Morgunblaðið - 25.10.1983, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 25.10.1983, Blaðsíða 1
48 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI 244. tbl. 70. árg. ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTÓBER 1983 Prentsmiöja Morgunblaðsins Bandaríkjamenn og Frakkar halda fast við sinn keip í Líbanon: Mitterrand Óvænt heimsókn Mitterrand til Beirut Washington og Beirut, 24. október. AP. „MENN okkar munu verða áfram í Líbanon þar tii friði hefur verið komið á,“ sagði Reagan Bandaríkjaforseti um leið og hann tilkynnti síðdegis, að engin breyting yrði á afstöðu Bandaríkjastjórnar til mála í Líbanon þrátt fyrir morðin á bandarísku gæsluliðunum í Beirut í gærmorgun. Þá bárust þær fregnir frá Frakklandi seint í kvöld, að Frakkar hygðust hafa gæsluliða sína áfram í Líbanon og jafnvel fjölga í liði sínu. Yfirlýsing Reagans var birt skömmu eftir að rúmlega 150 gæsluliðar voru sendir til Líbanon til að fylla í það skarð, sem mynd- aðist við morðin á 186 bandarísk- um og 23 frönskum gæsluliðum í tveimur sprengingum í gærmorg- un. Þá hafa 75 særðir bandarískir gæsluliðar verið fluttir á sjúkra- hús utan Líbanons. Auk gæslulið- anna 150, sem sendir voru til landsins í dag, er von á fleirum á næstunni. Stöðugt var unnið að björgun- arstörfum í dag, en litlar vonir voru taldar til þess að fleiri fynd- ust á lífi. Nokkurra tuga manna er enn saknað. í þeim hópi eru ein- hverjir óbreyttir líbanskir borgar- ar. Ekki hefur enn verið sannað hverjir stóðu að baki sprengingun- um, en óstaðfestar fregnir hermdu, að hópur, sem nefndi sig „Byltingarhreyfingu Múhameðs" hefði lýst ábyrgð á hendur sér. Ásakanir nærliggjandi ríkja gengu á víxl í dag, en PLO, Sýr- lendingar og Iranir þvoðu allir hendur sínar af sprengingunum. Caspar Weinberger, varnar- málaráðherra Bandaríkjanna, sagði á hinn bóginn í dag, að „flest sönnunargögn bentu til þess að ír- anir hefðu verið þarna á ferð“. Jafnframt sagði Weinberger, að hann gæti alls ekki útilokað, að rekja mætti sprengingarnar til Sovétmanna og leppríkja þeirra. Þá sagði talsmaður bandarísku nefndarinnar, sem rannsakar sprengingarnar, að „áþreifanlegar sannanir" lægju fyrir um aðild ír- ana. íranir stóðu að baki spreng- ingu í bandaríska sendiráðinu í Beirut í apríl, þar sem á sjöunda tug manna lét lífið. Francois Mitterrand, Frakk- landsforseti, hélt heim á leið síð- degis eftir 7 klukkustunda óvænta heimsókn til Beirut, þar sem hann kynnti sér ástandið eftir spreng- ingarnar. Varnarmálaráðherra landsins, Charles Hernu, flaug til landsins strax á sunnudag. Mitt- errand vildi ekkert láta hafa eftir sér um heimsóknina. Sjá nánari fréttir á bls. 18—19. Engin steftiubreyting þrátt fyrir mannfallið í Líbanon Francois Mitterrand, Frakk- landsforseti, kom í gærmorgun í óvænta heimsókn til Líbanon. Skoðaði hann verksummerki eftir sprengingarnar á sunnudags- morgun og fundaði með yfirmanni franska friðargæsluliðsins svo og Gemayel, forseta Líbanon. Símamynd AP. Fæstir heyrðu ræðuna New York og víðar, 24. október. LÖGREGLA handtók hundruð manna í New York í dag, þar sem efnt var til mótmæla gegn kjarn- orkuvopnum. Mómælin voru nokk- uð fjölmenn, en fóru að mestu leyti friðsamlega fram. Frá Osló bárust þær fregnir í kvöld, að um 20.000 manns hefðu efnt til mótmælagöngu á degi Sameinuðu þjóðanna undir yfir- skriftinni „Nei til atomvápen". Gangan sjálf þótti heppnast vel, en öðru máli gegndi um mót- mælafundinn í göngulok. Þar brást hátalarakerfið gersam- lega, þannig að aðeins nokkur hundruð manns gátu hlýtt á boðskapinn. Fregnir bárust af mótmælum víða um heim í dag og fylgdu þau í kjölfar fjölmennra aðgerða friðarsamtaka um alla Evrópu um helgina. Talið er að hálf önn- ur milljón manna hafi tekið þátt í aðgerðunum. Dæmigerð mynd frá kjarnorkumótmælum. Mótmælandi borinn burtu af lögreglu í Stuttgart í V-Þýskalandi. Símamynd AP. Rússar fjölga flaugum sínum Moskvu, 24. október. AP. SOVÉSKA varnarmálaráðuncytið skýrði frá því í dag, að samkomulag hefði náðst við hlutaðeigandi stjórn- völd um að hefja undirbúning fyrir staðsetningu nýrra eldflauga í Tékkóslóvakíu og Austur-Þýska- landi. Kom þetta fram í frétt frá sovésku fréttastofunni Tass. Sagði jafnframt, að þetta væri svar Varsjárbandalagsríkjanna við fyrirhugaðri staðsetningu 572 meðaldrægra eldflauga NATO- ríkjanna í Vestur-Evrópu. Hins vegar er ekki vitað hvort umrædd- ar eldflaugar eru af gerðinni SS-20 eða SS-21. Þær fyrrnefndu eru mun langdrægari. Búist hefur verið við þessum viðbrögðum Varsj árbandalagsríkj - anna um nokkurt skeið, en frétt Tass í dag er fyrsta staðfestingin á því að þau muni halda fast við sinn keip. Haft var eftir háttsettum sovéskum embættismanni í þýska tímaritinu Der Spiegel í gær, að áætlanir NATO-ríkjanna um nýjar eldflaugar myndu beina vígbúnað- arkapphlaupinu inn á nýjar braut- ir. Frétt Tass kom á sama tíma og Gustav Husak, leiðtogi tékkneska kommúnistaflokksins, og Erich Honecker, starfsbróðir hans í A-Þýskalandi, hittust á fundi í Prag. Ræddu þeir um fyrirhugaða staðsetningu sovésku flauganna. Afstýrðu kosningum Kaupmannahöfn, 24. október. AP. Minnihlutastjórn Paul Schliiter tókst að afstýra þingkosningum á ell- eftu stundu í dag, er samkomulag náðist á milli stjórnarflokkanna um efnahagsaðgerðir. Samkomulagið leiðir það m.a. af sér, að í fyrsta sinn í tvo áratugi mun halli á ríkissjóði verða minni en árið á undan. Eftir mikið samn- ingsþóf varð forsætisráðherrann að gefa talsvert eftir og sætta sig við áætlun, sem miðar að 8 milljarða danskra króna minni halla á næsta ári.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.