Morgunblaðið - 24.06.1992, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 24.06.1992, Blaðsíða 21
20 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JÚNÍ 1992 fHtrípttiM&Wí Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Árvakur h.f., Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpálsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal- stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar- gjald 1200 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 110 kr. eintakið. Átök í Evrópu E'öldi manns tók þátt í helgistund í kirkju heilags Spiridons í irest síðastliðinn sunnudag er rúmenska rétttrúnaðarkirkjan tók þrettán látna menn í helgra manna tölu. Þeirra á meðal var Stefán prins mikli af Moldovu sem réð ríkjum í furstadæminu frá 1457 til 1504. Hann varði landið árásum Tyrkja og Rússa. Viðstaddir athöfnina voru forsætisráðherra Rúmeníu og fleiri ráðamenn. Hún hafði mikla tákn- ræna þýðingu. 37 ár eru síðan rúm- enska rétttrúnaðarkirkjan íjölgaði dýrlingum sínum síðast. Slíkt var bannað þangað til kommúnista- stjórn Ceausescus var steypt árið 1989. En ekki hvað síst ber dýrkun Stefáns mikia vott um andstöðu Rúmena við íhlutun Rússa í ná- grannaríkinu Moldovu og tjáir óskir um sameiningu rúmensku þjóðar- innar og endurheimt landsvæða úr ranni Sovétríkjanna sálugu. Moldova, sem nú er, varð til árið 1940 þegar Rússar slógu saman Moldavíu sem var hluti Ukraínu og þeim hluta Bessarabíu sem Rúmen- ar urðu að láta af hendi eftir skömm yfirráð. 64% íbúa Moldovu eru ná- skyld Rúmenum og tala rúmenska mállýsku. Ekki er það nú samt svo að ein- ing sé um það meðal Moldava að sameinast Rúmeníu. Snegur, forseti t.d., sem var áður aðalritari mið- stjómar kommúnistaflokksins í Sov- étlýðveldinu Moldovu, var fyrr í vet- ur hlynntur aðild að Samveldi sjálf- stæðra ríkja. Þjóðfylkingin í landinu snerist þá gegn honum því hún vill sameinast Rúmeníu. Það er þessi sameining sem slavneska minnihlut- anum í Moldovu stendur ógn af. Hann óttast um hag sinn og hefur stofnað eigið lýðveldi sem aðallega er austan Dnéstr-árinnar og liggur að Úkraínu. Á því landsvæði býr moldovskur minnihluti frá fomu fari. Borgarastríðið í þessu litla og þéttbýla ríki milli Úkraínu og Rúm- eníu hefur geisað um nokkra hríð. Átökin hafa þó magnast mjög und- anfama daga. Var svo komið að Borís Jeltsín Rússlandsforseti lýsti því yfir um helgina að Rússlands- stjóm gæti ekki lengur horft að- gerðalaus á stríð við landamæri sín, hún myndi verja borgara sína. Mun þar vera átt við rússneska minni- hlutann í Moldovu og víðar. Þegar Sovétríkin voru lögð niður kom sú nýja staða upp að 25 milljónir Rússa sem ólust upp í Sovétríkjunum voru nú borgarar erlendra ríkja. Og víða óvelkomnir og þeim gefið að sök að vera illskeyttir kúgarar. Orð Jeltsíns hafa ekki lægt öld- umar í útjaðri sovéska heimsveldis- ins, sem nú er að liðast í sundur, síður en svo. Snegur, forseti Moldovu, sá sig knúinn til að kalla hlutina sínu rétta nafni, eins og hann orðaði það; Moldova ætti í stríði við Rússland. Sakar hann 14. her Rússa sem enn er staðsettur í landinu um gróf afskipti af átökun- um. Rúmensk stjórnvöld hafa einnig fordæmt