Morgunblaðið - 12.08.1965, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 12.08.1965, Blaðsíða 1
52. árgángur 28 síðtiff Hariir bardagar gjósa upp í Kasmír band á 12 stöðum og náð á sitt vald indverskium skotfæirageymsl um í Kasmír. Útvarpsstöðin „Rödd Kasmír* ‘hélt því ennfrem Myndin sýnir Roberto Ramirez (yzt til hægri), hand-. járnaðan í fylgd með bandarískum lögreglumönnum. Nýju Delhi, 11. áigúst ( NTB) HARDIR bardagar urðu í kvöld á því svæði, sem lína sú liggur um, er skiptir Kasmír í tvo hluta milli Indlands og Pakistan. Skýrði talsmaður indversku stjórnarinnar frá því, að tíu vopnaðir menn frá Pakistan, hefðu farið yfir landamæralín- una í Jammuhéraðiinu og voru þeir allir drepnir. Síðan hefðu ákafir bardagar geisað þar. Tals- vert magn of vopnum hefði ver- ið tekið af hermönnunum m.a. 21 skotpallur fyrir flugskeyti, 300 handsprengjur, vélbyssur og fleira, þar á meðal mikið magn af skotfærum. Fyrr un dagin.n hafði ind- verska stjórnin skyrt írá því, að 84 vopnaðir Pakistarnmenn hefðu verið drepnir síðustu daga, en 19 teknir tkl fanga. Indverja-r hefðu hins veigar misst 29 manns fallna. Samtímis því sem imdversk yf- irvöld s'kýrðu frá hörðum bar- dögum, var frá því sikýrt af hálfu Pakistan, að frelsisbetj ur í Kasmir h-efðu sprengf í ioft upp margar brýr, rofið vegasam- uir fram, að frelsisihetjurnar hefðu einnig ráðisit á aðalstöðvar þriggja indverskra hensveita og spillt a ðflu tn i ngsle i ðmm þeirra. Hefðu frelsishetjurnar fuilan stuðning almennings á þessvj svæði. Rifrildi um Castro orsök atburðanna d Seven Seas Miami, Florida, 11. ágúst NTB. PÓLITÍSKT rifrildi um Cubu var orsök atburðanna um borð í skipinu „Seven Seas“, sem sagt var frá hér í blaðinu í gær, en í skipinu voru myrtir fimm menn af átta manna áhöfn bess. Þrjátíu og finim ára gam- all Kúbumaður, Roberto Ramirez, hefur viðurkennt að hafa skotið hina fimm skipverja vegna deilu. sem upp kom mili hans og skipstjórans, Rogelio Diaz, um Fidel Castro, ein- ræðisherra á Cubu. Fyrsti stýrimaður skipsins, Aldrick Hinds og þrír aðrir af áhöfn inni tóku einnig þátt í rifrild inu og voru allir skotnir af Ramirez. Ramirez yfirgaf svo skip- ið í björgunarbát og fannst um 95 km fyrir sunnan Miami. Hann var síðan yfir- heyrður af bandrísku ríkis- lögreglunni. Ramirez tók upp hanzkann fyrir Castro í rifrildinu s.l. laugardag, sem varð orsök hinna vá- legu atburða. Bar hann það fyrir sig, að skipstjórinn hefði hótað sér, á meðan þeir voru að rífast, að af- henda hann bandarískum yfirvöldum, þegar þeir kæmu til Miami. Ramirez, hefur sagt frá því, að hann hafi þyrmt lífi matsveins um borð, en hans er enn saknað. Lausn grísku stjórnar- kreppunnar d næsta leiti? Aþenu, 11. ágúst — NTB N O R S K A fréttastofan NTB skýrði frá því í gærkvöldi, að nokkrar vonir væru nú vaknað- ar um, að hin langvarandi stjórn- «rkreppa í landinu myndi leys- est. Hafði fréttastofan þetta eftir áreiðanlegum heimildum í Aþenu og enn fremur, að ástæðan til þessa væri, að Papandreou, fyrr- verandi forsætisráðherra, hefði að nýju beðið um áheyrn hjá Konstantin konungi og þá ef til vill í því skyni að eyða þeirri sundurþykkju, sem verið hefur milli hans og konungsins. Ekki hafði verið ákveðinn neinn timi fyrir fund Papandreous og kon- 23 bíða bana af völd- um saltpéturssýru ungsms. Papandreou bað um áheyrn konungs eftir að hafa átt þriggja tíma fund með ýmsum forystu- mönnum Miðflokksins og útgef- endum tveggja blaða, sem styðja flokkinn. Hvöttu þessir aðilar hann til þess að koma á sáttum við konung og var frá því skýrt, að Papandreou segðist myndu hugleiða uppástungu frá blaða- útgefendunum um, að hann héldi ekki fast við kröfu sína um stöðu varnarmálaráðherra auk for- sætisráðherraembættisins, ef kon ungur færi þess á leit við hann að mynda ríkisstjórn. Singapore verður sjálfstætt lýðve’di Brezka stjórnin því fylgjandi, að Singapore verði meðlimur samveldisins Kuala Lumpur, 11. ágúst NTB — AP. MÖRG ríki, þar á meðal Banda ríkin, viðurkenndu í dag Singa- pore sem sjálfstætt og fullvalda ríki. Haft er eftir Lee Kuan