Morgunblaðið - 02.06.1964, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 02.06.1964, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐID Þriðjudagtrr 2. juní 1964 byggja Flugvöllinn á að á Álftanesi — verði hann á annað borð fluttur frá Reykjavík, segir Agnar Kofoed Hansen — Þörf aukinna fjárveitinga til flugmála „REYKJAVÍKURFLUGVÖLL- UR er fyrst og fremst málefni borerarstjórnar Reykjavíkur og borgarstjóra, og enginn getur þvingað þá aðila til þess að hafa flugvöllinn hér, ef þeir ekki vilja. Ef til þe9s skyldi koma, að Reykjavíkurborg vildi ekki hafa flugvöllinn á núverandi stað, nema um t.d. ákveðið árabil, þá er óhjákvæmilegt að nú þegar verði gerðar ráðstafanir til þess að hægt verði að byggja hann annars staðar, m.a. með því að tryggja honum þegar landrými. Allir þeir sérfræðingar, sem um þessi mál hafa fjallað, telja að flugvöllinn beri þá að staðsetja á Álftanesi, og ég held mig við álit sérfræðinganna", sagði Agn- ar Kofoed-Hansen, flugmála- stjóri, á rabbfundi með blaða- mönnum í gær. Flugmálastjóri hefur haft þann sið að eiga fund með blaða mönnum á nokkurra ára fresti, ræða þar ýmsa þætti flugmála og svara fyrirspurnum. f gær bar aðallega á góma málefni Reykja- víkur'lugvallar, svo og fjárveit- ing cil flugmála, sem flugmála- •'' .1 telur langtum of litla, og ii iðsyn á að hún verði þreföld- uð, auk þess sem flugmálastjóm- inni verði gefinn kostur á er- lendu láni til þess að ljúka brýn- ustu verkefnum hérlendis á fimm árum eða svo, en flugvellir úti á landi byggju við íþröngan kost í öryggismálum og yfirleitt öllum málum eins og kunnugt er. Álftanesflugvöllur. í upphafi fundarins í gser ræddi flugmálastjóri um Reykja víkurflugvöll. Hann kvaðst viija taka það fram, að framtíð Reykja víkurflugvallar væri algjörlega í höndum borgarstjóra og borgar- stjórnar. Ef þessir aðilar vildu ekki hafa völlinn, þar sem hann er nú, væri ekki hægt að þvinga þá til þess að sætta sig við hann. Ef svo færi, að flugvöllinn fengi að vera hér um ákveðið árabil, en yrði síðan að fara, þá væri orðið mjög aðkallandi að sjá hon um nú þegar fyrir nægilegu land rými. Vísaði fl ugmólastjóri í þessu sambandi til svonefndrar Helmanns-skýrslu um flugvallar málin hér, en Helmann þessi kom hingað frá Aiþjóða flugmálastofn uninni, til þess að kynna sér þau mál. Agnar sagði, að Hehnann, svo Og allir sérfræðingar, sem um þessi mál hafa fjallað, og þeir væru ekki fáir, teldi að ekki kæmi til mála að flytja innan- landsflugið til Keflavíkurflugvall ar. Þessa skoðun hefði flugmála- réðherra einnig. Hins vegar væri því ekki að neita, að óvissan um Reykjavíkurflugvöll hefði lam- andi áhrif á starfsemi flugtfélag- anna. „Nú er svo komið“, sagði Agn- ar, „að Loftleiðir ílytja sitt flug til Keflavíkur 1. júlí, og er það fagnaðarefni fyrir þá, sem orðið hatfa fyrir ónæði atf rekstri tfélags ins. Fimm DC0B flugvélar Loft- leiða hafa verið á stöðugri ferð um Reykjavíkurflugvöll nótt og dag, en af þessu hefur stafað mik ill hávaði. Nú ætti það að lagast, og raunar erum við þakklátir fólki, sem fyrir ónæði hefur orð- ið til þessa, fyrir að það hetfur ekki kvartað meira en raun ber vitni“. Þá minntist flugmálastjóri einn ig á að borið hefði við að menn töluðu um að nota hinn núver- andi Reykjavíkurtflugvöll fyrir innanlandsflug eingöngu. Um það afcriði sagði flugmálastjóri, að í __é Ein myndanna á uppboðinu: Vorgleði eftir Svavar Guðnason. Málverkauppboö Á MORGUN kl. 5 e.h. hefst mál verkauppboð í Súlnasalnum á Hótel Sögu. ið, að þetta sé mynd af Kvenna brekkukirkju, en þó er það ekki víst. — Sjósl/siri Framh. af bls. 1 þeim hætti að hafa síldamót á bátapalli, að skipunum verði breytt þannig, að síldarnót verði höfð á aðalþilfari til hliðar við eða fyrir aftan þilfarshús, að eig andi skipsins láti gera fullkomna stöðugleikaútreikninga á því og sanni þannig, að það sé ekki ó- stöðugra en áður en það tók upp þessar veiðar. 