Morgunblaðið - 04.04.1985, Blaðsíða 48
48
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 1985
Minning:
Björn Guðmundsson
frá Reynihólum
Fæddur 23. febrúar 1885
Diinn 24. mars 1985
Skjótt hefur sól brugðið sumri.
Fyrir rúmum mánuði komum við
ættingjar og vinir Björns Guð-
mundssonar saman og fögnuðum
ásamt honum í tilefni af hundrað
ára afmæli hans. Þar sat hann
glaður og virðulegur í öndvegi og
verður þessi hátíðarstund nú
dýrmæt minning eftirlifenda
hans. En Björn andaðist þann 24.
mars sl. á sjúkrahúsinu á
Hvammstanga eftir stutta legu.
Hann var fæddur 23. febrúar 1885
að Þverá í Núpsdal. Foreldrar
hans voru hjónin Guðmundur Jó-
hannesson og Þorbjörg Jónasdótt-
ir. Með þeim flyst hann að Reyn-
hólum í Miðfirði en þau höfðu þá
búið á tveimur bæjum öðrum í
Miðfirði, áður en þau flytja að
Reynhólum, en við Reynhóla hefur
Björn jafnan verið kenndur.
Hann fer ungur að vinna fyrir
sér, er í vinnumennsku nokkur ár.
Á þessum árum átti ungt fólk ekki
margra kosta völ, en Björn sem
var fróðleiksfús hafði alið með sér
draum, en það var að leita sér ein-
hverrar menntunar, og sá draum-
ur rættist því 23 ára er hann var
orðinn nemandi í Flensborg í
Hafnarfirði. Þar fékk hann svalað
að einhverju leyti menntunarþrá
sinni og yfir námsdvölinni í
Flensborg var sérstakur ljómi í
minningunni. Um tíma var hann
starfandi lögreglumaður í Hafn-
arfirði. Að þessum tíma liðnum
fer hann aftur norður og vinnur á
ýmsum stöðum þar til hann festir
ráð sitt og gengur að eiga Ingi-
björgu Jónsdóttur frá Huppahlíð
árið 1916. Þau bjuggu fyrstu árin
sem leiguliðar á nokkrum jörðum
en árið 1933 kaupir Björn Reyn-
hóla og bjó þar góðu búi til ársins
1966, en þá tók einn sona hans við
búinu. Eftir að þau Björn og Ingi-
björg koma að Reynhólum fara
þau að sjá bjartari daga eftir erf-
iðleika frumbýlingsáranna. Þau
eignuðust sjö börn. Þau eru:
Hólmfríður húsmóðir, Jóhanna
bóndi, Guðmundur bóndi, Björg-
vin verslunarmaður, ólöf húsmóð-
Látin er
+
MARGRÉT HALLDÓRSDÓTTIR
frá ísafirði.
Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 15. april kl.
15.00.
Fyrir hönd aöstandenda.
Fjóla Sigmarsdóttir.
t
Eiginmaöur minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi,
HARALDUR ÍSLEIFSSON
fyrrverandi fiskmatsmaöur,
Skólastíg 28,
Stykkishólmi,
sem andaöist sunnudaginn 31. mars i St. Fransiskussjúkrahúsinu
Stykkishólmi, veröur jarösunginn frá Stykkishólmskirkju þriöju-
daginn 9. april kl. 14.00.
Blóm og kransar afþakkaöir, en þeir sem vildu minnast hins látna
láti Stykkishólmskirkju njóta þesss.
Kriatfn Cecelsdóttir,
börn tengdabörn og barnabörn.
+
Eiginmaöur minn, faöir, tengdafaöir og afi,
Henning Busk,
verkstjóri,
i Baröaströnd 17,
sem andaöist 28. mars sl., veröur jarösunginn frá Dómkirkjunni
miövikudaginn 10. april kl. 13.30. Jarösett veröur i Gufuneskirkju-
garöi.
