Morgunblaðið - 18.07.1980, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. JÚLÍ 1980
+ Hjartkær sonur og bróöir JÓN TRAUSTI Kleppsvegi 54 lést af slysförum 15. júlí. Birna Óskarsdóttir Ingvar Elíasson Svava Margrét.
+ Eiginkona mín og móöir AÐALHEIÐUR BJÖRNSDÓTTIR Stórageröi 3, R. andaöist í Landspítalanum 16. þ.m. Sigurður L. Magnússon og börn.
+ Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför móður okkar, tengdamóöur, ömmu og langömmu, RAGNHEIÐAR ÁRNADÓTTUR Löngubrekku 26, Kó. Hulda Steinþórsdóttir, Brynjólfur Steinsson, Gréta Steinþórsdóttir, Bragi Þorsteínsson, Berta Steinþórsdóttir, Sigurður Magnússon, Hilmar Steinþórsson, Karlotta Óskarsdóttir, Helga Ámundardóttir, barnabörn og barnabarnabörn.
+ Eiginmaöur minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi, PÉTUR JONSSON, Stykkishólmi, veröur jarösunginn frá Stykkishólmskirkju laugardaginn 19. júlí kl. 10.30. Vilborg Lárusdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn.
+ Þökkum af alhug öllum þeim er veittu okkur hjálp og samúö viö andlát og útför föður- og fóstursystur okkar, KRISTÍNAR GUNNARSDOTTUR, fré Skoravík é Fellsströnd. Guö blessi ykkur öll. Fyrir hönd ættingja. Svava Tryggvadóttir, Sigurbjörg Sigurðardóttir, Ragnar Guðmundsson.
+ Innilegt þakklæti fyrir samúö og vinarhug viö andlát og útför, SIGURBJARNAR ASMUNDSSONAR. Hildur Björnsdóttir, Steinunn Sigurbjörnsdóttir, Björn Sigurbjörnsson, Ásmundur Sigurbjörnsson.
+ Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug viö andiát og útför eiginmanns míns, föður tengdafööur og afa, JOHN HARRY BJARNASON, fuiltrúa. Sigríður Ósk Einarsdóttir, börn tengdabörn og barnabörn.
+ Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og útför móöur okkar, tenpdamóöur, ömmu, langömmú og systur, SIGRIDAR HJARTARDÓTTUR, Hraunbæ 80. Lilja Hjartardóttir, Anna Hjartardóttir, Hans Júlíusson, Valgerður Hjartardóttir, Kristjén Sveinsson, Margrét Hjartardóttir, barnabörn, barnabarnabarn og bræður.
+ Viö þökkum auösýnda samúð viö andlát og útför móöur og tengdamóöur okkar, LÁRU TÓMASDÓTTUR, fré ísafirði. María Helgadóttir, Guömundur Astréösson, Haukur Helgason, Guörún Bjarnadóttir, Högni Helgason, Kristín Halldórsdóttir, Helga Guörún Helgadóttir, Rafn Gestsson, Steingrímur Pálsson.
María Þórðar-
dóttir frá Stykk-
ishólmi - Kveðja
Fædd 15. ájfúst 1904
Dáin 13. júlí 1980
Þeir voru litríkir dagarnir
fyrstu sem ég átti í Stykkishólmi
fyrir 38 árum, þegar ég flutti
þangað. Fólkið var eins og viða
frjálst og glatt og sú hlýja sem ég
mætti þar endist lengi. María
Þórðardóttir varð snemma á vegi
mínum, rösk og kvik í fasi, vinnu-
glöð og ekki að tvínóna við hlut-
ina, vandvirk og fasið og fram-
koman skemmtileg. Ég var hjá
sýslumanni og hún einnig eftir því
sem við þurfti. Og ekki leið á löngu
áður en við urðum kunnug. Hún
bjó í litlu húsi rétt hjá frystihús-
inu niður við sjóinn, hafði margt í
heimili og er það mér enn ráðgáta
hvernig hún kom öllum mann-
skapnum fyrir. En hvað um það,
hún kvartaði aldrei, og ég held
hún hafi engan öfundað og þakk-
aði fyrir það sem hún hafði. Sem
sagt af gamla skólanum, gerði sér
flest til ánægju. Það var gott að
skipta við hana skoðunum. Ég
komst að raun um að hún var búin
að ganga í gegnum margt frá
barnæsku. Hún var fædd að Hofs-
stöðum í Gufudalssveit 15. ágúst
1904. Snemma varð hún eins og
aðrir að taka á því sem hún átti,
vinna hörðum höndum. Hún var
því víða bæði i kaupavinnu og
húsmennsku. Til Flateyjar kemur
hún á blómatímum hennar. Hún
giftist Viggó Bjarnasyni sjó-
manni. Þau eiga mörg börn, verða
að taka til hendinni, berjast eins
og aðrir fyrir sér og sínum.