slíka íhlutun. Bandaríska utanríkisráðuneytið hefur staðfest að það hafí áreiðanlegar upplýs- ingar um að rússneski herinn berjist með aðskilnaðarsinnum þótt mjög sé óljóst hverjum hermennirnir lúti og hver segi þeim fyrir verkum. Það er því veruleg hætta á að nágrannaríkin voldugu sogist inn í innanlandsátökin í Moldovu. Raunar er vart hægt að tala um innanlands- átök vegna þess hve ríkið er ungt og hinna sérstöku aðstæðna þar, sem koma til af því að Stalín neyddi margar þjóðir til að búa saman inn- an landamæranna. Viðleitni forset- ans, Snegurs, tii að halda í einingu ríkisins er harla vonlítil. Ennfremur má benda á að Dnéstr-fljótið skiptir landinu í tvennt þar sem moldovar eru í meirihluta vestanmegin en slavar austanmegin. Engar forsend- ur eru því fyrir því að friður ríki í Moldovu að svo stöddu. Sú spuming gerist æ áleitnari hvernig setja megi niður deilur í okkar heimshluta. Mjög ófriðlega horfír í öllum eystri hluta álfunnar. Vinsælir ferðamannastaðir á Adría- hafsströnd Júgóslavíu sem margir íslendingar þekkja eru nú ijúkandi rúst. Sú fallega borg Sarajevo, vett- vangur Ólympíuleika fyrir nokkrum árum, brennur. í Armeníu- Azerbajdzhan, Georgíu og Moldovu geisa borgarastríð. Tékkóslóvakía er að liðast í sundur, sem betur fer friðsamlega að því er virðist. Ef Rússar beittu hervaldi í Moldovu væri það brot á eigin samþykktum sem þeir hafa staðið að á fundum Ráðstefnunnar um öryggi og sam- vinnu í Evrópu eins og talsmaður bandaríska utanríkisráðuneytisins hefur bent kurteislega á. Slík íhlut- un er einungis heimil ef um þjóðar- morð er að ræða. Sameinuðu þjóðirnar hafa tekið að sér friðargæslu í fyrmrn lýðveld- um Júgóslavíu. En vaxandi kröfur eru um að Evrópubúar sjálfir finni leiðir til að hindra og stöðva átök enda eru verkefnin næg. Ráðstefnan um öryggi og samvinnu í Evrópu hefur sent könnunarsveitir til Nag- omo-Karabak, Atlantshafsbanda- lagið hefur nýverið tekið þá ákvörð- un að sinna friðargæslu utan vam- arsvæðis síns. Lengst hefur þó Vestur-Evrópusambandið, upprenn- andi varnarbandalag EB-ríkja, gengið, sem lýsti því yfir í síðustu viku að það myndi ekki einungis sinna friðargæslu heldur og friðar- gjörð, sem hefur jafnvel verið túlkað svo að samtökin séu reiðubúin að beita valdi til að skilja að stríðandi fylkingar. E.t.v. verður með þessum hætti hægt að ná árangri í viðureign við staðbundin átök í álfunni. Einhug skortir samt um hvað eigi að taka við. Hvernig skipan vilja menn í þeim heimshluta sem áður laut kommúnismanum? Hvernig á að útkljá deilur þjóða um lönd og ríkis- forráð? Hver em takmörk sjálfsá- kvörðunarréttaf þjóða? Hvaða grundvallarreglur á að hafa að leið- arljósi? Þegar þær hafa fundist og sátt hefur náðst um að framfylgja þeim samviskusamlega er von til þess að umbrotaskeiðið eftir hrun heimsveldisins verði skammvinnt. Þjóðkirkja og þjóðarsál aðalefni á prestastefnu Efla þarf safnaðarvitund, segir biskup Islands PRESTASTEFNA 1992 hófst í gær og er aðalefni prestastefnunnar í ár „Þjóðkirkja og þjóðarsál“. Um það bil 140 prestar eiga setu- rétt og áttu um 100 þeirra heimangengt. Ólafur Skúlason biskup Islands lagði í setningarræðu mikla áherslu