Anna Busk,
Eyjólfur Busk,
Ursula Busk,
Henning Busk,
Jens Busk,
Alexander Busk.
+
Kveöjuathöfn um móöir okkar,
KRISTÍNU PÁLMADÓTTUR,
Fellsmúla 2,
Reykjavfk,
fyrrum húsfreyju
Hnausum, Húnavatnssýslu,
fer fram i Fossvogskapellu þriöjudaginn 9. april kl. 15.00.
Jarösett veröur á Þingeyrum laugardaginn 13. aprii kl. 14.00.
Börn og tengdabörn.
+
MARGRÉT JÓHANNSDÓTTIR
frá Neöri-Brunnastööum
veröur jarösungin frá Kálfatjarnarkirkju laugardaginn 6. april kl. 13.30.
Blóm og kransar vinsamlegast afbeðin, en þeim sem vildu minnast
hinnar látnu er bent á aö láta Orgelsjóö Kálfatjarnarkirkju njóta
þess.
Fyrir hönd aöstandenda,
Slmon Kristjánsson,
Magnea Magnús.
+
HELGA JÓNSDÓTTIR,
Kópareykjum,
sem lést i sjúkrahúsi Akraness 27. mars sl., verður jarösungin frá
Reykholtskirkju iaugardaginn 6. april nk. kl. 14.00.
Börn tengdabörn og barnabörn.
+
BJÖRN GUÐMUNDSSON,
Reynhólum,
sem lést i sjúkrahúsinu á Hvammstanga aöfaranótt 24. mars verður
jarösunginn laugardaginn 6. april kl. 13.00. Jarösett veröur frá
Staöabakkakirkju.
Börn og tengdabörn.
+
Útför ömmu okkar,
JÓRUNNARS. MAGNÚSDÓTTUR
frá Brœöraborg,
Hellu,
fer fram frá Stórólfshvolskirkju laugardaginn 6. april kt. 14.00.
Árni Sigurjónsson,
Gunnar Sigurjónsson,
Jórunn Sigurjónsdóttir.
Konan mln, móölr, tengdamóöir og amma,
GUDRÚN SIGURÐARDÓTTIR,
Ljósheimum 6,
Reykjavlk,
fyrrum húsfreyja á Þóroddsstööum í Ólafsfiröi, lést á heimili sinu
28. mars sl. Kveöjuathöfn fer fram i Langholtskirkju þriöjudaginn
9. april kl. 13.30. Jarösett verður frá Ólafsfjaröarkirkju miövikudag-
inn 10. apríl kl. 14.00.
Jón Þóröarson,
Siguröur H. Þórðarson,
Ármann Þóröarson,
Sigríöur Þóröardóttir,
Eysteinn G. Þóröarson,
Svanberg Þóröarson,
Þóröur Jónsson,
Jóhanna Sveinsdóttir,
Guörún Tómasdóttir,
Þórgunnur Rögnvaldsdóttir,
Pamela Þóröarson,
Anna Halldórsdóttir,
og barnabörn.
+
THEODÓR FRIDRIKSSON (THJÁI),
sjómaður,
veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju þriöjudaginn 9. april kl. 10.30
fh. Fyrir hönd annarra vandamanna.
Helga Þorsteinadóttir,
Helga Margrót Söebech,
Elfnborg Guöjónsdóttir,
Adolf Theodórsson.
+
Þökkum innilega þeim er sýndu okkur samúö og vináttu viö andlát
og jaröarför fööur okkar, tengdafööur, afa og langafa,
DAVÍDS ÓSKARS GRÍMSSONAR
húsgagnasmiöameistara,
Bergstaöastrœti 25.
