Læknablaðið : fylgirit - 01.12.2002, Blaðsíða 106
I ÁGRIP VEGGSPJALDA / XI. VÍSINDARÁÐSTEFNA Hl
og getur þannig flýtt fyrir mælingum og dregið úr kostnaði sem
fylgir notkun dýrahimna.
V 153 Þróun HPLC-mæliaðferðar til að greina doxýcýklín
og niðurbrotsefni þess í vatnssæknu hlaupi og í sermi
Eysteinn Ingólfsson1.2, Skúli Skúlason12, Þórdís Kristmundsdóttiri
1 Lyfjafræðideild HÍ, 2Líf-Hlaup ehf.
skulis@hi.is
Inngangur: Nýlegar rannsóknir hafa sýnt að tetracýklínsýklalyfin
hafa ekki einungis sýkladrepandi áhrif, heldur einnig hemjandi áhrif
á ensímin matrix metallópróteinasa (MMP), en þessi verkun virtist
vera alveg óháð sýklahemjandi áhrifum lyfjanna. MMP eru ensím
sem gegna hlutverki í ónæmissvörun og bólgumyndun í líkamanum,
svo sem í munnangri og tannholdsbólgu. Tetracýklín, og þá sérstak-
lega hálfsamtengdu afbrigðin doxýcýklín og mínócýklín, safnast
upp í millifrumuvökva tannholds þannig að styrkur þeirra verður
mun hærri þar en í sermi. í ljós hefur komið að af tetracýklínlyfjun-
um hefur doxýcýklín mest hemjandi áhrif á MMP. Helstu markmið
þessa verkefnis er að þróa einfalda magngreiningaraðferð fyrir doxý-
cýklín og niðurbrotsefni þess í smáskammta doxýcýklin (SSD) hlaupi
svo og í sermi. Margar HPLC aðferðir hafa verið notaðar til að greina
doxýcýklín í lyfjaformum en flestar eru þær tímafrekar og flóknar,
sumar eru mjög dýrar og aðrar geta ekki greint á milli doxýcýklíns
og niðurbrotsefna þess.
Efniviður og aðferðir: SSD hlaup var magngreint hreint og í sermi
kinda með HPLC tækni og prófaðar voru mismunandi aðstæður og
gerðir súlna við greininguna.
Niðurstöður: Til að magngreina doxýcýklín og niðurbrotsefnin 6-epí-
doxýcýklín og metacýklín reyndist best að nota Phenomenex® Luna
5 p, Cg súlu með Phenomenex® C8 forsúlu, ferðafasi samanstóð af
acetonitril:vatni:perklórsýru (26:74:0,25) sem stillt var á pH 2,5 með 5
M natríumhýdroxíði, flæðihraði var 1,0 ml/mín og greint var með
U.V. gleypnimæli við 350 nm. Fyrstu niðurstöður benda til að þessa
aðferð megi einnig nota til að skilja að önnur tetracýklínafbrigði.
Alyktanir: Kostirnir við þessa greiningaraðferð fyrir doxýcýklín og
niðurbrotsefni þess eru að hún er áreiðanleg, einföld og ódýr, eink-
um í samanburði við aðferð Ph. Eur.
V 154 Flæðihraði sameinda gegnum einangraðar
lyktarþekjur úr nautum
Brynjar Örvarsson1, Sighvatur Sævar Ámason2, Davíð Ólafsson2, Jóhannes
Helgason3, Kristinn Johnsen3, Sigríður Ólafsdóttir3, Sveinbjörn Gizurarson13
'Lyfjafræðideild og 2Lífeðlisfræðistofnun HÍ, 3Lyfjaþróun hf.
brynjar.orvarsson@lyfogheilsa.is '
Inngangur: Aðgengi flestra lyfja inn í miðtaugakerfi er lítið eða
ekkert vegna takmarkaðs flæðis yfir blóð/heila þröskuldinn. Lykt-
arþekjan efst í nefholinu er einn sá staður líkamans þar sem frumur
miðtaugakerfisins eru í beinni snertingu við ytra umhverfi. Rann-
sóknir in vivo benda til þess að hægt sé að gefa lyf úr nefholi um
lyktarþekjuna inn í miðtaugakerfið. í þessari rannsókn var sett upp
in vitro kerfi til að mæla samband mólþunga og flæðihraða sameinda
yfir lyktarþekju úr nautgripum. Ennfremur voru notaðar raflífeðlis-
fræðilegar aðferðir til að meta lifun þekjunnar.
