Alþýðublaðið - 26.08.1958, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 26.08.1958, Blaðsíða 8
8 AlÞýðublaSiiB Þriðjudagur 26. ágúst 1958. STOKKHÓLMI, 21. ág. ÞEGAiR við Atli ]it.um út um gluggann á hótelinu klukk - an átta í morgun var veður þung'húið og leit út fyrir rign- ingu. Á leiðinni út á Stadion voru smáskúrir, en núna rétt fyrir hádegi er byrjað að ]étta til. PÉTUR BYRJAÐI SEINNI DAGINN VEL F'yrsta greinin í morgun var 110 m grindalhlaup tugþrautar- innar og var Pétur í . riðli með Persson, Haarr og Muchitsch frá Austurríki. Viðbragðið var svipað hjá öllum, en Austurrík ismaðurinn hafði íorskot til að byrja með. Á síðustu þrem grindunum náð'i Pétur sér á strik og hljóp ágætlega, hann sigraði á 15,1 sek:, í örlitlum mótvindi. Muchitsch hljóp á 15.2, Persson á 16,0 og Haarr á 16.3. Björgvin hjóp í fimmta riðli með Kling, Frakkladi, Hög- heim, Noregi og Timme, HoJ- landi. Frakkinn og Björgvin voru svipaðir fram yfjr mitt IÞróftip ! DÓMARAR og línuverðir í vikunni. Dómarakynningin: Þorlákur Þórðarson er fæddur í Reykja- vik þann 10. júní 1921. Hann lék knattspyrnu fyrst íopinberlega með Val 1937, þá í 3. aldursflokki og lék þar til að Shann fluttist yfir til Víkings árið 1940, og lék hann með þeim þó aðallega í eldri f'.okk- |Um félagsins. l 1941 gengst Þorlákur undir knattspyrnudómarapróf hjá Crunnari Akselssyni. 1950 var í íyrsta sinn haldið landsdómara próf hér á landi, á því nám- skeiði var hann, og var honum jþar afhent fyrsta skírteini þess- arar tegundar, sem hér hefur verið afhent. 1 þau 17 ár, sem Þorlákur hefur starfað sem dómari á veg ta KDR hefur hann átt sæti í Btjórn félagsins í 11 ár, þar af verið formaður í 1 ár. I Það sem Þorlákur Þórðarson telur mikla nauðsyn er að brúa fcilið á milli leikmanna og dóm ara, þar sem svo margir lcik- menn gera svo mikið aö því að mótmæla dómum, aðeins vegna vankunnáttu á knattsijyrnulög Timim. Þeér leiðir er Þorlákur telur happamestar þessurn inál fum til úrbóta eru að koma á kynningarfundum méð dómur- nm og leikmönnum, eða öðrum ííkum ráðstöfunum. Spurning Þorláks Þórðarson- ar er sem hér segir: ‘ Knötturinn er í leik skammt, fyrir utan vítateig, þegar brot 1 skeður á mót við vítapúnt, það er, að mið'framiVÖrður slær v. framherja, dómarinn sér þetta, stöðvar lei-kinn, en hvað skal gera? ' Svar við spurningu Tnga Fy- . vinds: Óbein aukaspvrna var dæmd vegna hættu leiks af j hálfu bakvarðar, með bví að 'taka knöttinn á milli fóta sér voru tvisvar sinnum meiri lík 'ur að framherjinn hitti mann- inn en knöttinn. KR-völlur 27. ágúst 5. fl. B kl. 10: Valur — Fram. D. Frí- mann Gunnlaugsson. KDR. hlaup, en Kling átti betri enda- sprett og sigraði örugglega. Tíminn 15,5 Kling, 15,8 Björg- vin, 17,3 Högheim og 23,6 Tim- me (datt). Eftir sex greinar er Pétur í 8. sæti með 4384 stig, en Björgvin 16. með 3894 stig. Fyrstur er Kusnetsov