Morgunblaðið - 17.10.1973, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 17.10.1973, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÖBER 1973 Myndir Scerris íKjarvalsstöðum ’TW r (Jr Eyjum. rijiil ÁV § ! :: ■ m L v (Jr Grindavlk. Af þeim 233 verkum, sem Sverrir Haraldsson listmálari sýnir um þessar mundir í Kjarvalsstöðum, er meira en helmingur fyrir- myndanna sóttur til Vestmanna- eyja, þar sem listamaðurinn fæddist og ólst upp. Elztu myndirnar á sýningunni eru frá 1942, þegar listamaðurinn var 12 ára gamall. Síðan kemur þróunin stig fyrir stig, en allar myndirnar fram yfir 1950 eru málaðar úti f Vestmannaeyjum. Þó er t.d. mynd frá 1944. nr. 21 á sýningunni, og heitir Foss. „Það er enginn foss í Eyjum,“ sagði Sverrir, „og þegar ég fór i ferða- lag til Austfjarða 1944, sá ég þar litla bunu eða læk falla af fjalli, og mér fannst þetta svo stórkost- legt, að ég gerði foss ú bununni með penslinum. Þessar myndir voru þó málaðar af mikilli van- kunnáttu, málað á seglstriga, sem ég keypti hjá Helga Ben. og rammana smíðaði ég sjálfur úr plönkum, sem fengust hjá Arsæli Sveinssyni." Það kemur fljótlega í Ijós á ferli Sverris að hann útfærir fyrir- myndirnar og túlkar með eigin augum á sérstakan hátt. „Eg hafði svo gaman af að mála,“ sagði hann, „að ég passaði mig stundum að mála ekki alveg eins mikið og mig langaði til, svona rétt til að vera viss um, að ég yrði ekki leiður“. Eftir 1946 fara myndir Sverris að bera nýjan svip. „Það var eftir að ég fór í skólann," sagði Sverrir, „þá „fór allt til fjandans, og þetta ruglaðist allt. Þó hafa meira að segja mestu abstraktmyndirnar ákveðin mótív, og allt er þetta sótt til Eyja, en það varð misjafnlega mikiö eftir af raunveruleikanum í þeim myndum, en ég get talið upp, húsin sem eru grunntóninn í þeim. Rafstöðin, Drifandi, Kuði, skúr bak við Borg og svo fram- vegis." A eftir Eyjamyndunum koma síðan sprautumyndirnar og svo er á sýningunni „hornið með flatar- málsmyndunum", eins og list- málarinn orðaði það. 1963 tekur Sverrir sér síðan aftur pensil í hönd, og nú liggja hinir margslungnu þættir í málaraferli hans frammi í Kjarvalsstöðum, myndir listmálara, sem gefur sig allan í starf sitt. — á j.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.