Morgunblaðið - 03.12.1993, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 03.12.1993, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. DESEMBER 1993 Raunsætt Vest- fjarðavandamál eftir Kristínu Ólafsdóttur Föstudaginn 26. nóv. var leiðari Morgunblaðsins tileinkaður Vest- fjörðum í kjölfar ákvörðunar for- ráðamanna Hjálms hf. á Flateyri þar sem þeir hætta fiskvinnslu með reisn. Hætta áður en fjármunum ríkisins er ausið í þá til einskis nema lengja hengingarólina. í sama leið- ara er minnst á að ákvörðun for- ráðamanna Hjálms kosti tíma- bundnar fómir og sársauka að grípa til aðgerða af þessu tagi. í áður- greindum leiðara er ennfremur ijall- að um alvarlegt atvinnuástand í öðrum sjávarplássum á Vestfjörð- um. En engum dettur í hug að skrifa leiðara um af hveiju ástandið er slíkt sem raun ber vitni. Vandamálin em komin á það stig segja þeir sem mest vita að ástæða þykir til að spyija um framtíð okkar sem hokmm þama enn. Leiðara- skrifari reynir að hughreysta okkur Vestfirðinga sem öldum saman hafa verið ein öflugasta verstöð á íslandi og segir það alveg ljóst að sum fyrir- tæki í sjávarútvegi gangi vel þrátt fyrir minnkandi afla. Og segir leiða- raskrifari það augljóslega stóm fyr- irtækin og tiltekur nokkur svo sem Granda og ÚA. I mínum huga skiptir stærð fyrir- „Eg er Vestfirðingur og hef hugsað mér að hokra hér áfram“ tækja engu í þessu máli. Tel ég forráðamenn flestra fyrirtækja á Vestfjörðum ekkert lakari stjóm- endur en annarsstaðar á landinu. Málið snýst um það að Vestfirðingar lifðu mest á þorskveiðum. Mikil skerðing þorskkvóta bitnaði harðast á Vestfirðingum. Mest af okkur tekið Þegar Vestfírðingar veiddu mest af þorski var Grandi mest í karfa- vinnslu ásamt fleiri sjávarútvegsfyr- irtækjum á suðvesturhorninu. Karfaveiðar minnkuðu mikið eins og þorskveiðar og einhvers staðar varð að skera niður til að jafna til annarra. Og enn einusinni varð þorskkvóti Vestfirðinga fyrir valinu. Og ekki bara þorskkvótinn heldur var grálúðuveiðum vestfirskra tog- ara skipt á milli allra landshluta svo enginn færi nú í jólaköttinn og þar var með einu pennastriki úthlutað tugmilljónaverðmætum til manna sem varla vissu hvernir grálúða leit út hvað þá að þeir hefðu stundað veiðar á slíkri skepnu. Eg er enginn kvótasérfræðingur Kristín Ólafsdóttir né fiskifræðingur og þaðanafsíður ábyrgur leiðarahöfundur sem hefur lausnir á öllum vandamálúm en ég er Vestfirðingur og hef hugsað mér að hokra hér áfram á Vestfjörðum þrátt fyrir slæma tíð og misvitra stjórnmálamenn. En ranglæti og neikvæð skrif um vanda Vestfírðinga fengu mig til að skrifa þessa grein. Vandi Vest- fírðinga leysist ekki með því að líta upp til stærri fyrirtækja sunnan- lands og norðanlands síður en svo heldur fær það mann til að hugsa um þorskkvótann sem var tekinn að vestan til að gera stóran stærri og Vestfírðinga minni. Höfundur er húsmóðir og verkalýðsformaður. MFÍK til varnar Nexmiu Hoxha MENNINGAR- og friðarsamtök íslenskra kvenna hafa í ályktun lýst áhyggjum sínum af þeirri upplausn og ringulreið, sem ríkir nú í Albaníu, þar sem fólk sé fangelsað fyrir stjórnmálaskoð- anir sínar. í ályktun samtakanna segir m.a.: „Eitt alvarlegasta tilvik af þessu tagi er fangelsun og dómur yfír Nexmia Hoxha, sem er ekkja fyrr- um leiðtoga Albaníu. Nexmia var handtekin 