Morgunblaðið - 15.11.1986, Side 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 1986
Yfirlýsmg frá Birni
Björnssyni, prófessor
MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi yfirlýsing frá Birni
Björnssyni, prófessor, vegna skrifa Helgarpóstsins:
„Vegna ákaflega alvarlejrra að- skeyti. Eg hafði enga hugmynd um
dróttana Helgarpóstsins fimmtudag-
inn 13. nóvember 1986 um aðild
mína að kaupum Hjálparstofnunar
kirkjunnar á húseigninni Engihlíð 9
og hagsmunaárekstra þar að lútandi
vil ég taka fram eftirfarandi:
Um kaup Hjálparstofnunar kirkj-
unnar á Engihlíð 9 vissi ég alls ekki
neitt fyrr en þau voru um garð geng-
in. Um það geta aðrir vitnað og
munu vafalaust gera eiðsvamir fyrir
rétti ef á þarf að halda. Þegar þau
kaup voru gerð var ég ásamt eigin-
konu minni staddur erlendis. Hús-
eign tengdaforeldra minna látinna
hafði þá þegar verið seld, þveröfugt
við það sem Helgarpósturinn leyfir
sér að fullyrða. Veit ég vel að til er
sími og að til eru símskeyti. En það
var ekki hringt til mín, ég fékk ekki
húsakaup Hjálparstofnunar kirkj-
unnar fyrr en þau voru afstaðin við
heimkomu mína frá útlöndum.
Eg á ekki sæti í framkvæmda-
nefnd Hjálparstofnunar kirkjunnar
sem aðalmaður. Eg er þar varamað-
ur og hef engan fund setið þegar
húsakaup Hjálparstofnunar kirkj-
unnar hafa verið til umræðu. Það
segir sig sjálft, þegar um svo alvar-
legar aðdróttanir er að ræða sem í
þessu tilviki, þegar jafnt mannorði
mínu sem starfsheiðri er stefnt í
voða, að ég mun leita allra tiltækra
ráða er íslenskt réttarkerfí býr yfir
til að hreinsa nafn mitt af rakalaus-
um og alröngum áburði Helgarpósts-
ins. Enn trúi ég því að við búum í
réttarríki hér á íslandi."
_ Morgunblaðið/ÓI.K.M.
Tryggvi Olafsson myndlistarmaður við tvö verka sinna.
Tryggvi Olafsson með
sýningu í Galleri Borg
TRYGGVI Ólafsson myndlistar-
maður hefur opnað málverka-
sýningu í Gallerí Borg við
Austurvöll og stendur hún til 25.
nóvember n.k.
Tryggvi Ólafsson hefur búið í
Kaupmannahöfn í 25 ár en hefur
komið til Islands með reglulegu
millibili og haldið einkasýningar og
tekið þátt í samsýningum. Auk þess
hefur Tryggvi haldið margar sýn-
ingar erlendis.
Á sýningu Tryggva í Gallerí Borg
eru 35 akrílmyndir sem allar eru
til sölu. Flest verkanna eru unnin
á þessu ári, en nokkur 1985.
Gallerí Borg er opið frá klukkan
10 á morgnanna til 18 alla virka
daga, og milli klukkan 14 og 18
um helgar.
Morgunblaðið/Ingvar Guðmundsson
Piltarnir þrír, sem fóru um borð í skip í Slippnum, reyndu að verða sér úti um lyf í gúmbjörgunar-
bát. Lögreglan handtók þá á staðnum, en þá höfðu þeir skorið í bátinn.
Brotist inn í bát og bíla
ÞRÍR unglingspiltar voru hand-
teknir á miðvikudagskvöld um
borð í Gjafari VE 600, en skip-
ið er í slipp í Reykjavík.
Piltamir fóru um borð til að
kanna gúmbjörgunarbát skipsins,
en alltaf er nokkuð um að lyfjum
sé stolið úr bátum. Þessi för pilt-
anna fékk þó snubbóttann endi,
því lögreglunni var gert viðvart
þegar sást til þeirra.
