Tíminn - 04.05.1971, Blaðsíða 10
ÞRIÐJUDAGUR 4. maí 1971
! Hp-Reykjavík.
Valur sigraSi Víking í gærkveldi
í Reykjavíkurmótinu í knattspyrnu
1:0. Leikurinn var óhemju lélegur
og leiðinlegur í alla staði. Sann-
gjörn úrslit hefðu verið jafntefli,
en svo varð þó ekki, því um miðj
an síðari hálfleik komst Hermann
Gunnarsson inn í sendingu milli
varnarmanna Víkings og lyfti
knettinum yfir markvörðinn.
Það var það eina markverða,
sem gerðist í leiknum, fyrir utan
2—3 góðar markvörzlur Sigurðar
Dagssonar, í síðari hálflcik, og
mann Gurvnarsson, skoraði sigurmark
Vals t leiknum gegn Víkingi í gær-
kvöldi.
Tvíliðaleikur
Framhald af bls. 9.
um vel í geð, enda stóðu þeir
flestir með Skagamönnunum.
Þeim tókst að sigra í þessari
sögulegu lotu 18:17, en þeirri fyrri
lauk með sigri Viðars og Jóns
15:8, og þurfti því aukaleik. í
þeim leik sigruðu þeir Viðar og
Jón 15:10 og hlutu þar með ís-
landsmeistaratitilinn.
Mótherjar þeirra voru að von
um heldur óhressir yfir tapinu,
og kenndu m. a. um trufluninni,
sem Einar hafði valdið með því
að skipta sér af leiknum. Fauk
svo £ annan þeirra að hann ætlaði
að neita að leika aukaleikinn og
gekk út af vcllinum. En það tókst
þó loks að tala hann til og fá
hann til að leika úrslitalotuna.
Eftir að mótinu var lokið voru
menn enn að ræða þess upp-
gjöf Akurnesinganna, og sýndist
sitt hverjum um lögmæti hennar.
En þeir sögðust hafa lesið lögin,
og samkvæmt þeim væri þetta
fullkomlega löglegt. Þeir hafa
sjálfsagt rétt fyrir sér. En ætla
mætti að íslenzka þýðingin sé ekki
alveg fullkomin, þv£ ef þetta er
löglegt samkvæmt alþjóðareglum,
væri þetta örugglcga leikið erlend
is, og væri þá badmintonið held
ur lítið, því nær cngin vörn er
við þessu.
Þeir Hörður og Jóhannes kom
ust £ úrslit með þvi að sigra þá
Steinar Petersen og Harald Korne
Husson i undanúrslitum 15:12 —
15:10 en Steinar gat þá illa beitt
sér vegna tognunar. Þeir Viðar og
Jón komust i úrslit með því að
sigra þá Óskar Guðmundsson og
Friðleif Stefánsson, KR 17:15 —
15:7. Óskar og Friðleifur höfðu
fyrri lotuna í hendi sér, en þegar
Óskar var að gefa upp til að ná
15. punktinum var uppgjöfin
dæmd ólögleg, og eftir það fór
allt í baklás hjá þeim. Féllu þeim
ekki dómarnir í geð. En um það
voru þeir ekki einir af þeim sem
tóku þátt í þcssu móti. — klp.
látum við þetta nægja um þennan
heldur auma og leiðinlega leik.
Ný stjórn
stúdentaráðs
Hinn 6. apríl var kjörin stjórn
Stúdentaráðs Háskólans fyrir starfs
árið 1971—1972.
Stjórnina skipa eftirtaldir:
Formaður Gylfi Jónsson stud.
theol., varaform. Sigurmar K. Al-
bertsson stud. jur., gjaldkeri Árni
Ól. Lárusson stud. oecon., fulltr.
utanríkisnefndar Sigurður Sigur-
jónsson stud. jur., fulltr. hagsmuna
nefndar Árni Friðriksson stud. pol-
yt., fulltr. menntamálanefndar Sig-
urður Guðmundsson stud. med.
Forsetinn
Framhald af bls. 1.
í kvöld var haldin veizla
Ólafs konungs fyrir forsetahjón
in í konungshöllinni.
f ræðu sinni sagði konungur
inn m. a.: — Herra forseti, það
er mér mikil ánægja að óska
yður og konu yðar hjartanlega
velkomin £ þessa fyrstu opin
beru heimsókn til okkar lands.
