Tíminn - 22.10.1964, Blaðsíða 12
Kynntu fsland
í Washlngton
JHM-Washington.
f SEPTEMBER-mánuði voru
hátt á fjórða hundrað kennara
frá um 70 löndum samankomnir í
Washington, þeirra á meðal fjórir
íslenzkir kenmarar, sem fóru vest
ur um haf á vegum Fuibr.-stofn-
unarinnar til þess að kynna sér
þar kennslumál og kennsluhætti
um nokkurra mánaða skeið.
Áður en kennaramir lögðu upp
þaðan og dreifðust til náms og
margvíslegra abhugana víðs vegar
um Bandaríkin efndu þeir til sýn
ingar til að kynna lönd sín og
þjóðir. Sýningin var haldin í for-
sal menntamálaráðuneytisins, þar
sem hver þjóð fékk sitt borð.
Sýningin vakti mikla athygli og
allan daginn, sem hún stóð yfir1
var látlaus straumur fólks fram
hjá borðunum, og þrátt fyrir það,
að þetta var engin heimssýning
voru þeir samt furðu margir, sem
stönzuðu við íslenzka borðið,
spurðu og virtu fyrir sér myndir
og_ muni.
íslenzku kennararnir, sem hlutu
styrk þetta ár til að kynna sér
skólamál vestan hafs og settu upp
þessa sýningu til landkynningar
eru taldir frá vinstri á myndinni
hér til hliðar: Þórarinn Guðmunds-
son kennari við Gagnfræðaskóla
Akureyrar, Magnús Jónsson, skóla
stjóri Gagnfræðaskóla verknáms í
Reykjavík, Pálmi Pétursson kenn
ari við Laugarnesskólann í Reykja
vík og Jón R. Hjálmarsson skóla-
stjóri Skógaskóla.
ÞJÓÐMINJASAFNINU AF-
HENTKR ÝSUVIKURKIRKJA
Hafnarfjarðarbær hefur af-
hent Þjóðminjasafni íslands
Krýsuvíkufkirkju ásamt kirkju-
garði og öðrum mannvirkjum
tilheyrandi staðnum, til fullrar
eignar og varðveizlu, ásamt
landspildu umhverfis Mrkj-
una, samtals að stærð rúm-
lega 7 þúsund fermetrar.
Eins og áður hefur komið
fram í fréttum, er forsaga
þessa máls sú, að 1954 heim-
ilaði Hafnarfjarðarbær Birni
Jóhannessyni, fyrrv. forseta
bæjarstjórnar Hafnarfjarðar,
að hann mætti, á sinn kostnað,
láta gera við hina gömlu Krýsu
víkurkirkju, sem þá var og
hafði lengi verið mjög niður-
nídd, en var hins vegar eina
búsið, sem uppistandandi var
og minnti á hið gamla höfuð-
ból.
Vorið 1964 var viðgerð kirkj-
unnar loMð, svo að hún var
aftur messufær, og var hún
vígð af biskupi hinn 31. maí.
Krýsuvíkurkirkja er talin
byggð 1857, timburkirkja, ein
föld í sniðum og látlaus, gott
sýnishorn hinna fábrotnu guðs-
húsa í afskekktari byggðum á
19. öld. Það er vel farið, að
henni hefur nú, fyrir fram-
tak og fómfýsi Björns Jó-
hannessonar og góðvilja og
skilning bæjaryfirvalda í Hafn-
arfirði, verið borgið frá eyði-
leggingu. Kirkjan stendur við
alfaraveg, sem mjög er tíðfar-
inn af Reykvíkingum og öðr-
um á sumrin, og liggur vel
við að nema staðar við kirkj-
una og svipast um á bæjarstæði
Krýsuvíkur, enda mun kirkjan
verða höfð opin á tilteknum
tímum þegar næsta sumar.
(Frétt frá Þjóðminjasafni).
Fulltrúar á ASI-þingiö
EJ-Reykjaví!k, 21. október.
Eftirfarandi félög hafa kjörið
fulltrúa sína á ASÍ-þingið, til við
bótar þeim, sem áður hafa verið
nefnd hér í blaðinu:
Verkalýðsfélag Austur-Eyjafjalla
hrepps: Aðalfulltrúi Sigurjón
Guðmundsson.
