Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.1992, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.1992, Blaðsíða 25
ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 1992. 25 Hjónaband Þann 8. ágúst voru gefin saman í Fríkirkj- unni af séra Hjalta Guðmundssyni Sig- rún Guðmundsdóttir og Sigþór Ein- arsson. Heimili þeirra er að Sólbraut 19, Seltjamamesi. Ljósm. Nærmynd. Fundir Aðalfundur Framtíðarinnar verður haldinn í dag, 8. september, kl. 19 í hátíðarsal Menntaskólans í Reykjavík. Björgunarsveit Ingólfs er nú að byija starfiö af fullum krafti og leitar nú eftir nýjum félögum í sveitina. Björgunarsveitin skiptist í 4 flokka sem em landflokkur, sjóflokkur, bílaflokkur og fjarskiptaflokkur. Nýliðar em teknir inn í þá 2 stærstu: Landflokk sem sér um leit og björgun á landi og sjóflokk sem sér um leit og björgun á sjó. Starfið er opið öllum strákum og stelpum sem hafa náð 17 ára aldri. Þeir sem vilja kynna sér þessi mál em velkomnir á kynningar- fund sem verður haldinn miðvikudaginn 9. september kl. 20 í Gróubúð, Granda- garði 1, Reykjavik. Fyrirlestrar Háskólafyrirlestur Töger Seidenfaden, forstjóri sjónvarps- stöðvarinnar TV2 í Kaupmannahöfn, flytur fyrirlestur í Odda, stofu 101, fimmtudag 10. september kl. 17. Fyrirlest- urinn fjallar um aukið samstarf Evrópu- ríkja og afleiðingar þess fyrir norræna samvinnu. Fyrirlesturinn er öllum op- inn. Tapaðfundið Keli ertýndur Laugardaginn 27. ágúst fór kötturinn Keli að heiman. Hann er svartur og hvít- ur á litinn. Þeir sem hafa orðið varir við hann vinsamlegast hafi samband heim tú hans að Neðstabergi 1, sími 71230. Lyklaveski tapaðist ' Kolaportinu Svart lyklaveski með 6 lyklum tapaðist í Kolaportinu laugardaginn 5. september sl. Finnandi vinsamlegast hringi í síma 632934. Gleraugu fundust Brúnleit kvengleraugu fundust í grennd við gamla Kennaraskólann. Upplýsingar í sima 14669. THkynningar Félag eldri borgara Opið hús í Risinu í dag kl. 13-17. Haust- fagnaður félagsins verður í Risinu 11. september. Húsið opnað kl. 19. Endurski í skam Veiðivon Litlaá í Kelduhverfi: 19,5 punda urriði tók laxahrogn Hrútafjarðará og Síká: Tuttugu og eitt pró- sent betri veiði en í fyira „Hrútafjarðará og Síká hafa gefið 370 laxa á þessari stundu. Það er 21% betri veiði en á sama tíma í fyrra,“ sagði Gísli Ásmundsson í gærkvöld er við spurðum frétta. „Stærstu laxarnir eru fjórir 16 punda en stærsta bleikjan er 6 pund. Það hafa veiðst 400 bleikjur en þær eru flestar 1 til 2 pund. Veið- in hefur verið dágóð síðustu daga og það sem hefur gefið þessu líf, þrátt fyrir leiðinlegt veiðiveður, eru nýir laxar sem hafa verið að koma. Þessir gömlu geta verið treg- ir en það vantar alveg stórfiskinn ennþá,“ sagði Gísh í lokin. -G.Bender Litlaá í Kelduhverfi gefur ennþá nokkra rígvæna urriða á hveiju ári og um helgina veiddi Bjöm Guð- mundsson frá Akranesi þann stærsta í ánni, 19,5 punda fisk. En það var Gústaf Guðmundsson á Húsavík sem átti fyrra metið, 19 punda urriða, á flugu. Þetta met Gústafs hefur staðið síðan 1988. „Það eru komnir á land á annað þúsund fiskar í sumar og hafa veiðst 40 laxar,“ sagði Margrét Þór- arinsdóttir í Laufási í gærkvöldi. „Stærstu laxarnir eru 11 og 12 punda en aldrei hafa veiðst svona margir laxar héma í Litluá áður. Þennan stóra fisk veiddi Bjöm á laxahrogn. Nokkrum dögum áður komu einn daginn tveir 17,5 punda urriðar. Við veiðum til 10. septemb- er,“ sagði Margrét ennfremur. -G.Bender Hann Skarphéðinn Ásbjömsson á Blönduósi veiddi þennan 18 punda urriða i Litluá fyrir fáum dögum. Fiskurinn tók Næturdrottninguna, túbu númer tvö. DV-mynd Sigurður Kr. Hrafnhildur Siguröardóttir meö 5 punda flugulax úr Réttarstreng, Réttarfoss i baksýn. DV-mynd Ó Þarna eru þeir feðgarnir Magnús Óskarsson, t.v., og Óskar Magnús- son, t.h., nýbunir að landa laxi Magnúsar i Hrútafjarðará. DV-mynd HS Spilakvöld SÍBS og Samtaka gegn astma og ofnæmi Fyrsta spilakvöld haustsins er í kvöld kl. 20.30 í Múlabæ, Ármúla 34, 3. hæð. Kaffiveitingar. Félagar í SÍBS og SAO eru kvattir til aö fjölmenna og taka með sér gesti. Foreldrafélag misþroska barna Undanfarin ár hefur Foreldrafélag mis- þroska bama staðið fyrir leikfimitímum. Iþróttafélag fatlaðra hefur nú boðið félag- inu afiiot af aðstöðu sinni sem er ipjög góð og hentar bömunum vel. Þeir sem áhuga hafa á að nýta sér þessa íþrótta- þjálfún em beðnir um að mæta miðviku- daginn 9. september kl. 19.30 í íþróttahús- ið í Hátúni 14. Þátttakendur þurfa að ireiða ca kr. 2.500 fyrir önnina. Upplýs- ingar er hægt að fá í síma 688002 þjá I.F. eða 680790 hjá Foreldrasamtökunum. Haustferð Jöklarannsókna- félags Islands Hin árlega haustferð félagsins í Jökul- heima verður farin helgina 11.