Efniviður og aðferðir: Lausnir af fjórum mismunandi lluorescein
isothiocyanate (FITC) merktum dextrönum (FD) með mólþunga á
bilinu 4 til 150 kDa, voru settar á holhlið einangraðra lyktarþekja
sem komið var fyrir í láréttum Ussing kerjum. Sýni voru tekin úr
móttökulausninni á blóðhlið þekjunnar og styrkur FD sem fall af
tíma ákvarðaður með mælingum á flúrljómun. Rafvirkni þekjanna
var mæld með spennuþvingunartækni bæði fyrir og eftir ásetningu
FD. Sértækir hindrar, ouabain (2 pM) og amílóríð (100 |xM), voru
notaðir til að meta tilvist og virkni Na+/K+-ATPasa og Na+-ganga.
Niðurstöður og ályktanir: Mælingar á rafvirkni þekjanna sýndi að
lifun lyktarþekja úr nautgripum í Ussing keri var að minnsta kosti
sex klukkustundir. Viðbrögð lyktarþekjanna við hindrunum sýndu
að þær hafa ouabain-næman Na+/K+-ATPasa á blóðhlið og amíl-
óríðnæm Na+-göng á holhlið þekjunnar. Allar stærðir af merktum
dextrönum sem prófaðar voru mældust í móttökulausninni en breyti-
leiki var mikill í flæðihraða innan hvers stærðarflokks. Flæðihraði
efnanna yfir himnuna minnkaði mikið með vaxandi mólþunga þann-
ig að merktar 4 kDa sameindir flæddu að meðaltali með 1,9 jxg/mín/
cm2, 20 kDa með 1,0 |xg/mín/cm2 og 150 kD með 0,1 jxg/mín/cm2
hraða gegnum himnur sem sýndu rafvirkni.
V 155 Einangrun anthrakínón afbrigðis úr klettaglæðu,
Xanthoria elegans
Kristín Ingúllsdúttir1, Anna Sif Paulson1, Höröur Kristinsson2
tLyfjafræðideild HÍ, 2Náttúrufræðistofnun fslands, Akureyrarsetur
kring@hi.is
Inngangur: Annars stigs efni (secondary metabolites) sem myndast
í fléttum gegna oft hlutverki varnarefna gegn örverum og skordýr-
um, enda vaxa fléttur hægt og við erfið skilyrði. I fyrri rannsóknum
hafa annars stigs efni úr flokki depsíða, trídepsíða, orsínól afbrigða,
depsídóna, alkylamíða og fitusýrulaktóna verið einangruð úr ís-
lenskum blaðfléttum (meðal annars fjallagrösum, dilaskóf, geita-
nafla) og runnfléttum (meðal annars grábreyskju, hreindýrakrók-
um) og hafa mörg þeirra sýnt áhugaverða lífvirkni, svo sem sýkla-
hemjandi-, veiruhemjandi-, lípoxýgenasahemjandi- og vaxtarhindr-
andi áhrif á illkynja frumur. Rannsóknir okkar hafa ekki áður
beinst að hrúðurfléttum eða fléttum eins og klettaglæðu (Xanthoria
elegans), sem er sterk-appelsínugul skóf sem vex á klettum og
steyptum veggjum.
Efniviður og aðferðir: Utdráttur var gerður á malaðri klettaglæðu
í Soxhlet búnaði. Útdrátturinn var þáttaður (fractionated) með
kíselgel-súluskiljun (súla A) þar sem ferðafasi var díklórmetan með
vaxandi styrk metanóls. Einn af þeim þáttum sem skilinn var á súlu
A var aðgreindur á annarri súlu (súlu B). Af súlu B greindist þáttur
sem innihélt hreint efni á formi appelsínugulra nála.
Niðurstöður: Kjarnarófsmælingar (1H NMR og 13C NMR) sýndu
að einangraða efnið var anthrakínón afbrigði (C16H12Os); 1,8-dí-
hydroxy-3-metyl-6-metoxy-9,10-anthracendíón, öðru nafni paríetín.
Alyktanir: Þetta er fyrsta efni úr flokki anthrakínóna sem einangrað
hefur verið úr íslenskri fléttu. Anthrakínón afbrigði eru mörg þekkt
sem litarefni en einnig vegna áhugaverðrar lífvirkni. Einangrun-
arferill sá sem hér var þróaður verður því notaður til að tryggja meira
magn paríetíns fyrir fjölþættar virknimælingar. Jafnframt er stefnt að
efnagreiningu annarra fléttutegunda glæðuættar (Teloschistaceae),
svo sem veggjaglæðu (X. parietina) og hellisglæðu (X. sorediata).
106 LÆKNABLAÐIÐ / FYLGIRIT 47 2002/88