Félag Garðyrkjumanna: Aðal-
fulltr.: Steingrímur Benediktsson.
Félag jámiðnaðarmanna, fsa-
firði: Aðalfulltrúi Pétur Sigurðs-
spn.
Verkalýðs- og sjómannafélag
Hnífsdælinga: Aðalfulltrúi: Ben.
Friðriksson.
Bakarasveinafélag íslands: Að-
alfulltrúi Guðmundur Hersir.
Félag Flugvirkja: Aðalfulltrúi
Ingi Loftsson.
Verkalýðsfélag Hríseyjar: Aðal-
fulltrúi Sigurjón Kristinsson.
Verkamannafélag Borgarfjarð-
ar, Borgarfirði eystra: Aðalfulltrúi
Ingi Jónsson.
Verkalýðsfélag Grýtubakkahrepps,
Grenivík: Aðalfulltrúi Arthur Vil-
helmsson.
Verkakvennafélagið Orka, Rauf-
arhöfn: Aðalfulltrúi Kristín Har-
aldsdóttir.
Verkalýðsfélagið Baldur, fsa-
firði: Aðalfulltrúar Björgvin Sig-
hvatsson, Pétur Pétursson, Sverrir
Guðmundsson og Stefá.i Stefáns-
son.
Vélstjórafélag ísafjarðar. Aðal-
fulltrúi Hákon Bjarnason.
Siómanreafélag Isafjarðar: Aðal-
fulltrúar Jón H. Guðmundsson og
Bjami Hansson.
Verkalýðsfélag Þórshafnar: Að-
alfulltrúi Hreinn Ásgrímsson, en
til vara Trausti Guðmundsson.
Verkalýðs- og bílstjórafélagið
Samherjar, Austur-Skaft.: Aðal-
fulltrúi Árni Jónsson, en til vara
Marteinn Jóhannsson.
Formaður verzl.ráðsins
Á stjórnarfundi Verzlunarráðs
fslands 15. okt. var Þorvaldur Guð
mundsson, forstjóri, endurkjörinn
formaður Verzlunarráðsins, Egill
Guttormsson, stórkaupmaður, 1.
varaformaður og Gunnar J. Frið-
riksson, framkvæmdastjóri 2. vara
formaður.
Perusala Hons-
klúbbs Akraness
í kvöld, fimmtudaginn 22.
október, fara Lionsfélagar um
Akranesbæ og selja Ijósaperur.
Það er markmið Lionsmanna að
stuðla að því að færa sjúkum og
sárum birtu og yl. Perusalan er
þáttur í þeirri starfsemi. Með
því að kaupa ljósaperur Lions-
manna getum við auMð birtu
á heimilum okkar og í sálum hinna
sjúku. Allur ágóði rennur til á-
haldakaupa fyrir sjúkrahús Akra-
ness.
(Frá Lionsklubbi Akraness).
ASalfundur Kennarasam-
Siands Ausfurlands
Á aðalfundi Kennarasamb. Au.st-
urlands, sem haldinn var á Seyðis
firði 26. og 27. september var sam-
þykkt að beina þeim tilmælum
til menntamálaráðherra, að hann
gangist fyrir því, að landinu verði
skipt í fræðsluumdæmi með fast-
ráðnum fræðslustjóra, sem sé
búsettur í umdæminu, og í sam-
bandi við embætti hans verði kom
ið á sálfræðiþjónustu fyrir skóla
timdæmisins.
Einnig var þeirri ósk beint til
fræðslumálastjórnar, að hún sjái
um, að í hverju námsstjóraum-j
dæmi yerði fastráðinn kennari,!
sem hafi það hlutverk að leysa af j
kennara á svæðinu um stundarsak
ir á meðan þeir kynna sér nýjung
ar í starfsaðferðum annars staðar. j
Fundurinn beindi þeim tilmæl-
am til fræðsluyfirvaldanna, að
komið verði á fót heimavist við
iíagnfræðaskólann í Neskaupstað,
og verði hún stofnsett og rekin af
hinu opinbera. Þá var samþykkt
ályktun um að nauðsyn bæri til
að koma á vegabréfaskyldu, bæði
meðal æskufólks og alls almenn-
ings til þess að koma í veg fyrir
að unglingar innan 16 ára aldurs
sæktu samkomur, sem þeim væru
ekki ætlaðar.
