Morgunblaðið - 03.07.2010, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 03.07.2010, Blaðsíða 38
Berglind Björnsdóttir ljósmyndari hlaut fyrir stuttu styrk úr Minning- arsjóði Magnúsar Ólafssonar. Um- sækjendur voru 70 talsins og marg- ir með fleiri en eina umsókn. Berglind er menntuð sem ljósmynd- ari í Bandaríkjunum og lauk fyrir stuttu námi í hagnýtri menningar- miðlun við Háskóla Íslands. Hún hefur hlotið fjölda verðlauna og við- urkenninga hérlendis og erlendis, auk þess að hafa tekið þátt í á þriðja tug sýninga, ýmist einkasýninga eða samsýninga. Verkefni Berglindar sem styrkt er heitir Kona og er ætlað að fjalla um konur á öllum aldri, drauma þeirra og þrár. Í úthlutunarnefndinni voru Leifur Þorsteinsson ljósmyndari fyrir hönd afkomenda Magnúsar, Lárus Karl Ingason, formaður Ljósmyndara- félags Íslands, og María Karen Sig- urðardóttir, safnstjóri Ljós- myndasafns Reykjavíkur og formaður sjóðsstjórnar. Magnús Ólafsson (1862-1937) var einn helsti frumherji í ljósmyndun hér á landi og verk hans eru kjöl- festan í safneign Ljósmyndasafns Reykjavíkur. Afkomendur Magn- úsar stofnuðu sjóð til minningar um Magnús sem ætlað er að styrkja ljósmyndun á Íslandi sem listgrein og einungis ætlaður þeim sem vinna að ljósmyndun á Íslandi. Sjóðurinn var stofnaður árið 2000 og afhentur Ljósmyndasafni Reykjavíkur. Þetta er í fyrsta sinn sem úthlutað er úr sjóðnum, en ráðgert er að veita styrk úr honum þriðja hvert ár. Berglind fær styrk úr minningarsjóði Magnúsar Styrkur María Karen Sigurðardóttir, Berglind Björnsdóttir, Sigrún Tryggvadóttir, Magnús Karl Pétursson og Guðrún Tryggvadóttir.  Verkefni um konur á öllum aldri, drauma þeirra og þrár 38 MenningFRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 2010 Í dag kl. 16:00 opnar Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir sýningu í Gallerí Ágúst sem byggist á innsetningunni Painting Site. Innsetningin er stórt og mikið verk sem Ingunn Fjóla sýndi fyrst í Cuxhavener Kunstver- ein í Þýskalandi fyrir tveimur árum. Verkið er samsett úr fjöl- mörgum mannhæðarháum tré- plötum sem tengjast og mynda skilrúm og gönguleiðir á milli. Hver plata má segja að sé málverk í sjálfu sér en tengd saman mynda skilrúmin abstrakt heim sem áhorfandinn gengur inn í, nánast eins og völundarhús og undraheim. Myndlist Ingunn Fjóla sýnir í Gallerí Ágúst Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir Nú um helgina hefst 24. starfs- ár Sumartónleika við Mývatn. Fyrstu helgina verða tónleikar bæði í kirkjunum í Reykjahlíð og á Skútustöðum. Tónlistar- mennirnir Kolbeinn Bjarnason flautuleikari og Páll Eyjólfsson gítarleikari leika á hvorum tveggja tónleikunum, í kvöld kl. 21:00 í Reykjahlíðarkirkju og annað kvöld í Skútustaða- kirkju, einnig kl. 21:00. Sumartónleikar við Mývatn eru samstarfsverk- efni Félaga tónlistarmanna og hljómlistarmanna með styrk frá Tónlistarsjóði menningarmálaráðu- neytisins. Aðgangur er ókeypis en tónleikagestir geta stutt starfsemina með frjálsum framlögum. Tónlist Sumartónleikar við Mývatn hefjast Kolbeinn Bjarnason Leiðsögn verður um sum- arsýningar Gerðarsafns á morgun kl. 15:00. Á neðri hæð er sýningin Gerður og Gurdji- eff, sem vísar í það er Gerður Helgadóttir byrjaði að iðka hugrækt á sjötta áratugnum hjá nemanda armenska dul- spekingsins G.I. Gurdjieffs. Á sýningunni Lífshlaup Kjarvals og fleiri úrvalsverk í einkasafni Þorvaldar og Ingi- bjargar eru verk úr einkasafni Þorvaldar Guð- mundssonar og Ingibjargar Guðmundsdóttur. Guðbjörg Kristjánsdóttir, forstöðumaður safns- ins, gengur með gestum um sýningarnar og skýrir fyrir þeim það sem fyrir augu ber. Myndlist Leiðsögn um sumarsýningar Guðbjörg Kristjánsdóttir Breska skáldkonan Beryl Bain- bridge lést í gær á 76. aldursári. Hún var einn þekktasti rithöfundur Breta, hlaut tvívegis Whitbread- verðlaunin fyrir bestu skáldsöguna, 1977 og 1996, og var fimm sinnum tilnefnd til Booker-verðlaunanna, en fékk þau þó ekki. Beryl Bainbridge fæddist í Liver- pool 21. nóvember 1934. Hún átti í talsverðum erfiðleikum framan af, gifti sig snemma og varð síðan ein- stæð móðir þriggja barna og hún lýsti því sjálf að hún hefði reynt að svipta sig lífi 1958 með því að stinga höfðinu inn í gasofn. Bainbridge framfleytti sér sem leikkona, en tók síðan að skrifa skáldverk í frístundum. Fyrsta skáldsaga hennar, Harriet Said …, sem hún lauk við 1958, þótti of op- inská til að hægt væri að gefa hana