7. Rætt hefur verið um þann möguleika, að skip undir 150 brl. verði ekki byggð .með bátapalli fyrir nót, heldur hafi hana á aðal þilfari og kraffcblökk þá að sama skapi neðar á skipinu. 8. Nefndin telur athugandi, hvort ekki sé rétt að takmarka stærð veiðarfæra, tækja og búnaðar skipa við stærð þeirra. 9. Rætt hefur verið, hvort ekki sé ástæða til að athuga einnig stærð og þyngd veiðarfætfa síld- veiðiskipa, sem nótina hafa á aðalþilfari en ekki á bátapalli, og stöðugleika þeirra við þessar veiðar. 10. Til tals hefur komið hjá nefndinni að banna alveg að nota hillur í lest á síldveiðum. Einnig að stillt sé upp stíum í allri lest síldveiðiskipa, þar sem fram hef- ur komið að misbrestur sé á því. 11. Nefndin hefur rætt, að upp stilling á þilfari og upphækkun á skjólborðum fiskiskipa verði lækkuð og lensport verði höfð opin og í lagi. 12. Rætt hefur verið, hvort ekki sé rétt að botngeymar verði engir fyrir kjölfestu, heldur verði hún steypt í lestarbotn og á öðr- um hentugum stöðum, svo hún verði ekki fjarlægð á auðveldan hátt. 18. Komið hefur í Ijós við at- hugun á rannsóknum sjóslysa al- mennt, að sum þeirra hafa orsak- azt af reynsluleysi, þekkingar- leysi eða vanmati skipstjórnar- manna eða skipverja á aðstæð- um. Án efa hefði mátt afstýra mörgum sjóslysum með skynsam legum og sjálfsögðum ráðstöfun um skipverja sjálfra. Greinilegt er, að mjög skortir á, að skip- stjórnarmenn margir hverjir hatfi nægilega þekkingu óg reynslu, og þekking fjölda þeirra á stöðug leikalögmálum skipa er svo til engin. Af þessu hefur leitt, að hleðsluástandi sumra skipanna hefur verið mjög áfátt. Reyndur og góður skipstjóri getur af hreyf ingum skipsins oft dæmt furðu vel um stöðugleikaástand þess, og þá gert ráðstafanir sem að gagni mega koma, annað hvort með viðbótarballest vegna veiðar færa eða annars, eða þá með breyttri hleðslu skipsins. 14. Nefndarmenn eru sammála um, að æskilegt væri, að kjöl- festa fiskiskipa verði ákveðin á tæknilegan hátt með útreikning- um. Skipstjórnarmenn eru ein- dregið hvattir til að ganga ekki of skammt að þvi er varðar kjöl- festu skipa sinna og leita til skipa eftirlitsins, ef gerðar eru þær breytingar á skipi, sem kjölfestu röskun getur valdið. 15. Nefndarmönnum er ljóst, að hleðsla síldveiðiskipanna er nátengd öryggi þeirra. íslending- ar hafa hins vegar í marga ára- tugi ofhlaðið siíldarskip sín, án þess að verða fyrir miklum skakkaföllum af þeim sökuip, þar til nú á síðustu árum er snögg umskipti verða. Skilningur manna virðist hatfa aukizt á því að setja verði hleðslu skipanna einhver takmörk. Hér er þó við ramman reip að draga vegna hinnar löngu venju og þar sem um stórt fjárhagslegt atriði er að ræða bæði fyrir sjómenn og útvegsmenn. viðurkenna yrði það sem stað- reynd, að flugvélar atf gerðinni DC-3, DC-4, DC-6 og Viscount, hefðu verið notaðar jötfnum hönd um í innanlands- og millilanda- flugi. Væri ekki goðgá að ætla, að slík yrði þróunin í framtíð- inni að vélar væru þannig not- aðar, þótt skipt væri um tegund ir. Væri því ekki hægt að ein- skorða afnot Flugfélags íslands af Reykjavíkurflugvelli