Morgunblaðið - 06.08.1998, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 06.08.1998, Blaðsíða 16
16 FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 1998 LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ Fjöruhlaup Þórs í Þorlákshöfn Þorlákshöfn - Fjöruhlaup Þórs í Þorlákshöfn hefst 9. ágúst kl. 14. Forskráning fer fram við íþrótta- miðtöð Þorlákshafnar og lýkur henni kl. 13.15. Boðið er upp á að hlaupa tvær vegalengdir, annars vegar 10 km og er hlaupið frá Oseyrarbrú og hins vegar 4 km og er þá hlaupið frá miðri Skötubót, hlaupinu lýkur síðan við íþróttamiðstöðina. Þátt- takendum er ekið frá íþróttamið- stöð að rásmarki. Allir þáttttak- endur fá verðlaunapening og sig- urvegarar í hverjum aldursflokki frá sérstök verðlaun. Þetta er fimmta fjöruhlaup Þórs og hefur þátttaka alltaf verið góð og hafa hlauparar rómað fjöruna sem er að verða einn vinsælasti útivistarstaður í nágrenni Þorláks- hafnar. Morgunblaðið/Gunnar SYSTKININ Guðfínnur og Halldóra Einarsbörn afhjúpuðu listaverkið til minningar um foreldra sína. Minnisvarði um Einar Guðfínnsson afhjupaður Bolungarvík - Um verslunarmanna- helgina var afhjúpaður hér í Bolung- arvík minnisvarði sem bæjarstjórn Bolungarvíkur hefur látið gera til að heiðra minningu hins mikla athafna- manns Einars Guðfinnssonar og konu hans, Elísabetar Hjaltadóttur. Bæjarstjórn ákvað sl. haust að minnast þessa merka manns og konu hans á aldarafmæli hans 17. maí sl. en þann dag var opnuð Einarssýning í Náttúrugripasafni Vestfjarða í Bol- ungarvík og efnt var til hátíðardag- skrár þar sem fjölmargir bæjarbúar heiðruðu minningu þeirra hjóna. Liður í þvi að heiðra minninu Einars og Elísabetar á aldarafmæli hans, var svo gerð þessa minnisvarða sem nú hefur verið afhjúpaður. Minnisvarðanum var valinn staður framan við Félagsheimili Bolungar- víkur þar sem kominn er vísir að gróðurreit og útivistarsvæði Bolvik- inga. Gijótið sótt í Skötufjörð Listamaðurinn Jón Sigurpálsson sá um að hanna minnisvarðann sem heitir „Grjóthlað“. Grjótið í minnis- varðann var sótt inn í Skötufjörð en fyrirmyndin að minnisvarðanum er einmitt þær hlöðnu girðingar sem eru í landi Litla-Bæjar í Skötufirði, æskustöðvum Einars. Á minnisvarð- ann er fest lágmynd af þeim hjónum sem unnin er af listakonunni Ríkeyju Ingimundardóttur. Við minnisvarðann er áletrun þar sem segir m.a. „Ég erfði ekki fé, ég erfði dyggðir" sagði Einar Guðfinns- son sem hóf atvinnurekstur í Bol- ungarvík 1. nóvember 1924. Einar var helsti athafnamaður staðarins á sinni tíð. Einar fæddist á Litla-Bæ í Skötu- firði 17. maí 1898 og lést í Bolungar- vik 29. okt 1985. Eiginkona hans, Elísabet Hjaltadóttir, fæddist í Bol- ungarvík 11. apríl og lést þar 5. nóv- ember 1981. Áuk umsvifamikils at- vinnureksturs tóku þau Elísabet og Einar virkan þátt í sveitarstjórnar-, félags- og menningarmálum og höfðu forystu um margvisleg fram- faramál í byggðarlaginu á mótunar- skeiði þess. Það voru tvö elstu böm þeirra Einars og Elísabetar, þau Guðfinnur Einarsson og Halldóra Einarsdóttir, sem afhjúpuðu listaverkið að við- stöddum afkomendum þeirra hjóna og fjölda bæjarbúa. Mynd- fundabún- aður á Húsavík Húsavík - Atvinnuþróunarfélag Þingeyinga fékk nýlega afhent- an myndfundabúnað að gjöf frá Byggðastofnun