Morgunblaðið - 22.07.1999, Blaðsíða 51
MORGUNB LAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 22. JÚLÍ 1999 51?.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
VIÐ opnun málningardeildar Miðstöðvarinnar afhenti Hjörtur Berg-
stað, sölustjóri Málningar hf., Raguari Engiibertssyni, sem var annar
eigandi Málningarvöruverslunar Gísla og Ragnars, gjöf frá Málningu
sem þakklætisvott fyrir traust samstarf í áratugi.
Miðstöðin hefur
sölu á málningu
Vestmannaeyjum. Morgunblaðið.
MIÐSTÖÐIN í Vestmannaeyjum
opnaði nýlega málningardeild í versl-
un sinni. Miðstöðin hefur annast
pípulagnaþjónustu í Eyjum í áratugi
en auk þess rekið verslun með pípu-
lagnaefni, hreiniætistæki, flísar og
fleira.
Málningarvöruverslun Gísia og
Ragnars, sem haft hefur umboð fyrir
vörur frá Málningu hf., hætti rekstri
fyrir skömmu eftir 36 ára rekstur.
Þegar Gísli og Ragnar hættu starf-
semi sinni ákváðu eigendur Mið-
stöðvarinnar að taka að sér umboð
fyrir vörur frá Málningu hf. og auka
þannig þjónustusvið verslunarinnar.
Miðstöðin er rótgróið fjölskyldu-
fyrirtæki. Hún var stofnað af Marinó
Jónssyni árið 1947 en síðar tók Sig-
ursteinn sonur hans við rekstri fyrir-
tækisins og nú hefur Marinó sonur
hans tekið við rekstri Miðstöðvarinn-
ar.
Miðstöðin var lengi til húsa í litlu
húsnæði við Faxastíg en fyrir þrem-
ur árum flutti fyrirtækið starfsemi
sína í mjög rúmgott húsnæði við
Strandveg. Þar er rekin myndarleg
verslun og vai’ nægt pláss til að
stækka verslunina og taka málning-
arvörur inn nú þegar málningar-
deildin var opnuð.
Marinó segir að þeir verði með á
boðstólum allar almennar vörur sem
Málning hf. býður upp á og mark-
miðið sé að þjónusta sem best þá
fjölmörgu Eyjamenn sem nota máln-
ingarefnin þaðan.
Leiðrétt
Lentu í 20. sæti
í dansi
í UMFJÖLLUN um Heimsmeist-
arakeppnina í dansi Unglinga II í
Alassio á Italíu var sagt að Hilmir
Jensson og Ragnheiður Eiríksdóttir
hefðu lent í 27.-28. sæti í keppninni.
Þetta er ekki rétt heldur lentu þau í
20. sæti. Beðist er velvirðingar á
mistökunum.
Röng vefslóð
í FRÉTT í blaðinu í gær var sagt
frá kynningu á ritinu Lyfjaval og
sagt frá opnun vefútgáfti þess. I
fréttinni var gefin upp vefslóð en
hún var ekki rétt. Sú rétta er
http://lyf.landlaeknir.is Beðist er
velvirðingar á mistökunum.
Hvatning til
rannsóknar-
og þróunar-
verkefna
NÝVERIÐ auglýstu fyrirtækin
Línuhönnun hf., LH-tækni ehf.,
Forverk ehf. og Rekstur og
Ráðgjöf ehf. styrki til umsóknar
á sviði byggingarverkfræði,
byggingartæknifræði, við-
skiptafræði og tölvunarfræði.
Markmiðið með þessum styrkj-
um er að Ieggja lóð á vogar-
skálar menntunar í landinu og
að hvetja menn til rannsóknar-
og þróunarverkefna.
Að þessu sinni hlutu þau Ás-
dís Guðmundsdóttir, á sviði
byggingarverkfræði, Harpa
Birgisdóttir, á sviði umhyerfis-
verkfræði, og Sigurður Örn
Jónsson, á sviði byggingarverk-
fræði, styrki að upphæð
100.000 kr. hvert. Þau eiga það
sameiginlegt að stunda nám í
tengslum við vegagerð og um-
hverfismál. Með þessu vilja fyr-
irtækin undirstrika stuðning
sinn við umhverfismál og vega-
gerð en þessir þættir hafa flétt-
ast mjög sterkt saman á undan-
förnum árum, ekki síst í starf-
semi fyrirtækjanna.
Styrkveitingar til náms
og/eða rannsóknar- og þróun-
arverkefna er árviss viðburður
á hveiju vori hjá fyrirtækjunum
fjórum, segir í fréttatilkynn-
ingu frá fyrirtækjunum.
Barnavagnar
Rauðarárstíy 16,
simi 561 6120.
Upplýsingasimi Veiðimannsins
GRÆN LÍNA
MM®
Abu veiðistangirnar eru framleiddar að mestu
úr grafít blöndu og trefjagleri, í mörgum
stærðum og gerðum. Þær þola mikil átök því
styrkur þeirra og sveigjanleiki er einstakur.
Abu veiðistangirnarfást í öllum helstu sport-
og veiðivöruverslunum landsins.
Viðgerðamóttaka á ABU-Garcia
veiðihjólum er í Útilifi og Vesturröst.
jpAbu
Garcia.
for life..
Veiðimaðurinn
Jöker
Mundu eftlr Jókernum.
Þú (jgkir unnið
mil^ónir’ i röð sem
þú borg^r efefei/
12.-31. júlí f ærðu 11. röðina. í fc^Upbasfci/
íþrótta.
ORÞip 4p
^Abu
Garcia
tryggir góðan veiðitúr
FRETTIR
MYNDIN sýnir styrkþegana Ásdísi Guðmundsdóttur, Hörpu Birgisdóttur og Sigurð Örn Jónsson ásamt
starfsmönnum Línuhönnunar, LH-tækni, Forverks og Reksturs og Ráðgjafar.
9,
r
Utsalan
er hafin
BITTE KAI RAND
Skólavörðustígur 38
I0I Rvk« sími 552 4499