Morgunblaðið - 24.09.1988, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 24.09.1988, Blaðsíða 19
"MORGUNSlSÐIÐ, IAtJGÁKbÁÖUR' 24.' §ÉPTÉMBÉÍTÍ988 ar 19 200 ára afmælis Bjöms Gunnlaugssonar minnst Fundur í Norræna húsinu á sunnudag Vísindafélag íslendinga gengst fyrir almennum fundi í Norræna húsinu sunnudaginn 25. september, til að minnast þess að þann dag eru liðin 200 ár frá fæðingu Björns Gunnlaugssonar, stærð- fræðings og landmælingamanns. Á fundinum sem hefst kl. 14.00 verða fluttir fimm stuttir fyrirlestrar um ævi Björns og störf. Bjöm Gunnlaiigsson fæddist á Tannastöðum við Hrútafjörð 25. september 1788. Á unga aldri komu í ljós hjá honum eiginleikar sem þóttu vænlegri til lærdóm- siðkana en líkamlegrar vinnu og var honum komið í læri til prests í átthögum sínum. Tvítugur lauk hann stúdentsprófi hjá Geir Vídalín biskupi. Á árunum eftir stúdentspróf kynntist hann dönskum liðsforingjum sem voru hér við land- eða strandmælingar og mun margt hafa af þeim lært sem kom sér vel fyrir hann síðar. Napóleonsstríðin og lítil fjárráð urðu til þess að Bjöm hélt ekki utan til háskólanáms fyrr en 1817. Hann lauk tilskildum inn- tökuprófum við Hafnarháskóla, en hér heima varð hann þjóðkunn- ur fyrir að vinna tvívegis til verð- launa fyrir úrlausn stærðfræði- legra viðfangsefna. Að námi lo knu vann hann um skeið hjá virt- um stjömufræðingi í Holtseta- landi. Heim kom hann vorið 1822 og var þá skipaður þriðji kennari við Bessastaðaskóla. Hann bjó í Sviðholti á Álftanesámnum, en 1846 fluttist hann með skólanum til Reylgavíkur. Yfirkennari varð hann 1851, en fékk lausn frá störfum 1862. Sumurin 1831 — 1843 fór hann víða um land og vann að fullkomn- ara og betra Islandskorti en áður var til, en studdist jafnframt við margra ára starf dönsku og norsku liðsforingjanna sem hér höfðu unnið við strandmælingar. Hann lauk því starfi með heiðri og sóma og var íslandskort hans gefið út árið 1844. Auk kennslu og kortagerðar fékkst Bjöm töluvert við ritstörf. Hann íjallaði þá einkum um þau fræði sem hann var handgengn- astur og skrifaði bæði í íslensk og erlend blöð og tímarit. Þá naut hann lengi vinsælda fyrir allsér- stætt rit í bundnu máli: „Njóla, eður auðveld skoðun himinsins, með þar af fljótandi hugleiðingum um hátign guðs og alheimsáfor- mið, eða hans tilgang með heimin- um.“ Njóla kom þrívegis út á nítjándu öld, fyrst 1842. Bjöm var tvíkvæntur, hinum ágætustu konum. í fyrra hjóna- bandi átti hann eina dóttur, Ól- öfu, sem giftist Jens rektor Sig- urðssyni, bróður Jóns forseta, og eru margir niðjar og mætir frá þeim komnir. Á fundi Vísindafélagsins á sunnudag mun Bergsteinn Jóns- son flytja fyrirlestur um ævi og störf Bjöms Gunnlaugssonar, Ottó Bjömsson talar um tölvísi Bjöms, Gunnar Harðarson flytur fyrirlestur sem hann nefnir Njóla og íslensk heimspekit Haraldur Sigurðsson fjallar um íslandskort Bjöms og Ágúst Guðmundsson um landmælingar Bjöms og kortagerð. Auk þess verður í tengslum við fundinn sýning á tækjum Bjöms í fundarsal Nor- ræna hússins. Landmælingar ríkisins munu einnig minnast afmælis Bjöms Gunnlaugssonar og gefa ísiands- kort hans út að nýju. Vísindafélag Islendinga var stofnað 1. desember 1918. Frum- kvæði að stofnun félagsins áttu Ágúst H. Bjamason prófessor og Sigurður Nordal prófessor, en stofnfundinn sátu tíu kennarar við Háskóla íslands. Markmið fé- lagsins er að styðja vísindalega Björn Gunnlaugsson startsemi, bæði með því að halda fundi þar sem fyrirlestrar eru haldnir og umræður hafðar um efni er að vísindum lúta og með því að gefa út rit og ritgerðir um vísindalegar rannsóknir. Félagið hefur frá upphafi gefið út fjölda bóka og ritgerða, síðast Petro- logy, Mineralogy and Evolution of the Jan Mayen Magma System, eftir Pál Imsland, 1984 og Móður- málið, Qórtán ritgerðir um vanda íslenskrar tungu á vomm dögum, 1987. Væntanlegar eru frá Vísindafélaginu bækumar Hydro- logy of Ice Caps in Volcanic Regi- ons, eftir Helga Bjömsson, þar sem birtar eru niðurstöður margra ára rannsókna Helga á landslagi undir jöklum og Ráðstefnurit II, sem inniheldur erindi sem flutt voru á ráðstefnu félagsins vorið 1987 um gmnnrannsóknir á .ís- landi. S5»*- ' IZnúumheW* a »«ííSSX'*75 o\ 25-30 stk. pástó','^L- Hansfla Kiður núna XJpp *vor Kæktun teust'“^ „iður að veld. t* * p að vori hausti °S aií AlUr geta pannigP^ý1 % tfy\ípönum, ursk^í^nogétsl pásksl'')um. ^austiauka. íieiri '®8und ^6K gott drval EigUmuutom eius og i6'a"ý' ary'KS’ “Í /staanum Fagmena a su* gjla dagn. I ©ÍIM Gróðurhúsinu v/Sigtún Sími: 68 90 70
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.