Morgunblaðið - 15.07.1965, Blaðsíða 1
24 síður
HÍDVöMíwía
tZ. árgangur.
157. tbl. — Fimintudagur 15. júlí 1965
Prentsmiðja Morgunblaðsin*.
Adlai E. Stevenson
lézt í London í gær
— aðalfulltrúi Bandaríkjanna hjá S.Þ.
London, 14. júlí — AP.
ADLAI E. Stevenson, aðal-
fulltrúi Bandaríkjanna hjá
Sameinuðu þjóðunum, lézt í
dag í London, af hjartabilun,
að því er talið er. Stevenson
var 65 ára.
Ilafði hann dvalizt í Lond-
on undanfarna daga, i opin-
berum erindum, en átti að
halda heim til Bandaríkjanna
í vikulok.
Dauða Stevenson bar að um
4-leytið, síðdegis i dag, nokkr
um augnarblikum eftir að
hann hafði yfirgefið banda-
nska sendiráðið. Var hann á
gangi á Grosvenor Square, er
bann féll skyndilega á gang-
stéttina. Stevenson var þegar
fluttur í St. Georges sjúkra-
húsið, við Hyde Park Corner,
í hjarta borgarinnar. Var
hann látinn, er þangað kom.
Stevenson hefur um langt
skeið verið einn af áhrifarik
ustu og mest metnu stjórn-
málamönnum Bandarikjanna.
Kennedy, forseti, skipaði
hann aðalfulltrúa hjá S.þ. ár
ið 1961. 1952 og 1956 var
Stevenson í framboði fyrir
demokrataflokkinn í forseta-
kosningum í Bandaríkjunum.
(Nánar er greint frá æviferli
Adlai E. Stevenson á næst-
öftustu síðu blaðsins í dag).
Adlai E. Stevenson
Davies kominn úr
árangurslausri för
— • neitaði að ræða við blaðamenn, en
hélt rakleiðs til fimdar við Wilson
McNamara ræðir útkall
varaliðs og nýliða —
London, 14. júlí — AP
HAROLD Davies, sérstakur
sendimaður Wilsons, forsætis
ráðherra Breta, flutti í dag
forsætisráðherranum skýrslu
um för sína til Hanoi, höfuð-
borgar N-Vietnam. Förin var
án árangurs.
Þá fimm daga, sem Davies
dvaldist í Hanoi, fékk hann
ekki áheyrn hjá neinum ráða-
manna, og varð að takmarka
viðræður sínar við lágt setta
fulltrúa kommúnistaflokks
landsins.
Davies neitaði í dag að
segja nokkuð um för sína við
fréttamenn, er hann kom til
Bretlands, og sagðist fyrst
mundu hitta Wilson að máli.
Samtímis gaf forsætisráð-
herrann yfirlýsingu, þar sem
segir, að brezka stjórnin
muni halda áfram viðleitni
varnarmálaráðherrann og yfirmaður her-
ioringjaráðsins til Saigon - eru stórátök
fyrir dyrum í S-Vietnam og SA-Asíu?
Washington, 14. júlí — AP
ROBERT S. McNamara, varn-
armálaráðherra Bandaríkj-
anna, lýsti því yfir í Washing-
ton í dag, að frekari fjölgun í
herliði Bandaríkjanna í S-
Vietnam myndi að öllum lík-
indum hafa í för með sér, að
kallað yrði út varalið, her-
sk.vldustörf aukin og fleiri
nýliðar kvaddir til þjónustu.
McNamara, sendiherraefni
Bandaríkjanna í Saigon,
Henry Cabot Lodge, og Earle
G. Wheeler, yfirmaður her-
foringjaráðs Bandaríkjanna,
leggja af stað í kvöld til S-
Vietnam. Gert er ráð fyrir, að
í för þeirra verði tekin ákvörð
un um fjölgun bandarískra
hermanna í landinu.