á að efla og styrkja einstaklinginn í samfélagi kristinna. Safnaðarvitund bæri að efla í hvívetna. Áður en prestastefna 1992 hófst hlýddu kennimenn á guðsþjónustu í Dómkirkjunni. Þar predikaði séra Bolli Gústafsson vígslubiskup á Hólum. Hann talaði m.a. um hið sívökula og eilífa réttlæti guðs sem við værum minnt á í frásögninni um Lazarus og ríka manninn. Hinn róttæka og umbyltandi siðalærdóm. Menn skyldu gæta réttlætis, neyta ekki aflsmunar gagnvart vanmegn- ugum. Eftir hádegi komu prestar, ásamt herra Ólafí Skúlasyni biskupi ís- lands og vígslubiskupum og þeim biskupum sem látið hafa af störf- um, saman í Neskirkju. í setningar- ræðu sinni kom herra Ólafur Skúla- son víða við. Fyrst greindi hann nokkuð frá samskiptum Þjóðkirkj- unnar við aðrar þjóðkirkjur á Norð- urlöndum og væntalegum norræn- um biskupafundi hér á landi. En aðalefni prestastefnunnar í ár er Þjóðkirkjan og þjóðarsál. Biskup sagði kirkju Krists á Is- landi hafa veglegt hlutverk gegnum það tæki sem væri Þjóðkirkjan sem ætti sér langa og merka sögu. En hitt dytti okkur ekki í hug, að Krist- ur gæti hvergi látið af sér vita eða kallað til þjónustu nema í gegnum hina skipulögðu Þjóðkirkju. Ein- staklingurinn leitaðist við að fínna tilbeiðslunni þann farveg, sem hon- um væri eðlilegastur og heilagur andi léti ekki mannasetningar eða mannasamþykktir skammta sér áhrifasvæði. „En jafneðlilegt og það er, að Þjóðkirkjan sé fyrirferðarmikil í samtímanum, slíkan ægishjálm ber hún yfir öll önnur trúarsamfélög í krafti þess fjölda, sem henni tilheyr- ir þá vill hún gjarnan hafa sam- skipti og samvinnu við þau kristin samfélög önnur, sem hér starfa og eru ekki í kenningum sínum í al- gjörri andstöðu við evangelísk-lút- erskan arf,“ sagði Ólafur Skúlason. Biskup vék í ræðu sinni að því að Þjóðkirkjan hefði orðið að sitja undir\ nokkurri gagnrýni, bæði þeirra sem kenndu sig við lúterska kenningu og svo hinna sem ættu færra sameiginlegt með Þjóðkirkj- unni. Þetta kæmi ekki á óvart og skyldi síst valda vinaslitum. Það væri ævinlega erfítt að vera í þeirri aðstöðu, að annar aðilinn væri margfallt stærri en hinn. Yrði þá stundum seilst full langt í eigin réttlætingu. Biskup sagði að Þjóð- kirkjan og þeir sem þar væru í for- svari mættu ekki sætta sig við að hennar hlutur væri skertur eða lítið gert úr starfi hennar, sögu og áformum. Biskup sagði furðulegt að heyra meðlimi Þjóðkirkjunnar sagða tilheyra ríkiskirkju, þar sem þó ríkti sannanlega algjört og óhindrað trúfrelsi á okkar landi. Frá vöggu til grafar Biskup ræddi m.a. um ábyrgð kirkjunnar til að styðja við og fylgja mannanna bömum eftir, allt frá því er baminu er veitt mótttaka í söfn- uðinn með skírninni, með stuðningi við foreldrana. Söfnuðurinn væri farvegur fyrir einstaklinga til að iðka trú sína. Það væri mikil nauð- syn að tengja alla þjónustu kirkj- unnar við söfnuðinn og safnaðar- starfið. Efla bæri safnaðarstarífið í hvívetna. Biskup Iagði áherslu á að sérþjónusta kirkjunnar s.s. á sjúkrahúsum og stofnum yrði skil- greind með þeim hætti að þeir sem hennar þörfnuðust fengju hennar sem best notið. Biskup íslands sagði þær raddir verða sífellt háværari, að einn þátt- urinn