Morgunblaðið - 08.02.1991, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 08.02.1991, Blaðsíða 43
KNATTSPYRNA / 1. DEILD KORFUKNATTLEIKUR / URVALSDEILDIN KR-Valur 87:78 Laugardalshöllin, Orvalsdeildin í körfuknattleik, fimmtudaginn 7. febrúar 1991. Gangur leiksins: 15:13, 31:22, 43:37, 45:48, 63:59, 79:69, 87:78. Stig KR: Jonathan Bow 19, Lárus Árnason 15, Hermann Hauksson 13, Benedikt Sigurðs- son 12, Matthías Einarsson 10,Páll Kolbeinsson 9, Haraldur Kristinsson 5, Guðni Guðna- son 4. . Stig Vals: Magnús Matthíasson 24, Ragnar Jónsson 16, David Grisson 15, Matthías Matthíasson 15, Bjarni Magnússon 4, Helgi Gústafsson og Jón Bender 2. Dómarar: Guðmundur Stefán Maríasson og Árni Freyr Sigurlaugsson dæmdu þokkalega. Áhorfendur: Um 100. Meistarasigur en villuvandræði MT Islandsmeistar KR stigu skrefi nær úrslitakeppninni með sigrinum á Val. Leikur liðanna var jafn lengst af en KR hafði yfirleitt foryst- una.Fyrri hálfleikur var frekar lítið fyrir augað. Það var þó ljóst frá fyrstu mínútu að Valsmenn ætluðu að selja hlut sinn mun dýrar en þeir mmHI gerði gegn Njarðvík fyrr í vikunni. Leikmenn liðsins börð- Frosti , ust mun betur og þá lék Ragnar að nýju með liðinu eftir Eiðsson meiðsli. KR-ingar höfðu þó yfirhöndina í fyrri hálfleik og skrifar munaði þar miklu um góðan leik Bow og Hermanns. KR lenti síðan í villuvandræðum í bytjun síðari hálfleiksins. Bow fékk sína fjórðu villu og var hvíldur og Hermann sína fimmtu. Vals- menn nýttu sér það vel og náðu um tíma forystunni en þá hrukku meist- ararnir aftur í gang. Páll og Lárus voru bestu leikmenn liðsins í síðari hálfleiknum og ungu strákarnir, Benedikt og Haraldur, kiknuðu ekki undan álaginu. Þá lék Guðni með liðinu að nýju og stóð sig mjög vel í vörninni. „Það er mjög gaman að koma inn í liðið aftur. Ég er hins veg- ar aðeins búinn að æfa í tvær vikur og er ekki í góðu úthaldi," sagði Guðni. Bræðurnir Matthías og Magnús voru ásamt þeim Ragnari og David Gris- son, sterkustu stoðirnar í Valsliðinu. HANDKNATTLEIKUR Guðmundur Ingi skiptir íVíking Guðmundur Ingi Magnússon, knattspyrnumaður, sem leikið hefur með 2. deildarliðinu Skövde í Svíþjóð undanfarin ár, hefur ákveðið að skipta yfír í 1. deildarlið Víkings, og verður með liðinu næsta sumar. Guðmundur Ingi er 26 ára og hefur verið í Svíþjóð í 5 ár. Hann leikur á miðjunni eða í fremstu víglínu. Guðmundur Ingi var í ÍR á sínum tíma en fór síðan til Öster 1985. Þar komst hann reyndar ekki í leikmannahópinn og fór annað. Er Teitur Þórðarson gerðist þjálfari Skövde á sínum tíma fór Guðmund- ur svo þangað og hefur verið hjá félaginu síðan. Hann hefur verið besti maður ■Skövde í 2. deildinni undanfarin ár og vann sér það m.a. til frægðar að skora fimm mörk í sama leikn- um, 5:0 sigri, í fyrrasumar, eins og reyndar var greint frá hér í blaðinu á þeim tíma. Guðmundur meðtvö mál Guðmundur Pétursson, vara- formaður Knattspyrnusam- bands íslands, er í áfrýjunardóm- stóli Knattspyrnusambands Evr- ópu, sem tekur fyrir mál Jesús Gil y Gil, forseta Atlético Madríd, og Ivans Vutzovs, landsliðsþjálfara Búlgaríu, í Genf í Sviss í dag. Aganefnd UEFA dæmdi Gil í tveggja ára bann frá Evrópuleikjum vegna ummæla um dómara, en Vutzov fékk þriggja ára bann vegna endurtekinna mótmæla og fyrir að hrækja á dómara í Evrópuleik Búlgaríu gegn Skotlandi. Þetta eru fyrstu verkefni Guð- mundar í áfrýjunardómstóli UEFA, en hann er jafnframt fyrsti íslend- ingurinn, sem hefur verið kjörinn í dómstólinn. BLAK ÍS og Þróttur íkvöld ÍS og Þróttur mætast í íslands- mótinu í blaki í kvöld. Leikurinn fer fram í íþróttahúsi Hagaskóla og hefst kl. 19, en kl. 20:15 leika ÍS og UBK í kvennaflokki. Á Húsavík leika kvennalið Völsungs ' og Víkings kl. 19 og á Neskaupstað mætast Þróttur og HK kl. 20, en kvennaliðin kl. 20:15. ZANCASTER n fF'irflRiim uitraisi* twiyffii ieei JiAuaaa' ---MORGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTTIR SSTTQMl (IKIÁ. JílHOI/i FÓSTUDAGUR 8. FEBRUAR 1991 A-STIG ÍSÍ Þjálfaranámskeið á A-stigi ÍSÍ verður haldið í íþróttamiðstöð ÍSÍ í Laugard- al 15.