I kvöld var frá því skýrt í
Washington, að yfirmenn
landhers, flughers og flota
hefðu birt bráðabirgðatölur
yfir hugsanlegan fjölda vara-
liðsmanna og þjóðvaraliða,
sem til greina kæmi að kalla
út. Samanlagður fjöldi þeirra
er rúmlega 200.000.
• McNamara efndi til
blaðamannafundar í Washirig-
ton árdegis í dag. Þar sagði
hann, að kommúnistar í Viet-
nam hefðu nú reiðubúið her-
Jið, sem enn hefði ekki tekið
þátt í bardögum. Kvað hann
því miklar líkur til þess, að
vopnaviðskipti kynnu að taka
á sig nýjan og alvarlegri blæ.
„Fjöldi hermanna Viet Cong
i S-Vietnam fer vaxandi".
sagði varnarmálaráðherrann.
Þar er nú lið, sem enn hefur í
ekki fengið skipun um að
leggja tií atlögu“.
• Johnson, Bandaríkjafor-
seti, skýrði frá því í gær, að
til athugunar væri nú að kalla
varaliðsmenn til þjónustu,
svo og auknar kvaðningar ný-
liða. Nú váeri beðið eftir
skýrslu varnarmálaráðherr-
ans, er hann kæmi aftur úr
för sinni til S-Vietnam.
„Við mumim grípa til allra
nauðsynlegra ráðstafana",
sagði forsetinn. Hann spáði
því, að fyrir dyrum væru
„nýjar og alvarlegar" ákvarð-
anir.
McNamara sagði við frétta-
menn í dag, að tilgangur farar-
innar nú væri að endurskoða her-
styrk Bandaríkjanna í S-Viet-
nam, svo og endurskipun birgða-
flutninga.
• „Verði gripið til þess að
senda frekari liðsauka“, sagði
hann, „verður að íhuga útkall
varaliða, aukin herskyldstörf og
kvaðningu nýliða til herþjón-
ustu“. Þá skýrði ráðherrann frá
því, að ætlunin væri að auka
notkun þyrla í landhernum um
sextíu af hundraði. Þyrlur hafa
mikið komið við sögu í bardög-
um í Vietnam. Jafnframt sagði
McNamara, að birgðir Banda-
ríkjahers af nýtízku stórsprengj-
um — ekki kjarnorkusprengjum
— væru nú 5 sinnum meiri en
1961, og yrðu 10 sinnum meiri í
lok næsta árs.
Blaðamenn inntu McNamara
! eftir því, á hverju stjórnin byggði
ákvarðanir sínar um liðsauka til
sinni til að koma á friði í Viet-
nam.
í hádegisverðarboði í dag, sem
haldið var í London til heiðurs
forseta "Chile, Eduardo Frei,
skýrði Wilson frá því, að næsta
skreifið myndi verða viðræður
við sovézka ráðarnenn um hugs-
anleg skref til að fá komið á
vopnahlésumræðum.
Sovézkir ráðamenn hafa hins
vegar skýrt frá því, hvað eftir
árináð, að þeir telji sig á engarí*
hátt hafa umboð til að semja um
frið í Vietnam, né beita sér fyrir
neinum umræðum um frið. Það
er skoðun þeirra, að það sé deilu
aðila einna að ræða þau mál.
Þegar, eftir komu sína til
London, hélt Davies til íbúðar
forsætisráðherra í Dowhing
stræti nr. 10. Viðstaddur umræð-
ur Davies og Wilson var einnig
brezki utanríkisráðherrann, Mic-
hael Stewart.
Á því þykir enginn vafi leika,
að Wilson ætli sér að gefa
skýrslu um för Davies í þinginu
Framh. á bls. 11.
USSR viðurkennir
stjórn Boumedienne
Framh. á bls. 11
Moskvu, 14. júlí — AP
KOSYGIN, forsætisráðherra
Sovétríkjanna, sendi í dag
Houari Boumedienne, sem ný-
lega velti Ben Bella, forseta,
af stóli, árnaðaróskir. Er þar
með rofin sú þögn sovézkra
ráðamanna, sem ríkt hefur
frá því, að stjórnarbyltingin í
Alsír var gerð.
