Morgunblaðið - 05.10.1989, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 05.10.1989, Blaðsíða 42
 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 1989 42. Asgeir Ingvars■ soii - Minning Fæddur 29.janúar 1919 Dáinn 27. september 1989 Það var einhvern tímann á árinu 1978 sem ég var staddur í vinnu og hafði mikið að gera. Þá hringdi síminn og maður að nafni Ásgeir Ingvarsson kynnti sig og fór svo að segja mér með miklum fjálgleik frá írskri þjóðlagahátíð sem hann var nýlega kominn frá. Frásagnar- gleðin var svo mikil að ég gleymdi vinnunni og bara hiustaði og fékk öran hjartslátt af hrifningu og gleði. Nú er hann Ásgeir farinn héðan, í rauninni allt of fljótt, mikið vildi ég að hann hefði fengið að lifa leng- ur, en við ráðstöfunum almættisins verður víst ekkert gert. Ásgeir Ingvarsson var fæddur á Hamri í Nauteyrarhreppi 29. janúar 1919. Hann starfaði um árabil við múrverk, vann síðan hjá atvinnu- deild Háskóla Islands og um þijátíu ára skeið starfaði hann fyrir Kópa- vogskaupstað. Ásgeiri kynntist ég fyrir tæpum tólf árum, en hann tók að venja komur sínar á vísnakvöldin sem tónlistarfélagið Vísnavinir hélt á Hótel Borg og í Þjóðleikhússkjallar- anum. Asgeir hafði brennandi áhuga á félagsmálum, tók á tíma- bili mikinn þátt í starfsemi Vísna- vina og var kjörinn heiðursfélagi þess féiags árið 1984. Hann var óspar á að miðla hugmyndum til annarra, svo var hann gott skáld, samdi lög og þýddi ljóð úr erlendum tungum. Ásgeir lék á nokkur hljóð- færi og var sjálfmenntaður á því sviði. Hann var frekar hlédrægur að eðlisfari en skemmtilegri mann í góðum hóp var varla hægt að finna. Síðustu árin starfaði hann með sönghópi sem kallar sig Sam- stilling og naut sín þar vel og var þar dáður og virtur. Ásgeir var ákaflega mikill aðdá- andi fagurra lista og mikill þjóðern- issinni. Hann átti auðvelt með að sjá skoplegu hliðarnar á tilverunni, en samt sló undir niðri viðkvæmur og blíður strengur sem menn fundu vel er kynntust honum. í ljóðum sínum skopaðist hann að græðgi mannanna og hvernig þeir vildu notfæra sér almættið. Ásgeir var ekki í þjóðkirkjunni, en ég efast þó um að hann hafi verið trúlaus. Einn þekktasti texti hans, Palli Hall, bendir til hins gagnstæða. Þar yrk- ir hann um vegavinnuverkstjóra sem sendi fólkið heim af því að það heimtaði meiri laun en ríkið skammtaði þeim. Hann fór að ganga í störf undirmanna sinna, sagaði í löppina á sér og barði fing- urinn og endaði á að hrapa í ána. Texti þessi lýsir á gamansaman hátt baráttu láglaunamannsins og hvernig þeim sem níðast á öðrum hefnist fyrir. Einnig gat Ásgeir ort fagurlega um ástina, það var svo ljúfsár tregi í ljóðum hans. Ásgeir gerði ekki mikið af því að koma ljóðum og lögum sínum á fram- færi, hann gaukaði þeim að fólki sem hann þekkti og skeytti lítið um hvað um þau varð. Þess vegna gæti svo farið að eftir nokkur ár yrði sumt af því sem hann orti ta- lið til þjóðlaga og þjóðkvæða. Ásgeir átti ákaflega gott með að umgangast sér yngra fólk og var jafnan einn af hópnum. Ég man einu sinni eftir því að hann bauð nokkrum í partí heim til sín. Við mættum kátir og hressir, settumst fyrst inn í stofu og drógum upp söngvatn. Þá skellir Ásgeir fullri vodkaflösku á borðið og sagði: „Gjörið þið svo vel og fáið ykkur.