Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1987, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 1. APRÍL 1987.
5
DV
Stefnuskrá Kvennalistans:
Reynsla, menning
og viðhorf kvenna
verði stefnumótandi
„Markmið Kvennalistans er að gera
viðhorf, reynslu og menningu kvenna
að stefhumótandi afli í samfélaginu
ekki síður en reynslu, menningu og
viðhorf karla,“ segir í stefnuskrá
Kvennalistans í alþingiskosningun-
um. ■
„Kvennalistinn vill varðveita og
þróa hið jákvæða í lífssýn kvenna og
nýta það í þágu samfélagsins alls.
Kvennalistinn vill breyta samfélaginu
og setja virðingu fyrir lífi og sam-
ábyrgð í öndvegi.
Konum er tamt að hugsa um þarfir
annarra. Þær hafa kynslóð fram af
kynslóð borið ábyrgð á heimilum,
bömum, öldruðum og sjúkum. Vegna
þessara starfa sinna sem og uppeldis
búa konur yfir annarri reynslu en
karlar. Reynsla kvenna leiðir af sér
annað verðmætamat, önnur lífsgildi
en þau sem ríkja í veröld karla. Þekk-
ing og viðhorf kvenna koma þó lítt
við sögu þar sem ákvarðanir em tekn-
ar, samfélaginu til ómælds tjóns.
Markmið Kvennalistans verða ekki
að vemleika nema að aðstæður og
kjör kvenna batni og áhrif þeirra á
stjóm samfélagsins aukist. Enn sem
fyrr vinna konur láglaunastörfin á
vinnumarkaðnum og hafa minni
möguleika þar en karlar. Ólaunuð
störf á heimilum og umönnun bama
er á ábyrgð kvenna og frítími þeirra
er af skomum skammti. Allt sem getur
orðið til að bæta stöðu kvenna skilar
sér í réttlátara og betra þjóðfélagi.
Framboð til Alþingis er ein þeirra
leiða sem við viljum fara til að auka
áhrif kvenna og bæta stöðu þeirra.
Með því viljum við tryggja að kven-
frelsisstefna eigi sér málsvara á
Alþingi og konur eigi þar fulltrúa sem
gæta hagsmuna þeirra.
Kjaraskerðingar og húsnæðisstefha
undangenginna ára hafa kippt fótun-
um undan fjölmörgum heimilum í
landinu og leitt af sér bæði upplausn
og óhamingju. Þetta hefur komið verst
niður á þeim sem hafa veikasta stöðu
og minnst vald en í þeim hópi em
konur fjölmennastar. Ef flóðgáttir
frjálshyggjunnar ná að opnast er sú
litla samhjálp sem til boða stendur í
hættu. Samhjálp sem byggð var upp
með þrotlausri baráttu fyrri kynslóða
og byggir á þeirri hugsjón, að jafna
skuli aðstæður fólks.
Kvennalistinn á Alþingi hlýtur því
að standa vörð um þessa ávinninga
og leggja sitt af mörkum til að ná fram
nýjum.“
-KMU
Þjóðaiflokkurinn
með bókstafinn Þ
Þjóðarflokkurinn mun bjóða fram
undir listabókstafhum Þ. Flokkurinn
býður fram í fimm kjördæmum; Vest-
urlandi, Vestfjörðum, Norðurlands-
kjördæmum og Austurlandi.
Norðurland eystra
Sjö efstu í Norðurlandi eystra:
1. Pétur Valdimarsson tæknifræðing-
ur, Akureyri.
2. Anna Helgadóttir kennari, Kópa-
skeri.
3. Sigurður Jónsson byggingarfræð-
ingur, Akureyri.
4. Margrét Bóasdóttir söngkona,
Grenjaðarstað, S-Þing.
5. Ingunn Svavarsdóttir sálfræðingur,
Kópaskeri.
6. Snædís Gunnlaugsdóttir lögfræð-
ingur, Húsavík.
7. Sveinn Bjömsson tæknifræðingur,
Akureyri.
