Morgunblaðið - 01.07.2011, Blaðsíða 1
F Ö S T U D A G U R 1. J Ú L Í 2 0 1 1
Stofnað 1913 152. tölublað 99. árgangur
SUND-
FATA-
TÍSKAN
RÉTTI
BÚNAÐURINN Í
ÚTIVISTINA
BJÖRK Í TÓN-
LEIKAFERÐALAG
UM HEIMINN
24 SÍÐNA AUKABLAÐ BIOPHILIA BJARKAR 39SKRÆPÓTT 10
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Undanfarin ár hefur fjölgað þeim
íslensku læknum sem velja sér að
búa og starfa erlendis. Við höfum
aldrei séð annað eins hlutfall og nú
þegar 617 læknar eru í útlöndum og
1.060 starfandi á Íslandi,“ segir
Birna Jónsdóttir, formaður Lækna-
félags Íslands, og bætir við að sumir
þeirra lækna sem skráðir eru starf-
andi í vinnu á Íslandi vinni hluta árs-
ins erlendis.
Birna segir Læknafélag Íslands
hafa mjög miklar áhyggjur af því
ástandi sem ríkt hefur hérlendis
undanfarin ár. „Fyrst og fremst eru
það yngri læknar sem ekki koma
heim að loknu sérnámi,“ segir Birna
og bætir við að það sé engin spurn-
ing að efnahagshruninu árið 2008 sé
um að kenna. „Ég veit persónulega
um fleiri lækna sem eru á leið úr
landi núna, sem eru miðaldra sér-
fræðingar, og þetta mun halda svona
áfram.“
Birna segir ómögulegt að snúa
þessari slæmu þróun við nema horfst
sé í augu við staðreyndir málsins og
kynntar áætlanir um aðgerðir. „Ís-
lenskir læknar gera þá kröfu að rík-
isstjórn og velferðarráðherra komi
fram með skýra áætlun um hvernig
þessari þróun skal snúið við,“ segir
Birna og bætir við að „það er á
ábyrgð framkvæmdavaldsins að sjá
til þess að gera samninga og ráða í
vinnu lækna til að sinna sjúkra-
tryggðum Íslendingum“.
Fundarbeiðnum ekki svarað
„Ég get ekki sagt þér hvað ég er
oft búin að biðja Guðbjart Hannes-
son velferðarráðherra að hitta mig á
fundi til að ræða áhyggjur Lækna-
félagsins,“ segir Birna. „Eitt sinn fór
ég á hans fund með dagsfyrirvara og
það var ágætis fundur. Eftir fundinn
sagði hann mikilvægt að hittast
reglulega og fara yfir málin.“ Mán-
uði síðar bað Birna um annan fund.
„Það var fyrir áramót, ég hef ekki
enn fengið þann fund.“
Þriðji hver læknir erlendis
Tölur frá Læknafélagi Íslands sýna að 617 íslenskir
læknar starfa erlendis Um 1.060 læknar á Íslandi
180
160
140
120
100
80
60
40
20
0
24-29
ára
30-34
ára
35-39
ára
40-44
ára
45-49
ára
50-54
ára
55-59
ára
60-64
ára
65-69
ára
Fjöldi lækna með íslenskt
lækningaleyfi sem starfa erlendis
Maí 2009
Mars 2010
Maí 2011
11 12 11
86
98
12
6
15
3 1
69 1
76
67
79
94
47 43
49 46 43 4
5 52
58 6
2
21 2
2 3
3
16 2
0 21
Hjólreiðafélag Reykjavíkur efndi til Heiðmerk-
uráskorunar á fjallahjóli, en hátt í 80 manns hjól-
uðu af stað í 24 km keppni klukkan 20 í veð-
urblíðunni í gærkvöldi. Keppt var í 24 km opnum
flokki karla og kvenna, 12 km opnum flokki
karla og kvenna og 12 km flokki stúlkna og pilta.
Einnig var keppt í krakkaþraut fyrir 8-13 ára
stelpur og stráka. Að auki gátu vinnuhópar tekið
þátt í 24 km keppni. mep@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Keppt á fjallahjólum í veðurblíðunni í Heiðmörk
Byggingarvörumarkaðurinn hefur
ekkert batnað síðustu misseri að því
er forstjórar tveggja stærstu bygg-
ingarvöruverslana landsins segja.
Sigurður Arnar Sigurðsson, for-
stjóri Húsasmiðjunnar, segir að
botninum sé ekki náð á byggingar-
vörumarkaðnum almennt og segir
skorta stórframkvæmdir hins opin-
bera og einkaaðila. Hann segir að
viðskiptavinirnir séu fleiri en við-
skipti minni og stærri sölur séu
horfnar. Óvissan um húsnæði hafi
minnkað hjá einstaklingum og fólk
því byrjað aftur að sinna viðhaldi
húseigna og huga að breytingum.
Einhverjir fjárfestar hafi keypt hús-
næði til að gera upp og selja en þetta
séu allt smærri sölur. Telur Sigurður
að nú sé komið að bönkunum að
leggja sitt af mörkum. Guðmundur
H. Jónsson, forstjóri BYKO, sér ekki
fyrir sér vöxt í þessum geira og að
leitað verði fleiri leiða til hagræðing-
ar.
MStóru sölurnar vantar »18
Botninum ekki náð
Forstjórar stærstu byggingarvöruverslana svartsýnir
Fleiri smærri sölur en allar stórar sölur horfnar
Morgunblaðið/Kristján
Unnið Dregið hefur úr byggingar-
framkvæmdum undanfarin ár.
Vinnubrögð
forsætisráðu-
neytisins við upp-
lýsingagjöf um
greiðslur ráðu-
neyta til starfs-
manna félags-
vísindasviðs
Háskóla Íslands
eru harðlega
gagnrýnd í nýrri
skýrslu Ríkisend-
urskoðunar. Skýrslan var unnin í
kjölfar beiðni Guðlaugs Þórs Þórð-
arsonar þingmanns. Hann taldi að
forsætisráðherra hefði áður gefið
Alþingi röng svör um sama efni.
Samkvæmt skýrslunni voru tals-
verðar fjárhæðir greiddar til félaga
í eigu starfsmanna félagsvísinda-
sviðs eða nærri 37 milljónir. Mestar
greiðslur fóru þó til Karls Axels-
sonar og lögmannsstofunnar LEX.
Heildargreiðslurnar skv. svari for-
sætisráðherra voru hins vegar 12
milljónir til Háskóla Íslands. »4
Vinnubrögð harð-
lega gagnrýnd
Guðlaugur Þór
Þórðarson
Alþingismenn
eiga yfir höfði sér
málshöfðun brjóti
þeir trúnað innan
nefndarstarfs,
samkvæmt nýjum
lögum um þing-
sköp. Áður var
aðeins hægt að
fara fram á trún-
að samkvæmt
lögum í utanrík-
ismálanefnd en treyst á drengskap-
arloforð í öðrum. Í nýju lögunum er
hins vegar þagnarskylduákvæði sem
gildir fyrir allar nefndir.
Ráðherra getur lagt fyrir þing-
nefnd upplýsingar en krafist þagn-
arskyldu. „Ef þingmaður myndi
brjóta hana yrði væntanlega höfðað
opinbert mál á hendur honum, með
leyfi þingsins,“ segir Helgi Bernód-
usson, skrifstofustjóri Alþingis. »20
Varðar við lög að
rjúfa þagnarskyldu
Helgi
Bernódusson