við inn- anlandsflugið eitt, því að félagið hlyti að reyna að nýta vélar sín- ar sem bezt. „Eigi hins vegar að leggja nið- ur Reykjavíkurflugvöll í núver- andi mynd, þá hafa sérfræðing- arnir bent á ÁLftanes, sem heppi legasta staðinn, og ég held mig við þeirra álit“, sagði flugmála- stjóri að lokum. Sýndi hann blaðamönnum síð- an kort af hugsanlegum flug- brautum á Ál.ftanesi. Gerir það ráð fyrir 2500 metra aðaibraut og 2000 metra þverbraut, en báðar væri hægt að lengja að mun. Þess má geta að lengsta braut Reykja víkurflugvallar er 1730 metrar. Fjráveiting of lítil. Þessu næst minntist flugmála- stjóri á fjárþörtf flugmálanna. Sagði hann að á undantförnum árum hefði smávaxið það fé, sem lagt væri af mörkum í fjárlögum til framkvæmda í flugmálum. Á y firstandandi ári næmi upphæð- in aðeins 15,7 millj. kr. til allra fjárfestinga á sviði flugmálanna. Ástandið væri hins vegar þannig, að flugskýli hefði aldrei verið byggt atf ríkinu á Reykjavíkur- flugvelli. Þá skorti öryggistæki á vellinum, sem æskilegt væri að hafa. Allir vissu að fólk stæði úti í öllum veðrum á flugvöllum úti á landi. Engar flugbrautir úti á landi væru mal’bikaðar, og sum ar þeirra svo mjóar, að við sjáltft lægi að vængir flugvélanna stæðu út fyrir þær beggja vegna. Flugmélastjóri sagði, að unnið væri að þvi að fullgera 600—700 metra langa þverbraut í Vest- mannaeyjum, en ef vel ætti að vera þyrfti þar að vera tvær flug brautir í fullri lengd, flugstöðvar bygging og öryggistæki. Til þessa þyrfti um 30 millj. króna. Til þess að fullgera Akureyrarflug- völl og mannvirki þar þyrfti 50 —60 milljónir kr., og eitthvað lægri upphæð til Egilsstaða og ísafjarðar. Taldi flugmálastjóri sð fjárveiting til framkvæmda þyrfti a.m.k. að þretfaldast, ef vel ætti að vera, og auk þess þyrfti flugmálastjórninni að gefast kost ur á erlendu láni, svo hægt yrði að Ijúka brýnustu verkefnum á fimm árum eða svo. Á fundinum í gær voru einnig mættir framkvæmdastjórar hinna ýmsu greina flugmálastjórnarinn ar, Sigurður Jónsson, hjá loft- ferðaeftirlitinu, Leitfur Magnús- son, flugöryggisþjónusta; Gunn- ar Sigurðsson, Reykjavíkurflug- völlur, og Haukur Claessen, flug vellir úti á landi. Svöruðu þeir og spurningum fréttamanna um ýmis atriði. LISTAHÁTÍÐ Bandalags ísl. listamanna verður sett nk. sunnu dag kl. 1,30 í Háskólabíó. Jón Þór arinsson, tónskáld, form. banda- lagsins setur hátíðina og síðan flytja menntamálaráðherra, dr. Gylfi Þ. Gíslason, og borgarstjór inn í Reykjavík, Geir Hallgríms- son, ávörp. Aðalræðu setningar- hátíðarinnar flytur Halldór Lax- ness, en rithöfundárnir Guðmund ur Böðvarsson, Guðmundur G. Hagalín og Þórbergur Þórðar- son lesa úr verkum sínum. Þá verða flutt tónverk eftir Jón Leifs og Pál ísólfsson, Sinfóníu- hljómsveitin leikur undir stjórn Igor Buketoff og flokkar úr söng sveitinni Fílharmóníu og blönduð um kór Fóstbræðra aðstoða við flutning verkanna. Setningarat- höfninni í Háskólabíó verður út- varpað. Það er Sigurður Benediktsson, sem enn er á ferðinni með mörg góð málverk handa listaverka- unnendum til að bjóða L Það, sem vekur sérstaka at- hygli við uppboð þetta er, hve mörg málverk eru eftir hina svo nefndu „modernista“. Sérstaka athygli mætti vekja á 2 málverkum eftir Mugg. Ann að er vatnslitamynd, Afturgang- an, sem máluð er 1916. Sú mynd er áletruð til Jó- hanns og Ib frá Mugg, en þar er átt við Jóhann skáld Sigur- jónsson og konu hans Ingeborg. Hin myndin er olíumálverk af gamalli íslenzkri sveitakirkju, og er sú mynd máluð 1914. Er