Vísir - 21.06.1963, Blaðsíða 5

Vísir - 21.06.1963, Blaðsíða 5
V í SIR . Föstudagur 21. júm 1963. 5 Að utan — Framh. af 8. síðu í framhaldi þess, sem þegar hef- ir sagt verið er þessa að geta: Fundur þingmannanefndarinnar varð mjög stuttur. Fundarforseti, Morrison ofursti bað menn forðast miklar deilur og rseður, — um undangengna atburði, — það væri sama og bera málin á torgin, en Derek-Walker Smith ,sem flutti einu ræðuna auk setningarræðu, sagði, að ef Macmillan væri knú- inn til þess að biðjast lausnar, ætti hann kannske ekki ánnars úr- kosta en snúa sér til drottningar, og leggja til, að þing yrði rofið og nýjar kosningar látnar fram fara. Þingmenn urðu þannig að horfast i nugu við það, að efna yrði til n-'u-ra kosninga, er flokkurinn að all:a dómi mundi standa miklu verr að vígi en ella vegna Profumo máisins. Voru þingmenn líka sem furðu lostnir vegna yfirlýsingar Dereks-Walkers-Smith um hina „stjórnarskrárlegu hlið málsins", og fóru sumir af fundi stoltir af að tekist hafði að bera vopn á klæð in, en aðrir æfir af því að málið hafði verið Iagt á hilluna, eins og sagt var I brezka útvarpinu — en samt er litið svo á, að mesti hit- inn fari nú úr mönnum í íhalds- flokknum um það hvort Macmill- an eigi að segja af sér. Viðhorfið hefur því breytzt skyndilega, eins og sagt var í fyrri hluta þessarar greinar. Það var sagt £ fyrri hluta þess- arar greinar, að viðhorfið f þess- um málum gæti breyzt frá degi til dags. Það er það, sem nú hefur gerzt, en hyggilegast að spá engu um það, sem næst gerist. — En spyrja mætti hver áhrif það hefði, að í aukakosningu í kjördæmi Gait skells, er fram fer vegna andláts hans, urðu úrslit þau að jafnaðar menn juku fylgi sitt um 4% en íhaldsflokkurinn missti fylgi sem svaraði 11%, miðað við almennu þingkosningarnar. Úrslitin voru gerð kunn í gærkvöldi. — A.Th. fþróttir — Framhald af bls. 2. <& 2:0 á 26. mínútu og enn fallega unnið mark frá KR. Gunn- ar Felixson hélt upp kantinn vinstra megin, þar sem fátt var fyrir um mótspyrnu eftir fall Guð- jóns. Skot Gunnars frá markteig utarlega var mjög gott, efst í hornið fjær honum. KR-liðið var nú á köflum mjög gott og er greinilegt að hið mikla veldi KR þolir ekki að sitja lengi á botninum eins og verið hefur undanfarið, verður Iiðið án efa skeinuhætt í keppninni um sigurinn í ár. Heimir Guðjónsson var aftur Persónulegt níð. Umtalið á opinberum vett- vangi að undanförnu um það að blaðadeiiur séu persónulegri hér á landi en víðast hvar annars staðar virðast hafa snert Kúbu-Magnús heldur ó- notalega. í marki og var ágætur. Ungur bak- vörður, Ársæll Kjartansson, syst- ursonur Hreiðars Ársælssonar tók þarna við stöðu frænda sfns og verður ekki annað sagt en að þar sé góður afleysingamaður í sum- arfríi Hreiðars. Hörður Felixson er aftur að koma til eftir langt æf- ingaleysi. Framverðirnir Ellert og Sveinn voru góðir einkum í seinni hálfleik og tforu afgerandi menn fyrir sóknaraðgerðir sem færðu sigurinn í þetta skiptið. Framlín- an var góð með Gunnar Felixson sem langhættulegasta leikmanninn, en Sigurþór var ágætur á köflum. FRAM skipar enn toppsætið í I. deild eftir þennan leik en verður að teljast heppið. Leikur framlínu liðsins er að verða beittari og má þar þakka tilkomu Björns Helga- sonar, sem var nú mjög góður, og Baldvins Baldvinssonar hins ötulá miðherja, sem aldrei gefst upp. Hrannar Haraldsson styrkir liðið og mjög mikið en vörnin missti mikið er Guðjón