Árið 1929 liggur leiðin til Stykk-
ishólms, þar býr hún til 1950. Þá
fer hún suður til að aðstoða tvö
börn sín veik af berklum. Það voru
erfiðir dagar. Síðan liggur leiðin
víðar. í Neskaupstað er hún tvö
sumur. í fyrra skiptið sér hún um
mat til sjómanna, í síðara skiptið
hugsar hún um mat þegar Egils-
búð byrjar starfsemi. Hún var
einnig á matsölum og hótel
Skjaldbreið í Reykjavík. Þá lá
leiðin um skeið vestur á firði,
Tálknafjörð, Flateyri, Suðureyri.
Viggó og hún slitu samvistum.
Hún fær góðan félaga, Pál Helga-
son. Meðal annars byrjuðu þau
matsölu í Stykkishólmi, en þangað
lá leiðin síðar, byggðu veglegt hús.
En síðast lá leiðin aftur suður til
starfa. Alltaf var hún athafnasöm
enda sést á þessu að framan að öll
tækifæri til bjargar voru notuð.
Við héldum alltaf kunnings-
skapnum frá fyrstu tíð og bar
engan skugga þar á. Ég lærði
snemma að meta tryggð hennar og
mannkosti. Ég hugsa að við höfum
lært margt hvort af öðru, og i það
minnsta reyndist hún mér sem
öðrum hreinskilin og hispurslaus.
Hún kunni ekki að villa á sér
heimildir.
Hún kom alltaf öðru hvoru í
Hólminn seinustu árin og fór ekki
fram hjá mér. María varð öll sín
ár að vinna hörðum höndum,
vinnan var hennar ánægja og
erfitt á ég að hugsa mér hana hafa
ekkert fyrir stafni. Hún átti
marga vini hér í Stykkishólmi sem
nú sakna hennar.
Ég er einn sem veit að verður nú
svipminna, og því eru þessi fáu orð
á blað sett til að þakka henni
litríka samleið og um leið óska
henni góðrar og blessunarríkrar
göngu á nýjum vettvangi.
Blessuð sé minning góðs sam-
ferðamanns.
Árni Helgason.
Kristín G. Björns-
dóttir - Minning
Fædd 19. júlí 1904.
Dáin 9. júli 1980.
Þann 9. júlí lést í Reykjavík frú
Kristín Guðrún Björnsdóttir.
Kristín var komin um miðjan
aldur, þegar við kynntumst. Hún
stóð þá á þeim tímamótum að hafa
komið upp börnum sínum og þurfa
að leita sér nýrra viðfangsefna.
Hún varð snemma ekkja og varð
því að vera bæði í hlutverki
fyrirvinnu heimilisins og móður-
innar. Á þeim tímum var lífsbar-
áttan almennt erfið og ekki síst
fyrir konu í slíkri aðstöðu. Kristín
eða Stína eins og hún var yfirleitt
kölluð, stóðst þessa erfiðleika með
mestu prýði og aldrei minnist ég
þess að hún miklaðist af því á
nokkurn hátt eða væri bitur út í
kjör sín á þessum tíma. Það var
ekki hennar eðli.
Þegar uppeldishlutverkinu var
loKÍð réðst Stina til starfa á
Kópavogshæli, sem þá var nýtekið
til starfa. Þar átti hún eftir að
vinna í 24 ár af hinni mestu
kostgæfni og ósérplægni.
