Morgunblaðið - 08.11.1985, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 08.11.1985, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER1985 Eyjólfur K. Jóns- son formaður utan- ríkismálanefndar EYJÓLFUR Konráð Jónsson, þing- maður Sjálfstæóisflokksins, var í gær endurkjörinn formaður utan- ríkismáianefndar þingsins. Harald- ur Ólafsson, þingmaður Framsókn- arflokksins, var kosinn varaformað- ur og Kjartan Jóhannsson, þing- maður Alþýðuflokksins, var kosinn ritari nefndarinnar. Nokkur ágreiningur hefur verið milli stjórnarflokkanna síðustu vikur um kjör formanns utan- ríkismálanefndar. I upphafi kjör- tímabilsins var ráð fyrir því gert, að framsóknarmaður skipaði þetta sæti og var Ólafur heitinn Eyjólfur Konráð Jónsson Jóhannesson kjörinn formaður utanríkismálanefndar en Eyj- ólfur Konráð Jónsson varafor- maður. Þegar ólafur féll frá tók Eyjólfur Konráð við formanns- störfum um skeið en síðan var Tómas Árnason kjörinn formaður nefndarinnar. Þegar Tómas var skipaður Seðlabankastjóri og vék af þingi tók Eyjólfur Konráð á ný við formennsku nefndarinnar og hefur gegnt því síðan. Hann hefur stjórnað meirihluta funda nefndarinnar á þessu kjörtíma- bili. Vegna þessa aðdraganda töldu sjálfstæðismenn eðlilegt, að Eyj- ólfur Konráð yrði kjörinn formað- ur nefndarinnar nú, en framsókn- armenn héldu framan af fast við að þeirra maður ætti að skipa þessa stöðu. Að lokum varð sam- komulag milli stjórnarflokkanna um að frjáls kosning færi fram innan nefndarinnar um for- mennskuna. Féllu atkvæði svo, að Eyjólfur fékk fjögur atkvæði en Haraldur eitt. Tveir seðlar voru auðir. Samkvæmt heimildum blaðsins greiddu þrír fulltrúar Sjálfstæð- isflokksins í nefndinni og Kjartan Jóhannsson atkvæði með Fyjólfi, fulltrúi Framsóknarflokksins greiddi Haraldi atkvæði en full- trúar Alþýðubandalags og Kvennalista skiluðu auðu. Morgunblaðið/Friðþjófur Hatt hreykir ... Landspjöll verða með ýmsum hætti, ýmist af völdum móður náttúru eða barna hennar, mannfólksins. Hér hefur móðir náttúra ekki átt annan hlut að máli en að leggja til auðugt malarnám í grennd við Húsavík. Hafi rafmagnslínan á þessum staur einhvern tíma verið í seilingarhæð, er hún það svo sannarlega ekki lengur. Amfetamínsmygl: Fjórði maður- inn handtekinn MAÐUR um þrítugt var handtekinn á miðvikudag grunaður um aðild að smyglinu á amfetamíni, sem upp komst fyrir helgi og um helgina. Fíkniefnadeild lögreglunnar gerði í gær kröfu um að maðurinn verði úrskurðaður í viku gæsluvarðhald og tók dómari við sakadóm í ávana- og fíkniefnamálum sér frest til að úrskurða í málinu. Þrír menn voru handteknir á fimmtudagskvöldið í síðustu viku með 220 grömm af amfetamíni. Þeir voru handteknir eftir að lög- regla hafði orðið að aka á bifreið þeirra til að stöðva þá og yfirbuga þegar þeir veittu mótspyrnu við handtöku. Á sunnudagskvöldið fann lögregla svo 300 grömm af amfetamíni um borð í togaranum Breka í Vestmannaeyjahöfn. Arn- ar Jensson, fulltrúi við fikniefna- deild lögreglunnar, vildi ekkert segja um hver meint aðild manns- ins að smyglinu er. Gríðarlegt tjón á Klakki Vestmannaeyjum, 7. nóvember. LJÓST er að umtalsvert tjón varð um borð í skuttogaranum Klakki frá Vestmannaeyjum þegar skipið fékk á sig mikinn brotsjó í óveðri í Norðursjó snemma á miðvikudags- morguninn, skv. upplýsingum út- gerðarinnar hér. Klakkur var þá á leið til fslands úr söluferð til Bremer- haven í V-Þýskalandi og sneri aftur þangað eftir áfallið. Sameining