Morgunblaðið - 05.10.1989, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 05.10.1989, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. OKTOBER 1989 Lent í mikilli listaveislu Viðtal við Hrefinu Lárusdóttur Hrefna Lárusdóttir í Mokkakaffi. Á veggnum er ein mynda hennar. „Að búa í Luxemborg er hreinasta listaveisla að því leyti að svo stutt er að aka í allar áttir til að skoða það sem hæst ber í listum og hefiir borið á undanfornum öldum. Fárra klukkustunda akstur til Köln og Dusseldorf í Þýskalandi með söfn sín og sýningar, til Metz í Frakklandi með fögru steindu kirkjugluggunum, allt ft-á 12. öld og 7 gluggum eftir Cha- gall, aðeins lengra til Amsterd- am og Parísar eða Bruxelles í Belgíu, að ekki sé talað um Brugge, sem er öll eitt lista- verk,“ sagði Hrefiia Lárusdótt- ir, sem við vorum sestar yfir expressókaffi og jólaköku á Mokkakaffi. Og á veggjunum allt í kring um okkur málverk- in hennar 27, sem hún var að hengja þar upp til sýnis. Þar má m.a. sjá íslenskar landslags- stemmningar, myndefiii frá uppáhaldsbænum hennar Brugge, myllan hans Alfonse Daudet í Provence-héraði í Frakklandi, mynd frá Claerv- auxklaustri í Luxemburg og biðröð fyrir utan Grand Palais í París vegna Gauguin-sýning- ar. Fjölbreytt verkefiiaval gef- ur til kynna að hún fari víða og nýti sér áhrifin af því sem hún sér. Og að hún kemur heim til Islands þrisvar sinnum á ári, enda bætir hún við:„Ekkert jafnast i mínum huga á við landslagið og litina á íslandi." Hrefna er Reykvíkingur, fædd í Þingholtsstræti 11, þar sem föður- fjölskylda hennar, afkomendur Lárusar G. Lúðvíkssonar, bjuggu í fleiri ættliði. Hún var ekki nema 18 ára gömul Reykjavíkurmær þegar hún giftist Ragnari Kvaran, flugstjóra, og sneri sér að því að eiga og ala upp böm. Þau bjuggu fyrst í Reykjavík, enda var Ragn- ar flugmaður hjá Loftleiðum í 16 ár. Flugið er í fjölskyldunni eða öllu heldur að Ijölskyldan fylgir fluginu, því Ragnar er nú flug- stjóri hjá Cargolux, synir þeirra Ragnar og Lárus em þar líka flug- menn og dóttirin Anna Ragnhild- ur er gift í Luxemborg manni sem tengdur er flugmálum og bama- bömin níu em því öll í nánd við hana. Eftir að fjölskyldan flutti frá íslandi bjó hún í Belgíu.„Það var æfintýri líkast að vera þar“, segir Hrefna. „Belgía er svo mikið lista- land, að þessi þijú ár sem ég var svo mikið ein þar meðan Ragnar var að fljúga, hélt ég bókstaflega til í söfnum og kirkjum. Kirkjulist- in og allur arkitektúr er þar svo yfirþyrmandi. Bmgge er hreinasti gimsteinn með allri sinni miðalda- list, enda var hún fram til 1492 aðal kaupskipahöfnin og gríðar- legur auður þar. Borgin hefur verið kölluð Feneyjar norðursins, enda er hún öll í sýkjum. Sagt er að Flæmingjar hafí fundið upp notkun olíulitanna um leið og þeir uppgötvuðu hvemig mætti geyma síldina." Var það undir þessum áhrifum að Hrefna fór sjálf að skapa? „Nei, ekki beinlínis“, segir hún. „Sem krakki hafði ég verið síteiknandi og málandi. Svo