í efldri safnaðarvitund væri að sóknarbörnin þægju þá þjónustu sem flestum tengdust, þ.e. skírn og fermingu, sem beint framlag safnaðarins. Fengi presturinn þá umbun fyrir eftir öðrum leiðum en beinni gjaldtöku. Hið sama ætti við um greftranir. Væri ráð og fyrir því gert í frumvarpi sem lengi hefði beðið afgreiðslu á Alþingi og fjall- aði um greftranir, líkbrennslu og fleira. Að sá hafí greitt fyrir þjón- ustu kirkjunnar, þegar kæmi að greftrun, sem innt hafi sínar skyld- ur með sóknargjöldum og kirkju- garðsgjöldum. Megum ekki deyja lifandi Séra Ólafur Oddur Jónsson flutti erindi um „Einstaklinginn í fjöl- hyggjusamfélagi". Séra Ólafur Oddur benti á að fjölhyggja okkar samfélags tengdist að vissu leyti lýðræðisþróun og umburðarlyndi en hún gerði einnig lífsskoðanir af- stæðar og skilgreiningar væru ekki lengur sjálfstæðar. Olafur Oddur sagði: „í kristinni trú er Guð grund- völlur og uppspretta alls. Hið kristna svar við spurningunni: Hver er ég? hljóðar á þessa leið: Þú ert sköpun Guðs, einstaklingur sem Guð elskar." Ólafur ræddi um einstaklinginn í samfélaginu og strauma í samfé- laginu og þörfína á kristnum boð- skap og lífsstíl. Vonleysi gæti gert menn að eiturlyfjasjúklingum. Víta- hringur fátæktar, atvinnuleysis, glæpa og fangelsisvistar stækkaði bæði hér heima og erlendis. Hvers vegna? „Að hluta til vegna þess að fólki er sama um lífið og annað fólk.“ Keppnin eftir árangri hefði einnig gert margan manninn svart- sýnan og tilfinningasljóan. Við er- um ófær til að elska og ófær til að syrgja. Við mættum ekki deyja lifandi, tilfínningalaus. Aðeins sá guð sem hefði þjáðst vegna kærleikans til mannanna gæti orðið að liði. Líf- stíll kristinna manna væri fjölbreyt- ilegur en það sem einkenhdi hann fyrst og fremmst væri trú von, kærleikur og rétlæti, sem nærðist í kirkjunni, samfélagi vonarinnar og birtist í orðum og gjörðum fyrir náð Guðs sem lýkur upp framtíð- inni. Hljómburður bættur í Neskirkju FYRRI hluta breytinga innan dyra í Neskirkju, sem staðið hafa yfír undanfamar vikur, er nú lokið. Breytingarnar vom gerðar til að auka hljómburð í kirkjunni. Hljóðeinungrunarplötur frá gamalli tíð voru fjarlægðar, söngloftið, þar sem kórinn og organistinn hafa aðstöðu, var stækkað, auk þess sem gerðar voru breytingar á rými fyrir ofan alt- ari. Afram verður unnið að endurbótunum síðar í sumar en þá er fyrirhugað að breyta altari og kór kirkjunnar og endurnýja öll sæti. í gær hófst presta- stefna í Neskirkju. MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JÚNÍ 1992 21 EES felur ekki í sér framsal á valdi þjóðríkja - segir í ályktun flokksþings Alþýðuflokksins Morgunblaðið/Bjami Prestar ganga frá Menntaskólanum í Reykjavík til messu í Dómkirkjunni. Minningarsjóður um Jean Pierre Jacquillat: Þóra Einarsdóttir söng- kona hlaut fyrsta styrkinn Þóru Einarsdóttur, söngkonu, hefur verið veittur 600 þúsund króna styrkur úr Minningarsjóði Lindar hf., um Jean Pierre Jacquillat hljómsveitarstjóra, sem lést af slysförum í Frakk- landi sumarið 1986. Sjóðurinn var stofnaður í apríl árið 1987 af eignaleigufyrirtækinu Lind hf., en er nú sjálfstæð sjálfseign- arstofnun. Þetta í fyrsta sinn