5. desember 1991. Henni var haldið í fangelsi án þess að vera sótt til saka. Á þessu stigi málsins mótmæltu alþjóðleg samtök lögfræðinga slíkum mannréttinda- brotum við albönsk stjórnvöld. Að lokum kom Nexmia fyrir rétt og var ákærð fyrir að hafa dregið sér fé úr eigu hins opinberra að jafnvirði 300.000 dala. Dómur féll í málinu í febrúar 1993. Þá var kæran orðin aðeins jafnvirði 300 Bandaríkjadala og var það kostnað- ur við erfisdrykkju þjóðarleiðtog- ans, eiginmanns Nexmiu. Hún var dæmd í níu ára fangelsi. í maí sama ár var dómurinn þyngdur í ellefu ár. Hér er um mjög alvarlegt mann- réttindabrot að ræða, sem MFÍK vill vekja sérstaka athygli íslenskra stjórnvalda á og einnig viljum við hvetja Amnesty Intemational til að rannsaka þetta mál ítarlega og mótmæla meðferð þess,“ segir í ályktun kvennanna í MFÍK. Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson Sigurvegarar í samkeppninni ásamt Gísla Gíslasyni sem er lengst til vinstri. Við hliðina á honum er Haukur Halldórsson, Steinunn Guðmundsdóttir og Sigtryggur Karlsson. Samkeppni um gerð minjagripa á Akranesi Akranesi. BÆJARSTJÓRN Akraness efndi fyrr á þessu ári til samkeppni um gerð minjagripa fyrir Akranes og voru úrslit hennar kynnt á dögun- um. Þessi samkeppni var í þeim tilgangi gerð að leita eftir góðum hugmyndum sem koma megi í framleiðslu og ekki síður að vekja á jákvæðan hátt athygli á Akranesi og skapa að einhveiju leyti hand- verksfólki verkefni, eins og Gísli þegar tillögurnar voru kynntar. Alls bárust tillögur frá tólf aðil- um og dómnefndin komst að þeirri niðurstöðu að skipta 1. og 2. verð- launum miili tveggja hugmynda. Hin fyrri er hugmynd Hauks Hall- dórssonar, írskur kross með nafni Akraness grafíð í miðju, og hin síð- ari hugmynd Steinunnar Guð- mundsdóttur, Roðflettar minningar, en þar er um að ræða að nýta físk og roð sem list og fæðu. Haukur vill með írska krossinum minna á ýmis írsk tengsl á Akra- nesi. Sagan segir að írskir bræður, Ketill og Þormóður Bresasynir, hafí numið land á Akranesi og mörg ömefni á Akranesi minna á þessi tengsl. Árið 1974 gaf írska þjóðin Akurnesingum bautastein til minn- ingar um þetta landnám. Það hefur lengi verið áhugamál nokkura aðila á Akranesi að efla vitund fólks um þessi tengsl, ekki síst með það í huga að nýta það til að laða ferða- menn á Skaga. Þessi gripur er stíl- hreinn og ætti að vera auðveldur í framleiðslu. Steinunn vill með sinni hugmynd, „Roðflettar minningar" setja saman Gíslason bæjarstjóri komst að orði í öskju harðfísk til neyslu og inn- rammað fískroð til að hengja upp á vegg. Askjan yrði þannig gerði úr garði að hún minnti sérstaklega á Akranes og að á loki hennar mætti finna upplýsingar um bæinn. Öskjuna mætti einnig útfæra þann- ig að hún minnti á Akranes, en hefði að geyma upplýsgar um fyrir- tæki eða aðra þá sem vildu nota sér þessa framleiðslu sem gjöf. Þetta er óvenju frumleg hugmynd og er þó notað við það hráefni, sem lífsafkoma svo margra á Akranesi byggist á. Dómnefndin var sammála um að veita þriðju verðlaun tillögu að Skagamanni í formi brúðu eftir Sig- trygg Karlsson. Þessa hugmynd er hægt að útfæra á ýmsan veg og möguleikar á að koma henni í fram- leiðslu eru nokkrir. Þetta framtak Akranesbæjar er lofsvert og von- andi verður hafínn framleiðsla á einhveijum af þessum hugmyndum, því