féll það niður þegar ég fór að eignast börn, hafði nóg annað að sýsla. En þama var ég nú komin í þessa miklu listaveislu, og var vissulega undir áhrifum af öllum þessum listasöfnum, þótt mér dytti ekki í hug að mála sjálf. Það gerðist með þeim hætti að ég fór að mála á kymur og kistur handa barnabömum og vinum, og tengdadóttir mín hafði orð á því að ég hlyti þá að geta málað fyr- ir sig mynd af ákveðnu útsýni úr glugganum hjá henni. Ég keypti mér liti og hefí ekki hætt síðan. Lært? Nei, og þó! Ég var svo lán- söm að hafa á æskuárunum frá- bæran teiknjkennara í Æfinga- skóla Kennarskólans, Björn Björnsson, föðurbróður Bjöms Th. Bjömssonar, og svo í Menntaskó- lanum í Reykjavík, Finn Jónsson, listmálara. Bjöm var yndislegur maður og varð mér ógleymanleg- ur. Hann gaf mér meira að segja mynd eftir sig. Tilsögn þessara manna var mér minnisstæð og blundaði í mér. Seinna fór ég svo í tíma í Kúnstakademíunni í Tri- er, en fann að sú kennsla hentaði mér ekki. Kennarinn var franskur og sagði m.a. að það ætti að banna vatnsliti, sem ég hefi alltaf notað mikið ásamt akrýllitum." Síðan hefur Hrefna málað og sýnt, þrisvar sinnum í Trier og einu sinni í Luxemborg. Og mynd- ir eftir hana hanga alltaf uppi í íslendingahótelinu Le roi Dago- bert í Grevennacher í Luxemborg. Á Islandi sýndi hún á Mokka fyr- ir fimm ámm og aftur núna.„Mér finnst þessi staður svo notalegur. Ég hefí komið hingað síðan hann opnaði fyrir 32 ámm. Hér hefur aldrei verið slakað á klónni. Þessi tegund af veitingastað held ég að sé einsdæmi, engar vínveitingar og veggir aldrei verið myndalaus- ir frá upphafí.“ „Það er mjög gott að búa í Luxemborg. Það er svo miðsvæð- is. Og ég er svo heppin að Ragn- ar, maðurinn minn, hefur ekki síður en ég áhuga á að skoða góða list, teiknar jafnvel svolítið sjálfur. Og því notum við hvert tækifæri til að fara og skoða list- sýningar og söfn í Evrópu, eftir því sem tími vinnst til. Tvær stór- kostlegar og ógleymanlegar sýn- ingar sáum við á þessu ári, sem við hefðum ekki viljað missa af, minningarsýninguna um Gauguin í Grand Palais í París og yfírlits- sýningu á verkum Salvadors Dali í Stuttgart í sumar. Það er stóri kosturinn við að búa þarna úti. Og svo er það okkar stóra lán að hafa fjölskylduna alla svona ná- lægt okkur.“ - E.Pá. NYTT ÞRAÐLAUST MULTI-MIX ALLTAF TILBÚIÐ TIL NOTKUNAR Black & Decker auðveldar núna lífið í eld- húsinu með hinu þráðlausa Multi-Mix. Ef þú þarft að þeyta, hræra eða hnoða eitthvað fljótt, þá gríp- urðu að sjálfsögðu til þráðlausa Multi-Mix tækis- ins frá Black & Decker. Eftir hleðslu er hægt að nota tækið í 25 mínútur stanslaust. Eftir hverja notkun þá seturðu tækið í hengið þar sem það hleður sig. Hraðvirkt, létt og meðfærilegt. Tvær hraðastillingar og fjórir mismun- andi aukahlutir. Það er ekki hægt að hugsa sér það auðveldara. Það er leikur einn með HBIACK&DECKER SKEIFUNNI 8 SlMI 82660 ÚTSÖLUSTAÐIR: Akranes, Ratþjónusta Sigurdórs / Akureyri, Radióvinnustofan og Hagkaup hf. / Blönduós, Verslunin Ósbær / Bolungarvik, Rafsjá hf. / Búðardalur, Einar Stefánsson / Egilsstaðir, Sveinn Guðmundsson / Grundarfjörður, Rafbúð Guðna / Hafnarfjörður, Ljós og raftæki / Húsavík, Grímúr og Árni / Hvammstangi, K.V.H. / Keflavik, R.