Morgunblaðið - 15.05.1986, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 15.05.1986, Blaðsíða 15
sRPrt/r/ arqrr'-*rr,nm«rq nflfiA.ijfVfTTrrjrow •M’ MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. MAÍ 1986 15 Tækifærismyndir í Hafnarborg, menningarmið stöð þeirra Gaflara, sýnir fram til 19. maí Gunnar Hjaltason gull- smiður. Á sýningunni er mikill fjöldi mynda í frekar takmörkuðu rými og eru þær víða af landinu svo og frá Færeyjum og Zillertal í Austur- ríki. Gunnar Hjaltason virðist mikill ferðagarpur og náttúruunn- andi og hefur að auki lipra hönd, sem hann notar óspart við þá ástríðu sína að rissa upp áhugaverð myndefni, sem hann kemst í sjón- mál við. Af þessari iðju sinni virðist hann hafa mikla ánægju og lífsnautn, því að hér er hann ekki einhamur, se tekið mið af afköstum hans og Qölda sýninga á liðnum árum. Myndir hans virka sem fljótgerð riss, þar sem ekki er mikil alvara né þankar um lögmál lita og forma að baki — hér verður maður ekki var við mikil átök við efniviðinn né glímu við hin einstöku vanda- mál, er upp koma. Myndriss í þessu formi er sér- stakur geiri myndlistar og alþekkt fyrirbæri víða í útlöndum. Þannig myndu rissin frá Færeyjum og Zillertal sóma sér ágætlega með frásögnum í helgarblaði af þessum stöðum. Hér á ég að sjálfsögðu við fylgirit stórblaða um helgar, sem vanda mjögtil slíkra myndbirtinga. Myndgerð Gunnars Hjaltasonar er mjög fastmótuð og tekur litlum breytingum frá einni sýningu til annarrar og þannig virðist lita- spjald hans ávallt vera hið sama, hvar sem hann ber niður. Litanotk- un hans er þannig meira vani en bein hughrif frá hveijum stað. Þannig er þetta í heild nokkuð einhæf skjalfesting sjónreynslu gerandans. LJÓSMYNDIR AF HELGUM DÓMUM SZEROWATT tfminn! Þrátt fyrir litiö þvottaherbergi er örugglega gólfpláss bœðl fyrir Zerowatt þvottavél og þurrkara þvl nú er hægt að setja þurrkarann ofan á þvottavélina. Með verð og gæöi f huga er þetta ekki spurning. Það er öruggiega pláss fyrir Zerowatt. ^SAMBANDSINS ÁRMÚLA3 SlMAR 6879/0-81266 í vesatri gangi Kjarvalsstaða eru til sýnis allmargar ljósmyndir, sem svissnezki ljósmyndarinn Leon- ardo Bezzola hefur tekið af lista- verkum og trúartáknum í Jerúsal- em. Svo sem segir, þá hafa pílagrím- ar hinna þriggja miklu eingyðistrú- arbragða sótt til Jerúsalem til að fínna rætur sínar. Þar er Musteri Salómons, Ómarmoskan og Kirkja hinnar heilögu grafar. Sumir þess- ara pílagríma hafa dvalið langdvöl- um í Jerúsalem og skilið eftir sig listaverk og trúartákn. Hinn fíngerði yndisþokki hefur aldrei átt við Elías í teikningunni, þá hann hefur rissblýið eða hin hvössu skurðjárn tréristunnar milli handanna. Hins vegar hefur honum ágætlega gengið að aga sig í mál- verkinu þar sem hann leikur á aðra strengi. Fyrir þessi ábúðarmiklu og stór- skornu vinnubrögð sín hefur lista- maðurinn markað sér nokkra sér- stöðu meðal íslenzkra grafíklista- manna, og hér er hann sannur og einlægur í myndgerð sinni. Hin nýrri verk, sem Elías hefur gert í tréristu, þykja mér vera það athyglisverðasta á sýningunni svo sem myndin „Týndi hún af sér trafinu", svo og fleiri í þeim stíl- brögðum. I heild er þetta all óvenjuleg sýn- ing í hinni ríku flóru málverkasýn- ing á höfuðborgarsvæðinu. Það er sérstök ástæða til að vekja athygli á þessari sýningu, er lætur lítið yfír sér, en gefur þeim mun meira, hveijum einum, er hana skoðar vel og gaumgæfi- lega. Sérstaklega skal bent á text- ana, er fylgja myndunum og veita mikilsverðar upplýsingar. Sjálfar ljósmyndimar, sem allar eru í lit og sumar allstórar, era mjög vel úr garði gerðar — litir og áferð á þann veg, að skoðandinn er sem kominn á þá staði, sem þær era af. Á stundum minna þær jafnvel á málverk í ofurfínlegum blæbrigðaríkidóm sínum. Hér skal sérstaklega bent á myndimar af hliðum í garði hinna armensku patríarka. Hlið era sameiginleg tákn allra þriggja trúarbragðanna um inngöngu í Jerúsalem og jafn- framt endurkomu Messíasar. Ljósmyndimar, sem sýna þessi hlið, era gullfallegar og öll vinnsla þeirra mjög til eftirbreytni fýrir látleysi og nákvæmni. Auðséð er á öllu í sambandi við þessa sýningu, að ljósmyndarinn Leonardo Bezzola er af hárri gráðu í sínu fagi og hefur að auki í senn mikla þekkingu og ríka tilfínningu fyrir myndefninu. Hann leggur í senn áherslu á listræn vinnubrögð og á það að hin sérstöku listaverk og trúartákn komist sem rækileg- ast til skila í ljósmyndunum, og þetta tekst honum mjög vel. Að þessari sýningu er mikil prýði á Kjarvalsstöðum, því að hún er óvenjuleg og sönn, segir heilmikið um þær slóðir, sem myndimar era af og þá miklu tilbeiðslu, sem ligg- ur að baki hinum einstöku lista- verkum og trúartáknum. ARCOFLAM d arcopal Hvítu frönsku eldhúspottarnir eru bylting í mataráhöldum. Pottana notar þú: ★ á rafmagnshelluna ★ ágashelluna ★ í bakaraofninn ★ í örbylgjuofninn . I' og svo berðu matinn fram ípottunum. 8 stærðir af pottum og 1 af pönnu. Islenskur kynningarbæklingur og verðlisti. TEKK* KRISTAIX Laugavegi15 simi 14320 Póstsendum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.