Sama kvöld var komið að
tveimur drengjum við innbrot í
Rofaborg, dagheimili í Árbæ.
Drengimir, sem em 10 og 12 ára
gamlir, munu hafa brotist áður
inn þama og á stöðum í nágrenn-
inu. Þá var tilkynnt um innbrot í
Fóstursk’ola íslands í fyrradag
og í Breiðholtsskóla um síðustu
helgi. Á báðum stöðunum var stol-
ið sælgæti og öðm smáræði.
Mikið hefur verið um það að
undanfömu að stolið hefur verið
úr bflum. Er þetta ekki bundið
við ákveðin svæði í Reykjavík,
heldur virðist ganga jafnt yfir alla
borg. Algengt er að stolið sé
lausamunum úr bflum fyrir fram-
an dagheimili, þegar móðir eða
faðir skreppur rétt sem snöggvast
inn. Einnig er algengt að stolið
sé hljómflutningstækjum og að
sögn lögreglu em þau oft mjög
dýr. Dæmi em um að þau séu
ívið dýrari en bflamir sjálfír.
En það er ekki bara stolið úr
bflum, heldur einnig af þeim.
Rannsóknarlögreglunni hafa á
skömmum tíma borist sjö kæmr
vegna þjófnaða á erlendum skrá-
setningarskiltum bfla. Erfitt er að
geta sér til um hvaða hag þjófur-
inn hefur af slíkum stuldi, nema
ef undarleg söfnunarárátta hrjáir
hann.
Viðhorf-finnsk nútímalist“:
Tólf finnskir listamenn
sýna 80 verk að Kjarvalsstöðum
Menningarmálanefnd
Reykjavíkur og Samband finn-
skra myndlistarmanna standa
SIMAR 21150-21370
S0LUSTJ LARUS Þ VALOIMARS
L0GM J0H Þ0RÐARS0N HDL
Til sölu fokheld nú þegar:
Glæsileg raðhús á útsýnisstað
ViA Funafold rétt við Gullinbrú í Grafarvogi „á einni og hálfri hæð“.
4 stór svefnherb., tvöf. bilsk. Góöar geymslur. Sólsvalir um 24 fm.
Allur frág. utanhúss fylgir. Teikn. á skrifst. Húni sf. byggir.
2ja herb. íb. við
Kríuhóla. 63,6 fm nettó í lyftuhúsi. Mjög góð. Skuldlaus. Útsýni.
Langholtsveg. Um 70 fm, sérinng. á jarðh. Öll eins og ný. Skuldlaus.
Grettisgötu. Aðalhæð í tvib. Mikiö endurbyggð. Ris fylgir.
Skammt frá DAS — laus strax
4ra herb. íb. á 1. hæð af meðalstærð við Kleppsveg. Ný teppi. Sólsv.
Gott risherb. fylgir. Geymsla í kj. Sanngjarnt verð.
Á stórri eignarlóð í Garðabæ
Steinhús m. einni eöa tveimur íb., góöu vinnuplássi, margskonar nýt-
ingamögul. Elgnaskipti mögul. Nánari uppl. aöeins á skrifst.
Lítil íbúð með bílskúr
Viö Reynimel. Litil 2ja herb. kjíb. m. sérinng. Bílsk. fylgir. Skuldlaus.
Laus strax. Verö aðeins kr. 1-1,2 millj.
Hlíðar — Fossvogur — skipti
Gott raðhús af meöalstærö óskast til kaups. Skipti möguleg á sórhæö
i úrvalsstandi í Hlíðunum.
Miðsvæðis í borginni — óskast
3ja, 4ra og 5 herb. íb., sérhæðir og einb. Margir skiptamöguleikar.
Mikil milligjöf i mörgum tilfellum.
Opið í dag
laugardag kl. 11-16.