BÚR og ísbjarnarins samþykkt í borgarstjóm: Hlutabréf í eigu borgarinnar verða seld eftir sameininguna HLUTABRÉF Reykjavíkurborgar í hinu nýja fyrirtæki, sem stofnað verður með sameiningu ísbjarnarins hf. og Bæjarútgerðar Reykjavíkur, verða seld einstaklingum og fyrir- tækjum í Reykjavík eftir sameining- una og þegar endanlegt uppgjör ligg- ur fyrir. Tillaga Alberts Guðmunds- sonar þessa efnis var samþykkt með atkvæðum borgarstjórnarmeirihlut- ans gegn atkvæðum minnihlutans á fundi borgarstjórnar í gærkvöldi. Á fundinum voru samþykkt með sama atkvæðahlutfalli drög að samningi milli borgarstjórnar og ísbjarnarins um stofnun hins nýja hlutafélags, sem á að eignast og taka við rekstri frystihúsa, togara og fleiri eignum BÚR og ísbjarnar- ins. Snarpar umræður urðu um samningsdrögin á fundinum. Sigur- jón Pétursson gagnrýndi forsendur samningsins og þau vinnubrögð, sem hann sagði hafa verið viðhöfð í þessu máli. Hann sagði ennfremur, að 35 milljóna króna mat á eignum ísbjarnarins á Seltjarnarnesi væri langt fyrir ofan raunvirði. Meðal annars mætti benda á, að sumar matvælageymslur ísbjarnarins þar væru lokaðar — enda ónýtanlegar. Davíð Oddsson borgarstjóri sagði um hreinar rangfærslur að ræða hjá Sigurjóni, því þegar ísbjörninn og menntamálaráðuneytið hefðu átt í viðræðum um kaup ráðuneytisins á hluta þess húsnæðis, sem um ræddi, hefðu fasteignasalar metið þann hluta á 35 milljónir. Taldi borgarstjóri þetta Ijóslega sýna rökþrot minnihlutans. Kristján Benediktsson sagði f ræðu sinni, að frjálshyggjumaður- inn Davlð Oddsson og félagar hans Smiðjuvegsmálið: Dæmdur í 17 ára fangelsi fyrir morð SIGURÐUR Adolf Frederiksen, tvftug- ur Kópavogsbúi, var f gær dæmdur í 17 ára fangelsi í Sakadómi Kópavogs fyrir að hafa orðið Jósef Liljendal að bana aðfararnótt 14. mars síðastliðinn. Dómurinn yfir Sigurði er hinn þyngsti, sem upp befur verið kveðinn hér á landi síðan 1981 þegar Hæstiréttur dæmdi mann í 17 ára fangelsi fyrir að hafa orðið tveimur mönnum að bana f svonefndum Geirfinns- og Guðmundarmálum. Raunar eru þetta einu tilvikin bér á landi, sem menn hafa veríð dæmdir í 17 ára fangelsi. Sigurður var dæmdur fyrir að hafa orðið Jósef heitnum að bana með þvf að slá hann f höfuðið með járnröri, stinga og leggja eld að honum þannig að leiddi til dauða. AlmannahæUa var talin atafa af fkveikjunni. Þá var han'n dæmdur fyrir að hafa kveíkt í nfb. Boða í Keflavfkurhöfn sunnudaginn 10. mars. Með því stefndi hann tveimur manneskjum f bráða hættu auk þess sem talsvert tjón varð f eldsvoðan- um. Auk þess var Sigurður talinn hafa rofið skilorð dóms frá þvf f júlí 1984 þegar hann var dæmdur f þriggja mánaða fangelsi. Brot Sigurðar er talið varða við 211. grein hegningarlaganna, 2. mgr. 164. greinarinnar, sem kveður á um almannahættu auk minni brota. Með vfsan til 77. greinar hegningarlag- anna var Sigurður dæmdur f 17 ára fangelsi, en sú grein kveður á um þyngingu refsingar. Til frádráttar refsingu kemur gæsluvarðhaldsvist frá 15. mars. Ólöf Pétursdóttir, full- trúi fógeta í Kópavogi, kvað upp dóminn. Bragi Steinarsson, vararik- issaksóknari, flutti málið af hálfu ákæruvaldsins, en verjandi ákærða var örn Clausen, hrl. væru enn á ný að sýna andúð sfna á rikisrekstri, sem þeir teldu án undantekninga óeðlilegan. Guðrún Jónsdóttir taldi hér á ferð enn eitt „leiftursóknarafbrigði" borgar- stjórans, sem bæri keim af „stalín- ískum“ stjórnarstíl hans. í bókun, sem minnihlutafulltrú- arnir