Ó. rafbúð / Laugarvatn, KÁ Laugarvatni / Njarðvik, Hagkaup hf. / Reykjavik, Peran hf., Ármúla 3, Rafvörur hf., Langholtsvegi 130, Hagkaup hf., Borgarijóssbúðirnar/Selfoss, Ánrirkinn hf. / Stykkishólmur, Húsið hf. / Vopnafjörður, Kaupf. Vopnfirðinga / Þorlákshöfn, Rás hf. Umhverfisvandinn ekki leystur án alþjóðasamvinnu Alþjóðasamtök græningja stoftiuð: - segir Metúsalem Þórisson ÞRJÁTÍU og fjögurra manna hópur fi-á Samtökum græningja á Islandi sótti stofnþing Alþjóða- samtaka græningja sem haldið var í Rio de Janeiro í Brasilíu í júlímánuði. Alls sóttu á þriðja þúsund manns frá græningja- samtökum 35 landa stofnþingið. „Á stofnþinginu var lögð áhersla á að ekki er hægt að leysa um- hverfísvandann án alþjóðasam- vinnu,“ sagði Metúsalem Þórisson, talsmaður græningja á íslandi. „Því voru þessi alþjóðasamtök stofnuð til að samhæfa aðgerðir og upplýs- ingar. Þetta er gert þrátt fyrir að innan ýmissa græningjahópa hafí gætt nokkurrar fælni varðandi stofnun slíkra samtaka.“ Metúsalem sagði að til að leysa þann vanda sem við væri að etja þyrfti að breyta efnahagskerfínu. Umhverfísvandamálin væru í raun ein af afurðum þeirra hagkerfa sem væru ríkjandi um allan heim. „Fjár- magninu þarf að dreifa í stað þess að safna því á fáar hendur og hag- vöxturinn getur ekki verið hið eina sem menn hafa að leiðarljósi. Þá umhverfísverndarflokka sem ekki taka þetta til greina er ekki hægt að taka alvarlega. Þá er verið að lappa upp á ríkjandi kerfí og þá, sem það vilja gera, getum við ekki kallað annað en kerfískalla. Það getur líka átt við um hina einu sönnu vestur-þýsku græningja." Metúsalem sagði einnnig að Al- þjóðasamtök græningja vildu vemda umhverfíð manneskjunnar vegna en ekki náttúrunnar vegna. Ýmsir umhverfisverndarhópar, þ.á.m. Greenpeace hefðu gengið svo langt í sinni náttúmvemd að þeir vildu vemda náttúruna og dýrateg- undir á kostnað manneskjunnar og fórna henni. „Slík sjónarmið hæfa aðeins fáráðlingum," sagði Metú- salem. Það sem samtök græningja ættu þó ekki síður í höggi við væri henti- stefnan sem ríkjandi væri í heimin- um og birtist t.d. í umræðum og aðgerðum varðandi umhverfismál. „Allir stjómmálaflokkar og samtök lýsa yfír væntumþykju sinni á um- hverfinu en þegar að hagsmunir þeirra eru í hættu þá hverfur þessi væntumþykja.“ KARLMANNAFÖT frá kr. 5.500,- til 9.990,- Terylenebuxur kr. 1.395,- til 2.195,- Gallabuxur kr. 1.420,- og 1.620,- Flauelsbuxur kr. 1.420,- og 1.900,- Regngallar nýkomnir kr. 2.650,- Skyrtur, nærföt, sokkar o.fl. ódýrt. ANDRES, Skólavörðustíg 22, sími 18250. NÝTT SÍMANÚMER LANDAKOTSSPÍTALA: 604300 St. Jósefsspítali, Landakoti.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.