Dagblaðið - 16.08.1978, Blaðsíða 1
Sríálst
óháð
dsffslað
4. ARG. MIÐVIKLIDAGUR 161ÁGÚST1978— 177.TBL.
RITSTJÓRN SÍÐUMÍJLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 11. - AÐALSÍMI 27022.
Hann kvað verulegan ágreining um
þýðingarmikil efni, og ekki horfur á
breytingu í afstöðu Alþýðubandalags.
Þóværu það viss atriði, sem lögð yrði
sérstök áherzla á. „Það er botnmál hjá
okkur, að samningar við launþega i
landinu séu virtir,” sagði Lúðvik.
„Við erum mjög andvigir gengis-
lækkun. Hún er að okkar mati ekki
lækning á meinsemdum efnahags-
lífsins. Hún dregur erfiðan drösul á
eftir sér. Við höfum áður, meðal
annars i vinstri stjórn, fallizt á slíka
gengisfellingu, í desember 1972. Þá
var reynt að tryggja það, að hún
bitnaði ekki á launum verkafólks,”
sagði Lúðvík. Hann bætti við: „Út úr
neyð gætum við fallizt á gengis-
lækkun, sem öruggt væri að ekki
bitnaði á kaupi.
Höfðuatriðið er að færa verðlagið
niður,”sagði Lúðvik.
„Hið óskaplega ástand i efnahags-
málum okkar er táknrænt fyrir þá
efnahagsstefnu. sem rekin hefur verið.
Hún hefur einkennzt af gengislækk
unum og bardaga um laun." sagði
Lúðvik.
BS.
„Eflaust verða miklar viðræður
milli flokka næstu dagá,” sagði Lúðvík
Jósepsson i viðtali við DB i morgun.
„Varðandi nýjar viðræður okkar og
Alþýðuflokks, get ég sagt að það
stendur ekki á okkur að ræða um
ágreininginn, sem fram hefur komið,”
sagði Lúðvik.
Versti óvinurinn
knýrádyrá
Suðurnesjum
ogíEyjum:
Atvinnuleysisskrár liggja nú
frammi á öllum bæjar- og hreppsskrif-
stofum á Suðurnesjum og i Vest-
mannaeyjum. Siðustu daga hefur
starfslið bæjar- og hreppsfélaganna
þurft að skrá óhugnanlega mörg nöfn i
þessar skrár. Fjöldi atvinnulausra sem
láta skrá sig hækkar á hverjum degi og
tölur því fljótt „gamlar og úreltar.” En
um miðjan dag í gær leitaði DB
upplýsinga um hvernig málin stæðu.
Vestmannaeyjar
Þar voru 122 á atvinnuleysisskránni
skömmu eftir hádegið i gær. Voru það
7 sjómenn og 115 manns sem stundað
hafa fiskvinnu. Hefur fjölgað um
Óhugnanlegur straumur til
atvinnuleysisskráningar
Ennþá gætir lokunar ýmissa fiskvinnslustöðva þó tiltölulega lítið
u.þ.b. 20 nöfn á skránni á degi
hverjum siðustu vikuna.
Keflavík:
Þar voru 112 komnir á atvinnu-
leysisskrána. Næstum allir sem á
skránni eru hafa stundað fiskvinnu og
misst vinnu sína við lokun fiskmót-
tökustöðva.
Grindavík:
Niu nöfn voru á atvinnuleysis-
skránni i Grindavik. Allt voru það
konur sem stundað hafa fiskvinnu. Á
skránni voru 3 nöfn þegar lokað var sl.
föstudag. Tvær stöðvar hafa lokað i
Grindavik, Hópsnes og Sverrir h.f.
Fyrir dyrum stendur lokun beggja
hraðfrystihúsanna (Grindavíkur og
Þórkötlustaða) svo búast má við mjög
versnandi ástandi.
Sandgerði:
Atvinnuleysisskráning hófst 3.
