Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.1987, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.1987, Blaðsíða 4
4 MÁNUDAGUR 23. FEBRÚAR 1987. Fréttir Þjóðhagsstofnun: Spáir 11-12% verðbólgu frá upphafi til loka þessa árs - Viðskiptin við útlönd í jafnvægi í fýira í fyrsta sinn frá 1978 í nýútkominni þjóðhagsspá er þvi spáð að verðbólgan verði 11-12% á þessu ári og er það meiri hækkun verðbólgu en reiknað var með við gerð kjarasamninganna í desember, en ástæða þess að verðbólgumarkmið kjarasamninga næst ekki, að mati Þjóðhagsstofnunar, er talin óhagstæð gengisþróun að undanfómu. Þá er í þjóðhagsspánni gert ráð fyrir því að í ár hækki atvinnutekjur um 22-23% á mann að meðaltali en kaupmáttar- aukningin geti numið 7% í ár. Mikill hagvöxtur var hér á landi árið 1986 eða um 6,5% og þjóðartekjur jukust um 8,5% vegna mikils bata við- skiptakjara. í ár er hins vegar búist við hægari vexti landsframleiðslu eða um 3,5%. Þó gætu þjóðartekjur vaxið um 5,5%, að mati Þjóðhagsstofhunar. Á síðasta ári voru viðskiptin við útlönd í jafhvægi í fyrsta sinn frá 1978 og stafaði það af mikilli aukningu í útflutningi sjávarafurða og lækkunar á verðmæti olíuinnflutnings. Hins vegar vógu vaxtagreiðslur til útlanda upp þennan afgang að mestu og horfur em á viðskiptahalla í ár, að mati Þjóð- hagsstofhunar. Er þvi spáð að við- skiptahallinn geti numið um 0,5% miðað við landsframleiðslu og er ástæða þess sú að vöruviðskiptin em ekki talin verða jafh hagstæð í ár og í fyrra. Árið 1986 var verðbólga frá upphafi til loka árs sú minnsta sem mælst hefur hér á landi í fimmtán ár og nam hún 13% á mælikvarða framfærslu- vísitölu. Um ástæðu þess að ekki náðist sá árangur að ná verðbólgunni niður í eins stafs tölu segir í þjóð- hagsspánni að þar sé óhagstæðri gengisþróun Bandaríkjadollars um að kenna. Um verðbólguna í ár segir að þar sé ekki mikilla þreytinga að vænta og er spáð að hún nemi 11-12% frá upphafi til loka þessa árs, eins og fyrr sagði. í þjóðhagsspánni segir að hagvöxtur í aðiídarríkjum OECD hafi verið 2,5% að jafriaði á síðasta ári, en á íslandi nam hagvöxturinn tæplega 6,5% og var þar með nálægt 160% meiri en var að jafhaði í aðildarríkjum OECD. í ár er því spáð að hagvöxtur í iðnríkj- unum nemi 2,5-3% en að vöxtur alþjóðaviðskipta verði sá sami og í fyrra, eða nær 4%. -ój. Af Ijufvi list Ðrúöuleikhúsiö Sögusvuntan: Smjörbitasaga. Handrit, brúður og leikmynd: Hallveig Thorlacius. Leikstjóri: Brynja Benediktsdóttir. Brúðuleikhúsið „Sögusvuntan" á sér aðdáendur og vini um allt land. Þetta leikhús er nefnilega þeirrar náttúm að það kemur til áhorfenda sinna og heldur sýningar hjá þeim. 1 gær var ein sýning á Litla sviði Þjóðleikhúss- ins og var þar sýnt nýtt leikrit, Smjörbitasaga. Handrit, leikmynd og brúður em eftir Hallveigu Thorlacius, sem leikur öll hlutverk og stjómar brúðunum að auki. Leikstjóri er Brynja Benediktsdóttir. Sýningar Sögusvuntunnar miðast við böm og á undanfömum tveimur árum hefur Hallveig heimsótt leik- skóla og dagheimili víðs vegar um landið. Og nú geta bömin farið að hlakka til að kynnast honum Smjör- bita litla og hundinum hans, Gullin- tanna. Á sýningunni í gær var óvenjumargt fullorðið fólk miðað við það sem gerist á sýningum í brúðuleikhúsi hér á landi. Ekki bar á öðm en yngri sem eldri skemmtu sér prýðilega, enda ein- staklega ljúf saga sem þama bar fyrir augu. Það er líka mesti misskilningur að fullorðnir eigi ekki erindi á brúðu- leiksýningar, það sást best í þáttaröð- inni Úr brúðuheimi í sjónvarpinu um daginn. Leikbrúðuiist er ævafom listgrein og mikilsvirt víða um lönd. Ég býst við að margir þeir, sem áður álitu brúðuleikhús aðeins fyrir böm, hafi skipt um skoðun við að horfa á þessa bráðskemmtilegu og fróðlegu sjón- varpsþætti, sem „pabbi“ Prúðu leikar- anna, Jim Henson, sá um. Þar sást ljóslega að þetta listform og sá tján- ingarmáti, sem það gefur kost á, getur náð mikilli fullkomnun í höndum góðra listamanna. Og jafhframt, að innan