Morgunblaðið - 01.12.1990, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 01.12.1990, Blaðsíða 22
m ofioi aaawagaa .1 suoaqíiaouaj ciiaAjaMuoaoM MORGUNBLAÐIÐ LAUGARÐAOUR 1. DESEMBER 1990- - EGGERT STEFÁNSSON Á ALDARAFMÆLI EGGERTS Matthías Johannessen skrifaði samtal við Eggert Stefánsson og birtist það hér í blaðinu 1957, en síðar endurbætt í Samtölum — M, I, 1977, Nú er ég kominn til að gera ísland hamingjusamt. Auk þess hefur Matthías skrifað minn- ingar dr. Páls ísólfssonar um Egg- ert Stefánsson í Hundaþúfunni og hafinu, 1961, og fer sá kafli hér á eftir. Margar skemmtilegar stundir hef ég átt með öðrum listamönn- um, ekki sízt Eggert Stefánssyni. Við héldum marga hljómleika saman í Reykjavík og úti á landi. Eitt sumarið fórum við austur á Eyrarbakka og Stokkseyri og héldum tónleika þar. Það var á kvennadaginn 19. júní. Tónleik- amir áttu að hefjast klukkan tvö á Eyrarbakka, en þremur tímum síðar á Stokkseyri. Við komum austur daginn áður og gistum á hótelinu á Eyrarbakka. Við bjugg- um saman í herbergi og ég fór snemma að hátta, en Eggert gekk út og sagðist ætla að spássera um plássið og líta á públikum. Auglýs- ingamiðar höfðu verið festir upp víðsvegar í þorpinu, og á einum stað heyrði Eggert gamlan sjó- mann segja stundarhátt, um leið og hann spýtti um tönn: „Þeir opna ekki á sér kjaftinn fyrir ekki neitt, þessir herrar, halda víst þeir séu eitthvað og reigja sig eins og prunkinn hani. Hver er hann ann- ars þessi Eggert?“ „Það er sonur hans Stefáns múrara,“ sagði ann- ar. „Ja, grunaði mig ekki, eins og hver annar almúgi, en opnar samt ekki á sér kjaftinn fyrir ekki neitt.“ Þegar Eggert kemur inn nokkru síðar, er hann mjög dapur í bragði og segir sínar farir ekki sléttar. Hann er bæði sár og gramur, svo ég segi honum að þetta sé ósköp alvanalegur talsmáti hjá körlunum hér í plássunum og hann þurfí ekki að kippa sér upp við það. „Þeir taka þér áreiðanlega vel, þegar þú ferð að syngja. Karla- greyin búa við sífellt brim og verða að tala hátt og tæpitungulaust til að heyra hver til annars. Og svo eru þeir alvanir hávaða," bætti ég við stríðnislega. „En hvað á það að þýða að vera alltaf að tala um Stefán múrara?" spurði Eggert hneykslaður. „Er ekki nóg að þekkja mig?“ Ég man fyrst eftir Eggert, þar sem hann stóð fyrir utan Duus- verzlun í Reyjavík. Það hefur líklega verið 1909 eða ’IO. Mér fannst hann mikill á velli og glæsi- legur og ekki kom að sök, að orð fór af söng hans. Ég þóttist sjá að hann væri veraldarvanur, djarf- ur í framgöngu, og hressilegur og sífijór var hann og hvergi smeyk- ur að slá um sig. Orðheppinn með afbrigðum. Þegar ég kynntist hon- um betur síðar, fann ég að hann var einnig mjög skemmtilegur og bráðfyndinn og gat séð sjálfan sig í kómísku ljósi. Aldrei gleymi ég, þegar hann sagði mér frá ferð þeirra Halldórs Hansens norður í land: „Við fórum með Skildi upp í Borgames í norðanroki og urðum sjóveikir. Hér er aldrei annað að hafa en andskotans rok, enda er öll þjóðin orðin eins og karfí í fram- an af eintómri seltu. Ef Dante hefði þekkt Skjöld, hefði það verið ein af kvölunum í helvíti að fara á honum upp í Borgames. En loks gátum við skriðið í land og náðum okkur fljótlega og fólk sá, að það voru komnir gentilmenn í plássið, en þó tók ekki betra við. Okkur var ýtt inn í opinn blæjubíl eins og hveijum öðrum nautpeningi og ferðinni heitið í Norðtungu, en sama rokið og sami kuldinn, þegar við vorum komnir upp í bílinn. Og nú kynntumst við þessari íslenzku siðmenningu fyrir alvöru, það er annars merkilegt hvað fólk sem étur mikið af sviðahausum getur orðið líkt sauðkindinni: Fyrir fram- an okkur sat karl og tuggði skro. Hann spýtti út úr sér í allar áttir og af því ég var svo lánsamur að sitja fyrir aftan hann, lenti tuggan á mér, svo ég hafði ekki við að þurrka af mér með poka sem ég náði í, en þegar ég var orðinn eins og kolmórautt jökulfljót af tugg- unni, hnippti ég í karlinn og spurði kurteislega, hvort hann gæti ekki Eggert Stefánsson Eggert í hundrað ár í dag eru hundrað ár liðin frá því að stórsöngvarinn Eggert Stef- ánsson fæddist við Suðurgötuna í Reykjavík. Hann var þjóðsagnaper- sóna í lifanda lífi og enn birtast af og til greinar þar sem menn rekja kynni sín af honum og segja merki- legar sögur. Margir sjá brot af Eggerti í Garðari Hólm í Brekku- kotsannál Halldórs Laxness og víst er að þar eru ýmsir ytri atburðir notaðir — en Eggert var stórsöngv- ari í