Morgunblaðið - 20.11.1994, Blaðsíða 4
4 SUNNUDAGUR 20. NÓVEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
fMtttgtittfiIafeto
VIKAN 13/11-19/11.
Mun minna fannst af
loðnu í árlegum leiðangri
Hafrannsóknastofnunar en
búist hafði verið við. Að-
eins mældust um 570 þús.
tonn af hrygningarloðnu.
Kvóti ársins hefur verið
ákveðinn til bráðabirgða.
rúm 630 þús. t.
► Linda Pétursdóttr feg-
urðardrottning hefur kært
Iögregluna í Reykjavík fyr-
ir meint harðræði við hand-
töku og kveðst hafa hlotið
áverka í höndum tveggja
lögreglumanna sem handt-
óku hana og sambýlismann
hennar vegna kæru sem í
ljós kom að var ekki á rök-
um reist. Lögreglumenn-
irnir hafa á móti kært
Lindu og saka hana um
árás og rangar sakargiftir.
► Héraðsdómur Reykja-
víkur hefur dæmt ríkissjóð
til að greiða konu sem ekki
hlaut starf starfsmanna-
stjóra heilsugæslustöðva í
Reykjavík 800 þúsund
krónur í bætur þar sem á
henni hafi verið brotin
jafnréttislög þegar karl
með minni menntun var
ráðinn úr hópi átta um-
sækjenda um starfið.
► ísienska landsliðið í
knattspyrnu tapaði 0:1 fyr-
ir landsliði Sviss í landsleik
í Evrópukeppninni í knatt-
spyrnu í Sviss á miðviku-
dag. íslenska liðið er neðst
í sínum riðli eftir þrjá leiki,
hefur hvorki skorað mark
né fengið stig.
Sáttatillaga í
Atlanta-deilu
RÍKISSÁTTASEMJARI hefur lagt
fram sáttatillögu í deilu FÍA við Atl-
anta, en allsheijarverkfall hjá fyrirtæk-
inu hófst á föstudag. Öllum 82 starfs-
mönnum fyrirtækisins hefur verið sagt
upp og hafa eigendur rætt um að flytja
starfsemina úr landi. FÍA frestaði að
óska eftir samúðaraðgerðum erlendra
verkaiýðsfélaga gagnvart Atlanta.
Ráðherrar hafa beitt sér fyrir lausn
deilunnar en ríkisvaldið telur ekki tíma-
bært að skerast formlega í leikinn.
Stýrimaður sekur -
skipstjóri sýkn
HÉRAÐSDÓMUR í Tromsö í Noregi
dæmdi stýrimann á Hágangi II í 30
daga fangelsi fyrir að hafa skotið úr
haglabyssu að strandgæslumönnum
5. ágúst sl. Skipstjóri og útgerð voru
sýknuð af ákæru um brot gegn fisk-
veiðilöggjöf. Dómurinn telur að
norskri strandgæslu sé óheimilt að
skera á togvíra skipa. Dómurinn hef-
ur vakið mikil viðbrögð í Noregi og
i leiðara dagblaðsins Aftenposten
segir að þörf sé á alþjóðlegum úr-
skurði um rétt Norðmanna á Sval-
barðasvæðinu.
Sjúkraliðadeila í hnút
ENGINN árangur hefur orðið í samn-
ingaviðræðum Sjúkraliðafélags ís-
lands og ríkisins. Félagsdómur
dæmdi sjúkraliðum í vil í deilu við
Landakot og taldi undanþágulista
sjúkrahússins of seint lagða fram.
Fjármálaráðherra segir ekki hægt að
bjóða sjúkraliðum sambærilegar
hækkanir og þau 15% sem hjúkrunar-
fræðingar hafa hlotið að meðaltali á
undanförnum árum.
Sáttatillaga í
ESB-aðild samþykkt
í Svíþjóð
AÐILD Svíþjóðar að Evrópusamband-
inu, ESB, var samþykkt í þjóðar-
atkvæðagreiðslu síðastliðinn sunnudag
með 52,2% atkvæða gegn 46,9%. 0,9%
skiluðu auðu. Ingvar
Carlsson forsætisráð-
herra og Carl Bildt,
fyrrverandi forsætis-
ráðherra, fögnuðu
niðurstöðunni ákaf-
lega sem og ráða-
menn í ESB-ríkjun-
um. Gro Harlem
Brundtland, forsætis-
ráðherra Noregs, og
stuðningsmenn ESB-
aðildar þar í landi
vonast til, að úrslitin
í Svíþjóð auki líkur á að hún verði sam-
þykkt í þjóðaratkvæðagreiðslunni 28.
nóvember og stuðningur við hana hefur
aukist töluvert. Andstæðingar aðildar
hafa þó enn nokkurt forskot og flest
bendir til, að aðild Noregs verði hafn-
að. Finnska þingið samþykkti aðildina
með miklum meirihluta á föstudag.