lögðu fram, segir m.a. að hér sé f raun aðeins um að ræða form- breytingu, þar sem Reykjavíkur- borg eigi yfirgnæfandi meirihluta í nýja fyrirtækinu. í bókuninni er einnig lýst yfir andstöðu við þau markmið í samningnum, að borgin hætti að ábyrgjast rekstur fyrir- tækis í sjávarútvegi og tryggja þar með örugga atvinnu. „Einkafram- takið, sem gefist hefur upp á rekstri útgerðar, er að segja sig til sveitar og samfélaginu er ætlað að yfirtaka skuldir þess,“ segir orðrétt í bókun minnihlutans. Borgarstjóri sagði f lok fundarins: „Þetta er merkur og góður atburður, sem hér er að gerast. Hann hefði átt að gerast fyrr en betra er seint en aldrei." Flestir skipverjanna fljúga heim til íslands f fyrramálið en gert verður við skipið í Bremerhaven. Reiknað er með að viðgerðin taki 15—18 daga. Vitað er, að flestöll tæki f brú skipsins eru ýmist ónýt eða verulega skemmd enda fylltist brúin af sjó þegar brotsjórinn braut þrjá glugga bakborðsmegin og sprengdi sér leið út um dyr stjórnborðsmegin. Miklar skemmdir urðu á innréttingu í brúnni og á stórum kafla skolaðist hún hreinlega burtu, tréverk og einangrun, svo skein í bert stálið. Stjórnborð fyrir spil skipsins skemmdist einnig. Hnédjúpt vatn komst f allar íbúðir skipverja og matsal. Það þykir hin mesta guðsmildi, að engin slys urðu á mönnum þegar þessi ógnarhrammur Ægis skall á skipinu. — hkj. Kvennalið Alþýðubandalagsins tvístrað: Bullandi ágreiningur um varaformannsefni BULLANDI ágreiningur er kominn upp í kvennaliði Al- þýðubandaiagsins um það hver verði varaformannsefni þeirra. Þær Guðrún Ágústsdóttir, Guðrún Hallgrímsdóttir og Adda Bára Sigfúsdóttir, sem allar tilheyra stuðningsliði Svavars Gestssonar, lýstu því yfir á fundi kvennaliðsins í fyrrakvöld, að þær myndu ekki styðja Kristínu Á. Ólafs- dóttur, heldur vildu þær að Álfheiður Ingadóttir byði sig fram til varaformanns. Heimildir Morgunblaðsins herma, að þrátt fyrir þetta séu allar líkur á því, að Kristín Á. Ólafsdóttir bjóði sig fram í varaformannsembættið, enda er hún talin njóta mun víð- tækari stuðnings en Álfheiður Ingadóttir. Engin niðurstaða fékkst á fundi kvennanna í fyrrakvöld og var ákveðið að þær myndu hittast á nýjan leik klukkan 08.30 í dag. Leggja konurnar mikla áherzlu á að reyna að ná samstöðu um eina konu sem frambjóðanda þeirra, þar sem þær telja að ella sé næsta ólík- legt að kona nái kjöri í þetta embætti. Sigríður Stefánsdóttir bæj- arfulltrúi Alþýðubandalagsins á Akureyri var um tíma talin koma til greina, þar sem þeir Svavar Gestsson, Hjörleifur Guttormsson og Steingrímur Sigfússon voru sagðir vilja fá hana í þetta embætti. Hún er hins vegar ekki lengur talin koma til greina, þar sem hún sækir lítinn sem engan stuðn-' ing til kvennanna á landsfundi og unga fólksins. Á landsfundinum í gær- kvöldi mátti sjá landsfundar- fulltrúa stinga saman nefjum á göngum og í skúmaskotum og var varaformannsmálið mjög til umræðu. Annað, sem til tíðinda þótti bera í gær- kvöldi, var að Össur Skarp- héðinsson ritstjóri Þjóðviljans vandaði flokksforystunni ekki kveðjurnar í niðurlagsorðum ræðu sinnar, er hann flutti framsöguerindi undir liðnum ^Ný sókn í atvinnulífinu". Sagði hann það anzi hart, þegar flokksforystan réðist á og reyndi að brjóta niður þá, sem dirfðust að vera á öðru máli en flokksforystan og dirfðust að ræða þau mál opin- berlega 1 fjölmiðlum eins og hlyti að gerast á fjölmiðlaöld.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.