blaðið - 19.10.2005, Blaðsíða 2
2 I INNLEIUDAR FRÉTTIR
MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 2005 blaAÍÖ
íslensk stúlka Rjúpnaveiði:
ff Skotveiðimenn ósáttir
Islandsmótið í Oþelló fer
fram 23. október kl. 12:00
í sal T.R. að Faxafeni12.
62 3050
Sautján ára íslensk stúlka var
í gær sýknuð af ákæru um að
hafa reynt að smygla kókaíni
til Bretlands. Hún sagðist
ekki hafa vitað að hún væri
að smygla eiturlyfjum, heldur
hélt hún að um peninga væri
að ræða. Hún var handtekin
á Waterloo lestarstöðinni
með um fjórðung úr kílói af
efninu í fórum sínum. Dóm-
arinn féllst á útskýringar
hennar og var hún látin laus. ■
Lyfjaverð
Trygginga-
stofnun hirð-
ir ágóðann
Innkaupsverð á lyfjum hefur
lækkað nokkuð á undanförn-
um mánuðum án þess að það
hafi skilað sér til neytenda.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu
sem Samtök verslunar og
þjónstu sendu frá sér í gær. I
yfirlýsingunni kemur fram að
rekja megi meginástæðuna
fyrir lækkun lyfja til sterkrar
stöðu íslensku krónunnar. Þar
segir einnig að vegna þess að
hlutur sjúklinga í lyfjaverði
sé yfirleitt í fastri krónutölu
samkvæmt reglugerð, fái hann
ekkert í sinn vasa af lækkun
lyfja heldur hirði Trygginga-
stofnun ríkisins allann ágóðann.
Sveitarfélög hafa víða auglýst hann við rjúpnaveiðum á ákveðnum svceðum. Formaður
Skotvís segir skotveiðimenn ósátta við að bönn séu sett á með stuttum fyrirvara ogán þess
að rœtt sé við hagsmunaaðila.
„Ég hef verið að heyra í mönnum
síðustu daga og viða heyrt óánægju-
raddir í sambandi við þessar lokanir
sem sveitarfélög hafa verið að setja
hér og þar,“ segir Sigmar B. Hauks-
son, formaður Skotvís. „Sveitarfélög-
in hafa verið að banna veiðarnar án
þess að hafa samráð við hagsmunaað-
ila, þar með talda landeigendur. Við
megum heldur ekki gleyma því að
fyrir ferðaþjónustuna á landsbyggð-
inni er þetta mikilvæg búbót á vet-
urna. Hver veiðimaður er kannski
að eyða að meðaltali 12 - 15. þúsund
krónum á sólarhring þegar allt er
tekið.“ Sigmar segir menn hafa orð-
ið fyrir óþægindum afvöldum þessa,
jafnt veiðimenn sem þjónustuaðil-
ar. „Það er til dæmis maður í Vest-
urbyggð sem er að auglýsa aðstöðu
fyrir rjúpnaveiðimenn, gistingu og
annað, og síðan auglýsir sveitarfélag-
ið veiðibann á svæðinu daginn eftir.
Þetta er auðvitað allt of seint í rass-
inn gripið því margir hafa verið bún-
ir að panta gistingu og aðstöðu."
Standast ekki lög?
Sigmar bætir við að sums staðar sé
það svo að veiðibönnin standist held-
ur ekki lög. „Ég tek dæmi af Húna-
þingi þar sem segir að bannað sé að
stunda veiðar í Víðidalstunguheiði
og Arnarvatnsheiði en það er bara
ekki rétt. Við höfum því verið að
skoða þessi mál með okkar lögfræð-
ingum en í sambandi við þessi tvö
Háskolatorg
f gær var tilkynnt um sigurvegara í samkeppni um tillögu og hönnun að nýju háskóla-
torgi. Það var hugmynd Ögmunds Skarphéðinssonar og Ingimundar Sveinssonar
ásamt fslenskum aðalverktökum sem þótti vera best. (umsögn dómnefndar segir að
vinningstillagan beri vott um þroskaða heildarmynd og að í henni sé unnið með fá og
einföld grunnform. Torginu er settur staður þar sem nú er bílastæði milli Lögbergs, Nýja
Garðs, Árnagarðs og Odda. Markmiðið með torginu er að vera staður þar sem fólk kem-
ur saman til að stunda nám, sinna erindum, nærast og eiga samskipti. Háskólatorg mun
einnig hýsa ýmsa starfsemi sem snýr að umsýslu og þjónustu við stúdenta og starfsfólk.