margar þeirra verðskulda það þó ekki hafí þær allar unnið til verð- launa. - J.G. Minning Skafti Jósefsson garðyrkjubóndi Fæddur 1. mars 1920 Dáinn 28. nóvember 1993 „Dáinn, horfínn, harmafregn." Það er ekki alltaf breitt bilið milli gleði og harms. Síðastliðið sunnudagskvöld var ég, ásamt öðr- um söngfélögum Drangeyjarkórs- ins, að koma úr framúrskarandi ánægjulegri tveggja daga heimsókn á vit Vestur-Skaftfellinga. Þar sat gleðin svo sannarlega í öndvegi. En naumast hafði ég fyrr náð heim en síminn hringdi. Sá sem hringdi var góðvinur minn og gamall skóla- bróðir, Halldór Ó. Jónsson. Ég þótt- ist þegar kenna á raddblæ Halldórs að hann hefði engar gleðifréttir að færa. „Hann Skafti okkar Jósefsson var að deyja,“ sagði Halldór. Við þögðum báðir um stund, því þótt okkur væri ljóst, að til þessa hlaut að draga á hverri stundu úr því, sem orðið var, þá fundum við það báðir, að við þennan harða veruleika var erfítt að sætta sig. Enn einn hafði nú horfíð úr þeim glaða og góða hópi, sem hóf nám við Garðyrkjuskóla ríkisins á Reykj- um í Ölfusi við stofnun hans á sum- ardaginn fyrsta 1939. Við vorum ekki mörg, rúmlega 20 í byijun, víðsvegar að af landinu. Og ég er engan veginn viss um, að þótt við værum nú að hefja nám við garð- yrkjuskóla þá höfum við öll verið ákveðin í því að gera garðyrkjuna að ævistarfí. Það yrði tíminn að leiða í ljós. En við gerðum okkur fljótlega grein fyrir því, að við vorum þarna eins konar landnemar. Þama vant- aði í raun og veru flest það, sem vera þurfti fyrir hendi til þess að hægt væri að reka þama garðyrkju- skóla, sem stæði undir nafni, annað en áhugasaman og dugmikinn skólastjóra og góða kennara. Nám okkar var því ekki hvað síst fólgið í að leggja gmnn að þeirri mennta- stofnun, sem þarna skyldi rísa. Og það var hreint ekki svo lítið hlut- verk að okkur fannst. Það ríður mikið á því fyrir land- nema að þeir séu samhentir. Og það vorum við svo sannarlega. Ég hygg að leitun hafí verið á sam- stæðari nemendahópi en þessum. Og þar kom að vísu ýmislegt til en þó e.t.v. einkum tvennt: Að við vor- um þetta fá og svo samkenndin, sem landnemahlutskiptið vakti. Okkur fannst það á vissan hátt heillandi hlutskipti, enda þótt við gerðum okkur á hinn bóginn grein fyrir, að það hlaut að bitna á nám- inu, einkum því verklega. Ég held, að Skafti hafi á þessum árum ekki haft það sérstaklega í huga að gerast garðyrkjumaður að náminu loknu. Hann var fæddur og uppalinn á Setbergi í Gmndar- fírði og átti þar heima hjá foreldmm sínum, séra Jósef Jónssyni og konu hans, frú Hólmfríði Halldórsdóttur, öll sín bemsku- og unglingsár. „Ég held ég vildi helst verða bóndi á Setbergi," sagði hann eitt sinn við mig. „En það verður nú víst ekki. Setberg er og verður sjálfsagt prestssetur og ég hefði því líkiega orðið að leggja fyrir mig guðfræð- ina til þess að geta átt von á bú- setu á Setbergi." Og Skafti varð ekki bóndi í venju- legum skilningi, hvorki á Setbergi né annars staðar. Hann gerðist garðyrkjumaður, garðyrkjubóndi. Allnokkm eftir að hann útskrifaðist frá Garðyrkjuskólanum á Reykjum vorið 1941, varð hann sér úti um land í Hveragerði, byggði þar íbúð- arhús, Heiðmörk 39 og svo garð- yrkjustöð, sem þau hjón ráku síðan með miklum myndarbrag um ára- tuga skeið, eða á meðan þeim ent- ist heilsa. Já, „þau hjón,“ sagði