Sovézka fréttastofan Tass
skýrði frá árnaðaróskum Kosy-
gins í dag. Þar óskar forsætisráð-
herrann byltingarforsprakkanum
til hamingju, og óskaði honum
gæfu og gengis í starfi „og við
uppbyggingu sósíalismans í
Alsír".
Jafnframt er því lýst yfir, að
vinsamleg samskipti Sovétríkj-
anna og Alsír munu halda áfram.
Ummæli Kosygins jafngildá að
öllu leyti viðurkenningu sov-
ézkra ráðamanna á stjórn Boume
diennes, sem þó er greinilega
ekki talin þörf á, því að Boume-
dienne sé löglegur eftirmaður
Ben Bella.
Kína var fyrsta ríkið til að við-
urkenna stjórri Boumediennes, og
gaf Pekingstjórnin út sérstaka
yfirlýsingu, nokkrum dögum eft-
ir byltinguna.
Tilkynning Tass kemur degi
eftir, að alsírska stjórnin lýsti
því yfir, að hún héldi fast við
einingarstefnu Arabaríkjanna, og
mundi halda nánum tengslum við
sósíalistaríkin. ”
„Mariner 4“ svaraði eftir 5 mánuði
Myndataka af Mars átti að hefjast kl. 8 í gærkvcld, og í gær
virtist allt ganga að óskum
Pasadena, Kaliforníu,
14. júlí — AP
I D A G var haft samband
við bandaríska geimfarió
„Mariner 4“, sem nú er í
næsta nágrenni reikistjörn
unnar Mars. Fimm mánuð-
ir eru liðnir frá því, að haft
var samband við „Mariner
4“.
Laust fyrir kl. hálf þrjú
síðdegis í dag (ísl. tími)
voru send merki til ge ) >-
farsins, og 24 mínútum s j-
ar kom svarmerki frá tæ.cj
um þess. Það var þá í 420.-
000.000 km fjarlægð frá
jörðu. Táknar það, að tæk-
in virðast í lagi, og allt
bendir því til þess, að til-
gangi geimskotsins verði
náð.
„Mariner 4“ á að taka
um tvo tugi mynda af yfir-
borði Mars, og senda þær
til jarðar. Við sendingu
myndanna er þó notuð ný
tækni, svo að rúmar 8
stundir tekur að seuda
hverja mynd.
Ætlunin er að sjálf mynda
takau Iiefjist kl. 8 í kvöld
(ísl. tími), er geimfarið er að
eins í 10.000 km. fjarlægð frá
stjörnunni. Það fer þá með um
16.000 km. hraða.
Síðast voru tæki „Mariner
4“ reynd 12. febrúar. Er merki
var gcfið í dag frá athugun
arstöó við Jóhannesborg í S-
Afríku, tók til starfa í geim
farinu sérstök ratsjá, sem
beina á því í fyrirframá-
kveðinni fjarlægð fram hjá
reik ist jöi nu nni.
Um hálf þrjú leytið í dag,
var „Mariner 4“ í um 16.000
km fjarlægð frá Marz, og
hafði þá verið 228 daga á leið
inni, um órafjarlægð,
Vegna tækni þeirrar,
sem notuð er við móttöku
mynda frá Mariner 4, mun
það taka um 3 vikur að
framkalla þær allar. Verð
ur því nokkur bið á þvi,
að myndir fáist til birting-
ar, þótt allt gangi að ósk-
um.
420 000.000 km.
Lítið extt er vitað um Marz,
og hafa margar getgátur ver
ið uppi Ýmsu hefur þó tekizt
að slá iöstu — að menn halda
— með lannsóknum af jörðu.
Skal hér tekið saman það
he’zta:
Marz er um helmingi minni
Framhald á bls. 2.