og hefur honum verið komið fyrir í húsnæði verkalýðsfélaganna á Húsavík. Gjöfin er ætluð til að auka sam- vinnu Atvinnuþróunarfélagsins við önnur sambærileg félög á landinu og Byggðastofnun. Með þessum búnaði er unnt að halda sameiginlega fundi með félögum um allt land sem hafa samskonar útbúnað án allra ferðalaga fyrir þátttakendur. Að sögn framkvæmdastjóra Atvinnuþróunarfélagsins var ákveðið að setja búnaðinn upp í húsi verkalýðsfélaganna, þar sem húsakynni félagsins höfðu Leitin að réttu eigninni hefst hjá okkur Vettvangur fólks í fasteignaleit .mbl.is/fasteignir Setti hraðamet í Grettissundi KRISTINN Magnússon sund- garpur þreytti Grettissund síð- astliðinn laugardag og varð þar með fjórði maðurinn til að ljúka sundinu að Gretti Ásmundarsyni meðtöldum. Auk þess hafa fjórir menn synt Drangeyjarsund, sem er 800 metrum styttri leið. Kristinn bætti eldra metið í Grettissundi um rúmar tvær klukkustundir. Hann synti skriðsund alla leiðina og fór vegalengdina á 2,10 klukkustundum. Grettissund er synt frá upp- gönguvíkinni í Drangey, en Drangeyjarsund frá fjöru sunn- an megin í eyjunni. Grettissund er 7,5 km. Kristinn þreytti sund- ið í blautbúningi. Yfírleitt hafa menn synt Grettissund smurðir með ullarfitu og í lopabrókum og bolum. Eyjólfur Jónsson sundkappi er sá eini sem hefur synt Grettissund ósmurður og án annarra klæða en sundskýlu. Hann átti hraðametið áður en Kristinn þreytti sitt sund, 4,45 klukkustundir. Hraðametið í Drangeyjarsundi er 3,18 klukku- stundir, en það er 800 metrum styttra en Grettissund. Markviss undirbúningur „Mér hafði verið sagt að ég gæti synt þetta á um þremur tímum og ég hafði hálft í hvoru stefnt að því. Ég hef markvisst búið mig undir Grettissundið í tvö ár, synt í laug og byrjaði þjálfunina að fullum krafti í sjó í byijun júní,“ sagði Kristinn. Sjórinn var 9,7 gráðu heitur á Celsius þegar Kristinn þreytti sundið. „Ég hugsa yfirleitt ekki um kulda þegar ég fer í sjóinn og ég virðist geta beitt huganum til þess að draga úr áhrifum kuldans á líkamann." Kristinn er með BS-gráðu í sálfræði og íþróttalækninga- þjálfun og er nú að ljúka námi í sjúkraþjálfun. Hann telur að þekking sín á áhrifum kælingar hafi hjálpað sér yfir margan þröskuldinn í Grettissundinu. „Það kom mér ekki á óvart hvernig Iíkaminn bregst við. Mér bregður ekki og verð ekki hræddur ef eitthvað gerist í lík- amanum á sundi,“ sagði Krist- inn. Hann segir að fái menn óstjórnlegan skjálfta á sundinu sé ráðlegast að halda aftur í land, því þá geti líkaminn ekki lengur haldið á sér hita. Krist- inn segir að hægt sé að þjálfa kuldaþolið mjög mikið og aðal- atriðið sé að fara ekki með bægslagangi í sjóinn heldur af varfærni. Morgunblaðið/Silli ÁRNI Jónsteinsson, framkvæmdasljóri Atvinnuþróunarfélagsins, af- hendir Aðalsteini Á. Baldurssyni tækin til varðveislu. ekki rúm fyrir tækin og fundar- aðstöðu. Fyrirtækjum og sveitarstjórn- um í Þingeyjarsýslu verður boð- ið að nýta sér búnaðinn til myndfunda. Félagið ætlar að nota tækin á ýmsa vegu, t.d. til fundalialda, námskeiðahalds og fjarkennslu svo eitthvað sé nefnt. Þess má vænta að þessi góða gjöf frá Byggðastofnun muni auka og efla samskipti og styrkja búsetu á landsbyggðinni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.