út, en var loks gefin út 1972 og hlaut þá mikið lof. Það var ekki fyrr en með skáldsögunni The Dressmaker sem Bainbridge vakti fyrst athygli. Sú bók var tilnefnd til Booker-verðlaunanna og næsta bók einnig, The Bottle Factory Outing, sem kom út 1974 og hlaut Guardi- an-verðlaunin sem skáldverk árs- ins. Ljósmynd/Little, Brown Umdeild Beryl Bainbridge var af- kastamikill rithöfundur. Beryl Bain- bridge látin  Einn helsti rithöf- undur Bretlands Ásgerður Júlíusdóttir asgerdur@mbl.is Jón Örn Loðmfjörð er ungt og upp- rennandi ljóðskáld sem gaf nýverið út ljóðabókina Gengismunur á vegum Nýhil. Ljóðabókin er unnin með ákveðinni tækni upp úr skýrslu rann- sóknarnefndar Alþingis en í henni birtast ljóð sem tölva hefur unnið af handahófi og segir Jón Örn að hann hafi ákveðið láta tölvu vinna þetta í von um að skapa eitthvað skemmti- legt úr skýrslunni. „Ljóðin voru unnin þannig að það var tölva sem tók öll orðin úr skýrsl- unni og greinir þau í nafnorð, sagnorð o.s.frv. Síðan bjó ég til skapalón sem stæla íslenskan módernisma allt frá Tímanum og vatninu upp í nýrri verk. Svo lét ég tölvuna troða orðunum úr skýrslunni inn í þessi skapalón og að lokum valdi ég úr það sem mér þótti áhugavert. Úr varð þessi ljóðabók.“ Jón Örn segist hafa notað þessa tækni áður einungis til að aðstoða við sköpun en ekki unnið með þetta að svona miklu leyti eins og hann gerir nú. „Þarna geng ég bara út frá því konsepti að tölvan taki yfir og geri allt sem ég geri vanalega. Ég er mjög meðvitaður um það hvaða áhrif tæki hafa á mann og manns sköpun. Sem ljóðskáld nota ég tölvu mjög mikið og í staðinn fyrir að neita því að tölvan hafi áhrif þá læt ég hana bara alveg um ljóðið.“ Skýrsla rannsóknarnefndar Al- þingis er gríðarmikið verk sem Ís- lendingar biðu í ofvæni eftir fyrr á þessu ári en ljóðin eru alfarið unnin upp úr texta hennar. „Skýrslan er rosalega massíft verk og jafnvel heil- agt að einhverju leyti,“ segir Jón Örn en hann skapar úr skýrslunni lista- verk til að reyna að gefa fólki betri til- finningu fyrir henni. „Það er af- skaplega erfitt að skrifa um skýrsluna án þess að einhverjir lofi hana eða gagnrýni hana og ef maður gerir það þá hefur maður örugglega eitthvað óhreint á samviskunni. Mörg orðin sem notuð eru í skýrslunni eru mjög stór og flókin sem almenningur þorir jafnvel ekki að nota og í staðinn fyrir að taka þátt í umræðunni um skýrsluna á alvarlegan hátt þá ætti fólk bara að hafa gaman að henni og grínast með hana.“ Jón Örn segir að það hafi komið sér á óvart hverjir hafa sýnt ljóðabókinni áhuga „Jakkafatafólk og buisness- menn virðast hafa gaman af henni því þetta eru svo mikið orð sem tengjast viðskiptum og hagfræði en ætli þeim þyki bókin ekki sniðug af því þeir skilja orðin svo vel.“ Jón Örn segist ekki vera að flytja neinn boðskap né áróður um skýrslu rannsóknarnefnd- arinnar heldur sé þetta afrakstur til- raunar með tölvutækni. Tilraun Jón Örn Loðmfjörð vann ljóðabókina Gengismun upp úr skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Tilraunir með tölvutækni og ljóðaformið Eitt ljóðanna úr Gengismun ég ætla að staldra við óstöðuleikann við jöklabréfin verða milljarðar stöðvaðir undir lánanefndarfundi þar sem sumarið tekur skuldsetningu  Ljóð unnin úr rannsóknarskýrslunni Gosið í Eyjafjallajökli var mikið sjónarspil og sannkölluð veisla fyrir ljósmyndara og nú rekur hver ljós- myndabókin aðra með myndum frá gosinu í Eyjafjallajökli. Í vikunni gaf Salka út bókina Eldur uppi / Iceland on Fire eftir Vilhelm Gunnarsson. Bókin er í litlu broti og í henni ríf- lega hundrað myndir, sú fyrsta tekin 24. mars en sú síðasta 30. maí sl. Auk fjölda mynda af eldsumbrotunum sjálfum eru í bókinni margar myndir af íbúum á svæðinu sem sýna vel hvaða áhrif hamfarirnar höfðu á líf þeirra. Vilhelm hefur starfað sem ljós- myndari á Fréttablaðinu síðan 2003. Hann hefur helst lagt áherslu á frétta- og landslagsmyndir og mynd- ir hans hafa birst í dagblöðum, tíma- ritum og sjónvarpi víða um um heim. Hann hefur einnig tekið þátt í fjölda ljósmyndasýninga og hlotið við- urkenningar fyrir verk sín. Eldur uppi á bók  Ný ljósmyndabók Vilhelms Gunnarssonar Eldur Kápumyndin á Eldur uppi sýnir Skagfjörðsskála í Langadal í Þórsmörk. Þar sem testosteron á stóran þátt í frammistöðu íþróttamanna, hefur það löngum tíðkast að þjálfarar banni allt kynlíf kvöldið fyrir keppni. 44 »

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.