Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.1991, Blaðsíða 12
12
LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 1991.
Erlend bóksjá
Á búgarði Karen
Blixen í Afríku
„Ég átti búgarö í Afríku, viö rætur
Ngong hæðanna.“
Meö þessum orðum hóf Isak
Dinesen, öðru nafni Karen Blixen,
heimsfræga frásögn sína af erfiðum
en hrífandi árum í Kenýa. Hún varð
afar hrifm af landinu, dýrunum og
fólkinu um leið og hún kom þangað
árið 1913. Nærri tuttugu árum síöar
hvarf hún þaðan tilneydd þegar pen-
ingaleysi knúði hana til að selja
búgarðinn og fara á ný til Danmerk-
ur.
En Karen Blixen átti eftir að gera
dvöl sína í Afríku ódauðlega í bók-
inni um Afríkubúgarðinn - Out of
Africa - frá árinu 1937. Frekari end-
urminningar frá Kenýaárunum,.
Shadows on the Grass, komu svo út
árið 1960.
Heimilið að safni
Hús Karen Blixen við rætur Ngong
hæða er nú í eigu Þjóðminjasafns
Kenýa. Þar er safn henni helgað opið
almenningi dag hvern.
Þegar Karen Blixen kom til Afríku
var Nairobi smáþorp og nokkur leið
að fara á hestum þaðan að búgarðin-
um. Nú hefur borgin þanist út sem
undarlegt sambland af fátæklegu
þorpi og nútímalegri stórborg og það
er fljótlegt að bruna á bíl frá mið-
borginni að Blixen-safninu.
Húsinu hefur verið haldið mjög vel
við. Og þegar gengið er um stofur,
svefnherbergi og eldhús þessa húss,
sem Blixen lýsti svo ljóslifandi af
auðsærri eftirsjá, verður margt til
að minna á hana; bækur, myndir,
skrifborð, ritvél, plötuspilari, fornfá-
legt baðkar, gamaldags rúm. Gestin-
um flnnst sem andi hennar svífi yfir
vötnunum í þessu húsi - getur jafn-
vel séð fyrir sér hvar Karen sat að
kvöldlagi við arininn á meðan ást-
vinur hennar, Denys Fynch-Hatton,
vatt upp plötuspilarann þar rétt hjá
og vitnaði í Shakespeare.
Ástaróður til Afríku
Fyrir þá sem ferðast til Afríku og
vilja njóta til fullnustu dýrðar og
dulúðar hásléttunnar og gresjunnar
1 |Íj|
fy •
■ 'M
•/*•,■’ 11
Búgarður dönsku skáldkonunnar Karen Blixen við rætur Ngong hæðanna skammt frá Nairobi í Kenýa. Hér bjó hún
í nærri tvo áratugi á fyrri hluta aldarinnar. Greinarhöfundur virðir fyrir sér húsið sem nú er rekið sem safn til
minningar um dvöl Blixen i Kenýa.
er gagnlegt að lesa ekki aðeins leið-
sögurit nútímans heldur einnig frá-
sagnir góðra rithöfunda sem létu
heillast af Kenýa fyrr á öldinni og
skrifuðu eins konar ástaróð til Afr-
íku. Þótt margt hafi breyst í Kenýa
á síðustu áratugum eru töfrar álf-
unnar hinir sömu og fyrr þegar hald-
ið er frá stórborgunum út í frjálsa
og villta náttúruna.
Áðumefnd bók Karen Blixen er þar
auðvitað í sérflokki og ætti nánast
að vera skyldulesning allra sem ætla
til Kenýa. Blixen gefur ekki aðeins
frábæra lýsingu á landinu og dýrahf-
inu heldur einnig fólkinu, frum-
byggjunum.
Um svipað leyti og Out of Africa
kom út sendi bandaríski rithöfund-
urinn og veiðimaðurinn Ernest Hem-
ingway frá sér Green Hills of Africa.
Þar lýsir hann mikilli safariferð um
Austur-Afríku þar sem markmiðið
var að vísu að veiða dýrin en ekki
bara mynda þau eins og nú tíðkast.
En frásögn Hemingway af náttúr-
unni, eltingaleiknum við dýrin og
samskiptunum við fmmbyggjana er
enn lifandi og skemmtileg.