tal- Leopoldville, Kongó, 1. júní. — (AP-NTB) — HERMENN Kongóstjórnar hafa beðiff mikinn ósigur í bardöguir. viff dvergvaxna uppreisnarmenn úr Bafulero ættflokknum í Kivu héraði. Bardagarnir voru háðir um 60 km fyrir sunnan borgina Bukavu, og sækja uppreisnar- menn til borgarinnar, en stjórn- arliffiff virffist á flótta. Hernaðarástandi hetfur veriff lýst í Kivuhraffi, og veriff er aff undirbúa aff senda þangaff her- menn frá Nigeríu á vegum Sam einuffu þjóðanna. Um 80 þúsiund manns búa í Bukavu, þar atf um 500 hvítir. í fréttum frá borginní í daig segir að mikill ótti haifi gripið um sig meðal hvitu íbúanna, og að marigir hermenin úr stjórnar- hernum hafi flúið yfir til ná- grannaríkisins Rwanda. Leiðtogi uppreisnarmanna er Á sunnudag verður og opnuð myndlistarsýning í Listasafni ríkisins þar sem sýnt verður yf- irlit íslenzkrar myndlistar síð- ustu fimm ára. Sýning þessi verð ur opin almenningi frá og með mánudegi. Samtímis verður opnuð í Bogasal Þjóminjasafns- ins sýning á bókagerð og bóka- skreytingum sl. 20 ára. Verður hún í sjö deildum og bækurnar flokkaðar eftir efni. Hátíðasýn ing á Sardasfurstinnunni verður í Þjóðleikhúsinu á sunnudags- kvöld. Á mánudag hefst sýning Arki tektafélags íslands á þróun ís- lenzkra íbúðarhúsabygginga sl. 20 ár, og fer hún fram í húsa- kynnum Byggingaþjónustunnar að Laugavegi 26. Þá um kvöldið fara fram tónleikar í Háskóla- ^ Eins má benda á olíumálverk Ásgríms, Við Geitá, Kjarval á þarna og 3 myndir. Á skránni eru 33 málverk, 1 mynd eftir Snorra Arinbjarnar og önnur eftir Halldór Pétursson, 2 eftir Pétur Friðrik eru auka- númer.. Af öðrum, sem myndir eiga á uppboðinu má nefna Valtý Pét ursson, Hörð Ágústsson, Svavar Guðnason, Þorvald Skúlason, Gunnlaug Scheving, Kristínu Jónsdóttur, Örlyg Sigurðsson, Þórarinn B. Þorláksson, Eirík Jónsson, H. Bergmann og Sig- urð Jónsson. Einnig verða austurlenzk teppi á boðstólum. Uppboðið hefst kl. 5 stundvíslega. Gaston Souimialot, þekktur kommúnisti í nánum tengslum við yfirvöldin í Kína. Sjálfur er hann ekki í Kivu-héraði, þar sem bardagar geisa, heldur srtjómar hann ölluim aðgerðum frá Bumndi. Skýrt var frá því í stöðvuim SÞ í LeopoldviUe að beðið væri eftir fyrirskipunum frá U Thant, framkvæmdastjóra, um að senda herlið til Bukavu. En ráðstafan- ir hatfa verið gerðar til að flytja frá Bukavu alla starfsmenn sam- takanna, nema þá „sjálfboða- liða“, er vilja verða eftir. Hatft er eftir talsmönnum SÞ að gera megi ráð fyrir að uppreisnax- menn nái Bukavu á sitt vald. Bafulero ættflokkurinn til- heyrir svonefndum „pigimy“- ættbálki. Menn þessir em lág- vaxnir, meðalhæð þeirra um 1% metri. Þeir em illa vopnum búnir, en herskáir mjög. sunnudag bíói. Kristinn Hallsson, óperu- söngvari, syngur tvo ljóðaflokka: „An die Ferne Geliebte* eftir Beethoven og „Dichterliebe“ eft- ir Schuman. Undirleikari verð- ur hinn heimskunni píanóleikari Vladimir Ashkenazy. Leikur hann einnig sónötu op. 110 í As- dúr eftir Beethoven. Sala aðgöngumiða að tónleik- um þessum hefst í dag í bókii- verzlunum Sigfúsar Eymunds- sonar í Austurstræti og Lárusar Blöndal við Skólavörðustíg. og kosta kr. 100,00. Þar fer líka fram sala á miðum á setningar- hátíðina á sunnudag, en fjöldi þeirra er mjög takmarkaður, þar sem félögum Bandalags ísl. lista manna er boðið að vera við þessa athöfn, en þeir munu vera hátt á 4. hundrað talsins. Stjórnarherinn á flótta í Kongó Hernaðarástand í Kivu-héraði Listahátíðin hefst á

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.