Lögregluaðgerðir
í Færeyjum
MESTU lögregluaðgerðir í sögu Fær-
eyja hófust á miðvikudag þegar gerð
var húsleit á um 200 stöðum, aðallega
í eyjunum en einnig í Danmörku og
Grænlandi. Tóku rúmlega 100 lög-
reglumenn þátt í þeim en um er að
ræða mál og hugsanleg fjársvik í
tengslum við smíði skipa fyrir Færey-
inga á síðasta áratug. Er annars vegar
um að ræða, að skipasmíðastöðvar og
önnur fyrirtæki hafí lánað útgerða-
mönnum fé í nokkra daga til að þeir
gætu vísað til þess sem síns eiginfjár
og hins vegar, að smíðaverð skipanna
hafi verið sagt miklu hærra en það
raunveruiega var. Þannig hafi margir
haft mikið fé út úr opinberum sjóðum.
Lagt hefur verið hald á ógrynni bók-
haldsgagna og voru 20 menn hand-
teknir en sleppt aftur.
► ALBERT Reynolds, for-
sætisráðherra Irlands,
baðst lausnar fyrir sína
hönd og stjórnarinnar á
fimmtudag en ákvað að
rjúfa ekki þing. Verka-
mannaflokkurinn, sam-
starfsflokkur Fianna Fail,
flokks Reynolds, í stjórn
ákvað á miðvikudag að
hætta stuðningi við stjórn-
ina vegna máls fyrrverandi
ríkissaksóknara, sem Reyn-
olds skipaði forseta hæsla-
réttar.
► VIÐRÆÐUM ráðamanna
í Færeyjum og danskra
sljórnvalda lauk með sam-
komulagi um, að Danir
tækju að sér að greiða af
dýrustu, erlendu lánunum,
10 milljörðum kr., og lánuðu
Færeyingum á móti á hag-
stæðum kjörum. Danir vildu
ekki bæta Færeyingum þá
25 milljarða kr., sem eru
sagðir hafa tapast í banka-
gjaldþrotinu. Færeyingar
féllust á að mirnka sókn í
fiskstofna og taka upp
framseljanlega kvóta.
► TALIÐ er, að tvær flug-
vélar Bosníu-Serba eða
Serba í Krajina-héraði í
Króatíu hafi gert loftárásir
á Bihacborg í Norðvestur-
Bosnlu á föstudag. Var jafn-
vel búist við, að herflugvél-
ar NATO yrðu kvaddar til
fengist staðfesting á loftá-
rásunum.
► ÓTTAST er, að repúblik-
anar á Bandaríkjaþingi
muni reyna að koma í veg
fyrir samþykkt GATT-
samninganna fyrir áramót
en A1 Gore, varaforseti
Bandaríkjanna, segir, að
takist þeim það, séu þeir úr
sögunni.
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Sverrir
BRIDSMENN fjölmenntu á opnunarhátíðina og í þeim hópi voru liðsmenn heimsmeistaraliðs íslendinga.
GUÐMUNDUR Sv. Hermannsson varaforseti Bridssambandsins
skoðar verðiaunapening sem forsetinn Helgi Jóhannsson var
sæmdur. Biörn F.vst.einsson landsliðsmaður í brids fvleist með.
Brids-
sambandið
opnar
nýtt hús
BRIDSSAMBAND íslands tók á
föstudag í notkun nýtt húsnæði
við Þönglabakka 1 í Reykjavík
og var fyrsta bridsmótið haldið
þar sama kvöld..
„Með þessu hefur bridshreyf-
ingin lyft grettistaki til að kom-
ast í framtíðarhúsnæði. En það
hefur haft í för með sér fjár-
skuldbindingar sem bridsmenn á
íslandi verða með samstilltu
átaki að standa saman um að
leysa,“ sagði Helgi Jóhannsson
forseti Bridssambandsins við
Morgunblaðið.
Aðsókn í bridsmót hefur aukist
mjög síðustu árin, bæði hjá
Bridssambandinu og hjá stærstu
bridsfélögunum í Reykjavík, og
hefur orðið að takmarka þátt-
töku við þann fjölda sem fyrra
húsnæði Bridssambandsins rúm-
aði, en þar var hægt að spila á
um 30 borðum. í nýja húsinu
rúmast allt að 70 borð og verður
þar hægt að spila öll helstu mót
á vegum sambandsins auk þess
sem flest bridsfélög á höfuðborg-
arsvæðinu verða þar með starf-
semi sína. Einnig er gert ráð
fyrir að húsið verði nýtt fyrir
kennslu og fyrirlestrahald um
bridsiþróttina og annað félags-
starf henni tengt.