sem styrkur er veittur úr sjóðnum og bárust stjórninni 39 umsókn- ir. Fjöldi gesta voru viðstaddir afhendinguna, er fram fór í. afni Sigurjóns Ólafssonar í glr. Þeirra á meðal var frú Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands. Þóra Einarsdóttir hefur stundað söngnám við Söngskólann í Reykja- vík frá ársbyijun 1988, og hefur hún lokið 8. stigi söngnáms frá skólanum. Aðalkennari hennar þar var Ólöf Kolbrún Harðardóttir. Þá hefur Þóra sótt námskeið í Osló og verið við nám í Skotlandi. Hún tók stúdentspróf af tónlistarbraut Menntaskólans við Hamrahlíð árið 1991. Að auki hefur hún tekið þátt í kórstarfí og sungið hlutverk í ýmsum óperum. Hún var og nýver- ið einsöngvari í Messíasi á Listahá- tíð. Þóra söng tvö lög eftir Gabriel Fauré og aríuna Draumavals Júlíu úr Rómeó og Júlíu eftir Gounod, fyrir gesti. Vakti söngur hennar fögnuð viðstaddra. Cecile Jaquillat, ekkja Jean Pi- erre Jaquillat, afhenti styrkinn. „Það veit ég, að Jean Pierre hefði notið þess að heyra þessa rödd, og ekki hefði honum þótt verra að sjá hve falleg þú ert,“ sagði hún. „Eg er afar þakklát fyrir að vera sýndur þessi heiður,“ sagði Þóra. Hún kvaðst nú stefna að næsta áfanga í söngnáminu, en hún stóðst inntökupróf í Guildhall School of Music & Drama í London þar sem hún mun heija framhaldssöngnám í haust. Að því Ioknu hyggst Þóra stunda framhaldsnám í óperusöng. „Hlutverk sjóðsins er að styrkja tónlistarfólk til að afla sér aukinnar menntunar og reynslu á sviði tón- listar og jafnframt er það hlutverk sjóðsins að halda nafni Jean Pierre Jacquillat á lofti og því merka fram- lagi sem hann lagði til íslenskra tónlistarmála sem aðalstjórnandi Sinfóníuhljómsveitar íslands um árabil,“ sagði Erlendur Einarsson Morgunblaðið/Sverrir Þóra Einarsdóttir, til hægri, tekur við styrknum úr hendi Cecile Jaqu- illat. Hjá þeim stendur Erlendur Einarsson, formaður Minningarsjóðs- ins. formaður Minningarsjóðsins í ræðu sinni. „Þá vildi stjóm Lindar ekki síður heiðra minningu mikils ís- landsvinar, sem með störfum sínum ávann sér virðingu og vináttu fjöl- margra íslendinga." Jean Pierre Jacquillat fæddist í Versölum 13. júlí árið 1935. Að loknu námi í Conservatorie Nation- al Superieur de Musique í París var hann ráðinn aðstoðarhljómsveitar- stjóri hjá hinum þekkta stjórnanda Charles Muench við Sinfóníuhljóm- sveit Parísar. Hann stjómaði fjölda tónleika í Frakklandi og víðar, auk þess sem hann hóf að hljóðrita franska tónlist, starf sem hann sinnti af miklum áhuga, sagði Er- lendur. Árið 1970 var hann ráðinn aðalhljómsveitarstjóri Sinfóníu- hljómsveitarinnar í Anger í Frakk- landi og ári seinna aðalhljómsveit- arstjóri óperannar í Lyon og Rhone- Alpes-hljómsveitarinnar. Sagði Er- lendur að árangur hans í Lyon hafi leitt til þess að honum var boðið að stjóma óperuuppfærslum víða um heim. Jean Pierre kom fyrst til starfa með Sinfóníuhljómsveit íslands árið 1972 en var síðan ráðinn aðalhjólm- sveitarstjóri Sinfóníuhljómsveitar- innar árið 1980 og gegndi því starfi til loka starfsársiris 1985 til 1986. Var það fyrir hans tilstilli að hljóm- sveitin fór í tónleikaferð til Frakk- lands árið 1985. Jafnframt starfí sínu á Islandi