Skírnir - 01.01.1908, Blaðsíða 26
Sjálfstæðisbarátta Noregs
á r i ð 19 0 5.
Stutt yfirlit.
Yndislegt, mikilfengt æfintýrið, sem endir var bund-
inn á með hinni norsku þjóð daginn sem Hákon konung-
ur sigldi inn fjörðinn til Kristjaníu, er enn í augum lang-
samlega mikils meiri hluta þjóðarinnar eins og glampandi
sólskinsfoss.
Mér er það orðinn gamall vani að leita að r ó t u m
alls þess, sem kemur hugsun minni á hrevfingu eða gerir
huga minn hlýrri, og því dýpra sem þær rætur ná, er eg
finn, því meira traust hefi eg á gróðurmagninu.
Og að svo miklu leyti, sem eg get séð, er rótin að
þessu glæsilega norska æfintýii svo falleg og djúpsett, að
mér er fögnuður að því að sýna mönnum hana.
Allar þjóðir mannkynssögunnar hafa gætt guði sína
beztu og djúpsettustu hugsununum, þeim hugsunum sínum,
er gert hafa vart við sig af mestri alúð og mestu magni
og mestum sérkennileik, og sett hafa allsherjar mótið á
anda þeirra. Og þar sem þessir guðir hafa í upphafi ver-
ið höfðingjar eða vitringar með þjóðunum sjálfum, hefir
geymst margt ógleymanlegt spakmæli, sem þeim hefir um
munn farið — og þá einkum þau, er svo var háttað, að
þjóðin kannaðist við insta eðli sjálfrar sín i þeim.
Svo var Norðurlandamönnum farið, jafnvel flestum
þjóðum fremur.
Eg hefi kynt mér sögu Norðurlanda allra, að því
leyti sem eg hefi átt kost á. Og eg hefi sannfærst um