Fréttablaðið - 12.11.2004, Blaðsíða 20
1908-14 Páll Einarsson. Lögfræð-
ingur. Var sýslumaður nyrðra og
syðra og síðar bæjarfógeti og enn
síðar bæjarstjóri um skeið í Hafnar-
firði. Varð sýslumaður í Eyjafirði
og bæjarfógeti á Akureyri þegar
borgarstjórastörfunum lauk. Síðar
varð Páll hæstaréttardómari.
1914-33 Knud Zimsen. Verkfræð-
ingur. Var bæjarverkfræðingur
og stundaði athafna- og verk-
fræðistörf af ýmsu tagi áður,
meðfram og eftir borgarstjóratíð-
ina. Var mikilsvirkur í safnaðar-
starfi í borginni og stofnaði og
stýrði fyrsta sunnudagaskóla
KFUM í Reykjavík.
1933-35 Jón Þorláksson. Verk-
fræðingur. Rak verkfræðistofu og
byggingavöruverslun um árabil.
Var forsætis- og fjármálaráð-
herra áður en hann varð borgar-
stjóri. Var formaður Íhalds- og
síðar Sjálfstæðisflokksins. Einnig
skólastjóri Iðnskólans.
1935-40 Pétur Halldórsson. Hóf
laganám en hætti. Áður og sam-
hliða borgarstjórastarfinu átti
Pétur og rak bókaverslun Sigfús-
ar Eymundssonar. Hann sat líka á
þingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn.
1940-47 Bjarni Benediktsson.
Lögfræðingur. Bjarni var prófess-
or í lögum áður en hann varð
borgarstjóri. Síðar þingmaður
Sjálfstæðisflokks og ráðherra í
mörgum ráðuneytum, m.a. for-
sætisráðherra. Hann var líka for-
maður Sjálfstæðisflokksins og
ritstýrði Morgunblaðinu.
1947-59 Gunnar Thoroddsen. Lög-
fræðingur. Stundaði lögmanns-
störf, var prófessor við HÍ og
þingmaður Sjálfstæðisflokks. Eft-
ir borgarstjóratíðina varð Gunnar
ráðherra, m.a. forsætisráðherra,
sendiherra og hæstaréttardómari.
1959-60 Auður Auðuns. Lögfræð-
ingur. Fyrst kvenna til að ljúka lög-
fræðiprófi frá HÍ og stundaði
lögmannsstörf fram að borgar-
stjóratíð. Var borgarstjóri í tæpt ár
við hlið Geirs Hallgrímssonar. Var
kjörin á þing fyrir Sjálfstæðisflokk-
inn og varð dómsmálaráðherra.
1959-72 Geir Hallgrímsson. Lög-
fræðingur. Stundaði lögmennsku
og varð forstjóri H.Ben. Undir lok
borgarstjóratíðar sinnar var Geir
kjörinn á þing fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn og varð síðar forsætis-
og utanríkisráðherra. Seðlabanka-
stjóri undir lok starfsferilsins.
1972-78 Birgir Ísleifur Gunnars-
son. Lögfræðingur. Stundaði lög-
mennsku áður en hann varð
borgarstjóri. Að þeim ferli lokn-
um var Birgir kjörinn á þing fyrir
Sjálfstæðisflokkinn og varð síðar
menntamálaráðherra. Enn síðar
Seðlabankastjóri.
1978-82 Egill Skúli Ingibergsson.
Verkfræðingur. Vann ýmis verk-
fræðistörf fyrir raforkufyrirtæki
og var m.a. rafveitustjóri á Vest-
fjörðum. Stofnaði eigin verk-
fræðistofu og starfaði þar áður
og eftir að hann varð borgar-
stjóri.
1982-91 Davíð Oddsson. Lögfræð-
ingur. Vann lengst af hjá Sjúkra-
samlagi Reykjavíkur áður en
hann varð borgarstjóri. Var kjör-
inn á þing og varð forsætisráð-
herra og síðar utanríkisráðherra.
Davíð er formaður Sjálfstæðis-
flokksins.
1991-94 Markús Örn Antonsson.
Var fréttamaður, ritstjóri tíma-
rita, útvarpsstjóri og borgarfull-
trúi Sjálfstæðisflokksins áður
en hann varð borgarstjóri. Eftir
það varð Markús framkvæmda-
stjóri Útvarps og síðar útvarps-
stjóri á ný. Tók þátt í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins í Reykja-
vík fyrir þingkosningarnar
1995.
1994 Árni Sigfússon. Próf í opin-
berri stjórnsýslu. Var m.a.
frkvstj. Stjórnsýslufélags Íslands
og borgarfulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins. Tók við embætti hund-
rað dögum fyrir kosningarnar
1994. Síðar varð hann fram-
kvæmdastjóri Tæknivals og enn
síðar bæjarstjóri í Reykjanesbæ.
1994-2003 Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir. Sagnfræðingur. Var m.a.
borgarfulltrúi og þingkona
Kvennalista áður en hún varð
borgarstjóri. Lét af störfum til að
bjóða sig fram til Alþingis. Er
varaþingmaður í Reykjavík og
varaformaður Samfylkingarinnar.
2003-04 Þórólfur Árnason. Verk-
fræðingur. Var markaðsstjóri
Marels og Essó og framkvæmda-
stjóri Tals. Tók við embætti þegar
Ingibjörg Sólrún lét af störfum.
Framtíð hans er óljós.
2004- Steinunn Valdís Óskarsdótt-
ir. Sagnfræðingur. Formaður og
framkvæmdastjóri Stúdentaráðs.