með 5242 stig. Önnur úrslit í grinda- hlaupinu: Kusnetsov 14,8, Tscudi 15,2, Meier 15,5, Lasse- nius 15,8, Kamerbeek 14,9, Palu 15,2, Kahma 16,5, Mö- hring 16,6, Becvarovsky 15,2, Staub 15,4, Brodnik 15,8. Pétur varð því þriðji í grindahlaup- inu. Kringlukastið hófst strax á eftir og voru keppendur mjög misjafnir. Rússinn Kusnetsov var langbeztur og hefði komizt í úrslitakeppnina í kringlukast- inu. Finninn Kahma kastaði einnig mjög vel. Pétur varð sjötti með 39,46, en Björgvin fjórtándi með 35,74. Úrslit: Kusnetsov 48,57, Kahma 46,65 Möhring 45,60, Becvarovsky 41,82, Lassenius 39,68, Pétur 39,46, Kamerbeek 39,41, Meier 39,07, Palu 39,07, Timme 37,62, Kling 37,60, Persson 37,40, Haarr 36,46, Björgvin 35,74, Brodnik 35,46, Saub 35,37, Tscudj 34,83, Höheim 31,93, Muchitsch 29,36. Staðan eftir sjö greinar: Kusnetsov 6139, Meier 5471, Palu 5457, Tscudi 5241, Kamerbeek 5226, Becvar. osky 5114, Möhring 5107, Kah- ma 5078, Pétur 4995, Muchitsch 4824, Kling 4747, Saub 4569, Persson 4527, Haarr 4526, Las- seniur 4489, Brodnik 4444, Björgvin 4408, Högheim 4056 og Timme 3885. Niú hófst sú grein tugþrautar innar, sem reynzt hefur mörg- um tugþrautarmanninum erfið, Þ- e. stangarstökkið. Byrjunar. hæðin var 2,50 og landarnir slepptu. Báðir fóru langt yfir 2,70, en Björgvin felldi 2,90. í öll skiptin var hann yfir, en sló hendinni í rána í öll skiptin. Pétri gekk vel, hann fór langt yfir 2,90. 3,00 og 3,20. Hann var einnig mjög nálægt 3,30, sér- staklega í síðustu tilrauninni. Stangarstökkið fór fram í tveim stökkgryfjum og flýtti það mikið fyrir ,þar 5em kepp- endur stukku mjög misjafnlega hátt frá 2,70 og þeir beztu 4,00 m. Stangarstökkinu er ekki lokið þegar þetta er skrifað. GUNNAR ÖRUGGUR í KÚLUVARPINU Þegar eftir kringlukast tug- þrautarinnar hófst undan- keppni í kúluvarpi og voru keppendur 18, þar á meðal Gunnar Huseby, Evrópumeist- ari frá 1946 og 1950. Það voru yfirleitt 100 kg menn og þar yfir, sem gengu inn á völlinn og mætti segja mér að saman- lögð þyngd þeirra hafi verið á þriðja tonn. Gunnar kunni greinlega vel við sig og lék á als oddi. Meðal keppenda var einnig Daninn Thorsager, sem nýlega setti danskt met 16,39 m. Fyrstur í kaströðinni var Gunnar, hann virtist lítið taka á og kastið rnældist 15,50. Hann var þannig kominn í aðalkeppn ina, þvf að til þess þurfti að kasta 15,20, sem er allt of vægt lágmark. Lengst kastaði Þjóð- verjinn Lingnau 17,00 m. Alls komust 17 keppendur í aðal- keppnina, það var aðeins ítal- inn Monti, sem féll úr. UNDANKEPPNI í LANGSTÖKKI KVENNA Kvenfólkið keppti 1 lang- stökki fyrir hádegi og þurfti að stökkva 5,60 til að komast í að- ■alkeppni. Af 16 stúlkum náðu 14 5,60 eða meira. Lengst stökk franska stúlkan Djian 6,13 m. Var henni fagnað mjög af á- horfendum, sem aðsins voru um 3 þúsund. Stangarstökki tugþrautarinn- ar var ekki lokið fyrr en klukk an eitt, en