Beryl Markham, flugmaður og
hestaræktandi í Kenýa um langt ára-
bil, sendi á stríðsárunum frá sér end-
urminningar sem ná yfir hiiðstætt
tímabil og frásögn Karen Blixen.
Þetta er afar vel skrifuð og eftir-
minnileg bók.
Þessar þrjár frásagnir frá fyrri
hluta aldarinnar lifa allar enn góðu
lífi vegna þess hversu sannar þær
eru. Lestur þeirra gefur safariferð til
Afríku aukið inntak. Þær em allar
til í pappírskiljum.
Leiðsögurit
Fjöldi leiðsögurita hefur verið sam-
inn um Kenýa. Sú sem kom mér að
bestum notum í ferð minni um þaö
land nú nýverið var „Insight Gui-
des“ APA-útgáfunnar.
Þetta er mjög skipulegt rit þar sem
efnið er vel flokkað eftir einstökum
svæðum. Sérkaflar eru um helstu
friðlöndin, sömuleiðis um fjölmenn-
ustu ættbálkana. Margar frábærar
myndir og góð kort prýða bókina. í
lokin er afar gagnlegur kafli með
hagnýtum upplýsingum og góðum
ráðum til ferðamanna.
INSIGHT GUIDES - KENYA.
Ritstjórar: Mohamed Amin & John Eames.
APA Publications.
OUT OF AFRICA & SHADOWS ON THE
GRASS.
Höfundur: Karen Blixen.
Penguin Books.
GREEN HILLS OF AFRICA.
Höfundur: Ernest Hemingway.
Penguin Books.
WEST WITH THE NIGHT.
Höfundur: Beryl Markham.
Penguin Books.
Metsölukíljur
Bretland 5. Hannah Hauxwell: 10. Jack Híggins: 10. Camille Paglia:
Skáldsögur: DAUGHTER OF THE DALES. THE EAGLE HAS FLOWN. SEXUAL PERSONAE
1. Stephen Kíng: 6. Hannah Hauxwell: 11. Píers Anlhony:
FOUR PAST MIDNIGHT. SEASONS OF MY LIFE. OUESTION OUEST. THE MILWAUKEE MURDERS.
2. Catherlne Cookson: 7. Gary Larson: 12. Catherine Coulter:
THE GYLLYWORS. PRE-HISTORY OF THE FARSIDE. SEASON OF THE SUN. A WOMAN NAMED JACKIE.
3. Maeve Blnchy: 8. Wensley Clarkson: 13. Dana Fuller Ross:
CIRCLE OF FRIENDS. HELL HATH NO FURY. HAWAII HERiTAGE.
4. Thomas Herrie 9. BUI Waterson: 14. Janetle Taylor:
TME SILENCE OF TME LAMBS. THE AUTHORITATIVE CALVIN 8 FOLLOW THE WIND.
5. Ellls Peter: HOBBES. 15. Kurt Wonnegut: npntviörl
THE SUMMER OF THE DANES. 10. Clalre Tomalln: HOCUS POCUS. »mI »1»1 vt IV
6. Wllliam Boyd: THE INVISIBLE WOMAN. oftdiubuyur.
BRAZZAVILLE BEACH. Rit almenns eðlis: 1. Johannes Mollehave:
7. Scott Turow: 1. Forrest Carten HOLGER DANSKES VEJ 60.
THE BUROEN OF PROOF. THE EDUCATION OF LITTLE 2. Erne8t Hemingway:
8. Terry Pratchett: D3nudiiKin TREE. DEN GAMLE MAND OG HAVET.
WINGS. Skáldsögur: 2. Deborah Tannen: 3. Betty Mahmoody:
S. Wllbur Smlth: 1. Jean M. Auel: YOU JUST ÐON’T UNDERSTAND. IKKE UDEN MIN DATTER.
ELEPHANT SONG. THE PLAINS OF PASSAGE. 4. Alice Walker:
10. Thomaa Harrla: 2. Sidney Shetdon: TyEAR ,N PROVENCE. HANS TREDJE LIV.
RED DRAGON. MEMORIES OF MIDNIGHT. d M Snott Peclc 5. Jan Guillou:
3. Stephen Klng: THE ROAD LESS TRAVELLED. DEN DEMOKRATISKE
FOUR PAST MIDNIGHT. 5. Robert Fulghum: TERRORIST.