Sigrföur K. Davfösdóttir,
Grfmur Davfösson,
Jóhann Þ. Davfösson,
Hjördfs Davfösdóttir,
Ósk Davfösdóttir,
Hólmfrföur Davfösdóttir,
barnabörn og
Gylfi T raustason,
Svanhildur Sigurfinnsdóttir,
Laufey Ósk Guömundsdóttir,
Rúnar Guömundsson,
Guömundur I. Kristofersson,
Sigurður Eirfksson,
barnabarnabörn.
+
Þökkum innilega samúöarkveöjur vegna andláts systur okkar,
ÖNNU KONRÁDSDÓTTUR
kennara.
Margrét S. Konráösdóttir, Björn Konráösson.
ir, Jóhannes hreppstjóri og Elís
vélamaður. Auk þeirra ólu þau
upp dótturbörn sín, Björn bif-
reiðastjóra og Kristínu Rut ritara.
Afkomendur þeirra hjóna eru um
80 talsins. Konu sína missti Björn
árið 1974. Með henni sá hann á
bak traustum og góðum lífsföru-
naut, því Ingibjörg var einstök
gæðakona, hlý og mild og glöð í
sinni. Hann minntist hennar með
virðingu og þakklæti.
Björn átti góða elli, naut góðrar
heilsu og hélt andlegri og líkam-
legri reisn. Hann unni hverskonar
fróðleik og vísna- og ljóðagerð.
Sjálfur lagði hann töluvert af
mörkum í þeim efnum og reifaði
hugsanir sinar í bundið mál til
síðasta dags. Návist þessa glaða
og vel gefna manns gaf lífinu auk-
ið gildi. örstuttar heimsóknir til
hans á dvalarheimili aldraðra á
Hvammstanga, þar sem hann
dvaldi hin siðari ár, voru bæði
skemmtilegar og uppbyggjandi.
Ég hef verið þeirrar gæfu aðnjót-
andi að geta talið Björn til minna
allra bestu vina auk þess að vera
tengd honum fjölskylduböndum.
Ég þakka að leiðarlokum traust og
góð kynni. Ástvinum hans sendi
ég innilegar samúðarkveðjur. Guð
blessi minningu hans.
Kristín Jóhannesdóttir
Næstkomandi laugardag verður
kvaddur og til moldar borinn
Björn Guðmundsson fyrrum bóndi
á Reynhólum.
Hinn 23. febrúar síðastliðinn
var samankominn fjöidi fólks í fé-
lagsheimilinu Ásbyrgi, ættmenn
og vinir, til að heiðra hann á 100
ára afmælinu. Það var honum
mikil ánægjustund. öll skynjun og
sálarþrek var óskert. I tilefni af
afmælinu var hans minnst hér í
Morgunblaðinu og því ekki farið
út í æviatriði hans nú.
Réttum mánuði síðar, 23. mars,
andaðist Björn í sjúkrahúsinu á
Hvammstanga og fékk rólegt and-
lát. Langri ævi var lokið.Takmarki
náð og hann ekki að neinu leyti
vanbúinn til að hefja nýjan
áfanga.
Þakklæti fyrir samveruna og
hlýjar óskir fylgja honum út yfir
landamærin.
Benedikt Guðmundsson
Birting
afmœlis- og
minningar-
greina
ATHYGLI skal vakin á því, að
afmælis- og minningargreinar
verða að berast blaðinu með góð-
um fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði, að berast í síðasta lagi
fyrir hádegi á mánudag og hlið-
stætt með greinar aðra daga. í
minningargreinum skal hinn
látni ekki ávarpaður. Þess skal
einnig getið, af marggefnu til-
efni, að frumort Ijóð um hinn
látna eru ekki birt á minningar-
orðasíðum Morgunblaðsins.
Handrit þurfa að vera vélrituð og
með góðu línubili.
Blömastofa
Friöfinm
Suöurtandsbraut 10
108 Reykjavtk. Sími 31099
Opið öll kvöld
tll kl. 22,- einnig um helgar.
Skreytingar við öli tilefni.
Gjafavörur.
WS ** 1
Jr Ö.W 1f ■