Góð veitingaaðstaða er í hús-
inu og hefur Bridssambandið
samið við Úlfar Eysteinsson veit-
ingamann um að sjá um veitinga-
reksturinn.
Áætlaður heildarkostnaður við
húsakaupin eru 48 milljónir og
hefur Bridssambandið þurft að
skuldsetja sig fyrir rúmlega
helmingi þeirrar upphæðar. Sér-
stakt fjáröflunarmót vegna húsa-
kaupanna verður haldið helgina
3.-4. desember.
Metþátttaka
í fyrsta mótinu
Fyrsta bridsmótið í húsinu var
á föstudagskvöldí og tóku þar
þátt um 140 pör sem er mesta
þátttaka í tvímenningsmóti hér á
landi til þessa. Keppnin var á
vegum Bridssambands Evrópu
og spiluðu bridsspilarar um alla
álfuna sömu spilin á sama tíma.
í gær hófust úrslit í Bikarkeppni
Bridssambandsins í
Þönglabakka.
Símalokanir ollu vand-
ræðum á veitingahúsum
UPPSETNING nýs hugbúnaðar í
Múlastöð Pósts & síma olli því að
ákveðinn hluti símanúmera í stöð-
inni var lokaður um tíma aðfara-
nótt laugardagsins 11. nóvember.
Margir notendur svokallaðra posa,
sem afgreiða debet- og kreditkort
rafrænt, lentu í vandræðum vegna
þessa; Einar S. Einarsson, forstjóri
Visa Islands, segir að tímasetningin
til að vinna í stöðinni hafi verið
valin án tillits til þess hvenær það
hefði valdið notendum sem minnst-
um truflunum. Bergþór Halldórs-
son, yfirverkfræðingur hjá Pósti &
síma, segir að það sé alveg sama
hvaða tími sólarhrings sé valinn til
að loka símanúmerum, það komi
sér alltaf illa fyrir einhveija.
Vilja hafa vaðið fyrir neðan sig
Hafist var handa á miðnætti á
föstudagskvöld að uppfæra nýjan
hugbúnað í Múlastöð, svokallað
greindarkerfi, sem sett hefur verið
upp í öllum símstöðvum í Reykja-
vík. Bergþór segir að þessi tíma-
setning sé valin með tilliti til þess
að komi eitthvað upp á þá hafi
menn tímann fyrir sér og séu örugg-
lega búnir áður en fyrirtæki opni á
laugardagsmorgni. Umrædda nótt
Aldrei hægt að
ábyrgjast full-
komna þjónustu
segir yfirverk-
fræðingur hjá
Pósti & síma
hafi truflun staðið lengur en menn
reiknuðu með. Hann segir að Póstur
& sími hafi auglýst að mögulega
yrðu truflanir á þessum tíma.
Opnar rnöguleika á aukinni
þjónustu
Bergþór segir að um talsvert
mikla breytingu sé að ræða í stöð-
unum. Greindarkerfíð sé grunnur
undir að hægt verði að bjóða not-
endum mun meiri þjónustu en þeir
hafi getað fengið fram að þessu.
Sem dæmi nefnir hann aukna þjón-
ustu við græn númer auk þess
hægt eigi að verða við margvísleg-
um séróskum notenda, „nánast eft-
ir því sem mönnum dettur í hug“.
Einar S. Einarsson segir að um-
rædda nótt hafi komið til vandræða
á nokkrum veitingastöðum og auk
þess hafí posar frosið í fjölmörgum
fyrirtækjum þar sem þeir hefðu
verið stilltir til sjálfvirkrar innhring-
ingar á færslum dagsins til Visa
íslands. Það hafí síðan valdið gífur-
legu álagi á laugardagsmorgninum
þegar þurfti að handfæra uppgjörin
en viðskipti dagsins gátu ekki haf-
ist fyrr en búið var að tæma pos-
ana. Hann segir forkastanlegt að
Póstur & sími ráðfæri sig ekki við
notendur og reyni að tímasetja
svona breytingar í samráði við þá.
Hann telur að það hefði valdið mun
minni röskun ef unnið hefði verið
í Múlastöð undir morgun frekar en
á þeim tíma sem það var gert.
Kvartað verður formlega
Einar segist hafa heyrt í forsvars-
mönnum nokkurra fyrirtækja sem
segjast hafa orðið af viðskiptum um
nóttina .vegna símasambandsleysis
og telja Póst & síma hljóta að bera
ábyrgð á því og jafnvel vera skaða-
bótaskylda vegna þess að þetta hafí
ekki verið venjuleg bilun í símkerfínu
heldur lokun af mannavöldum. Hann
segir að Visa ísland muni bera fram
formlega kvörtun vegna málsins til
Pósts & síma.
T
c
m
4
c
i
4
4
4
í
4
<
I
í
á
V:
<
i
i
<
<
H
i
H
H
<