stjómaði hann hljóm- sveitum víða um heim og einnig mörgum ópemm í París. FLOKKSÞING Alþýðuflokksins, er haldið var um miðjan mánuðinn, sendi frá sér ályktun um aðild íslands að evrópska efnahagssvæðinu. Þingið telur EES-samninginn hvorki bijóta í bága við stjórnarskrána, né heldur feli hann í sér framsal á löggjafar-, framkvæmda- eða dóms- valdi. Þjóðréttarfræðingar á vegum EB- og EFTA-ríkjanna hafi hvergi staðfest slíkar fullyrðingar. „Það er grundvallarmunur á Evrópuband- alaginu annars vegar og evrópska efnaliagssvæðinu hins vegar að því er varðar framsal á valdi þjóðríkja til samþjóðlegra stofnana," segir meðal annars í ályktun þingsins. Þar segir einnig, að EES muni verða varanlegri kostur fyrir EFTA-ríkin en hingað til hafi verið talið. Þá er tekið fram, að haldið sé fast við helstu fyrirvara er settir voru gagn- vart samningnum í tíð fyrri ríkissljórnar. Undir yfírskriftinni „Fullvalda þjóð“ segir eftirfarandi orðrétt í álykt- uninni: „Flokksþingið leggur áherslu á að fullyrðingum um að EES-samn- ingarnir feli í sér framsal löggjafar- valds, framkvæmdavalds og dóms- valds, eða að samningarnir séu brot á stjórnarskrá íslands, hefur hvergi verið fundinn staður svo að trúverð- ugt sé. Þjóðréttarfræðingar á vegum EB- og EFTA-ríkjanna, sem og bær- ar lagastofnanir, hafa hvergi staðfest slíkar fullyrðingar. Færustu sérfræð- ingar sem völ er á hafa verið til kvadd- ir að skila álitsgerð um málið fyrir júnílok, en niðurstöður þeirra munu væntanlega eyða efasemdum um að samningarnir standist heimildir stjórnarskrárinnar til þjóðréttarlegra skuldbindinga." Ennfremur segist flokksþingið leggja áherslu á eftirfarandi: „EES samningarnir og fylgifrumvörp þeirra verði lagðir fyrir Alþingi til sam- þykktar eða synjunar; engar nýjar reglur eða breytingar á EES-reglum, sem varða íslensk lög, geta tekið gildi, án þess að samþykki Alþingis geti komið til; þar af leiðir að ekki er um að ræða framsal á löggjafarvaldi Al- þingis til samþjóðtegra stofnana; ekki er um að ræða framsal á fram- kvæmdavaldi til yfirstjórnar EES, þar sem ákvarðanir em teknar samhljóða, og hvert ríki hefur því neitunarvald; einstaklingar og fyrirtæki, sem telja sig eiga rétt skv. EES-reglum geta ekki höfðað mál beint fyrir EFTA- dómstólnum, en geta leitað réttar síns fyrir íslenskum dómstólum, þar sem EES-reglur munu gilda einnig sem lög á íslandi." Flokksþingið lýsir eðlismuni á EB og EES á eftirfarandi hátt: „Það er grundvallarmunur á Evrópubanda- laginu annars vegar og evrópska efnahagssvæðinu hinsvegar að því er varðar framsal á valdi þjóðríkja til samþjóðlegra stofnana: Innan EB framselja þjóðþing og ríkisstjórnir hluta af valdi sínu til samþjóðlegra stofnana (ráðherraráðs og fram- kvæmdastjómar), þar sem ákvarðanir í veigamiklum málum era teknar með meirihluta atkvæða; EB er tolla- bandalag með sameiginlega ytri tolla og viðskiptastefnu gagnvart þriðja aðila; EB stefnir að því að taka upp sameiginlega stefnu í utanríkis- og varnarmálum og sameiginlega pen- ingamálastefnu, auk þess sem EB framfylgir sameiginlegri landbúnað- ar- og sjávarútvegsstefnu. Ekkert af þessu á við um evrópska efnahags- svæðið (EES).