ágúst er bæði frystihúsin, Miðnes og
Jón Erlingsson hættu fiskmóttöku. Á
atvinnuleysisskrána eru komin nöfn
36 kvenna sem allar unnu áður i fiski.
Talsmaður hreppsskrifstofunnar
kvaðst halda að 6 konur hefðu fengið
einhverja vinnu aftur, svo nöfnin eru i
reynd 30 i Sandgerði. Enginn karl-
maður er enn á atvinnuleysisskránni.
Þeir hafa haldið vinnu sinni í fisk-
stöðvunum við málun og fleira.
Gerðar
Þar voru í gær aðeins tvær konur á
atvinnuleysisskrá.
Fimm hraðfrystihús eru þarna
lokuð en eitthvað er unnið að salt-
fiskverkún. Lokunin i Garðinum er ár-
visst fyrirbæri á þessum árstima og þá
tekur fólk sér sumarfrí. Óttast menn
að þar fjölgi á atvinnuleysisskránni ef
lokunin verður lengri í ár en
venjulega.
Reykjavik
Gunnar Helgason forstöðumaður
Ráðningarskrifstofu Reykjavíkurborg-
ar kvað ekkert atvinnuleysi i höfuð-
borginni vegna samdráttar i fisk-
iðnaði. Þess hcfði ennþá ckkert gætt.
Gunnar sagði að atvinnuleysis
bætur væru nú 5235 krónur á dag
fyrir fyrirvinnu heintilis og skipti þá
ekki máli hvort um væri að ræða konu
eða karlmann. Til viðbótar kemur 425
krónu greiðsla á dag fyrir hvert barn á
framfæri fyrirvinnunnar. Bætur lil
einstaklings nema hins vegar 4581
krónu á dag.
Þó þessar krónutölur úm bætur séu
ekki ýkjaháar fyrir bótaþega er Ijóst
að snemma leikur á stórum
upphæðum þegar fjölgar á at-
vinnuleysisskrám.
-ASt.
/_.......
Náði 140 þús. kr. út
úrstolinni bankabók
Innbrotsþjófur sem fyrir helgina
fór inn i mannlaust hús við
Háaleitisbraut gengur enn laus.
Eins og fram kom í DB hvarf úr
húsinu bankabók með 380 þús.
króna innistæðu og 20 þúsund kr. í
peningum.
Daginn eftir kom i Ijós að
þjófnum hafði tekizt að ná út úr
bankabókinni 140 þúsund krónum
áður en tókst að „loka” henni.
Notaði hann til þess skilrmi scm
stolið var úr húsinu. Hafði
þjófurinn þvi 160 þúsund upp úr
krafsinu.
ASt.
Nýrböðull
kominn filstarfa
íFrakklandi
Danirhræddir
umskinku-
söluna til
Bandaríkjanna
— sjá erl. fréttir
á bls. 6 og 7
/ -----------
Fjórir
íslendingar
valdir á
EMíPrag
Landsliðs-
þjálfarinn
þjálfar hjá
Víkingi
— íþróttir í opnu
Komnirúr
sumarleyfi:
BÍSIOG
KRIMMI
— bls. 2
Hellisgerði — sælureiturinn í Hafnarfirði
Það verður ekki kvartað undan slœmu sumar-
veðri á íslandi í sumar. Á sama tíma hafa íbúar víða
I Evrópu þurft að kúldrast í súldam'gningu mestan
partinn. Þessi skemmtilega mynd var tekin I gœr
suður í Hafnarfirði., / He/lisgerðt, skrúðgarði Hafh-
firðinga. Hafi menn ekki komið þangað, er ekki úr
vegi að láta verða af þvl hið fyrsta. Þar er sérlega
gott að hvllast I hraunbollunum. Garðurinn er
fallegur af nátturunnar hendi og svo hafa menntrnir
hjálpað til við að fullkomna verkið.
DB-mynd An.
LÚÐVÍK TIL í TUSKIÐ
—gæti fallizt á gengislækkun með skilyrðum út úr neyð