Yaw, forsætisráðherra landsins, að Singapore muni í framtíðinni verða lýðveldi. Þá hefur Yew enn fremur lýst yfir því, að Singapore muni leitast við að fylgja stefnu, sem ekki færi í bága við hagsmuni Malasíu. Frá því var skýrt í London í dag að brezka stjórnin væri þvi fylgj- andi, að Singapore yrði áfram meðlimur í brezka samveldinu, en á það var lögð áherzla, að ákvörðun um slíkt yrðu samveld islöndin að taka í sameiningu. Head lávarður, umiboðsmaður Breta í Kuaila Lumpur hefur lýst því yfir, að varnarsamning þann, sem í gildi er milii Breta a-nnars vegar og Malaisíuríkja- sambandsins og Singapore hins vegar, verði nú að endurskoða með tilliti til þess, að Singapore er giengið úr sambandinu. Head lávar'ður lét hins vegar svo um mælt, að ekikert ætti að standa í vegi fyrir því, svo framarlega sem þróunin innan Malasíusvæð isins hefði ekki miklar breyting ar í för með sér. Forsætisráðherra Malasíusam- bandsins, Tunku Abclu'l Rahman hefur orðið fyrir mikilli gagn- rýni vegna aðgerða sinna í sam bandi við úrsögn Singapore úr ríkjasamibandinu, og innan flokks forsætisráðherrans hefur orði'ð vart klofningstilhneigingar. Hef- ur aðalritari hans, Dato Albar saigt, af sér. Datö Albar heldur því fram, að án "Singapore sé tilvera Malasíuríkj asambandsins óeðlileg og engin rök liggi þá til hennar. Gagnrýndi hann Lee Kuan Yew. Deiluna milli Maila- Lee Kuan Yew, forsætisráð- herra Singapore síu og Singapore hefði átt að leysa með samining'um. Varnarmálaráðhérra Indonesíu i Nasution hershöfðingi lýsti því , yfir í dag, að svo lengi sem ný- lenduikúgarar hefðu herbækistöð var í Singapore, væri Indonesia . ákve'ðin í að brjóta hið nýja ríki I á bak aftur ásamt öðrum rikjum úr Malasíusambandinu. Ef Lee Kuam Yew væri því hins vegar , fylgjandi að afnema herstöðvar heimsveldissinna, eins ög hann orðaði það, þá myndi ékkert verða því til fyrirstöðu. að frið- , samlegt samband kæmist á milli rikjanna. Kæra tekin af málaskrá V-Jjýzkur sendiherra tii Israel Isianíbuil, 11. ágúst NTB. TUTTUGU og þrír manns biðu bana af vöildum sal'tpéturssýru, er langfer'ðabill, siem var á leið inni mil'li Ankara og Istanbul í Tyrklandi, rakst á vörubíl, sem var mieð marga geyma af salt- péturssým á pa.li)inum. Við á- rekstuirinn u.l.tiu báðar bifreiðim ar ofan í skurð, og þegar farþeg arnir sáu, að reykur liðaðist upp «1 öeyimuimMn á vörubiíreiðinni, | urðu þeir gripnir af skelfingu og þuistu út úr íangferðabifreiðinni og út í skurðinn. Hann var þá fuillur oröinn af saltpéturssýru, sem hafði lekið af geymunum. Lögreglan skýrði frá því, að 18. manns hefði beðið bana þegar í stað, en fimm létu lífið á sjúkra 'h'úsi. Sautján brenndust mjög illa. Sumir þeirra, sem létu ldfið, höfðu brennzt svo iMa, að ekiki eimu sinni var hægt að þekkja fœtur þeirra aítur. New York, 11. ágúst, NTB. ÖRYGGISRÁÐ Sameinuðu þjóð- anna hefur samþykkt að taka út af málaskrá sinni kæru frá Argentínu gegn ísrael vegna ránsins á Adolf Eichmann. Ákæran kom fram í júní 1960, eftir að menn frá ísrael höfðu haft Eichmann á brott frá Argen j tínu. Hélt Argentina því fram í ákæru sinni, að ísrael hefði átt að fara fram á íramsal Eich- manns, en hann var eins og kunnugt er, dæmdur til dauða í ísrael og tekinn af lífi fyrir þátttöku sína í útrýmingu Gyð- inga, á meðan Nazistar voru við völd í Þýzkalandi. U Thant framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna skýrði f.rá því í gær, að Argentína hefði farið fram á það, að málið yrði tekið út af dagskrá Öryggis- ráðsins. Hefðu stjórnir Argen- tínu og ísrael komið sér saman um lausn þessa máls sín á milli. FYRSTI sendiherra V-býzka- x lands í ísrael, dr. Rolf Pauls sagði við komu sína til Tel Aviv í dag, að Gyðingar og Þjóðverjai yrðu að horfast í augu við hræði- lega fortíð, sem aldrei mætt: gleymast. Ekkert sérstakt kom fyrir við komu sendiherrans, en hinn þjóðernissinnaði stjórnar- andstöðuflokkur, Heruth, hefur boðað til mikillar mótmælagöngu annað kvöld, fimmtudagskvöld vegna Stofnunar stjórnmálasam- bands milli ríkjanna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.