ísland og Noregur heyra til
þeim flokki þjóða, sem kallast
norræn lönd. Norræn samvinna
hefur knýtt þessi lönd sterkari
böndum en nokkurn annan
þjóðahóp. Meira en þúsund ár
eru liðin síðan Ingólfur Arnar
son frá Fjalar í Noregi sigldi
til íslands og settist þar að. En
ísland og Noregur hafa ævin
lega haldið sambandi sin á
milli á þessu tímabili. JSiorska
þjóðin mun aldrei gleyma, að
norski herinn, sem dvaldist á
íslandi á erfiðleikatímum £
sögu lands vors naut í'slenzkrar
gestrisni. f áraraðir höfum við
haft ánægju af þvi að taka á
móti islenzkum stúdentum sam
timis þvi, sem norskir stúdent
ar, með veru sinni á ísl., hafa
fengið meiri skilning á sam-
eiginlegum bakgrunni sögu okk
ar. ísland er land með mjög
langa og sterka lýðræðishefð,
og íslendingar geta verið stolt
ir af því, að ekkert þjóðþing
getur sýnt fram á eins langan
aldur sem Alþingi, sem 1930
hélt upp á 1000 ára afmæli
sitt. ísland getur með réttu kall
ast sögueyjan, þv£ ekkert land
og engin þjóð getur sýnt fram á
jafn fjölskrúðugar og miklar
bókmenntir. íslendingasögurnar
eru verk, sem alltaf munu skipa
öndvegi £ heimsbókmenntunum.
Noregur hefur sérstaka ástæðu
til þess að hafa áhuga á, og
vera þakklátur fyrir bókmennta
starfsemi á íslandi, þv£ að mest
ur hluti elztu sögu Noregs er
skráður á sögueyjunni. fslenzka
þjóðin hefur byggt upp land
sitt á grunni hinnar miklu
sögu sinuar, og gert land sitt
að nútima iðnaðar- og velferð
arsamfélagi, og ísland tekur
virkan þátt £ samvinnu þjóð-
anna, t. d. f SÞ-NATO og i Norð
urlandaráði, svo nokkuð sé
nefnt. Það var okkur i Noregi
mikil ánægja, að Norðurlanda
ráð skyldi reysa Norræna hús-
ið í Reykjavík. Þetta hús er
þegar orðið miðpunktur i sam-
skiptum íslands og annarra
Norðurlanda, sér i lagi á menn
ingarsviðinu. Ég vona, að
heimsóknin til Noregs verði
þannig, að þið farið með góð-
ar minningar héðan, og ég
drekk slcál yðar, herra forseti
og frúar yðar, skál íslands, og
allrar íslenzku þjóðarinnar.
TlMINN
hafnaði hún í Tjörninni. Mótmæltu þeir með þessu núverandi iðnfræðslukerfi, en samkvæmt því er iðnnemum
gert að vinna langtimum saman hjá meisturum, sem rækja þetta uppfræðslustarf af misjafnlega mikilli sam-
vizkusemi. (Tímamynd Gunnar)
Firmakeppni
Framhald af bls. 11.
hefur mikið umtal bæði meðal
handknattlciksunnenda og einnig
i nokkrum dagblöðum að undan-
förnu.
Þeir sigruðu i úrslitakeppninni,
sem fram fór á sunnudagskvöld
ið, með þvi að sigra Kassagerðina
13:3, en á því sigruðu þeir i mót
inu á hagstæðari markatölu en
ísal, sem hafði sigrað Kassagerð
ina 9:5, en leik Breiðholts og fs-
al, sem var fyrsti leikur í úrslita
keppninni lauk með jafntefli 5:5.
Fjórða liðið í úrsiltakeppninni
var Lögreglan, sem sigraði Kassa
gerðina 9:1, en tapaði fyrir Breið-
holti h.f. 8:5 og fsal 13:10.
Lið Breiðholts var að mestu
skipað meistaraflokksmönnum úr
Víking, og einnig fyrrverandi leik
mönnum úr ÍR og Fram. En ísal
var skipað að mestu FH-ingum og
með þeim lék Hörður Kristinsson
úr Ármanni.
Þetta er í fyrsta sinn, sem Breið
holt sigrar i þessu móti, en í hin
tvö skiptin, sem það hefur farið
fram, hafa BP og fsal orðið sigur
vegarar.
Mótið var mjög vinsælt, en jafn
framt stormasamt. Margir leikir
voru kærðir og sumum fyrirtækj
um var meinuð þátttaka í því.
Sjálfsagt er að halda þessu móti
áfram, en þá væri rétt að HSÍ
eða HKRR hefði umsjón með þvi,
til að firra öllum vandræðum.