Fundinn sóttu 24 kennarar og
skólastjórar af Austurlandi. en
gestir fundarins voru Skúli Þor-
steinsson námsstjóri og Jón Þórð-;
arson kennari úr Reykjavík.
Gantlir Núpsskólanemar !
á fundi i
Gamlir Núpsskólanemendur og
Vestfdrðingar komu saman til fund!
ar 9. október sl. og voru þá til í
umræðu tvö áhugamál þessa fólks,!
í fyrsta lagi að greiða fyrir áformi í
héraðssambands U.M.F. á Vest- j
fjörðum að steypa í eir brjóst- BékaSÍÖf
mynd af Birni heitnum Guðmunds
syni kennara og síðar skólastjóra
á Núpi og í öðru lagi að varðveita
í sinni upprunalegu mynd eftir
því sem hægt er gamla skólahús-
ið að Núpi.
Mikill áhugi var á báðum þess
um málum, og voru tvær nefndir
kosnar til að framfylgja þeim og
fjársöfnunarlistum vegna myndar-
innar dreift milli fundarmanna.
Eftirfarandi tillaga var flutt og
samþykkt á fundinum;
Fundur gamalla nemenda Núps-
skóla séra Sigtryggs Guðlaugsson-
ar og fl. — haldinn í Reykjavík
9. október, 1964 —skorar að gefnu
tilefni á alla viðkomandi ráðamenn
gamla skólahússins að Núpi að
varðveita það framvegis sem skóla
safn eða á annan hátt —og veita
húsinu á allan hátt þá umhirðu,
sem það verðskuldar Tjá mættir
Núpsskólanemendur sig reiðubúna
til samstarfs um þetta verkefni, og
heita liðsinni sínu sem einstakl
ingar eða félagsmenn væntanlegs
sambands síns
Hinn 6. okt. s.l. barst borgar-
I stjóranum í Reykjavík bréf frá
! ambassador Sambandslýðveldisins
i Þýzkalands Hans R. Hirschfeld,
' þar sem hann tilkynnir, að utan
; ríkisráðuneytið í Bonn hafi ákveð
j ið að gefa Borgarsjúkrahúsinu
bækur um læknisfr. til afnota við
! sjúkrahúsið, en í gjöfinni eru rúm
I lega 170 bækur og meiri háttar
I ritverk.
j Formaður byggingarnefndar
; Borgarsjúkrahússins Sigurður Sig-
j urðsson, landlæknir og formaður
Sjúkrahúsnefndar Reykjavíkur,
Jón Sigurðsson borgarlæknir hafa
látið í ljós ánægju með bókagjöf-
ina og telja, að hún geti orðið góð
ur grundyöllur að safni fagbóka
við sjúkrahúsið.
Borgarstjórinn í Reykjavík hef
ur þakkað gjöfina og þann mikla
yinarhug, sem að baM býr
Aóalfundur Bakara-
meistara
Aðalfundur Landssambandsj
bakarameistara var haldinn í
Reykjavík dagana 9. og 10. okt. sl.
Mættir voru fulltrúar flestra brauð
gerðarhúsa 'á landinu.
Mörg mál voru rædd og sam-
þykktir gerðar. Fundurinn fagn
aði tilkomu hins nýja fagskóla
bakara við Iðnskólann í Reykjavík
Fundurinn lýsti ánægju og stuðn-
ingi við þá tillögu, _sem samþykkt
var á 26. Iðnþingi íslendinga, um
afnám verðlagsákvæða af iðnaðar
vörum. Samþykkt var áskorun til
Landssambands iðnaðarmanna að
fylgja tillögunni bæði fljótt og
fast eftir.
Forseti Norræna tón-
skáldaráðsins.
Á fundi Norræna tónskáldaráðs-
ins; sem haidinn var i sambandi
við norrænu tónlistarhátíðina i
Helsingfors í byrjun þessa mánað
ar, var Jón Leifs, tónskáld. kjörinn
forseti ráðsins fyrir næstu työ ár
(jyrirhugað er að næst verði
haldin norræn tónlistarhátíð í
Reykjavík á árinu 1966.
Frá Tónskáldafélagi íslands.