Morgunblaðið - 20.11.1980, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 20.11.1980, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1980 VERZLUNARSKÓLI ÍSLANDS Verzlunarskóli íslands er sjötíu og fimm ára á þessu hausti. Skólinn hóf starfsemi sína haustið 1905 og hefur starfað óslitjð þau sjötíu og fimm ár sem liðin eru síðan. í tilefni af afmælinu verður opið hús í Verzlunaskól- anum í dag. Hefst hátíðardagskrá kl. 16.00 og munu gestir safnast saman í hátíðarsal skólans og þyggja veitingar. Þá mun Sigurður Gunn- arsson, formaður skólanefndar, ávarpa gesti og bjóða þá velkomna. Þorvarður Elíasson. skólastjóri. mun fara nokkrum orðum um skólastarf- ið en síðan mun Kristján Guðmundsson, forseti Nemendafélags Verslunarskólans, lýsa fé- lagslífi nemenda. Að því loknu mun gestum gefast tækifæri til að færa skólanum árnaðaróskir. Þá mun skólakórinn flytja nokkur lög undir stjórn Jóns Cortes en síðan verður gestum sýnt húsnæði skólans og búnaður. Munu kennarar, nemendur og skólastjórn þá verða til viðtals við gesti í hinum ýmsu kennslustofum skólans. Afmælishátíðinni lýkur kl. 19.00 og mun þá Sigurður Gunnarsson, formaður skólanefndar kveðja gesti. Um 1950 var farið að huga að byggingu nýs skólahúss því mikil þrengsli voru þá orðin í skólanum. Skólanum stóð þá til boða lóð við Melatorg og var um skeið ætlunin að byggja þar. Það varð þó ekki heldur var ráðist í að byggja hér á lóðinni við Þingholtsstræti. Húsið átti- upphaflega að vera fjórar hæðir og skyldi byggt í tveim áföngum. Það varð þó aldrei nema tvær hæðir því þegar ráðast skyldi í annan áfanga byggingarinnar voru komin upp ný viðhorf hjá skipulagsnefnd, — menn höfðu hugsað sér háa byggð þarna um það leyti sem húsið var teiknað en nú er ljóst að svo verður ekki. Nýja húsið hefur því aldrei komið að hálfu gagni því enn vantar kennslustofurnar sem þar áttu að vera. Ástandið núna er þannig að skólinn starfar í þrem húsum þ.e. Gagnger endurskoðun á námsefni skólans stendur fyrir dyrum Þorvarður Elíasson. skólastjóri, á skrifstofu sinni. Ljmm. Kristján Blaðamaður Morgunblaðsins ræddi við Þorvarð Elíasson, skóla- stjóra Verzlunarskóla íslands, í tilefni af afmælinu. Byrjaði Þor- varður á því að lýsa tildrögunum að stofnun skólans og helztu áföngunum í sögu hans þau sjötíu og fimm ár sem skólinn hefur starfað: „Helzti hvatamaður að stofnun Verzlunarskólans var Dethlev Thomsen, kaupmaður, ásamt Jóni Ólafssyni, ritstjóra," sagði Þor- varður. „Um aldamótin höfðu margir gert sér ljóst að mikil þörf væri á slikum skóla hér á landi. Frá því fyrir aldamót höfðu verið umræður um fræðslumál verzlun- arstéttarinnar bæði í Kaup- mannafélaginu og Verzlunar- mannafélagi Reykjavíkur. Það var svo á sameiginlegum fundi þess- ara tveggja félaga, 13. september 1905, að ákveðið var að stofna verzlunarskóla. Að fundinum loknum var kosið í námsnefnd en í henni áttu sæti: Dethlev Thomsen, kaupmaður; Jón Ólafsson, rit- stjóri; Sighvatur Bjarnason, bankastjóri; Karl Nikulásson, verzlunarmaður og Brynjólfur H. Bjarnason, kaupmaður. Þessi fyrsta skólanefnd starfaði allt til ársins 1922 er Verzlunar- mannafélag Reykjavíkur óskaði eftir að Verzlunarráð Islands tæki að sér reksturinn. Frá 1922 til 1931 skipaði Verzlunarráð íslands skólanefnd en 1931 varð sú breyt- ing á að stofnað var svonefnt skólaráð og í það tiinefndir full- trúar frá eftirtöldum félögum: Verzlunarmannafélagi Reykjavík- ur, Verzlunarmannafélaginu Merkúr, Félagi Matvörukaup- manna, Félagi íslenzkra stórkaup- manna, Félagi íslenzkra botn- vörpuskipaeigenda, Félagi vefnað- arvörukaupmanna og Félagi bygg- ingarefnakaupmanna. Þessi skip- an hélzt til 1945 en þá var skólaráöið lagt niður og Verzlun- arráð tilnefndi fimm manna skólanefnd til að stjórna skólan- um. Jafnframt var skólanum sett skipulagsskrá og hann gerður að sjálfseignastofnun undir stjórn skólanefndar. Þannig er stjórn skólans háttað enn í dag. Það hefur þó verið hefð allan tímann að einum manni hefur verið skip- að í nefndina samkvæmt ábend- ingu frá Verzlunarmannafélagi Reykjavíkur og um tíma benti nemendasamband Verzlunarskól- ans einnig á annan fulltrúa. Þá tilnefnir menntamálaráðherra nú einn þessara fimm nefndarmanna samkvæmt 9. gr. laga um við- skiptamenntun. Þetta er saga skólastjórnarinnar í stórum drátt- um. Verzlunarskólinn var lengi á hrakhólum