fór út af. Geir í markinu verður sakaður um fyrra markið í þessum ieik, þvi þótt skalli Jóns væri góður hefði jafn- snjall maður og Geir átt að sjá fyrir að halda markinu hreinu. Dómari var Haukur Óskarsson og dæmdi allvel, en hefði mátt vera strangari oft á tíðum, t. d. var greinileg vítaspyrna á KR f seinni hálfleik, er Þorgeir Lúðvíkssyni var hrint fruntalega innan vlta- teigs. — jbp — Sýnin^ardömur — Franihald af bls 16 skóla Coryse Salomé, íslenzkum konum frá Ieyndardómum snyrt ingarinnar. Guðni Þórðarson forstjóri Sunnu tjáði Vísi í morgun að margar fyrirspumir hefðu borizt um, hvort ekki yrði unnt að kaupa þessi föt að sýningum loknum, og hafði fengizt leyfi til þess. Þá mun á hverju borði í Súlnasalnum verða pakki með snyrtivörum frá Coryse Salomé. Sýningarstúlkurnar tvær, Dom inique, sem er hávaxin og dökk hærð, og Michele, sem er lág- vaxnari og frekar ljóshærð, komu til landsins í gærkvöld frá París og munu þær dveljast á Hótel Sögu meðan þær standa við. Vísir hitti þær snöggvast að máli í morgun í anddyri Hótel Sögu, er þær voru á leið til að máta fötin, sem þær eiga að sýna. — Við vitum enn ekki hvern- ig fötin eru, sem við eigum að sýna, því að við höfum ekki séð þau, sögðu þær. Við vitum held ur ekki hve mikið við sýnum hvert kvöld. — Starfið þið eingöngu við tízkusýningar? — Nei, við erum einnig ljós- myndafyrirsætur — en annars erum við ekki fastráðnar, vinn- um hjá ýmsum. Ég, sagði Dom- inique, vinn t. d. mikið fyrir sagði Michele, hef t. d. unnið tízkuhús Jacques Heim, og ég, fyrir Dior. — Ferðizt þið mikið um? — Já, við höfum sýnt víða, t. d. f Svíþjóð, Noregi, Þýzka- Iandi, Englandi, Sviss, Ítalíu og á Spáni. — Hvar finnst ykkur bezt að sýna? — Það er ósköp líkt alls stað- ar og löndunum kynnumst við ekkert, því að við stönzum ekki nema tvo til þrjá daga á hverj- um stað. Hér verðum við t. d. ekki nema þrjá daga, förum á mánudag. Sijurður — Framhald af bls 16. loknu lagði Sigurður stund á lög- fræðinám og lauk embættisprófi 1914. Hann hefur auk einkamál- flutningsstarfa gegnt margháttuð- um embættisstörfum, m. a. lög- reglustjórastörfum á Siglufirði. | fulltrúastörfum í fjármálaráðuneyt- - inu, bæjarfógetaembætti f Vest- mannaeyjum, en f ársbyrjun 1924 I var hann skipaður sýslumaður í Skagafjarðarsýslu og gegndi því embætti þar til hann lét af störf- I um við aldushámárk. Sigurður sýslumaður naut mik- illa vinsælda í héraði, bannig að hann varð hvers manns hugljúfi þeirra sem kynntust honum, hrók- ur alls fagnaðar hvar sem hann kom og fór og naut virðingar og álits jafnt í embættisstörfum sem einkalífi. Hann gegndi fyrr og síð- ar fjölmörgum trúnaðarstörfum og naut þar sama trausts og álits sem f embættisfærslu sinni. Kvæntur var Sigurður Guðrfði Stefaníu Arnórsdóttur frá Hvammi í Laxárdal og varð þeim margra mannvænlegra bama auðið. I Kvikmyndasýning D-listans D-listinn efnir til kvikmyndasýningar fyrir unglinga er aðstoð- ^ uðu á ýmsan hátt við kosningastarfið við alþingiskcsningarnar. } Kvikmyndasýningin verður í Gamla Bíói n.k. iaugardag kl. 3, Miðar verða afhentir í skrifstofu Sjáifstæðisflokksins við Austurvöll f dag og fram til hádegis á iaugardag. í Austradálki sínum í Þjóð- viljanum í morgun heldur hann því fram í fullrl alvöru að í nágrannalöndunum séu „ádeiiur á stjómmálamenn miklu per- sónulegri en hér“. Þetta er undarleg röksemd og allir sem búsettir hafa verið t .d. á Norð- urlöndum vita að hér er réttu