leikbrúðulistarinnar em marg- ar ólíkar greinar. En þar kom líka greinilega fram hversu mikla ögun jafhframt áralangri þjálfun þarf, til þess að ná góðu valdi á því að stjóma brúðunum. Það vill oft gleymast að hér á landi eigum við rótgróið brúðuleikhús, sem hefur staðið fyrir mörgum sýningum um árabil. Hallveig Thorlacius hefur starfað með Leikbrúðulandi frá upp- hafi og unnið þar að mörgum verkefn- um á þeim átján árum sem em síðan það var stofnað. Það hefur verið mik- il uppörvun fyrir hópinn að á leiklist- arhátíðum erlendis hefur hann hlotið mjög góðar viðtökur og viðurkenning- Leiklist Auður Eydal Smjörbiti leitar Gullintanna. ar og það í löndum þar sem leikbrúðu- list er rótgróin og virt. Sögusvuntan er hins vegar eins manns leikhús. Hér sér Hallveig um allt, stórt og smátt, sem til fellur,en hefur við úrvinnslu notið góðrar að- stoðar Brynju Benediktsdóttur leik- stjóra. Leikritið er eftir Hallveigu og leiktjöld og brúður em hönnuð og unnin af henni. Áralöng reynsla kem- ur til góða og sést meðal annars á næmum skilningi á viðbrögðum hinna ungu áhorfenda. Hún náði athygli bamanna strax í upphafi þegar hún sagði frá henni ömmu sinni, sem gat tekið út úr sér tennumar og varð við það svo ósköp skrítin í framan að bamabömin hennar veltust um af hlátri. En það var þessi sama amma, sem sagði söguna af honum Smjörbita litla og ævintýrum hans, sém Hallveig hefur nú fært í leikbúning. I brúðuheimi getur margt óvænt og skemmtilegt gerst. Sagan, sem um stund hefur fylgt venjulegum frásagn- arleiðum, tekur allt í einu nýja stefnu. Álfar og hverapúkar skjóta upp kollin- um og ýmist hjálpa til eða þá hrella söguhetjuna, strákinn hann Smjör- bita. Hans veikleiki er hvað honum þykja afskaplega góðar kleinur og við liggur að það komi honum í koll. Textinn er oft hnyttilega saminn og málfar eðlilegt sem er auðvitað höfuð- nauðsyn þegar samið er fyrir böm. Auk þess nýtir Hallveig fjölbreytta málakunnáttu sína á skemmtilegan hátt þegar álfakóngurinn birtist uppi á Snæfellsjökli og féll það í góðan jarð- veg hjá fullorðna fólkinu. Og bömin fylgdust grannt með sögu- þræðinum sem er hæfilega spennandi. Hallveig leikur sjálf öll hlutverkin „á staðnum" og gefst þannig ráðrúm til að svara því sem áhorfendur hafa til málanna að leggja. Þetta gerir sýning- una lifandi og fjöraga. Henni er líka lagið að tala við böm eðlilega og lát- laust, eins og aðra menn, og beitir aldrei uppskrúfaðri tilgerð, sem alltof oft heyrist þegar flutt er efni fyrir böm, til dæmis í útvarpi og sjónvarpi. Brúður og leiktjöld í þessari sýningu era gerð af mikilli hind. Strákurinn Smjörbiti er gulur og hnellinn með góðlegan spumarsvip á andlitinu og amma hans ljúfmennskan uppmáluð. Bjartur, loftandinn úr jöklinum, sjálf- ur álfakóngurinn, lendir í brasi með hverapúkann og vöktu viðskipti þess- ara fulltrúa hins efra og neðra mikla kátínu áhorfenda. Að baki svona sýningu liggur ótrú- lega mikil vinna, eins og þeir vita sem til þekkja. í landi þar sem mjög fáar leiksýningar bjóðast fyrir böm en því meira af afmenntandi afþreyingu á skjá er ómetanlegt starf þeirra sem af umhyggju og listrænum metnaði gera sýningu sem þessa að veraleika. í dag mælir Dagfari Hvenær byrjar slagurinn? Kosningaskjálftinn er ekki byrjað- ur enn fyrir alvöra þótt greina megi smákippi af og til. Formaður Sjálf- stæðisflokksins þeysir um landið um helgar með Morgunblaðslið á hæl- unum sem sér um að birta valda kafla úr ræðum formannsins ásamt myndum sem sýna hann að spjalli við bændur og fiskverkunarfólk. Formaðurinn hélt fund á Akureyri á laugardaginn og sagði þá meðal annars að ríkið ætti ekki að redda Hitaveitu Akureyrar úr þeim krögg- um sem hún var í en hins vegar væri ríkisstjómin að undirbúa frum- varp um hvemig bjarga ætti hita- veitum landsins úr fjárhagskrögg- um. Þótti Akureyringum sem formaðurinn hefði þama siglt milli skers og bára á snilldarlegan hátt. Á fundinum upplýsti Halldór Blöndal að Ámi Gunnarsson hefði legið í sér um að