“ „Flokksþingið lýsir yfir stuðningi sínum við aðild að evrópska efnahags- svæðinu (EES) og skorar á Alþingi Islendinga að staðfesta samninginn og fylgifrumvörp hans, þannig að samningarnir gangi í gildi 1. janúar - 1993,“ segir einnig orðrétt í ályktun- inni. Flokksþingið telur, að samninga- viðræður með hinum EFTA-ríkjunum hafi skilað mun betri árangri fyrir Islendinga en hægt hefði verið að búast við með einhliða samningum við EB eða með inngöngu í bandalag- ið. Þó tekur þingið undir þá skoðun utanríkisráðherra, að fram beri að fara vandað mat á kostum og göllum á inngöngu í Evrópubandalagið. Einnig telur flokksþingið að EES verði varanlegri kostur fyrir EFTA- ríkin en hingað til hafi verið talið, vegna aukins innbyrðis ágreinings um framtíðarþróun bandalagsins, sem t.d. úrslit þjóðaratkvæðagreiðslu í Danmörku um Maastricht-samkom- ulagið beri vitni um. Renni það stoð- um undir það mat, að EES muni duga EFTA-þjóðunum sem sam- skiptavettvangur fram á seinni hluta þessa áratugar. Flokksþingið minnir einnig á, að öllum helstu fyrirvöram sem settir voru gagnvart samningnum af hálfu íslands í tíð fyrrverandi ríkisstjómar, hafi verið haldið til streitu í einhveiju formi. EB hafi ekki fengið einhliða fiskveiðiheimildir, íslendingar haldi varanlegum fyrirvara að því er fjár- ■ festingar í fyrirtækjum í sjávarútvegi varðar, iðnaðarráðherra muni leggja fyrir Alþingi frumvarp til laga sem geri kleift að tryggja forræði þjóðar- innar yfir orkulindum, og hið sama muni landbúnaðarráðherra gera, þar sem settar yrðu kvaðir og skilyrði fyrir jarðakaupum erlendra ríkisborg- ara. Þá er tekið fram í ályktun flokks- þingsins að óskorað yfirráð yfir fiski- miðum og orkulindum landsins verði ófrávíkjanlegt skilyrði af íslendinga hálfu í samningum við önnur ríki. Óskað er eftir gömlum verslunar- skjölum og ljósmyndum frá Reykjavík BORGARSKJALASAFN Reykja- víkur og Ljósmyndasafn Reykja- víkurborgar ráðgera sýningu um sögu verslunar í bænum. Söfnin óska eftir upplýsingum og sýningargripum, verslunabók- um, Ijósmyndum, bæklingum o.s.frv., bæði að fornu og nýju. í frétt frá Borgarskjalaverði er greint frá því að Borgarskjalasafn Fiskifélagið vill leyfa hvalveiðar STJÓRNARFUNDUR Fiskifé- lags íslands haldinn í Reykjavík, föstudaginn 19. júní 1992, leggur til við sjávarútvegsráðherra að hann beiti sér fyrir því að hval- veiðar verði hafnar að nýju þeg- ar á þessu ári. Jafnframt beiti hann sér fyrir því að þess verði freistað að gera selveiðar að arðbærri atvinnugrein að nýju. Stjórn Fiskifélagsins telur að þetta sé þjóðhagsleg og líffræðileg nauðsyn miðað við þá stöðu sem sjávarútvegurinn er nú í. Reykjavíkur og Ljósmyndasafn Reykjavíkurborgar ráðgeri að halda sýningu um sögu verslunar í Reykjavík í júlflok í Geysishúsinu, Aðalstræti 2. í tengslum við undirbúning sýn- ingarinnar óska söfnin eftir upplýs- . ingum um eða frá verslunum í Reykjavík, til láns eða varðveislu. Borgarskjalavörður nefnir í þessu sambandi m.a. hinar ýmsu verslanabækur, pöntunarlista, vör- ulista, auglýsingabæklinga, fregnmiða, veggspjöld, ljósmyndir, o.fl., allt fram til dagsins í dag.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.