máli hallað Persónulegt níð hefir Iengi verið soramark á ís- lenzkri blaðamennsku og stjórn málaskrifum og mönnum er það í fersku minni hvemig málgagn Uþýðuhandalagsins hefir hagað ér á því' sviði. Skemmst er að ■ninnast ásakana á síðum þess eins og þjóðníðingur, föður- landssvikari. kúgari alþýðunn- ar, rándýr auðmagnsins og er bá vitanlega átt Víð fslenzka stjórnmðlamenn sem ekki hafa borið gæfu til bess að fvlgía lífsspeki Þjóðviljans og Magn- úsar. Slæm samvizka. Sannleikurinn er sá að Iang illskeytnasti og meinfýsnasti blaðamaðurinn á íslandi er rit- stjóri Þjóðvilians. Við því er í sjáifu sér ekkert að segja, ef menn kjósa sér slíkan rithátt og telja Hann sér samboðinn „Hver maður sinn smekk“. eins og Elsa Sigfúss sagði í Leður- blökunni. En skörin færist ó- neitanlega nokkuð langt upp f bekkinn hegar blöð sem slfkt orðbragð temja sér um and- stæðingana rísa upp reið við dogg að baki kosningum. berie sér á brjóst og segja hað fjarri agi að stiómmálabaráttan á fs- landi sé nersónulegri en í ná- grannalöndunum! Lengi má leita með logandí liósi aF gler-TÍ merki um slæma samvizku en bessari land-föður legu yfirlýsingu málgagns Al- þýðubandalagsins f morgun. Ósökkvandi bátur í dag kl. 4 verður sýndur í Nauthólsvík, norskur björgun- arbátur, sem ekki á að geta sokkið. Norska útflutningsráð- ið hefur f samvinnu við fyrir- tækið Walter Tangen og G. Helgason og Melsteð undirbúið sýningu á bát þessum, sem nefndur er „Tite Floating Iglo“. Bátur þessi er sagður einstakt öryggistæki sem fátt geti grand- að. Til dæmis hafa, að sögn, alls konar efni sem koma frá sökkvandi skipum, svo sem benzfn, benzol og olía c.tgin á- hrif á efnivið bátsins. Það er Walter Tangen skipstjóri sem sýnir bát sinn í Nauthólsvík kl. 4 f dag. Hifave!t2E;n — Framhald -J bls. I. Framkvæmdir f fyrsta áfanga Múlahverfis hefjast jafnskjótt og samningar hafa verið undir- ritaðir. eða upp úr miðjum júlf. Á að vera Iokið við stokka og brunna o gtilheyrandi jarðvinnu í nóvember 1963 og öllu verk- inu lokið í ágúst 1964. Fjarhitun s.f. hefur gert teikn ingar og unnið að útboðslýsihgu ásamt Innkaupastofnuninni. ^ómur Framhald af bis. 16. hafnaði þar á steinvegg og var öku ferðinni þar með lokið. Bifreiðin skemmdist nokkuð og voru skemmdirnar metnar á 5 þús. krónur. Það tjón bætti hinn drukkni ökumaður bifreiðareigand- anum áður en dómur féll I málinu. í sakadómi hlaut maðurinn tveggja mánaða varðhald skilorðs- bundið í 3 ár, sviptur ökuréttind- um í 18 mánuði og gert að greiða sakarkostnað. Bílkeyrsla — piltur Ungur maður óskast til útkeyrslu í þvotta- húsi. Reglusemi áskilin. Tilboð sendist blað- inu merkt „Útkeyrsla“ fyrir 30. þ. m. Nýjung hjá ANDRÉSI Höfum opnað nýja deild, sem býður yður úrval af karl- mannafötum frá kr. 875.00 — kr. 1975.00. Vegna mjög hagstæðra innkaupa á erlendum fötum getum við boðið þessi kostakjör. Einnig verða þar seld föt, sem saumuð eru á verkstæði okkar, eldri iitir, en þó nýtízku snið. Eins og undanfarin ár höfum við ávallt fyrirliggjandi mikið úrval af karlmannafatnaði. Saumum einnig eftir máli, bæði handsaum og vélsaum. Róma. og Napolisniðin vekja aðdáun. LAUCAVEG3 W^A/VWVWWW Þökkum af alhug samúð og vinarhug við andlát og útför ° ?T> TRS HOFFMANNS MAGNÚSSO' fyrrv. bankaritara. Tove Jantzen Guð ún Pétursdóttir Magnús Karl Pétursson Guðmundur Guðmundsson Ingibjörg Pétursdóttir og barnabörn.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.