4. Peter Oavid; ALL 1 REALLY NEED TO KNQW 6. Herbjörg Wassmo:
Ril almenna eðlis: THE RIFT. LEARNED IN KINDERGARTEN. DINAS BOG.
1. Peter Mayle: THE MUMMV. 06. Barbara Mendrell & G. Vecsey: GET TO THE HEART. DEN LILLE PRINS.
A YEAR IN PROVENCE. 6. Maeve Blnchy: 7. Truddi Chase:
2. Michael Palln: CIRCLE OF FRIENDS. WHEN RABBIT HOWLS. CHRISTINE.
AROUND THE WORLD IN 80 7. Amanda Oulck: 9. Ib Michael:
DAYS. RENDEZVOUS. IT WAS ON FIRE WHEN 1 LAY REJSEN TILBAGE. 10. Bjame Reuler:
3. Slmon Mayo: SIMON MAYO’S CONFESSIONS. BUFFALO GIRLS. DQWN ON IT. 3. Kenneth C* Oavis: ORENGENE FRA SKT. PETRI.
THANK YOU FOR HAVING ME. GONE WITH THE WIND. HISTORY. (Byggt á Polltiken Sendag,
Umsjón: Elías Snæland Jónsson
-4» ———m—| |
Fyrsti áratugur
Rolling Stones
Félagarnir í bresku rokkhljóm-
sveitinni Rolhng Stones eru
komnir yfir fimmtugsaldurinn og
farnir að líta til baka yfir farinn
veg.
Rolling Stones voru áhrifamikl-
ir þátttakendur í sviptingum sjö-
unda áratugarins; grófir og óhefl-
aðir en afar vinsælir meðal unga
fólksins sem þá var í virkri and-
stöðu við eldri kynslóðina. Þeir
hafa einnig reynst langlífari en
aðrar hljómsveitir sem risu til
frægðar á þessum tíma og eru enn
í fuhu fjöri.
Einn félaganna í Rolling Stones,
Bill Wyman, rekur hér í ítarlegu
máh sögu sína og hljómsveitar-
innar frá því þeir voru óþekktir
tónlistarmenn í leit að fé, frægð
og glaumi þar til sjöundi áratug-
urinn rann sitt skeið á enda.
Hann dregur ekkert undan; segir
frá átökum og deilum þeirra fé-
laga og því hversu vonin um
frægðina getur leikið menn grátt.
Einnig segir hann frá kvennafari
og eiturlyfjaneyslu, en sumir
þeirra stunduðu hvoru tveggja
ótæpilega. Þannig tekst honúm
að veita lesendur innsýn í hvem-
ig það var að vera Rollingur á
sjöunda áratugnum.
STONE ALONE.
Höfundar: Bill Wyman & Ray Cole-
man.
Penguin Books, 1991.
Bresk skáld
milli stríða
Stephen Spender er einn af
kunnari gagnrýnendum og ljóð-
skáldum Breta á þessari öld. Frá
því hann hóf nám við Oxford
háskóla kynntist hann ýmsum
helstu menningarvitum síns
tíma, svo sem Auden, Isherwood,
Woolf, Yeats og Ehot.
Fyrsta bindi sjálfsævisögu
Spenders kom fyrst út árið 1952.
Að meginstofni til er þetta frá-
sögn af tímabihnu frá 1928, þegar
hann hóf nám í Oxford, th upp-
hafs síðari heimsstyrjaldarinnar.
Á þessum rúma áratug kynntist
Spender nýjum straumum og
stefnum í skáldskap og stjóm-
málum sem höfðu mikil áhrif á
ævi hans og lífsstarf.
Spender fjallar hér einkum um
skáldskapinn, stjórnmálin og þau
siðalögmál sem urðu honum hug-
leikin, en einnig um persónulegt
samband sitt við karla og konur
þar sem hann fór gjarnan ótroðn-
ar slóðir. Þetta er fyrst og fremst
frásögn sem hefur gildi fyrir þá
sem hafa áhuga á breskum skáld-
skap milhstríðsáranna og vissu-
lega forvitnileg sem slík.
WORLD WITHIN WORLD.
Höfundur: Stephen Spender.
Faber &' Faber, 1991.