Litla bikarkeppnin
Framhald af bls. 11.
réttu máli. FH-ingar eru með ungt
lið og margir leikmenn þess
skemmtilegir. Breiðablik er einnig
með ungt lið, en öllu reynslu-
mcira og verður fróðlegt að fylgj
ast með því í 1. deildinni í sumar.
Dómari leiksins var Ragnar
Magnússon, og dæmdi hann vel
og örugglega — bókaði hann einn
leikmann.
Yfirvinnubann
Framhald af bls. 3.
yfirvinnubanns, er tryggi að ákvæði
7. gr. samnings félagsins við við-
semjendur um vinnu- og lokunar-
tíma sé virt gagnvart félagsmönn-
um.“
Margir fundarmenn tóku til máls
og lýstu eindregnum stuðningi við
tillöguna og aðgerðir félagsins í
málinu. Var tillagan samþykkt með
samhljóða atkvæðum.
(Frétt frá VR)
Einliðaleikur
Framhald ai bls b
ur Reynir gott úthald, en ekki
mikla tækni. Þegar staðan var
orðin 12:7 og 12:8 sló Reynir ör-
lítið af til að hvíla sig fyrir auka
leikinn, sem hann sá öruggan. En
þá náði Ilaraldur sér aftur á strik
og náði að jafna 12:12 og sigra
í lotunni 15:12 — og var það
glæsilega gert hjá honum.
í stuttu viðtali eftir sigurinn
sagði Haraldur að hann væri mjög
ánægður með hann, því þetta
væri í fyrsta skipti, sem hann
sigraði í meistaraflokki í einliða
leik í íslandsmóti. Hann sagðist
æfa 3—4 sinnum í viku tvo tíma
í senn. Það væri ekki nóg, því
hann þyrfti að fá meira úthald
og meiri kraft sérstaklega í fæt
urna, og væri hann nú að hugsa
um að byrja að æfa knattspyrnu
aftur, en það hefði hann gert með
yngri flokkunum hjá Val. í ,,A11
England-keppninni", sem hann
hefði tekið þátt í ásamt Steinari
Petersen, fyrir skömmu hefði
hann greinilega fundið hvar skór
inn kreppti að, í þessum efnum.
En sú keppni hefði verið sér mik
ill lærdómur.
„En þennan sigur og allt það
sem ég kann í badminton, á ég
samt að þakka Garðari Alfonssyni.
Hann hefur kennt mér frá því ég
var 14 ára gamall, og hann á heið
urínn af þessum sigri mínum“
sagði þessi ungi og bráðskemmti
legi leikmaður að lokum. — klp.
Á víðavangi
Framhald af bls. 3
mjög margbreytilegir hópar.
Þangað hafa safnazt saman
óánægjuöfl úr öllum flokkum
og það er stórkostlegt efamál,
að þcssi flokkur mundi til
lengdar verða samstarfshæfur
í ríkisstjórn a. m. k. er engan
dóm hægt að leggja á það,
fyrr en séð verður, hvort hann
fær yfirleitt þingmenn kosna
og þá hvaða menn það verða,
því að það skiptir megin máli.
Ekki þarf að hafa áhyggjur af
því, að menn eins og Hanni-
bal Valdimarsson og Björn
Jónsson yrðu eklci samstarfs-
hæfir í ríkisstjórn, en me'ri
áhyggjur eru bundnar við
ýmsa aðra forystumenn þess-
ara samtaka, sem hugsanlega
gætu lagt leið sína inn á Al-
þingi.“
Við þessa umsögn Styrmis
Gunnarssonar er óþarfi að
bæta löngu máli. Hún talar
skýru máli um þær vonir, sem
stjórnarflokkarnir binda við
það að eignast nýja, þjála
hækju, missi þeir meirihlutann
í kosningunum 13. júní — TK
Ulbricht
Framhald af 1. síðu.
ástæðum, en hann er 78 ára gam-
all.
Eftirmaður Ulbrichts sem aðal-
ritari er Erich Honecker, sem er
20 árum yngri. Honecker á sæti í
15 manna miðstjórn kommúnista-
flokksins.
Ulbricht heldur embætti for-
seta landsins, að sögn austur-
býzku fréttastofunnar, sem jafn-
framt skýrði frá því, að Honec-
ker hefði verið einróma kjörinn.
Ekki er talið. að mikil breyting
verði í stjórnmálum Austur-Þýzka
lands fyrst um sinn þótt Ulbricht
láti af embætti aðalritara, og er
talið, að hann muni sem forseti
flokk",ns hafa vcruleg áhrif enn
um sinn.