Morgunblaðið - 28.06.1925, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 28.06.1925, Blaðsíða 8
 iORGUNBLAÐIÐ K 8 II D Í ð Mackiniosh’s Stærstu pappirsf rsmleiðendur á Norðurlöndum Onion Paper Co„ Ltd. Osló Afgreiða pantanir, hvort heldur beint erlendis frá eða af fyrir- ■ liggjandi birgðum í Reykjavík. Einkasali á íslandi. Gairðar Gislason. Linoleum -góiföúkar. ,Miklar birgðir nýkomnar. — Lægsta verð i bænum. Jónaf^n Þorsteinsson riírai 8 6 4. liina Sæmundsen. - VI ðtal. — Hingað kom með íslandi um •daginn ungfrú Nína Sæmundsen. Ætlar hún að vera hjer á landi fram eftir sumri hjá skyldfólki sínu hjer í bænum og austur í Pljótshlíð. Nína Sæmundsen er nú þjóð- kunn orðin af umtali því og eftir- tekt þeirri, sem list hennar hefir vakið. Mbl. hitti hana að máli hjer á dögunum til þess að spyrja hana um næstu fyrirætlanir hennar. — Því miður get jeg ekki dval- ið hjer nema stutta stund í þetta sinn, segir ungfrúin, því jeg þarf af. Ijúka við mynd eina, sem jeg liefi í smíðum og hefi unnið að S Höfn undanfarna mánuði. Hana ætla jeg að senda á Parísarsýn- itíguna í sumar. — „Móðurást“ yðar var sýnd þar í fyrra. — Svo var, segir Nína, og það sem meira var, hún aflaði mjer sjálfdæmis á sýningunni framveg- is. Jeg vissi ekki hvaðan á mig stóð veðrið. Aldrei hefði mjer komið það til hugar. Jeg var í París meðan sýningin stóð yfír. Mynd mín fjekk ágætt pláss á sýningunni. Hverjum jeg átti það að þakka, hafði jeg enga hug- raynd um. Eitt sinn var jeg stödd inni í veitingahúsi með nokkrum kunn- ingjum mínum. J?á kemur til okk- ar blaðamaður, sem jeg þektideili á, sem segir mjer, að jeg hafi hlotið þann heiður að mega fram- vegis senda á sýninguna, án þess að sýningarnefndin úrskurðaði hvort sýnt verði. („Uden Cen- sur.“) Og nú hafa verið gerðar ráð- stafanir til þess að mynd þessi verði keypt hjer. Já, mjer þykir vænt um það, að einmitt þessi mynd mín verði hjer heima, vegna þess hve mikla viðurkenningu hún hefir fengið — og hve mikillar viðurkenningar hún hefir aflað mjer. Jeg kom með bronsisteypumyndina hingað með mjer. Rjetturinn til þess að hafa sjálf- dæmi til Parísarsýningarinnar fæst með þeim hætti sem hjer segir. Fjöldi listamanna og list- dómenda hafa atkvæðisrjett um það. hvaða myndir sýni nægilegan listaþroska til þess að höfundur sje þess verður að fá frjálsan aðgang að sýningunni. Um leið og þessir atkvæðisbæru menn ganga um þessa miklu og fjöl- skrúðugu sýningu, leggja þeir seðla við myndir þær, er þeir telja bestar. Pær myndir, sem flesta atkvæðaseðla fá afla höfundinum sjálfdæmis. Myndin sem Nína ætlar að senda til Parísar í sumar táknar Kleopötru á banastundinni með eiturnöðruna sjer við hlið. — Og hvert liggur leið yðar, er þjer hafið Wkið við þessa næstu Parísarmynd 1 — pað er óráðið enn. Margir hafa ráðlagt mjer að fara til Ame- ríku. Ekki þó til að læra, eins og gefur að skilja, því þar er ekki um auðugan garð að gresja í þeim efnum. Aftur á móti vænlegra t'l fjár. Maður getur ekki haldið *•- fram sífelt að lifa á snöpum og góðvild manna. Og ekki get jeg' Höggmynd