von á verðlaunasætum. Til sárabóta skal það nefnt að Islendingar náðu einu gulli í gærmorgun í kynbótadómum. Það var Glaður frá Hólabaki í elsta flokki stóðhesta. Knapi var Hinrik Bragason. Til tiðinda dregur á mótinu í dag þegar for- keppni í fjór- og fimmgangi fer fram. -BJB/jB mam —■MM FERJAYFIR BREIÐAFJÖRÐJ Sigling yfir Breiðafjörð er ógleymanieg ferð inn í stórbrotna náttúru Vestfjarða. já Afgreiddir samdægurs Venjulegirog demantsskomir trúlofunarhringar GULLSMIÐIR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI ■ SÍMI 462 3524 WORWWtíX eXPRESX EITT NÚMER AÐ MUNA 5351100

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.