Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1995, Blaðsíða 1
i
DAGBLAÐIÐ - VÍSIR
67. TBL. -85. og 21. ÁRG. - MÁNUDAGUR 20. MARS 1995.
VERÐ í LAUSASÖLU KR. 150 M/VSK
Ellefu menn sluppu naumlega þegar fjögur til fimm hundruð metra breitt snjóflóð féll á mjölskemmu og verksmiðjuhús Vestdalsmjöls á Seyðisfirði um miðjan dag í gær, eins og sýnt er á
þessari mynd. Níu menn voru i og við verksmiðjuhúsið en tveir snjóskoðunarmenn voru á vélsleðum uppi í hlíðinni og urðu að keyra undan þvi til að sleppa. Mjölskemman gjöreyðilagðist í
flóðinu, sem náði út í miðjan fjörð, en verksmiðjuhúsið gaf sig að hluta og hálffylltist af snjó.
Efstu menn fjögurra lista
Forystumenn Kristilegrar stjórn-
málahreyfmgar, Náttúrulaga-
flokksins, Suðurlandslistans og
Vestíjarðalistans verða á beinni
linu I)V og svara spurningum frá
þeim lesendum sem hringja í síma
563 2700 milli klukkan tó.30 og 21.30
í kvöld.
Árni Björn Guðjónsson, efsti
maður á lista Kristilegrar stjórn-
málahreyfmgar, Jón Haildór
Hannesson, efsti maður á lista
Náttúrulagaflokksins, og Sigurður
Ingi Ingólfsson, annar maöur á
Suðurlandslísta Eggerts Haukdais,
veröa á ritstjórn DV. Pétur Bjama-
son, efsti maöurá Vestfjarðalistan-
um, verður í beinu símasambandi
frá Þingeyri og svarar spm-ningum
lesenda.
Halldór Ásgrímsson, formaður
Pramsóknarflokksins og efsti mað-
ur á lista flokksins í Austurlands-
kjördæmi, var á beinni línu DV í
síöustu viku og hringdu fjölmargir i
til aö leggja fyrir hann spumingar.
Búast má við að mikið veröi hringt
í kvöld og er því brýnt að hringj-
endur séu stuttorðir og gagnorðir
og komi sér beint aö efni'nu. Æski-
legt er að hringjendur spyrji aðeins
einnar spurmngar þannig aö sem
flestir komist að. Á beinni h'nu gefsf
oft tilefni til orðaskipta en spyrj-
endur eru vinsamlegast beönir að
halda sig við spurningamar.
Ólafur Ragnar Grímsson, for-
maður Alþýðubandalagsins, var á
beinni linu í síðustu viku. AÖrir
forystumeim stjómmálaflokka
verða á beiirni línu síðar í vikunni
og í byijmt næstu viku. Öll svörin
birtast í aukablaði DV 28. og 29.
mars.