þar stökk Norðmað- urinn Högheim og Þjóðverjinn Möhring hæst 4,10 m. Kusn’et- sov stökk 4,00 m. Finninn Kah- ma, sem er mjög sterkur og glæsilegur íþróttamaður, sigr- aði glæsilega í spjótkasti tug- þrautarinnar, kastaði 65,66 m. Norðmaðurinn Haarr, sem er aðains 18 ára, en margir álíta að eigi eftir að verða í fremstu röð í heiminnm í tugþraut eft- iF'nokkur ár, kastaði 61 41 m. Lassenius 60,44 og Kamarbeek, Hollandi 60,30 m. _Nú var komið að síðustu grein þrautarinnar, en jafn- frámt þeirri erfiðustu, 1500 m hlaupinu. Muchitsch frá Sviss náðí langbezíum tíma, hljóp eins og millivegalengdarhlaup- ari.i 'hann fékk tímann 4:14,9 mín. Pétur var í riðli með hon- um og fór frekar rólega af stað, hann og Svisslendingurinn Staub áttu { harðri baráttu síðustu metrana og varð Sviss- lendingurinn aðeins á undan. Pétur hljóp á 4:54,1 sek. Biörg vin hljóp í síðasta riðlinum með Norðmönnunum og KJing frá Frakklandi. Frakkinn og Björgvin áttu í harðri baráttu allt hlaupið, er lauk méð slgri Björgvins, sem hljóp á sínum bezta tíma 4:30,6 mín. Úrslit tugþrautarinnar urðu þau, að Kusnetsov sigraði með miklum yfirburðum, eins og búizt var við og hlaut 7865 stig, nýtt mótsmet. Landi hans Palu varð annar með 7329 stig og Meier, Þýzkalandi þriðji með 7249 stig (þýzkt met). 4. Kahma, Finnlandi, 7137 stig (Norðurlandamet), 5. Tscudi, Sviss, 6858, 6. Kamarbeek, Hol landi, 6784 st. (hollenzkt met). 7. Möhring, Þýzkalandi, 6774 st., 8. Becvarovsky, Tékkósló- vakíu, 6644 st. (tékkneskt met) 9. Pétur Rögvaldsson, ísl. 6288 st., 10. Brodnik, Júgóslavíu, 6210 st. (júgóslavneskt met). Björgvin Hólm varð 18. með 5742 stig. VALB.TÖRN STÖKK 4,15 GLÆSILEGA Alls tóku 26 stangarstökkv- arar þátt í undankeppninni og þurfti að stökkva 4,15 til að komast í úrslitakeppnina. Val- björn var fyrstur í stökkröð- ■ inni. Hann sleppti 3,80 m, fór vel yfir 4,00 í fyrstu tilraun, og enn betur yfir 4,15 m. Var honum vel fagnað, enda fyrsti keppandinn s'em stökk 4,15. Framhald á 9. síðu. fsIarsdsmótiS: Valur sigrar Keflvíkinga 2:1 400 irs. grindahlaun: undanúrslit, 2. riðill. Yulin, Sovétríkjun- um, á 1. braut er kominri yíir grindina (Iengst til hægri), næst ur er Farrell, Bretlandj á 2. braut, Mildt, Finnlandi, á 3 braut, Savel, Rúmeníu á 4. braut og Troiiás, sigurvegarinn, Svíbjóð, á 5. braut. ’LEIK Vals og Keflvíkinga á sunnudagskvöldið lauk með sigri Vals, sem skoraði tvö mörk gegn einu. Þetta var síð- asti leikur Vals í mótinu og hefur hann hlotið 6 stig, en Keflvíkingar tvö, eiga einn leik eftir við KR. Takist Þeim að sigra eða gera jafntefli í þeim leik, hafa þeir tryggt stöðu sína í 1. deildinni. Sá leikur er því þeirra síðasta tækifæri sinni. Tilkoma Keflvíkinga í deildina kostað'i þá.ekki aðeins mikla baráttu á vellinum, heldur og mikið málastapp, þref og þjark, blaða skrif og bréfaviðskipti, áður en henni varð í kring komið. Þeir