“ lést 4. október. + EGGERT G. GÍSLASON framkvæmdastjóri, Rauðalæk 26, Þráinn Eggertsson. t JÓRUNN ODDSDÓTTIR fyrrum símstjóri á Eyrarbakka, verður jarðsungin frá Eyrarbakkakirkju laugardaginn 7. október kl. 14.00. Systkinabörn. t SVEINN JÓNSSON frá Langholtsparti, sem lést í Sjúkrahúsi Suðurlands 30. september, verður jarð- setturfrá Hraungerðiskirkju laugardaginn 7. október nk-. kl. 13.30. Fyrir hönd vina og vandamanna, Helga Guðjónsdóttir. t LOVÍSA JÓNSDÓTTIR frá Drangsnesi, Engihjalla 11, Kópavogi, lést að kvöldi 3. október. Atli Viðar Jónsson, Hildur Þorkelsdóttir, Ari Elfar Jónsson, Hólmfríður Edvardsdóttir, Jón Pétur Jónsson, Guðlaug Maggý Hannesdóttir og barnabörn. + Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, JÓN STEFÁNSSON, framkvæmdastjóri frá Siglufirði, Kleppsvegi 124, andaðist 25. september á Landakotsspítala. Útförin hefur farið fram í kyrrþey, að ósk hins látna. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið. Ásta Júli'a Guðmundsdóttir, Camilla Jónsdóttir, Hreinn Jónsson, Jóhanna Sigriður Jónsdóttir, Guðjón Herjólfsson, Ásta Júlfa Jónsdóttir, Jón H. Sigurmundsson, Guðmundur Stefán Jónsson, Elsa Ingimarsdóttir, og barnabörn. + Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, SIGURÐUR SIGURBJÖRNSSON, Hvassaleiti 16, ‘ verður jarðsunginn föstudaginn 6. október kl. 13.30 frá Bústaða- kirkju. Marfa Finnbogadóttir, Hákon Sigurðsson, Katrfn Hlff Guðjónsdóttir, Björg Sigurðardóttir, Sigrfður Sigurðardóttir, Haukur Viggósson og barnabörn. + Jarðarför SKÚLA VALTÝSSONAR frá Geirlandi, fer fram frá Prestbakkakirkju á Síðu, laugardaginn 7. október kl. 14.00. Fyrir hönd vandamanna, Laufey Pálsdóttir. + Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, BJARGEY GUÐJÓNSDÓTTIR, Langholtsvegi 71, verður jarðsungin frá Fossvogskapellu, föstudaginn 6 október kl.15.00. Magnús Guðjónsson, Margrét Magnúsdóttir, Guðmundur Sigurþórsson, Guðjón V. Magnússon, Kolbrún Þorkelsdóttir, Marfa Ó. Magnúsdóttir, Karl A. Ágústsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Faðir okkar, tengdafaðir og afi, • ÖGMUNDUR JÓNSSON, Hringbraut 32, Hafnarfirði, frá Vorsabæ, Ölfusi, verður jarðsunginn frá Kotstrandarkirkju, Ölfusi, laugardaginn 7. október kl. 15.00. Guðbjörg Ögmundsdóttir, Jón Finnur Ögmundsson, Kristín Valsdóttir og barnabörn. + Móðir okkar, tengdamóðir og amma, BERGÞÓRA EINARSDÓTTIR frá Garðhúsum f Grindavík, búsett að Hagamel 45, veröur jarðsungin frá Dómkirkjunni föstudaginn 6. október kl. 13.30. Ólafur Gaukur Þórhallsson, Svanhildur Jakobsdóttir, Dóra Gfgja Þórhallsdóttir, Andrés Reynir Kristjánsson, Ólaffa Guðlaug Þórhallsdóttirlpálmi Steinar Sigurbjörnsson, Einar Garðar Þórhallsson, barnabörn hinnar látnu. Ég .spurði hvort hann ætlaði ekki að fá sér einn með okkur. Hann sagði: „Nei, ég er búinn að vera þurr í tuttugu og fimm ár og er að halda upp á það með ykkur með því að drekka mysu, hún er svo andskoti holl og á litinn eins og kampavín." Ásgeir átti sér ákaflega notalegt afdrep heima hjá sér, uppi á lofti. Þangað safnaði hann að sér mörg- um hljóðfærum og dundaði sér einn við yrkingar ljóða