ALMENNA
FASTLIGHASALAH
LAUGAVEG118 SÍMAR 21150 - 21370
fyrir sýningu, sem opnuð verður
í dag, laugardag, kl. 14.00 að
Kjarvalsstöðum. Sýningin ber
yfirskriftina „Viðhorf-finnsk
nútímalist" og eru á henni 80
málverk og höggmyndir.
Alls taka tólf finnskir myndlistar-
menn þátt í sýningunni. Þeir eru:
Martti Aiha, Kari Cavén, Radoslaw
Gryta, Jussi Kivi, Leena Luostarin-
en, Marika Mákela, Pekka Nevalin-
en, Mari Rantanen, Risto Suomi,
Raili Tang, Timo Valjakka og
Henry Wuorila-Stenberg. í tengsl-
um við sýninguna heldur Pekka
Nevalinen fyrirlestur með lit-,
skyggnum um fínnska nútímalist
að Kjarvalsstöðum í dag kl. 15.00.
Verkin eru þverskurður af finns-
kri listsköpun og sýnir hún í raun
viðhorf finnskra myndjistarmanna
til listarinnar í dag. íslendingum
gefst kostur á að kynnast því nýj-
asta og markverðasta sem er að
gerast í finnskri myndlist, en á sl.
árum hefur átt sér stað mikil opnun
í finnskri listsköpun. Finnskir lista-
menn hafa mikið til horfið frá
hugmyndafræðilegum vangaveltum
og pólitísku raunsæi 8. áratugarins
og tileinkað sér tjáningaríkari
myndgerð sem í senn tengist al-
þjóðlegum liststefnum og byggir á
finnskri hefð og persónulegri
reynslu, að sögn Gunnars Kvaran,
listfræðings.
Sýningin er farandsýning, sem
fer um öll Norðurlöndin og er þetta
fyrsta sýningin sem menningar-
málanefnd Reylqavíkurborgar
stendur að, en nefndin vinnur að
því að halda fleiri slíkar veglegar
sýningar á eigin vegum, að sögn
Huldu Valtýsdóttir, formanns
nefndarinnar. í janúar nk. verður
t.d. yfirlitssýning á íslenskri „ab-
strakt“ list frá upphafí til okkar
daga. Kjarvalssýningar eru fyrir-
hugaðar næsta sumar og nefndin
vinnur að því að fá erlendar sýning-
ar til landsins. Menningarmála-
nefndin fer nú með yfirstjóm
menningarstofnana á vegum
Reykjavíkurborgar og hefur gert
svo síðan í júní sl. í nefndinni eiga
sæti fimm fulltrúar. Auk Huldu
Valtýsdóttir, formanns nefndarinn-
ar, eru aðrir fulltrúar sjálfstæðis-
flokksins þær Ingibjörg Rafnar og
Elín Pálmadóttir. Fulltrúi alþýðu-
bandalagsins er Kristín Ólafsdóttir
og fulltrúi alþýðuflokks er Ragn-
heiður Guðmundsdóttir.
Saga eftir
Sigrúnu
Eldjárn
BÓKAÚTGÁFAN Forlagið
hefur sent frá sér barnasögu
eftir Sigrúnu Eldjám sem
nefnist B2 - Bétveir. Bókin er
prýdd iitmyndum eftir höfund-
inn.
í frétt frá Forlaginu segir:
„Bétveir segir frá Aka, litlum
snáða sem bregður sér dag nokk-
um út í garð til að tína blóm.
Þegar hann ætlar að seilast eftir
fallegustu blómunum í garðinum,
kemur í ljós að þetta em þreifarar
á kostulegri geimveru, með tvö
höfuð og fjóra fætur, sem segist
heita Bétveir. Bétveir er kominn
til jarðarinnar til að kynnast stór-
Sigrún EUyára
kostlegu fyrirbæri sem hann hefur
frétt að til sé á jörðinni...“
Bétveir er 40 bls. Prentsmiðjan
Oddi hf. prentaði.