Vann á Rannsóknarstofu í kvenna-
fræðum og Leiðbeiningastöð
heimilanna. Borgarfulltrúi
Reykjavíkurlistans frá 1994.
bjorn@frettabladid.is
20
HREINSUN Á JAKKAFÖTUM KOSTAR
1.716 KRÓNUR OG 25 AURA.
Um er að ræða meðalverð nokkurra efna-
lauga víðs vegar um land. Vírherðatré fylgir
með.
HVAÐ KOSTAR ÞAÐ?
„Mér líst vel á Steinunni Valdísi Óskars-
dóttur,“ segir Ragnar Þórðarson leigu-
bílstjóri aðspurður hvernig honum lítist
á nýja borgarstjórann í Reykjavík.
„Hún er búin að starfa í borgarmálum í
tíu ár og er þrælvön. Hún gengur að
þessu og það þarf ekkert að vera að
þjálfa hana upp í starfið.“
Um tíma var rætt um að Dagur B. Egg-
ertsson eða Stefán Jón Hafstein myndu
taka við borgarstjórastöðunni en Ragn-
ar segist ekki hafa viljað að annar hvor
þeirra hefði orðið borgarstjóri. Stein-
unn Valdís sé tilvalin í starfið.
„Ég held að hún muni standa sig vel í
þessu starfi. Ferill hennar sýnir það allt
frá því að hún var í Röskvu að hún
verður farsæll borgarstjóri. Mér sýnist
líka að hún muni leiða R-listann í
næstu kosningum.
Ragnar segist vera sáttur við að Þórólf-
ur Árnason hafi sagt af sér sem borgar-
stjóri.
„Mér finnst það vera góðs viti að mað-
urinn hafi áttað sig á stöðunni. Honum
var óvært að gegna þessu starfi. Þótt
hann sé ódæmdur maður þá sé ég
heldur ekki að hann eigi afturkvæmt í
pólitík. Fortíðin er það svakaleg hjá
honum.“
RAGNAR ÞÓRÐARSON
Líst vel á
Steinunni
NÝR BORGARSTJÓRI
SJÓNARHÓLL
Forráðamenn fyrirtækisins Vilko ehf. á
Blönduósi, sem eyðilagðist í eldsvoða í
lok síðasta mánaðar, eru að hefja fram-
leiðslu á nýjan leik. Þessa dagana er
verið að prufukeyra nýjar vélar og
standa vonir til að framleiðsla hefjist
strax eftir helgina. Tjónið nam tugum
milljóna króna. Grunur lék á að um
íkveikju hefði verið að ræða.
„Það fór allt fyrirtækið, þetta gjöreyði-
lagðist náttúrlega,“ sagði Daníel Árna-
son, stjórnarformaður Vilko ehf. „Við
höfum verið að koma okkur fyrir á nýj-
um stað, viða að okkur tækjum, hráefni
og umbúðum. Það kemur allt frá út-
löndum. Við höfum unnið hörðum
höndum að endurreisn fyrirtækisins og
þetta er að fara af stað aftur.“
Vilko ehf. stendur á gömlum grunni. Þar
eru framleiddar súpur og bökunar-
blöndur. Á næstu dögum tekur það til
starfa í nýju húsnæði, að Hnjúkabyggð
á Blönduósi.
„Við verðum að fara af stað með hæg-
virkari vinnslu en áður, en gæðin verða
í góðu lagi,“ sagði Daníel. „Við verðum
ekki búnir að tækjavæða okkur til fulls,
þegar framleiðslan hefst á nýjan leik,
en við reynum að vinna lengri daga.
Hjá okkur hafa unnið 5-6 manns, en
verða um 10 núna meðan verið er að
ljúka við tækjavæðinguna. Þetta er
gamalt og gróið fyrirtæki, sem er vel
kynnt. Ég vona að markaðurinn hafi
ekki gleymt okkur. Það er dýrt að
missa eitt hak úr tannhjólinu.“
Daníel sagði að það tæki einhverja
mánuði að koma fyrirtækinu í það horf
sem það var í áður en bruninn varð.
Trúlega yrði það ekki fyrr en einhvern
tíma í vetur sem framleiðslan yrði
komin í fullan gang.
- jss
Framleiðslan hefst aftur eftir helgi
EFTIRMÁL: STJÓRNARFORMAÐUR VILKO EHF. Á BLÖNDUÓSI
12. nóvember 2004 FÖSTUDAGUR
Steinunn Valdís XVI
Steinunn Valdís Óskarsdóttir verður sextándi borgarstjóri Reykjavíkur. Hún er þriðja konan
sem gegnir embættinu. Sjö lögfræðingar hafa verið borgarstjórar og senn tveir sagnfræðingar.
PÁLL EINARSSON
Fyrsti borgarstjóri Reykjavíkur.
STEINUNN VALDÍS ÓSKARSDÓTTIR
Næsti borgarstjóri Reykjavíkur.
BRJÓSTMYNDIR AF BORGARSTJÓRUM
Brjóstmyndir af átta fyrstu borgarstjórunum
prýða veggi Ráðhússins.
ENDURREISN
Verið er að endurreisa nýtt Vilko á nýjum
stað eftir að allar eigur fyrirtækisins gjör-
eyðilögðust í eldsvoða.
HLJÓMAR FRÁ KEFLAVÍK
1965:
Hljómar og
Steinunn
Steinunn Valdís Óskarsdóttir er
fædd sjöunda apríl 1965 og má
telja líklegt að fyrstu mánuðina
hafi tónlist Hljóma frá Keflavík
hljómað í eyrum hennar. Skömmu
áður kom nefnilega fyrsta breið-
skífa Hljómanna út með perlum á
borð við Þú og ég, Æsandi fögur,
Sveitapiltsins draumur og Hey,
hey, heyrðu mig góða. Enn eru
þau að, Steinunn Valdís og Hljóm-
arnir. - bþs
20-21 (24klst) 11.11.2004 19:58 Page 2