og laga. Það var sérstakur andi hlýju, góðvildar og glaðværðar sem þar ríkti. Fyrir nokkrum árum þurfti að taka annan fótinn af honum vegna æðaþrengsla. Ásgeir lét þó ekki deigan síga en hafði orð á því að nú myndi hann enn frekar líkjast vinum sínum og frændum á ír- landi, sérstaklega ef hann fengi sér nú lepp fyrir annað augað og gæti notað tréfótinn til að slá taktinn. Svona tók hann örlögunum. Hann hafði þrautir í hinum fætinum og lyktir urðu þær að þann sjöunda september sl. var sá einnig tekinn af honum. Ásgeir var á nokkrum batavegi og var ákveðinn á að byija upp á nýtt þegar hann fékk tvö hjarta- áföll sem leiddu hann til dauða þann 27. september síðastliðinn. Með honum er horfinn mjög sér- stæður, viðkvæmur og skemmtileg- ur listamaður sem mikil eftirsjá er að. Ásgeir var hafsjór af skemmti- legum sögum og kunni margar af Irum. Einn íri sem hann hafði dá- læti á var gamall fiðluleikari sem hét Rosin the Bow McKenna. Sá fór um þrítugt að hafa áhyggjur af því að hann mundi gleymast þegar hann félli frá. Því orti hann erfiljóð um sjálfan sig og kallaði það Rosin the Bow. í því segir frá láti fiðlarans og hvernig drottinn fagnaði honum á himnum með því að bjóða öllum englaherskaranum á fyllirí þar sem hver og einn fékk gallon af viskíi. Jarðsetningu sögu- hetjunnar er lýst og eins því þegar " menn keyptu tvær kollur af viskíi til þess að leggja á leiðið eins og legstein. Ég er viss um að þegar við kveðjum Ásgeir í dag, 5. októ- ber, hinstu kveðju, heldur drottinn allsherjar honum dýrlega veislu á himnum þar sem boðið verður upp á himneskt vín sem allir er neyta munu einungis verða sælir af. Hafði Ásgeir heila þökk fyrir allt það góða og skemmtilega sem hann miðlaðir mér. Vonandi heldur hann áfram að yrkja skemmtilega texta sem ég fæ að heyra þegar við hitt- umst einhvern tímann aftur. Eftirlifandi eiginkonu hans og bömum sendi ég mínar innilegustu samúðarkveðjur. Gísli Helgason Kveðja frá starfsfélögum í dag, fimmtudaginn 5. október, kveðjum við góðan félaga og starfs- bróður hinstu kveðju. Hann verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju kl. 15.00. Ásgeir Guðjón Ingvarsson, en svo hét hann fullu nafni, var ættaður af Snæfjallaströnd. Hann ólst upp í nálægð jökulsins, þar sem fegurð- in ríkir ein. Má vera að sú fegurð og vetrarveðrin norður þar hafi í sameiningu mótað þennan góða dreng, sem var margt til lista lagt og átti til að bera allt í senn, skop- skyn, blíðu og baráttuhug. Ásgeir var ágætlega hagmæltur og má segja að ljóðið hafi leikið honum á tungu þegar hann vildi . það við hafa. Hann var einnig hneigður til tónlistar og lék á fleiri en eitt hljóðfæri. Ófáir eru þeir bragir, sem hann hefur ort og sung- ið við gítarleik, mönnum til skemmtunar, þegar fólk gerði sér dagamun. Ásgeir var einnig sögu- maður góður og var jafnan fróðlegt að hlýða á frásagnir hans. Við samstarfsmenn hans á bæj- arskrifstofum Kópavogs minnumst með þakklæti margra góðra stunda þegar við sátum með honum og sungum eða hlýddum á frásagnir af því, sem á daga hans hafði drifið. Á yngri árum stundaði Ásgeir sjóinn og ýmis störf, sem til féllu,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.