Morgunblaðið - 20.10.2004, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 20.10.2004, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 286. TBL. 92. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is Glæsilegir faldbúningar Baldýring, blómstursaumur, perlusaumur og knipl | Daglegt líf Bílar og Íþróttir í dag Bílar | Bíll ársins  Nissan 350 Z Suzuki DRZ 400  Sýn- ing í Hannover Íþróttir | Mutu í lyfjapróf Sjö stjörnur kvöddu  Ferguson viðurkennir mistök VERKAMENN í Opel-bílaverk- smiðjunum í Russelheim í Þýska- landi mótmæltu í gær fyrirhug- uðum uppsögnum og það gerðu einnig starfsmenn í verksmiðjum eigandans, General Motors, annars staðar í Evrópu. Til stendur að fækka starfsmönnum um 20.000 og flestum í Þýskalandi. Á kröfu- spjaldinu stendur: „Opel verður um kyrrt. Punktur.“ AP Uppsögnum mótmælt BRESKRI konu, Margaret Hassan, yfirmanni hjálparstofnunar í Írak, var rænt í Bagdad í gær. Hefur sjón- varpsstöðin Al- Jazeera þegar sýnt myndir af henni í höndum mannræningj- anna en hún hef- ur búið og unnið við hjálparstarf í Írak í 30 ár. Er hún gift Íraka og hefur einnig íraskt ríkisfang. Ránið á Hass- an, sem er yfirmaður hjálparstofn- unarinnar CARE í Írak, hefur verið fordæmt harðlega og einkanlega í Bretlandi. Er skammt síðan annar breskur gísl, Kenneth Bigley, var hálshöggvinn í Írak. Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, fordæmdi í gær ránið á Hassan og sagði, að það sýndi við hvers konar ómenni væri að eiga. Kurr í Verkamannaflokki Mannránið á sér stað á sama tíma og hart er deilt í Bretlandi um þá ósk Bandaríkjamanna, að breskt herlið verði sent frá Basra í Suður-Írak til stuðnings bandaríska herliðinu á mestu átakasvæðunum. Virtist Blair gefa í skyn í gær, að við þessari ósk yrði orðið en í Verkamannaflokknum er mikill kurr vegna málsins. Hafa kunnir þingmenn og stuðningsmenn innrásarinnar í Írak mótmælt mjög harðlega. Flest bresku blaðanna gagnrýndu þessa fyrirætlun í gær. Bresk kona í höndum mannræn- ingja í Írak Margaret Hassan London, Bagdad. AP, AFP. ♦♦♦ MIKIÐ moldrok hefur gengið yfir Suðurland und- anfarna tvo daga og telja starfsmenn Landgræðsl- unnar að veruleg landeyðing hafi orðið á hálendinu og í efri byggðum Suðurlands. Andrés Arnalds, fagmálastjóri Landgræðslunnar, líkir landeyðing- unni við náttúruhamfarir. „Þetta er líklega versta uppblástursveður sem komið hefur á sunnanverðu landinu um árabil, jafnvel verra en á uppblástursárunum 1991 til 1993 þegar oft var mikið moldrok,“ segir Andrés Arnalds. Samkvæmt þeim upplýsingum sem hann hafði síðdegis í gær var ástandið verst í Rangárvalla- sýslu og Vestur-Skaftafellssýslu. Sáu ekki til fjalla Sveinn Sigurjónsson, bóndi á Galtalæk II í Landsveit, sagði að í gærmorgun hefði hann ekki séð út afleggjarann að Galtalæk sem þýðir að skyggni hefur verið innan við 200 metrar. „Við sáum engin fjöll fyrr en núna fyrir stundu að það rofaði fyrir Skarðsfjalli,“ sagði Sveinn síðdegis í gær. Mikið eignatjón Mestur vindhraði sem mældist á landinu í gær var í Staðarsveit þar sem sjálfvirkur veðurmælir Vegagerðarinnar mældi 62 m/s í einni hviðunni. Mikið eignatjón hefur orðið í fárviðrinu. Í gær- morgun tóku grindur í gólfi brúarinnar yfir Núps- vötn á Skeiðarársandi að flettast af og gekk brúin í bylgjum. Þá flettist malbik af um 100 metra kafla á veginum um Fróðárheiði á Snæfellsnesi. Bílar og einkum bílrúður urðu fyrir barðinu á hnullungum sem tókust á loft og víða fuku þakplötur af húsum. Alvarlegasta atvikið varð undir Akrafjalli þegar rúta með 45 starfsmönnum Norðuráls fauk út af veginum og hafnaði á hvolfi. Yfir 40 manns leituðu sér aðstoðar á sjúkrahúsi en enginn slasaðist al- varlega. Eignatjón í fárviðri Líklega versta uppblástursveður um árabil  Veðurmælir mældi 62 m/s í einni hviðunni  Yfir 40 manns leituðu sér aðstoðar á sjúkrahúsi  