Sjálfetæðisflokkur og kratar birtu sameiginlega yfirlýsingu þess efnis að flokkamir hygðust vinna saman eftir kosningar. Kvaðst Blöndal hafa hryggbrotið Áma, ekki einu sinni og ekki bara tvisvar held- ur þrisvar. Þorsteinn lét sér vel líka og sagði Alþýðuflokkinn höfuðand- stæðing Sjálfstæðisflokksins í komandi kosningum. Ámi varð hins vegar hinn versti við þessar upp- ljóstranir og sagði það af og frá að hann hefði biðlað til íhaldsins. Út- varpið hafði eftir Árna að Halldór hefði misskilið samræður þeirra og ummæli Halldórs væra bull og vit- leysa. Jón Baldvin raddist fram á sfður blaða og ásakaði Þorstein fyrir að hafa ekki lesið tillögur krata í lífeyrissjóðsmálum. Kosningabar- áttan er sem sagt ekki burðugri en svo að það er aðallega rifist um hvort Halldór Blöndal og Ámi Gunnars- son skilji hvor annan og hvað Þorsteinn Pálsson les eða les ekki áður en hann dettur út af á koddan- um á kvöldin. Annars var Bylgjan að reyna að hleypa einhverju lífi í kosningaundirbúninginn hér um kvöldið og hafði opinn símatíma fyr- ir tvo frambjóðendur sem lítið ber á, hvom í sínu lagi þó. Fyrst sat formaður landsnefndar Bandalags jafnaðarmanna fyrir svörum og var það hin kostulegasta stund. Banda- lagsstjórinn kom af fjöllum við nánast hverja spurningu sem til hans var beint. Sum mál höfðu ekki verið rædd. Önnur höfðu verið rædd og ákveðin en síðan afráðið að end- urskoða þá ákvörðun og væntanlega breyta um stefiiu. Ennfremur vora mörg mál enn í umræðu og óljóst hvaða stefnu Bandalagið tæki í þeim. Það eina sem virtist vera ákveðið var að bjóða fram í trausti þess að málefnin skiptu ekki máli eða dyttu af himnum ofan fyrir kjör- dag. Þegar Bandalagið hefði verið af- greitt kom tungulipur og mjúkmælt- ur formaður frá Flokki mannsins. Hann byrjaði að kvarta sáran undan því að fjölmiðlar hefðu ekki áhuga á flokknum og leituð lítið til forystu- manna hans um lausnir á þeim vandamálum sem uppi era í þjóð- félaginu. Hófust síðan hringingar hlustenda og kom brátt í ljós að formaðurinn hafði gengið þannig frá hnútum að það vora hans eigin flokksmenn sem sátu við símann og hringdu. Veittist honum því létt að svara þeim spumingum sem fram komu. Þetta hafði Bandalagsstjór- inn ekki fattað og sat því uppi með allt niðrum sig eins og tiðkast að segja í dag. Hlustendur höfðu ekki annað upp úr krafeinu en bráðgóðan skemmtiþátt sem er í sjálfu sér góðra gjalda vert en auðvitað koma þessir söfnuðir pólitík ekkert við. Hjá Framsókn felst kosningabaráttan nú einkum í illdeilum feðga á Akur- eyri. Þar berst Haraldur M. Sigurðs- son um á hæl og hnakka sém kosningastjóri Stefans frá Auð- brekku meðan ' Sigurður, sonur Haralds, stjómar kosningaskrifstofu Framsóknar þama fyrir norðan. Skiptast þeir feðgar á illvígum skeytum í fjölmiðlum fyrir norðan, Akureyringum til óblandinnar gleði því fátt kætir þann þjóðflokk meira en þá er ffölskyldumeðlimum lýstur saman opinberlega. Alþýðubanda- lagið heldur áfram dauðaleit að einhveijum málefhum til að beijast fyrir en sú leit hefur engan árangur borið enn sem komið er. Kvennalist- inn fer sér hægt og lætur lítið á sér bera. Hafði ekki einu sinni uppi til- burði til að mótmæla konudeginum í gær. Þetta er sem sagt steindauð og hrútleiðinleg kosningabarátta enn sem komið er og bráðnauðsyn- legt að finna einhver hressileg rifr- ildismál ef sá granur á ekki að læðast að kjósendum að kosningam- ar séu bara eitt sjónarspil og úrslit skipti litlu máli. Við verðum bara að vona að flokkamir hafi einhver leynivopn uppi í erminni. Kannski að Steingrímur komi með nýtt inn- legg til baka eftir að hann hefur heimsótt Gorbatsjov í Sovét. Leggi fram fimm ára áætlun um uppbygg- ingarstarf á Reykjanesi eða hertar aðgerðir gegn áfengisneyslu. Kjós- endur heimta hanaslag fyrir kosn- ingar var Jón heitinn Sólnes vanur að segja og rataðist þar satt á munn eins og svo oft áður. Við förum ekki á kjörstað nema fá gott sjó í staðinn. Dagfari.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.