Nínu Sæmundsen „Móðurást,“ sem var á Parísar- sýningunni 'í fyrra, og hingað verður keypt fyrir kr. 9000. Átta frönsk blöð gátu sjerstaJklega um mynd þessa í greinum um hina miklu sýningu. Kennari Nínu við Akademíið í Höfn, Utzon-Frank ákvað fyrir hvaða verð hún Ijeti myndina fala. Bronsi-afsteypan, sem hingað er komin, kostar Nínu um 3000 krónur. Botnfarfi á trje- og« járnskip, sem margra ára reynsla hefir sannað, að er sá besti fá- anlegi, fæst nú hvergi eins ódýr og hjá Slippfjelaglnu í Reykjavík. Vigfús Guðbrandsson klæöskeri. flðalstræti 8' Ávalt byrgur af fata. og frakkaefnum.Altaf ný efni með hverri f’erB. AV. Saumastofunni er lokað kl. 4 e. m. alla laugardaga. vænst þess, að landið kaupi öll mín verk. — Pjer hafið farið æði víða á undanförnum árum. — Nokkuð víða hefi jeg farið. Hefi verið á sífeldu flakki undan- farin ár. Dvalið langvistum suður í Sviss og ítalíu. Farið mikið um Sikiley. Um tíma var jeg í Tunis. par er, einkennilegast allra staða, sem jeg hefi sjeð. par syðra finn- ur maður fyrst fyrir alvöru að lífið er alt með öðrum svip en maður á að venjast á Norður- löndum. par fórum við eitt sinn tvær með fylgdarmann suður í eyðimörku. þar fann jeg Araba- konuná, sem jeg mótaði og sýnd var í Charlottenburg. Talið berst að íslenskri list og skilyrðum hennar. Tíu ár eru liðin síðan Nína byrjaði á listabraut sinni. Síðari árin hefir hún barist við þröng kjör og vanheilsn, sem nú er sem betur fer að batna. En þrátt fyrir það alt finst henni líf sitt líkjast æfintýri á margan hátt. Og er það ekki æfintýri líkt, að íslensk sveitastúlka skuli á til- tölulega skömmum tíma hafa unn- ið sjer sjálfdæmi á sýningunni heimskunnu suður í París. Vjer óákum henni til hamingju með æfintýrið, sem byrjaði við smalamensku austur í Fljótshlíð. LAUSA VÍSUR. ■ Jónas í Hróarsdal orti í róðri úti á Skagafirði, í aftureldingu: Veiði-tólin ólmast öll, er á hjólum lýður. Boðar sól á Fljóta-fjöll, í felur njóla skríður. Sami maður var að vorlagi í harðindum í matarþröng. Var ís á Hjeraðsvötnum og tíð hörð. — Kvað þá Jónas: Bágt á jeg með barna-kind, bjargarsmátt er hreysi. Sendi Drottinn sunnanvind, svo að vötnin leysi. Sagt er, að stuttu síðar hafi komið hláka, Vötnin leyst, og Jó- nas náð í silung. Ein af allra síðustu vísum Jóns Ásgeirssonar, pingeyrum, kveðin á Blöndnósi, er hann reið þaðan síðast: Veröld þjál ei við mig er. vekur sálarþrautir; ferðir strjálast fyrir mjer Fróns um hálar brautir. is ávalt fyrirliggjandi, Fæst einnig hjá Rósenberg Aðalumboðsmenn: I. Brynjólfsson & Kvaran. Ódýpar vörnr Bollapör, postulín frá 0,65. —* Diskar frá 0,50. — Könnur frá 0,65. — Munnhörpur frá 0,25. —1 Speglar frá 0,25. — Dúkkur frá 0,45. Dömuveski frá 2,90. Úrfest- ar 0,75. — Rakvjelar 2,75. — Rak- vjelablöð 0,20. — Manchetthnappa 6,75. — Hárgreiður 0,85. — Höf- uðkamba 0,50. — Rafmagnsstrau- járn 10,00. II. Eim * ÍFIISSl. Bankastræti 11. Sími 915» Veröld svona veltir sjer, vafin dularfjöðrum, hún var kona hverflynd mjer, hvað sem hún reynist öðrum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.