með húsnæði og reyndar er ekki enn þá búið að leysa húsnæðisvanda skólans. Fyrsta árið sem skólinn starfaði var hann til húsa í Vinaminni, húsinu við Mjóstræti 3 sem enn stendur, og notaði sömu kennslu- stofur og Iðnskólinn. Næsta skóla- ár starfaði skólinn í svonefndu Melsteðshúsi en síðan í húsi að Hafnarstræti 19, sem þá hét Kolasund 1. Þar var skólinn til húsa til ársins 1912. Næst flytur Verzlunarskólinn í húsið að Vesturgötu 10 sem var í eign Geirs Kaupmanns Zoega og var þar allt til ársins 1931. Það ár markar tímamót í sögu skólans. Þá tekur skólaráð við yfirstjórn hans og skólinn flyzt að Grund- arstíg 24, þar sem hann er enn til húsa og Vilhjálmur Þ. Gíslason verður skólastjóri hans. Til þess að fjármagna húsakaupin var stofnað félagið Verzlunarskóla- húsið h/f. Keyptu kaupsýslumenn og velunnarar skólans hlutabréf í félaginu og seldist á skömmum tíma svo mikið af þeim að hægt var að kaupa húsið að Grundar- stíg 24. Eftir því sem tímar liðu gáfu nær allir hlutafjáreigendur skólanum hlutabréf sín og árið 1945 var hlutafélagið lagt niður, en eignir þess runnu til skólans sem var orðinn sjálfseignarstofn- un. Árið 1946 keypti skólinn litla lóð við hliðina á húsinu að Grund- arstíg 24 og síðan var hornhúsið á Grundarstíg og Hellusundi keypt og Ióðin þar beint á móti þannig að nú á skólinn samfelda torfu á lóð, sem markast af Grundarstíg, Hellusundi og Þingholtsstræti. í gamla skólahúsinu við Grund- arstíg, nýja skólahúsinu við Þing- holtsstræti og litlu húsi við Hellu- sund, sem keypt var fyrir fáum árum. Skólanefndin hefur aldrei gefið frá sér þá hugmynd að byggja skólahús á nýjum stað og flytja þangað. Árið 1973 fékk skólanefnd vilyrði hjá borgar- stjóra fyrir lóð við Litluhlíð, þar sem gamli Golfskálinn var. Nú eiga sér stað viðræður við Skipu- lagsnefnd um það hvort möguleiki sé á að skólinn geti komið sér fyrir þar sem hann er, eða hvort Litlahlíð sé framtíðarstaðurinn. Hverjir eru helztu áfangarnir í sögu skólans? „í því sambandi væri kannski ekki úr vegi að rifja hverjir hafa verið skóiastjórar við skólann þessi sjötíu og fimm ár sem hann hefur starfað. Ólafur Eyjólfsson, frá Flatey á Breiðafirði, var fyrsti skólastjóri Verzlunarskólans og gegndi því starfi frá 1905 til 1915. Jón Sívertsen var skólastjóri frá 1915 til 1931. Þá tók Vilhjálmur Þ. Gíslason, síðar útvarpsstjóri, við og vár skólastjóri til 1953. Ég man að í fundargerð þess fundar, sem ákvað að Vilhjálmur tæki við stöðu skólastjóra segir „að við kennslu hans taki Andrés Björns- son“ þannig að þú sérð að skólinn hefur verið nátengdur útvarpinu. Dr. Jón Gíslason tók við skóla- stjórn af Vilhjálmi og hafði hana á hendi í 26 ár, allt til 1979 er ég tek við. Dr. Jón var auk þess fyrsti Hús Verzlunarskólans við Þingholtsstræti. Skólahúsið að Grundarstíg 24. Þar hefur Verzlunarskóiinn starfað síðan 1931. Sveinn B. Valfells: Að blanda mjólk- ina með vatni ... SVEINN I). Valfells. iðnrekandi, er elstur þeirra manna sem út- skrifast hafa frá Verzlunarskólan- um. Hann var um langt skeið formaður Félags íslenzkra iðnrek- enda og átti þátt í stofnun þess. Sveinn hefur stofnað og átt þátt í stofnun nokkurra fyrirta'kja hér á landi. Ilann stofnaði t.d. Vinnu- fatagerðina, átti þátt í stofnun Iðnaðarhankans og var einn af stofnendum Steypustöðvarinnar h/f. Blaðamaður Morgunhlaðsins raKÍdi við Svein og var hann fyrst heðinn að rifja upp skólaár sín í Verzlunarskóianum. „Ég byrjaði að vinna við verzlun á fermingaraldri og í framhaldi af því starfi fór ég í Verzlunarskólann. Þar hóf ég nám árið 1919, sextán ára að aldri, sem þá var lágmarks- aldur nemenda, yngri fengu menn ekki að innritast. Ég útskrifaðist svo 1921 eftir tveggja ára nám. Á námsárum mínum var skólinn til húsa á Vesturgötunni og skólastjóri var Jón Sívertsen. Þá voru við skólann margir úrvals kennarar, — sérstaklega man ég eftir þeim dr. Alexander Jóhannessyni og dr. Ólafi Daníelssyni, það var sannar- lega gott vegarnesti að njóta leið- sagnar slíkra manna. Það var mjög góður andi í skólanum, en þó var auðvitað gert grín að sumum eins og verða vill — sérstaklega þeim sem voru miklir á lofti. Annars var skólavistin fremur viðburðalítil, — þeir sem þarna voru helguðu sig náminu fyrst og fremst. Félagslífið snérist aðalega um mánaðarlegar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.