Bændablaðið - 01.09.1988, Blaðsíða 1

Bændablaðið - 01.09.1988, Blaðsíða 1
A INNFLUTNINGURINN AÐ DREPAÍSLENSKA GARDYRKJU Samkeppnisstaða innlendrar framleiðslu hefur versnaö meö tilkomu nýrra tollalaga. Garðyrkjubændur háðir geðþótta ráðherra hverju sinni Breytingar á tollalögum síðustu áramót hafa gert samkeppnisstöðu innlendrar framleiðslu við innflutn- ing erfiðari og hefðu áform stjórnvalda gengið óbreytt í gegn er óvíst hver staða garðyrkjunnar væri. Og eins og málum er háttað í búvörulögum ræðst staða allrar garðyrkju hvort sem er garðplöntuframleiðsla eða yl- rækt mjög af túlkun landbúnaðarráðherra. Ráðherra sem væri meira hlynntur kaupmönnum en garðyrkju- bændum gæti með einu pennastriki gengið að stórum hluta innlendrar framleiðslu dauðri. Þetta kemur með- al annars fram í athyglisverðri grein eftir Guðmund Vernharðsson garðyrkjumann inni í blaðinu. Guðmundur segir þar að garðyrkjumenn séu margir of öruggir um sína stöðu, þegar spurt er hvort þeir fái yfirhöfuð að framleiða fyrir innanlandsmarkað í fram- tíðinni. Ef ekki tekst að stöðva þá þróun sem hafin er með tollabreytingunni kemur að því að garðyrkjumenn sitja uppi með verðlausa menntun, verðlaus atvinnu- fyrirtæki og atvinnuleysi, — rétt eins og starfsbræður þeirra í Danmörku. Allir sem að garðyrkju vinna verða að stofna heildarsamtök og berjast í því stríði sem háð er í fjölmiðlum um almenningsálitið. Samdráttur i garðyrkju leiðir af sér aukinn viðskiptahalla og því verri lífskjör, verri stöðu landsbyggðarinnar gagnvart Reykjavík og verri vöru fyrir íslenska neytendur því innflutt grænmeti er mun lakari vara en íslenskt. BLAÐ UM LANDBÚNAÐAR- OG LANDSBYGGÐAMÁL 7. TBL. 2. ÁRG. SEPT. 1988 Stóðréttir í Hjaltadal. Laufskálarétt er mesta stóðrétt landsins og þangað flykkjast ekki einasta Skagfirðingar heldur eru þar hesta- menn af öllum lands- hornum sem skapar alveg sérstaka stemn- ingu. Kalt var í rétt- unum sem voru haldn- ar síðasta sunnudag en fjölmenni engu að síð- ur eins og þessi mynd ber með sér. Á mynd- inni sést meðai annarra Gestur í Skaftholti í Hreppum stjórna söng. FULLVIRÐISRETTURINN ER VAFASÖM EIGN! ... KRYDDHÆNUR VERPA KRYDDUÐUM EGGJUM „ALLTAF STEND EG UPPÁNÝ...1 Bls. 6

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/910

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.