Sjáum ekki til sólar/22 GÍFURLEG eyðilegging blasti við á bænum Knerri í Breiðuvík á Snæfellsnesi í gær eftir stórbrunann sem varð á mánudagskvöld. Hlaða, fjárhús og vélageymsla voru rústir einar og 6–700 lömb sem leiða átti til slátr- unar í dag, miðvikudag, lágu dauð í rústum fjárhúss- ins. Nokkur eldur logaði enn í heyi síðdegis í gær og mikinn reyk lagði frá hlöðunni. Eldsupptök eru til rannsóknar hjá lögreglunni á Snæfellsnesi en talið er að eldur hafi kviknað í hlöðu við fjárhúsið vegna hita frá heyi. Ábúandinn, Friðgeir Karlsson, býr einn á Knerri, en hafði komið sláturlömbum í hús með aðstoð vina sinna nokkru áður en eldurinn kviknaði. Kristín Erla Valdimarsdóttir, vinkona Friðgeirs, sagði eldinn hafa kviknað mjög snögglega, nánast eins og eldingu hefði slegið niður. „Þegar ég leit út um eldhúsgluggann sá ég alla hlöðuna í björtu báli,“ sagði hún. Þetta gerðist rétt eftir klukkan 19 og fór Friðgeir strax út til að kanna málið. Neistaflugið var gríðarlegt í rokinu sem geisaði og var óttast um íbúðarhúsið um tíma. Það slapp þó, en aðra sögu er að segja um útihús. Örfáum lömbum tókst að bjarga út úr fjárhúsinu og brenndust þau nokkuð. Litlu mátti muna að Friðgeir hlyti skaða af þegar hann var að bjarga lömbunum en á leið út úr fjárhúsinu magnaðist eldurinn af miklum krafti. Fljótlega varð ljóst að ekki yrði við neitt ráðið og áttu slökkviliðsmenn frá Ólafsvík og Snæfellsbæ við ramman reip að draga í fyrrinótt þar sem þeir börðust við eldinn í roki sem var allt að 50 metrum á sekúndu með járnplötur fjúkandi allt í kringum sig. Tugmilljóna króna tjón Tjón vegna eldsins hleypur á tugum milljóna króna að sögn lögreglu en eftir er að meta það til hlítar. Sumar þeirra véla sem eyðilögðust voru nýjar svo og innréttingar í fjárhúsinu. Að sögn lögreglu var búið ekki tryggt nema að litlum hluta. Guðjón Jóhannesson, bóndi á Syðri-Knarrartungu, næsta bæ við Knerri, sagði atburðarásina hafa verið mjög hraða en hann fór á vettvang til að hjálpa granna sínum. Sagði hann lömbin hafa verið hrædd enda hefði eldurinn breiðst hratt út. Fjártjónið er að öllum líkindum stærsta búfjártjón sem orðið hefur á íslensku fjárbýli til þessa./6 Líklega mesta búfjártjón sem orðið hefur á fjárbýli Morgunblaðið/RAX Enn logaði talsvert í glæðum fram eftir degi í gær og barst mikill reykur frá brennandi heyi sem var í hlöð- unni við fjárhúsið. Eldsupptök hafa verið tekin til rannsóknar hjá lögreglunni á Snæfellsnesi. „Þegar ég leit út um eldhúsgluggann sá ég alla hlöðuna í björtu báli“ FYRSTU prófanir hjá Íslenskri erfðagreiningu (ÍE) á nýju lyfi, DG031, sýna að það hefur marktæk áhrif á áhættu- þætti hjarta- áfalls og veldur almennt ekki aukaverkunum. Næsta skref er að prófa lyfið á 1.500 til 2.000 sjúklingum víða um heim. Kári Stefánsson, forstjóri ÍE, sagði á blaðamannafundi í gær að þetta væri stór áfangi. Fyrirtækið hefði byggt á þeirri forsendu að hægt væri að einangra erfðavísa og nota þá sem fyrsta skref til að þróa lyf. Þetta væri fyrsta dæmið um ár- angur af þeirri vinnu og í fyrsta skipti í heiminum sem menn hefðu tekið meingen erfðavísis og notað það til að setja saman lyf sem hefði farið í gegnum klínískar rannsóknir. „Fyrir okkur og þann iðnað sem við erum í er þetta mjög merkilegt skref,“ sagði hann. Talið er að tilraunir á lyfinu muni taka um tvö ár og munu viðræður við eftirlitsstofnanir úti í heimi hefj- ast fljótlega. Vonast er til að lyfið komi á markað á árunum 2007 til 2009. Hlutabréfaverð hækkaði Verð hlutabréfa í deCODE hækk- aði í kjölfar þessara fregna um 11,35% á Nasdaq-hlutabréfamark- aðnum. Lokaverð bréfanna var 7,36 dollarar í gær en hæst fór verðið í 7,70 yfir daginn. Fyrstu prófanir á nýju lyfi jákvæðar  Fyrsta lyfið/10 „Mjög merkilegt skref,“ segir Kári Stefánsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.