Morgunblaðið - 13.05.1979, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 13.05.1979, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. MAÍ1979 5 Sjónvarp í kvöld kl. 21.50: Svarti-Björn fer aftur á flæking Á dagskrá sjónvarps í kvöld kl. 21.50 er þriðji þáttur myndaflokksins „Svarti-Björn“. Að sögn Dóru Hafsteinsdóttur, þýðanda myndarinnar gerist þetta helst í þessum æætti: Álands-Kalli slasast í sprengingunni, sem varð í lok annars þáttar. Þessi atburður verður til þess að sprengingunum er hætt að sinni og flokkurinn leysist upp. Svarti-Björn býr ásamt tveimur öðrum áfram í kofanum og þau bíða eftir að Álands-Kalli jafni sig. Kalli segist aldrei ætla að vinna við þetta meira og ásakar sjálfan sig fyrir hvað gerst hefur. Annar af mönnúnum, sem býr í kofanum, veikist af berklum og deyr og það endar með því að Svarti-Björn verður að fara aftur á flæking og í atvinnuleit. Myndlistarþáttur mánudagskvöld kl. 22.50: 40 ára afmæli Myndlistar- og handíðaskólans Á dagskrá útvarps mánu- dagskvöld kl. 22.50 er „Myndlistarþáttur“ í umsjón Hrafnhildar Schram. I þættinum verður fjallað um 40 ára afmæli Myndlistar- og handíðaskóla íslands. Þessa dagana stendur yfir afmælis- sýning á verkum nemenda skólans að Kjarvalsstöðum, einnig er í anddyri sýning á verkum fyrrv. skólastjóra skólans, Kurt Zier. Ljósm. Mbl. Kristinn. Mikið var um að vera á Kjarvalsstöðum sl. fimmtudag þar sem unnið var við að ganga frá afmæiissýningunni. Hér má sjá einn nemandann leggja síðustu hönd á listaverk sitt. Ný barnasaga í út- varpi mánudag kl. 17.20: „Mikael mjög- siglandi” Á dagskrá útvarps á mánu- daginn kl. 17.20 hefst lestur nýrrar barnasögu. Guðni Kolbeinsson hefur lestur sög- unnar „Mikael mjögsiglandi" eftir Olle Mattson. Árið 1977 las Guðni í útvarp söguna „Briggskipið Blálilju", sem gerðist laust fyrir síðustu aldamót og fjallar um drenginn Mikael Pétursson og bernsku hans. Faðir Mikaels hafði verið háseti á briggskipinu Blálilju sem hafði farist fyrir átta árum. Allir héldu vitanlega að hann hefði drukknað — nema Mikael. Hann lifði stöðugt í voninni um að faðir hans kæmi heim aftur einn góðan veðurdag. Drengur- inn bjó í gömlu uppgjafa gisti- húsi ásamt Matthildi ömmu sinni og var mjög einmana. En einn vetrardag auðnaðist honum að bjarga lífi Teu, dóttur kennarans í þorpinu, og upp frá því voru þau óaðskiljanlegir vinir. Að lyktum kom síðan faðir Mikaels heim. 'SunnuferÖir 79ÉI Hvergi hagstæðari kjör FLUG MEÐ DC 8 ÞOTUM, LÆKKAR FERÐAKOSTNAÐINN. Mallorca Paradís á jöröu. í meira en hundraö ár hefur Mallorca veriö eftirsóttasta sól- skinsparadís Evrópu, og er enn. Sjórinn, strendurnar, sólskiniö, skemmtanalífiö, allt eins og þú vilt hafa þaö. Vinsæl og eftirsótt hótel og íbúöir á baðströndunum Magaluf og Palma Nova. íslensk skrifstofa Sunnu er að sjálfsögðu á staönum og hópur íslensks starfsfólks sem veitir farþegum öryggi og góöa þjónustu. Brottför: 1. og 22. júní, 13. og 27. júlí, 3., 17., 24. og 31. ágúst, 7., 14. og 28. sept., 5. okt. Grikkland Góðar baðstrendur í fögru umhverfi í baðstrandarbaenum Glyfada 12 km frá Aþenu. Fjölbreytt skemmtanalíf. Ný glæsileg hótel og íbúöir. Einnig er hægt aö dvelja á grísku eyjunum, s.s. Rhodes, Krít, Korfu, Mykonos o.s.frv. Grikklandsferð er heillandi ævintýri, sem enginn gleymir. Siglingar milli grísku eyjanna og óteljandi skemmti- og skoö- unarferöir um undurfagurt landslag heill- andi borga og sögufrægra staöa s.s. Akorpolis, Delfi, Olympia, Spörtu og Maraþonsvalla. Grikkland sameinar á snilldarlegan hátt heillandi náttúrufegurö, sögulega staöi og möguleika til sólbaös og sunds í heitum sjó, hvíldarlíf við sundlaugar og baöstrendur. Bruttför: 17. maí, 6. og 26. júní, 18. júlí, 8. og 29. ágúst, 12. sept. Kanaríeyjar í tilefni baranárs, fá tvö börn 10 ára og yngri í fylgd meö foreldrum sínum frítt til Kanaríeyja í sumar. Sólskinsparadís allan ársins hring. Aldrei of kalt og aldrei of heitt, þar er sjórinn, sólskinið og skemmt- analífiö eins og fólk vill hafa þaö í 365 daga á ári. Góðar baðstrendur. Kanaríeyjar eru fríhöfn með tollfrjálsa verslun. Hægt er aö velja um dvöl á vinsælustu og bestu hótelum og íbúðum á Playa del Ingles, s.s. Koka, Corona Roja, Corona Blanca og Roca Verde. íslensk skrifstofa Sunnu, meö íslensku starfsfólki á staðnum. Brottför: 5. og 26. júní, 17. júlí, 7. og 28. ágúst, 18. sept., 9. okt. Costa del Sol Sólarströnd Suöur Spánar býr yfir sérstæöum töfrum, og þaöan er stutt yfir til margra fagurra og eftirsóknarveröra staöa s.s. Granada, Sevllla og Tangler í Afríku. Flogiö er beint til Malaga með DC 8 þotum Flugleiða. í Torremolinos hefur Sunna úrval af eftirsóttum hótelum og íbúðum. Þar er einnig skrifstofa Sunnu með íslenskt starfsfólk, sem auk þess heimsækir gestina reglulega á hótel þess og íbúöir. Brottför: 1., 8., 22. og 29. júní, 6., 13., 20. og 27. júlí. 3., 10., 17., 24. og 31. ágúst. 7., 14. og 22. sept. Einstakt tækifæri Ísrael/Aþena 6/6, 3 vikur, verö kr. 248.000- SUNNA BANKASTRÆTI 10. SÍMI 29:122.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.