Norðurland vestra
Fimm efstu í Norðurlandi vestra:
1. Ámi Steinar Jóhannsson garðyrk-
justjóri, Rein, Eyjafirði.
2. Þórey Helgadóttir húsfreyja,
Tunguhálsi, Skagafirði.
3. Bjöm Sigurvaldason bóndi, Litlu-
Ásgeirsá, V-Hún.
4. Guðríður B. Helgadóttir húsfreyja,
Austurhlíð, A-Hún.
5. Hólmfríður Bjamadóttir verkakona,
Hvammstanga.
Vestfirðir
Á Vestfjörðum em í efstu sætum:
1. Jóna Valgerður Kristjánsdóttir
skrifstofumaður, Isafirði.
2. Sveinbjöm Jónsson sjómaður, Suð-
ureyri.
3. Halldóra Játvarðardóttir bóndi,
Miðjunesi, Reykhólasveit.
4. Þormar Jónsson sjómaður, Patreks-
firði.
5. Jón Magnússon skipstjóri, Drangs-
nesi.
Austurland
Efstu sæti listans á Austurlandi:
1. Guðni Nikulásson, héraðsstjóri
Vegagerðar ríkisins, Amkelsgerði,
Völlum, S-Múl.
2. Sigríður Rósa Kristinsdóttir hús-
freyja, Eskifirði.
3. Bragi Gunnlaugsson bóndi, Set-
bergi, Fellahreppi, N-Múl.
4. Kristín Jónsdóttir bóndi, Hlíð, Lóni,
A-Skaft.
5. Björgúlfur Hávarðarson sjómaður,
Stöðvarfírði.
Vesturland
Efsti sætin á Vesturlandi skipa:
1. Gunnar Páll Ingólfsson bryti,
Hvanneyri.
2. Sigrún Jónsdóttir Hallewall, verka-
kona, Akranesi.
3. Sigurður Oddsson bóndi, Innra-
Leiti, Skógarströnd.
4. Olga Sigurðardóttir húsmóðir,
Hraunbæ, Norðurárdal.
5. Skúli Kristjónsson bóndi, Svigna-
skarði, Borgarhreppi.
-KMU
Átta sameiginlegir
fundir á Suðurlandi
í Suðurlandskjördæmi er þegar lok-
ið helmingi þeirra átta framboðsfunda
sem frambjóðendur allra flokka mæta
saman á.
Fundir hafa þegar verið haldnir á
Kirkjubæjarklaustri, í Vík, á Hvols-
velli og í fyrrakvöld vom frambjóð-
endur í Skálholtsskóla.
Næsti fundur verður á Flúðum ann-
aðkvöld, fimmtudag, 2. apríl. Vest-
mannaeyingar fá frambjóðendur í
heimsókn á sunnudag, 5. apríl. í Þor-
lákshöfn verður fundað 7. apríl. Síðasti
sameiginlegi fundurinn verður á Sel-
fossi miðvikudaginn 8. apríl.
-KMU
Stjómmál
A kosningaskrifstofu Borgaraflokksins i gær. Við borðið eru Helena Albertsdóttir, Guðmundur Ágústsson,
Hreggviður Jónsson, Július Sólnes og Ásgeir Hannes Eiríksson. DV-mynd KAE.
Mild og mannúðleg
- segir Albert um stefnuskrá Borgaraflokksins
„Hún er mild og mannúðleg,"
sagði Albert Guðmundsson í gær um
stefnu Borgaraflokksins.
„Þetta er mildari stefha heldur en
nýffjálshyggjumenn boða. Hún er
meira i anda sjálfstæðisstefnu eins
og hún var í ffamkvæmd fyrir
nokkm síðan.
Hún er gegn flokksræði og einok-
un einstakra fámennra hópa á
pólitískum flokkum, sem eiga að
vera eign fólksins en ekki eign ein-
staklinga sem verða sterkir í slíkum
samtökum.