-17. febrúar nk. og hefst kl. 16.00 föstudaginn 15. febrúar. Sérsamböndum og héraðssamböndum hafa verið sendar allar upplýsingar. Þátttökutilkynningar berist skrifstofu ÍSÍ, sími 83377, eigi síðar en þriðjudaginn 12. febrúar kl. 17.00. Fræðslunefnd ÍSÍ. Guðni Guðnason lék með KR á ný eftir að hafa verið lengi frá vegna meiðsla. Kristján Arason tekur við FH Kristján Arason hefur gert samning við FH um að þjálfa \ og leika með liðinu næstu tvö keppnistímabil. Til stóð að Kristján tæki við liðinu fyrir yfír- standandi tímabil, en eftir að Evrópumeistaratitill var í höfn hjá Teka s.l. vor ákvað hann að vera áfram hjá spænska liðinu. Kristján sagði við Morgunblað- ið að nú hefði hann endanlega gert upp hug sinn. „Meiðsl hafa sett strik í reikninginn í vetur og tímabilið hefur því verið leiftin- legt. En ég held að ég'sé allur að koma til og ég mun einbeita mér að því að reyna að vinna tit- il með Teka áður en ég kem heim.“ Hann sagðist stefna að því að spila með FH. „Vörnin ér höfuð- verkur liðsins og ég mun leggja áherslu á að bæta varnarleikinn. Þar get ég senriiléga styrkt liðið, Kristján Arason en sóknin virðist vera í góðu lagi og Stefán Kristjánsson er besta vinstri handar skyttan í deildinni." lan Ross hættur hjá KR! Verður aðstoðarframkvæmdastjóri hjá Huddersfield í Englandi IAN Ross, sem hefur þjálfað 1. deiidar lið KR í knattspyrnu undanfarin þrjú ár, kemur ekki aftur til félagsins, en samkvæmt samningi átti hann að hefja störf á ný 12. febrúar n.k. Hann hefur að undanförnu verið Eoin Hand, framkvæmdastjóra Hudders- field, innan handar með góð- um árangri og hefur félagið boðið honum stöðu aðstoðar- framkvæmdarstjóra, sem hann ætlar að taka. Ross til- kynnti KR í gær að hann vildi hætta störfum hjá félaginu og óskaði eftir að KR losaði hann undan samningnum. Huddersfield var neðarlega í 3. deild í Englandi í byijun janúar. Þá var Ross kallaður til eins og Morgunblaðið greindi frá og síðan hefur liðinu gengið allt í haginn, unnið efsta liðið, Sout- hend, og gert jafntefli við Grims- by, sem er í toppbaráttunni, og fengið sjö stig úr þremur leikjum. Stefán Haraldsson, formaður Knattspyrnudeildar KR, sagði við Morgunþlaðið í gærkvöldi að vera Ross hjá Huddersfield undanfarn- ar vikur hefði verið með sam- þykki knattspyrnudeildarinnar enda stangaðist hún ekki á við þjálfunaráætlun KR. Leyfið hefði hins vegar verið tímabundið og um það samið að Ross kæmi aftur 12. febrúar. Að sögn Stefáns segja forráða- menn Huddersfield að Ross eigi stóran þátt i velgengninni og því hefðu þeir boðið honum stöðu aðstoðarframkvæmdastjóra. „Eftir samtöl mín við Ross er ljóst að hann vildi rifta samningum við okkur og taka boði Huddersfield. Draumur hans hefur ávallt verið að starfa sem þjálfari hjá ensku deildarliði og ekiri er víst að slíkt tækifæri gefíst aftur. Auk þess er fjölskylda hans orðin þreytt á útiverunni, en Ross hefur þjálfað hér á landi undanfarin sjö ár. Við þökkum honum vel unnin störf og óskum honum góðs gengis í framtíðinni, þó félagið hefði kosið að leiðir skildu á annan hátt.“ Stefán sagði að þessi staða kæmi upp á versta tíma, því þjálf- arar væru almennt ekki á lausu. Ljóst væri að deildin myndi ekki reyna að fá erlendan þjálfara fyrr en aðstæður hefðu verið rækilega kannaðar hérheima. Dr. Ivan Soc- hor, aðstoðarþjálfari meistara- flokks KR, kæmi hins vegar til með að sjá um æfingar þar til annað verður ákveðið. ■ lan Ross

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.