-13. sept- ember 1992. Lagt verður af stað á föstu- dagskvöld kl. 20 frá Guðmundi Jónassyni hf. Borgartúni 34. Þátttaka tilkynnist Stefáni Bjamasyni vs. 28544, hs. 37392 eða Ástvaldi Guðmundssyni vs. 686312. Dyngjan Áfangaheimiliö Dyngjan hefur veriö starfrækt um nokkurt skeið. Heimilið er ætlaö konum sem lokið hafa áfengismeð- ferð en þurfa frekari stuðning áður en þær halda út í lifiö á nýjan leik. Dyngjan hefur ekki mikla fjármuni til ráðstöfunar og því er alltaf jiörf fyrir eitt og annað sem komið getur að notum. Meðal þess sem sárlega vantar em náttborð, sjón- varp, kommóður, mottur, skrilborð og sófar. Ef einhver er aflögufær um þessa hluti eða aðra heimilishluti væri það vel þegið. Þeim sem viija styrkja Dyngjuna með gjöfum er bent á að hringja í síma 35450 eða 669807. Leikhús ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ Sími 11200 Litla SVIÐIÐ: KÆRA JELENA ettir Ljúdmílu Razumovskaju. Syningar 11/9,12/9,17/9,18/9,19/9,20/9 kl. 20.30. Aðeins örfáar sýningar. HAFIÐ eftir Ólaf Hauk Sím- onarson Frumsýning 19. sept. SALAAÐGANGSKORTA STENDUR YFIR Verð aðgangskorta kr. 7.040. Frumsýningarkort, veró kr. 14.100 á sæti. EIII- og örorkul ifeyrisþegar, verð kr. 5.800. Auk þess veita aðgangskort verulegan afslátt á sýningar á Smíðaverkstæði og Litla svlði. Miöasala Þjóðleikhússlns er opin alla daga frá 13-20 á meðan á kortasölu stendur. Miðapantanir frá kl. 10 virka daga i síma 11200. Grelðslukortaþjónusta - Græna linan 996100. LEIKHÚSLÍNAN 991015. LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR Sala aðgangskorta stendur yfir til 20. septemb- er. Verð kr. 7.400 ATH. 25% afsláttur. Frumsýningarkort kr. 12.500. Elll- og örorkulífeyrisþegar kr. 6.600. erhafin. Sala á einstakar sýningar hefst 12. sept. Stóra sviökl. 20.00. DUNGANONeftirBjörn Th. Björnsson Frumsýning (östudaginn 18 september. 2. sýn. lau. 19. sept. Grá kort gilda. 3. sýn. sun. 20. sept. Rauð kort gilda. Miðasalan er opin daglega frá kl. 14-20 á meðan kortasalan fer fram, auk þess ertekið á móti pöntunum i sima 680680 alla virka daga kl. 10-12. Greiðslukortaþjónusta. Faxnúmer 680383. Leikhúslínan sími 991015. Tónlistarhátíð norræna ungmenna f kvöld kl. 20.30 verða tónleikar í Lista- safni íslands. Það eru þriðju tónleikar hátíðarinnar sem stendur dagana 6.-12. sept. Á efnisskránni eru sjö ný kammer- verk. Dagskráin á morgun, miðvikudag, hefst kl. 10 með þriöja og síðasta fyrir- lestri þeirra félaga Ríkharðs H. Friðriks- sonar og Hans P. S. Teglbjærg um algó- ritmískar tónsmíðar. MilÚ kl. 14 og 16 mun tónskáldið Gérasd Grisey, heiðurs- gestur hátíðarinnar, kynna hlustendum tónlist síðan. Báðir fyrirlestrarnir fara fram í húsnæði Tónlistarskólans í Reykjavík að Laugavegi 178. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Silfurlínan s. 616262. Síma- og viðvikaþjónusta viö eldri borgara alla virka kl. 16-18. Námskeið í skyndihjálp Reykjavíkurdeild Rauða kross íslands heldur a.m.k. eitt námskeið í skyndihjálp i hverjum mánuöi allt árið. Þessi nám- skeið eru opin öllum 15 ára og eldri. Næsta námskeið hefst miðvikudaginn 9. sept. kl. 20 í Fákafeni 11,2. hæð. Kennslu- dagar verða 9., 10., 14. og 15. sept. Kennt verður frá kl. 20-23. Leiðbeinandi verður Guðlaugur Leósson. í tengslum við þetta námskeið verður boðið upp á ný nám- skeið sem ekki hafa verið opin fyrir al- menning áöur, en eru talin mjög mikil- væg. Þann 23. sept. verður námskeið um móttöku þyrlu á slysstað. Þann 24. sept. verður námskeið um áfalla- og stórslysa- sálfræði. Nánari upplýsingar og skráning er í síma 688188 fifá Ú. 8-16.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.