Morgunblaðið - 06.10.1985, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. OKTÓBER1985
35
MedmKlabréfið hans Þorvalds Skúlasonar fri Ásgrími og Jóni Stefánssyni,
sem datt út úr franskri bók einn daginn fyrir skömmu.
Úr Bókavörðunni.
— segir Bragi í Bókavörðunni
Grein og myndir: ÁRNI JOHNSEN
Ein af Hverfisgötubúðunum er fornbókabúðin Bókavarðan. Þar hittum við
að máli Braga Kristjónsson og spurðum um hreyfinguna sem væri í forn-
bókasölunni. „Hreyllngin á gömlu bókunum er veruleg," sagði hann. „Það
er alltaf veruleg hreyfing en á undanlornum árum hefur sú breyting orðið að
í stað þess að fornbókasalan sinnti mest fáum söfnurum, þá fer nú um
fornbókasölurnar fjölmennur hópur manna sem safnar fjölbreyttu efni. Það
eru mörg hundruð viðskiptavinir sem versla reglulega í þessum búðum. En
það er lítið orðið eftir af hinum svokölluðu alstum í fornbókasöfnuninni.
Þeir síðustu eru kannski Torfi tollstjóri, Friðjón Skarphéðinsson og séra
Eiríkur á Þingvöllum. Söfnun eldri Ijóðabóka er svo til úr sögunni og
gleymdir höfundar verða gleymdari og gleymdari, þessir sem aldrei náðu í
gegn, en aftur a raoti eykst söfnun
Hans safn er nú loksins að koma út
hans voru gefnar út á sínum tíma í
kenderíi um bsinn.
Allskonar sérrit hafa
„sturtast“ yfir
En það hefur margt breyst sem
hefur áhrif á fornbókasölurnar.
Árið 1948 voru t.d. þrír jarðfræð-
ingar í landinu, en nú eru yfir 300
sem tengjast Jarðfræðingafélag-
inu. Þetta er aðeins dæmi um það
fólk, sem þarf að fara í gegnum
svona búðir, því að oft eru ýmis
sérrit, sérstaklega sem hafa verið
gefin út áður, sem þetta fólk er að
leita að. Lögmenn t.d. telja sig
þurfa að eignast margt sem hefur
verið prentað og þeim hefur fjölg-
að verulega, en þó er það þjóðlegi
þátturinn, sem er mest áberandi í
fornbókasölunni. Menn eru að
leita að almennum þjóðlegum
fróðleik eða einhverju um sína
byggð.
Svo eru það hin ýmsu rit eins og
t.d. Lögfræðingatal, Guðfræð-
i Tomasi, Steini og Villa frá Skálholti.
f heild, líklega á þessu ári, en bskur
nokkur hundruð eintökum og dreift á
ingatal, Læknatal. Slíkar bækur
höfðu komið út kannski einu sinni
fyrir 1950, en síðan hafa sambæri-
legar bækur sturtast yfir og þær
seljast yfirleitt fljótlega upp svo
að eftirspurn verður og þá í gegn-
um fornbókasölurnar. Margt kem-
ur fyrir á langri leið. í gær var ég
t.d. að handfjalla franska bók,
ekkert sérstaka bók, skáldsögu og
þá datt út úr henni meðmælabréf
með Þorvaldi Skúlasyni undirritað
af Ásgrími Jónssyni og Jóni Stef-
ánssyni. Er skemmtilegt að finna
slíkt. Flestallar bækur sem koma
út eru ódýrari en nýjar bækur
fyrstu 20—50 árin en svo hækka
þær. Það er fólk á öllum aldri sem
mest er í fornbókasölunum, en þó
er þar mest áberandi fólk á aldrin-
um 35—60 ára. Það þýðir ekki að
hafa eitthvað eitt í þessu á boð-
stólum, ekki aðeins fágætar bæk-
ur heldur alla breiddina. Þetta eru
Morpinblaðið/Árni Johnsen
Bragi Kristjónsson.
svo mörg lög af fólki sem vil?>
versla í fornbókabúðum, en mesta
hreyfingin frá degi til dags er þó í
vasabókunum.
Úr sýningarglugganum þar sem m.a. var óskað eftir upplýsingu um mormón-
atrúboðana, Hjörleif og Halldór, og á bsklingi um Eimskip 40 ára liggur
fjögurra blaða smári.
Einstakir eljumenn
í söfnun
Menn eru að velta ýmsu fyrir
sér. Yngra fólkið er mikið að spá í
stríðið og tímann fyrir stríð. Það
er mikill áhugi hjá því fólki á er-
lendri sögu. Áberandi meiri en
fyrir íslenskri sögu. Svo eru marg-
ir grúskarar, karlar og konur,
ákveðnir höfundar, sem verið er
að leita að ákveðnu efni eftir.
Einnig eru hreinræktaðir bóka-^-
safnarar alltaf á ferðinni. Þeir líta
t.d. eftir 19. aldar tímaritum og
eldri bókmenntum, en yfirgnæf-
andi meirihluti þeirra sem koma í
þessa búð eru lestrarhestar á ólík-
um sviðum. Mest af bókunum sem
kemur inn býðst þegar breyt-
ingarnar verða á högum fólks, úr
búum, fólk er að minnka við sig og
þannig kemur þetta inn. Ég kaupi
alltaf þó nokkuð frá útlöndum,
kaupi bækur frá þýskum, norskum
og enskum bókasölum, því það eru
tugir bóka sem hafa verið prent-
aðar erlendis. Njálssagan sem er
til í Snæbirni var t.d. þýdd 1861 og
SJÁ NÆSTU SÍÐU
[)ii tMxJ Ixtjuíu ^ítrvali „
^Lj^OLaLoUa þwiAX UUtjAA ttt-Cu ilUlfCLLA , Jtílt
ixrfuuK xLi éuut CsAUU 0&1UU4
JvL.
tn| 4.4Íuíaduuciloquuí , \)t<) Uua
UfU tuu
rJiW»40U
„Mörg lög af fólki sem vill
versla í fornbókabúðum“
VINDÁSHLÍÐ
KAFFIHLA ÐBORD
Á AMTMANNSSTÍG 28 KL. 15.00—18.00.
(BAK VIÐ M.R.)
MMHBWHHMH