Þá verða þar einnig fyrirlestrasalir og kennslustofur. Áætlað er að hefja byggingafram-
kvæmdir um vorið 2006 og að þeim Ijúki í árslok 2007.
dæmi munum við einfaldlega hvetja
okkar félagsmenn til að fara þangað
til veiða. Þeir verða þá bara að kalla
til lögregluna og við munum bara
svara því i dómssölum. Ég vill þó
árétta það að menn hafa fullan rétt
á því að banna veiðar á eignarlönd-
um sínum og ekkert við því að segja,
en ég held að þarna hafi sveitarfélög-
in heldur farið offari. Það eru líka
dæmi um að sveitarfélögin hafi ver-
ið að setja bönn á löndum sem eru
á gráu svæði, þar sem vafi leikur á
hvort um eignarlönd sé að ræða.“
Mismunun
Sigmar segist einnig óhress með að
sveitarfélögin mismuni veiðimönn-
um. „Ég get tekið annað dæmi frá
Húnaþingi því þar er verið að mis-
muna fólki. Þeir veiðimenn sem
hafa lögheimili í Húnaþingi greiða
3.000 krónur fyrir veiðileyfi á með-
an utanbæjarmenn þurfa að borga
5.000 krónur. Okkur sýnist fljótt á
litið að það sé bannað að mismuna
fólki eftir búsetu alveg eins og það
er bannað að mismuna fólki eftir
kynferði eða hverju öðru. Þetta þyk-
ir okkur nokkuð alvarlegur hlutur
sem við látum ekki yfir okkur ganga
án þess að kanna málið vel.“ ■
Fjölmiðlalögin:
Geir brýtur þverpólitíska sátt
Yfirlýsing Geirs H. Haarde brýtur pólitíska sátt og er í mótsögn við yfir-
lýsingar Þorgerðar K. Gunnarsdóttur, varaformannsflokksins
Geir H. Haarde, nýkjörinn formaður
Sjálfstæðisflokksins, lýsti því yfir í
gær að hann teldi ekki æskilegt að
eignarhald eins ákveðins aðila í fjöl-
miðli færi yfir 25%. Geir sagði enn-
fremur í yfirlýsingu sinni að hann
teldi réttara að miðað væri við lægri
eignaraðild. Þessi yfirlýsing kemur
nokkuð á óvart þar sem hún er alveg
á skjön við þá þverpólitísku mála-
miðlun sem fjölmiðlanefndin hafði
komist að.
í mótsögn við varaformann
Lúðvík Bergvinsson, þingmaður Sam-
fylkingarinnar, segir þessa yfirlýs-
ingu koma mjög á óvart. Hann bendir
þó á að orð Geirs séu óljós og erfitt sé
að túlka nákvæmlega hvað hinn ný-
kjörni formaður eigi við. „Geir skýr-
ir ekkert hvað hann er að fara með
þessum orðum. Nýverið tókst sátta-
gjörð milli allra stjórnmálaflokka
og m.a. Sjálfstæðisflokksins. Það er
því athyglisvert að hans fyrstu skref
í formannssætinu skuli vera þau að
rjúfa pólitíska sátt. Þá hljóta menn
að spyrja hvort að það þjóni einhverj-
um tilgangi að reyna þverpólitískar
lendingar í málum.“ Lúðvík segir enn-
fremur að orð Geirs séu einkennileg
þegar höfð eru í huga orð nýkjörins
varaformanns Sjálfstæðisflokksins
um sögulega sátt í fjölmiðlamálinu.
„Hann er athyglisverður þessi mis-
munur á sjónarmiðum formanns og
varaformanns Sjálfstæðisflokksins.
Hvað varð um þessi ummæli Þorgerð-
ar um hina sögulegu sáttargerð. Er
einhver ágreiningur milli formanns
og varaformanns innan Sjálfstæðis-
flokksins?"
Ekki þörf á sérstökum lögum
Kristinn H. Gunnarsson, þingmað-
ur Framsóknarflokksins, segist ekki
vera sannfærður um að það þurfi
sérstakar reglur um eignarhald á fjöl-
miðlum yfir höfuð. „Vandi íslensku
fjölmiðlanna hefur verið að fá ein-
hvern til að leggja pening í þá og ef
við setjum svona reglur þá óttast ég
að við munum fæla peningamennina
frá því að eiga í fjölmiðlum.“ Kristinn
segist frekar vilja hafa fjölbreyttan
markað þar sem einstakir fjölmiðl-
ar hafi ákveðið yfirbragð frekar en
fáa fjölmiðla. Hann telur einnig að
ekki sé endilega þörf á sérstökum
fjölmiðlalögum. „Það þarf að sann-
færa mig um að það þurfi einhverj-
ar sérreglur um þá og ef það þarf þá
finnst mér ekki að þau eigi að lúta
að eignarhaldinu heldur frekar að rit-
stjórninni og fréttaflutningnum til
að tryggja einhverja almenna reglu í
þeim störfum." ■
(fj Heiöskfrt 0 Léttskýjað ^ Skýjað ^ Alskýjað
Rigning, lítilsháttar y/s. Rigning 9 9 Súld íjc'T* Snjókoma
9 *
*
Sjj Slydda \jj Snjóél yj
' Skúr
Amsterdam
Barcelona
Berlín
Chicago
Frankfurt
Hamborg
Helsinki
Kaupmannahöfn
London
Madrid
Mallorka
Montreal
New York
Orlando
Osló
Paris
Stokkhólmur
Þórshöfn
Vín
Algarve
Dublin
Glasgow
15
21
12
13
13
11
06
13
15
17
22
07
11
21
08
18
07
09
10
20
12
13
///
2° '/A
4°í//
'//
"í.
4°js>
///
4°
///
V'/A
y ///
'//
/ //
///
*0 8e
Veðurhorfur í dag kl: 18.00
Veðursíminn
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu íslands
*
*
Á morgun