Þetta er stefha sem tekur tillit til
tilfinninga einstaklingsins. Flokkur-
inn býður sig ffam til þjónustu við
fólk og þjóð. Hann tekur sérstaklega
ffam hlutverk sitt gagnvart sjúkum,
öldmðum og öðrum þeim sem i
vanda em staddir," sagði Albert.
Reglulega endurskoðun
varnarsamningsins
Stefriuskrá Borgaraflokksins var
birt í gær. Skiptist hún í sjö kafla.
Hér birtast einstakir liðir:
Ríkisvaldið á ekki að vera þrándur
í götu athafnasemi einstaklingsins
en ber heldur ekki ábyrgð á mistök-
um hans.
Utflutningsverslun verði gefin
frjáls í áföngum.
Stofnanir og rekstrareiningar rík-
isins verði gerðar sjálfstæðari og
fjárhagsleg ábyrgð þeirra aukin,
einnig með tilliti til launamála.
Það er sjálfsögð krafa að ríkissjóð-
ur sé rekinn hallalaust í góðæri.
Tekjuskattur af almennum launa-
tekjum verði lagður niðui’.
Borgaraflokkurinn leggur til að
tekið verði upp nýtt og einfaldara
söluskattskerfi.
Eðlilegt er að vamarsamningurinn
við Bandaríkin verði endurskoðaður
reglulega.
Lögð verði ríkari áhersla á al-
mannavamir og öryggismál íslend-
inga sjálfra í þessu samstarfi.
Állt verði gert til að þess að létt
verði á íslandi sem átakasvæði á
stríðs- og hættutímum, svo sem með
þvi að koma upp öflugri eftirlitsstöð
á Jan Mayen.
Nýja löggjöf um fóstureyðing-
ar
Umhvggja fvrir mannlegu lífi.
gagnstætt eyðingu þess, er æðsta
markmið góðrar ríkisstjómar. Því
mun Borgaraflokkurinn beita sér
fyrir þvi að sett verði ný löggjöf um
fóstureyðingar.
Borgaraflokkurinn mun leggja
áherslu á að levsa félagsleg vanda-
mál vegna bameigna og stórauka
aðstoð við einstæða foreldra.
Stuðlað verði að bættum skilyrð-
um fi-rir kirkju og trúarlíf í landinu.
Athuga þarf samband ríkis og
kirkju.
Hann vill vinna að því að Alþjóða-
hvalveiðiráðið verði lagt niður og
stofnað verði nýtt ráð sem einungis
fiskveiðiþjóðir eigi aðild að. Hvala-
stofnar verði áfram nýttir.
Hugað verði að heimsverslunar-
miðstöð á íslandi með beinum fjar-
skipta- og tölvutengslum við allar
helstu kauphallir heimsins.
Borgaraflokkurinn vill bvggja
landið allt eftir því sem landkostir
bjóða upp á.
Hann leggur áherelu á þýðingu
landbúnaðar. sem undirstöðuat-
vinnuvegar í dreifbýli. og mikilvægi
hans fyrir þjóðina í heild.
Aukin völd verði færð til sveitar-
stjóma og landshluta. Jafnframt
verði dregið úr miðstýringu og sam-
þjöppun framkvæmdavaldsins á
einum stað.
Stjómkerfi landsins verði einfald-
að og þingmönnum fækkað.
-KMU
NOTIÐ
TÆKIFÆRIÐ
í tilefni breyting-a í húsgagnadeild veitum
við pessa dagana
20-40%
AFSLÁTT AF ÝMSUM
HÚSGÖGNUM
Verslid þar sem úrvalid
er mest og kjörin best.
Munið JL-
kaupsamningana.
E EUOOCABD jis
KORT
Komið, sjáið
og sannfærist.
OPIÐIDAGTILKL. 18,30
Jón Loftsson hf. ________________
Hringbraut 121 Sími 10600
/AAAAAA ’
|L- □C.D3P OuJLKJl
..— *—. * J Qö j j-f
j uumjjl-a
ua( iuuihiuui iitii,