alvöru og enginn hefur betur lýst honum en Halldór Laxness í Skáldatíma. í kaflanum í London- París-Roma-lestinni stendur stend- ur Eggert ljóslifandi fyrir hugskot- sjónum lesandans hvort sem hann þeysir kjólklæddur inná Hótel Waldorf Astoria í New York þar sem þjónamir snúast hver um ann- an þveran til að sækja honum mola- kaffí eða hann syngur fyrir móður sína og Halldór í Gamla bíói af þeirri innbomu snilld sem honum var gefín. Halldór segir frá því að þegar Eggert birtist á brautarstöðvum á Ítalíu hafi burðarkallamir slegist um að fá að bera farangur hans því svo hátignarlegur hafí hann verið í útliti og framgöngu að menn hafí þar séð Ágústus keisara endur- borinn. Þessi frásögn minnti mig á þegar ég sá Eggert fyrst. Ég var nýfluttur til Reykjavíkur, tólf ára peyi, og var niðrá Lækjartorgi með henni mömmu minni. Þá sé ég allt í einu mann sem gnæfir uppúr fjöld- anum með hátignarlegasta nef sem ég hef augum litið. „Mamma?“ spurði ég. „Hver er þessi maður?“ „Þetta er hann Eggert Stefánsson söngvari," svaraði hún og síðan hef ég aldrei gleymt honum. Það er eitthvað sérstakt við mann sem tólf ára strákpeyja verður svo starsýnt á að hann fer að spyija mömmu sína um hann. Seinna bjó hann í nágrenni við mig um tíma og svo átti hún móðursystir mín plötu með honum sem ég fékk að spila á upp- trekktan grammifón. Þetta var á þeim árum þegar ég var að mestu hættur að hlusta á Alfreð Clausen og Hauk Morthens og djassinn hafði opinberast mér og ég mætti með Mulliganskífur í bekkjarpartý og allir héldu að ég væri eitthvað bilað- ur — tólf ára bekkurinn hans Svein- bjarnar í Melaskólanum fékkst ekki til að hlusta á flóknari djass en Louis Armstrong synga Blueberry Hill og það var enginn alvörudjass einsog þegar Louis blés Poatho head blues og Wild man blues. Svo liðu árin og einn daginn gaf hún móðursystir mín mér plötuna sem hún átti með Eggerti Stefáns- syni. Sjötíu og átta snúninga His Masters Voice skífa þar sem hann söng Fögur er foldin og Alfaðir ræður. Opinberun að nýju. Aldrei hafði ég heyrt óperusöngvara taka annað eins breik og Eggert gerði í Alfaðir ræður þegar hann söng: Báðar klukkurnar deyjandi hringja. Þetta var eins og hjá fyrsta flokks djassleikara. Það var varla haldið svo partý um tíma að Eggert væri ekki á fóninum og beljaði lagið hans Sigvalda bróður síns við ljóð Sigurðar Eggerz. Svo gerðist það eina nóttina að Sigurður biskup sté á plötuna þar sem hún lá á gólfinu við hliðina á fóninum en sem betur Ljósmynd/Friðrik Á. Brekkan Gröf Eggerts Stefánssonar og konu hans, Leliu Cazzola Stefánsson- ar, í kirkjugarðinum Agli Allori í Flórens. Eftir að þessi mynd var tekin hafa verið settir stafir frú Leliu á grafsteininn. fer brotnaði aðeins stykki úr henni og með lagni var hægt að setja nálina á rétt á undan meistarabreik- inu: Báðar klukkurnar deyjandi hringja. Nú þarf maður ekki að hafa áhyggjur af því að smella nálinni rétt innan við brotið því í dag kem- ur út geisladiskur með u.þ.b. helm- ingi þess er Eggert hljóðritaði. Tutt- ugu og fimm sönglög. Þau elstu sungin í trekt í London árið 1920, en þau yngstu hljóðrituð í Berlín 1930. Öll íslensk utan eitt og meir- en helmingurinn eftir bróður söngv- arans, Sigvalda S. Kaldalóns. „Hann var ungur sendur utan að læra saung á Norðurlöndum og meginlandinu. Eftir það kom hann ekki til Islands öðruvísi en gestur. En það er hætt við að maður sem ber slíka persónu fái lítinn frið til að æfa skalann eða syngja upp ein- falt lag mörghundruð sinnum, vik- um, mánuðum og kanski árum sam- an, þángaðtil hann nær því. Hvar sem hann sýndi sig stóðu honum allar dyr á gátt líkt og fyrir gald- ur.“ Þetta skrifar Halldór Laxness í Skáldatíma og hann bætir við: „Það var sannarlega ekki útí loftið þegar hann kvartaði yfir því í blöð- unum að hann hefði ekki frið fyrir saungleikjahúsum sem vildu ráða hann til sín. Meira að segja Metro- politan vildi binda hann með stór- samning og bauðst til að leggja honum til maestro að hafa með sér seint og snemma. Dætur óperuséffa vildu eiga hann og feður þeirra gefa honum þær. En hann brosti , sínu fjarlæga upphafna brosi og afþakkaði. Hann bast aldrei neinni tónlistarstofnun. Hann sté uppí lestina London—París—Róm og var farinn. Saungskemmtanir sínar hélt hann uppá eigin spýtur.“ Rödd Eggerts og söngstíll var engu öðru líkur og annaðhvort fell- ur maður fyrir töfrum hans eða
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.