ég. Skafti reyndist nefnilega eiga annað erindi í Garðyrkjuskólann en það eitt að stunda þar nám. Þar kynntist hann konu sinni, henni Möggu, Margréti Jónsdóttur frá Ísafirði, en hún var ein af nemendunum. Magga var og er ákaflega hugljúf og elskuleg kona og ég hygg í engu ofmælt, að hún sé gædd flestum þeim kost- um, sem eina konu mega prýða. Samhentari hjón en þau Skafta og Möggu em áreiðanlega ekki auð- fundin og gildir einu hvar borið er niður um það. Annað varð ekki nefnt án þess að minna á hitt. Og þó að Skafti hafi e.t.v. ekki í upphafi ætlað leggja fyrir sig garðyrkju þá reyndist þar svo sann- arlega réttur maður á réttum stað og á það raunar við um þau hjón bæði. Snyrtimennska og vömvönd- un sátu í öndvegi við atvinnurekstur þeirra. Börn þeirra hjóna eru fjögur: Jóhannes Finnur, lyfjafræðingur og annast hann rekstur Reykjavík- urapóteks, Jósef, læknir við Heilsu- gæslustöðina í Efra-Breiðholti, Auður, hjúkrunarfræðingur, búsett á Akureyri og Hólmfríður, húsmóð- ir í Hveragerði. Öll bera þau systk- inin foreldmm sínum verðugt vitni. Það var gott að koma í Heiðmörk 39 til þeirra Skafta og Möggu. Þar ríkti frábær snyrtimennska, jafnt utan húss sem innan. Viðmót hús- bændanna var með þeim hætti, að í návist þeirra leið öllum vel. Ég hygg. að gömlu skólafélagarnir hafí ekki komið svo í Hveragerði að þeir gæfu sér ekki tíma til þess að heimsækja þau hjón. Stundum mæltum við okkur þar beinlínis mót svo að segja mátti að hið indæla heimili þeirra væri eins konar fé- lagsmiðstöð okkar. Og þar biðu svo sannarlega „vinir í varpa“. Og nú er hann horfinn á braut þessi hug- ljúfi vinur. Ég veit að ég mæli fyrir munn okkar allra, gömlu skólasystkin- anna frá Reykjum þegar ég þakka þeim Skafta og Möggu fyrir órofa vináttu og ógleymanlegar samveru- stundir og bið þeim allrar blessunar í bráð og lengd. Magnús H. Gíslason. Skafti Jósefsson í Hveragerði er fallinn frá á besta aldri, en hann var um sjötugt hress og glaður í viðmóti, áður en sjúkdómurinn tók hann sínum heljartökum. Skafti var fæddur að Setbergi í Eyrarsveit 1. mars 1920. Foreldrar hans voru Hólmfríður Halldórsdótt- ir, bankagjaldkeri og séra Jósef Jónsson prófastur frá Öxl í Þingi. Skafti var dugnaðardrengur og reyndi á það meðan hann dvaldist heima en hann hneigðist að bú- skapnum og störfum í kringum hann. Árið 1937 fór Skafti í Reyk- holtsskólann og var þar í tvo vetur. Svo var það árið 1939 að Skafti fékk inngöngu í Garðyrkjuskólann á Reykjum, sem þá var að hefja göngu sína. í skólann réðust um 20 nemendur og var hann vel setinn af duglegu námsfólki. Margir af nemendum skólans fóru síðar að vinna við garðyrkjustöðvamar ■ í landinu, en nokkrir byggðu sér eig- in stöðvar. I skólanum sjálfum var líf og fjör í leik og störfum og var prestsson- urinn frá Setbergi þar enginn eftir- bátur, vel liðinn af öllum. Á garð- yrkjuskólanum kynntist Skafti Margréti Jónsdóttur frá ísafirði, sem einnig var nemandi við skólann og varð síðar kona hans. Þegar skóla lauk réði Skafti sig að garðyrkjustöð á Reykjanesi, sem var eign Kaupfélags Ísfírðinga. Tók hann þá stöð að sér og rak hana í eitt ár. Þá flutti Skafti sig suður í Hvera- gerði og keypti þar litla garðyrkju- stöð. Nú voru þau gift Margrét og Skafti og voru þau ákaflega sam-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.