láta væntanlega ekki hrekja sig úr aðstöðunni fyrr en í fulla hnefana. Leikurinn á sunnudagskvöld ið sýndi að baráttuhugur Kefi. víkinga er ódrepandi. Snerpa og vilji er vissulega fyrir hendi og standa þeir sízt að baki keppinauta sinna í því tilliti. En knattspyrnulega var leikur- inn í heild laus í reipum. Send- ingar ónákvæmar og hin beztu ♦sékifæri uppi við mark misnot- uð mjög á báða bóga. í samleik mátti það hending heita, ef knötturinn gekk milli þriggja samherja, oftast var það aðeir.s tvisvar, en í þriðja sinni fór k.nötturinn til mótherja. En þrátt fyrir margvíslegt fálm og mistök var leikurinn hörkuspennandi barátta, þar senj hvorgur sparaði annan. Valsmenn skoruðu fyrsta mafkið er 15 mínútur voru af leik. Kom það fyrir mistök varn ar Keflvíkinga og bar að með þeim hætti, að há sending kom inn á miðjuna, Hafsteinn mið- framvörður ætlaði að skalla frá, en náði iíla til knattarins, sem rann yfir hann, Björgvin Daníelsson miðherji Vals snar- aðist inn fyrir, Hafsteinn náði knettinum og átti beina braut að marki, markvörðurinn brun- aðí út, en Björgvin skaut yfir hann og skoraði örugglega. Keflvíkingar kvitta svo á 30. mínútu eftir aukaspyrnu rétt við- vítateig, sem Sigurður Al- bertsson útvörður þeirra tók mjög laglega. Á 40. mínútu skora svo Vals- menn sigurmarkið. Hornspyrna er dæmd á Keflvíkinga, knött- urinn fellur á markásinn og af honum inn á völlinn. Spyrnt er á markið, en bjargað á línu. Knötturinn hafnar hjá Elíasi Hergeirssyni, v. útverði Vals, sem skýtur þegar hörkuskoti beint á markið og skorar glæsi- lega. iSeinni hálfleiknum lýkur með jafntefli 0:0. Sótt er og varizt af miklu kappi, tækifæri gefast á báða bóga, en eru mis- notuð jöfnum höndum. Þríveg- is eiga Keflvíkingar opna skot- aðstöðu, en markið er of lítið, knötturinn þrumar fram hjá í öll skiptin. Síðustu 10 mínútur leiksins herða Keflvíkingar sóknina allt hvað af tekur, en Valsvörnin stenzt áhlaupin og hrindir sókn þeirra hvert sinn. Leiknum lýk ur með sigri Vals 2:1 eins og fyrr segir. 1 liði Keflvíkinga var Haf- steinn stefkasti maðurin í vörn inni eins pg að undanförnu. Spyrnur hans eru hreinar og öruggar og skalli hans í bezta lagi. I framlínunni bar Páll Jónsson h. útherji af, snarpur, fylginn sér og sprettharður, er hann tvímælalaust einn okkar beztu útheria nú. Valsliðið lék nú hvergi nærri eins vel og gegn KR eða Fram á dögunum. Bezti maðurinn í liði þass var miðframvörður- inn, Magnús Snæbjörnsson, en hann lék í stað Halldórs Hall- dórssonar, sem var ekki í bæn- um. Magnús var mjög traust- ur, rólegur og gætinn, ná- kvæmur í spyrnum og alltaf ,,uppbyggilegur“. Hins vegar lék það ekki á tveim tungum að fjarvera Halldórs setti allt annan og lakari svip á leik liðs- ins í heild. Dómari var Halldór Sigurðs-' son, ákveðinn og röggsamur að vanda- EB.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.