Það var einmitt um þessi tíma-
mót í ævi Stínu, sem leiðir okkar
lágu saman. Þar eð Kópavogshæl-
ið var heldur afskekkt á þessum
tíma var starfsmönnum gefinn
kostur á að búa í leiguhúsnæði
rétt hjá vinnustað. Þar bjuggu
foreldrar mínir, Stína og fleira
fólk. Ég var þá smábarn og móðir
mín svo heilsuveil, að hún átti
bæði erfitt með að sinna heimil-
isstörfunum og varð einnig að
leggjast á sjúkrahús um tíma.
Stína brást þá mjög drengilega
við. Þrátt fyrir sinn langa vinnu-
dag gaf hún sér tíma til að aðstoða
móður mína og gæta mín, þegar
hún varð að vera fjarverandi.
Allar götur síðan var Stína
viðloðandi bernskuheimili mitt.
Að vísu var starfsmannabústaður-
inn oft fluttur, en hún óskaði
alltaf eftir að búa sem næst
foreldrum mínum. Hún var því i
rösk 20 ár í nánu sambýli við
okkur.
Stína var afar barngóð og mjög
traustur vinur þar sem hún tók
vináttu. Alltaf var hún tilbúin að
setja sig í spor barnsins og horfa á
tilveruna frá þess sjónarhóli, þeg-
ar því var að skipta. Er mér ljúft
að minnast allra þeirra fjölmörgu
stunda, sem við áttum saman bæði
í leik og síðar nokkuð í starfi.
Stína var kona félagslynd og
átti marga vini. Hún kunni því
einnig best að vera þar sem
atburðirnir gerðust, enda tók hún
virkan þátt í félagslífinu. Hún
sótti vel fundi og mannfagnaði og
var í áraraðir trúnaðarmaður
starfskvenna á sínum vinnustað.
Haustið 1976 varð Stína fremur
nauðug en viljug að láta af
störfum. Sjúkdómur sá, sem dró
hana að lokum til dauða, var þá
farinn að íþyngja henni svo mjög,
að hún varð að Ieggjast á sjúkra-
hús. Þaðan átti hún því miður ekki
afturkvæmt, heldur beið hennar
löng og erfið banalega. Hún tók
þessum þungbæru örlögum með
mikilli stillingu og dugnaði. Þótt
sárþjáð væri reyndi hún ávallt að
gera að gamni sínu við þá sem
vitjuðu hennar. Fréttir af högum
gestanna og sameiginlegra vina og
kunningja voru henni miklu kær-
komnara umræðuefni heldur en
eigin líðan.
En nú er komið að leiðarlokum.
Börnum Stínu bæði hérlendis og
dóttur hennar og dóttursonum
erlendis, tengdabörnum, barna-
börnum og barnabarnabörnum
sendi ég mínar innilegustu sam-
úðarkveðjur.
Georgía M. Kristmundsdóttir.
+
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vináttu vegna andláts og
útfarar
RAGHNHEIOAR KJARTANSDÓTTUR,
fyrrv. Ijósmóður.
Kjartan Bjarnason, Sigríóur Guðbrandsdóttir,
Magnús Guðbrandsson.
+
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö viö andlát og útför móöur
okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu
ÞORUNNAR BJARNADOTTUR
Einholti 11, Reykjavík.
Guðbjörg Einarsdóttir, Oddgeir Ólafsson,
Kristinn Einarsson, Ebba Andersen,
Bjarni Einarsson, Ragnheiður Eyjólfsdóttir,
Guömundur G. Einarsson, Margrét Ámundadóttir.
barnabörn og barnabarnabörn.
Þökkum auösýnda samúö og vináttu viö andlát og jaröarför
GUÐMUNDAR E. SÍMONARSONAR
netagerðarmeistara
Hringbraut 84
Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunardeildarinnar Hátúni 10B,
3. hæö fyrir einstaka umönnun.
Lára M. Lárusdóttir,
Lérus Guðmundsson,
Hrefna Guömundsdóttir,
Yngvi Guömundsson,
Óskar Guðmundsson,
Jónína Niljohniusdóttir,
Ragnar Guömundsson,
Erla Gestsdóttír,
Erla Friöriksdóttir.
barnabörn og barnabarnabörn.