Þjóðviljinn - 02.03.1960, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 02.03.1960, Blaðsíða 1
me'ðfkrð DRYKK JUS JÚKLIN G A Grein eftir Alfréð Gíslason lækni á opnunni. Þúsundir fórust í jarðskjólfta í Þjáning og eymd rikjandi i horginni Agadir, sem er nœr þvi öll i rústum Ógurlegur jarðskjálfti gekk yfir borgina Akadir á Atlanzhafsströnd Marökkó í gær- morgun. Talið er að á annaö þúsund manns hafi farizt og mörg þúsund slasazt. Jarðskjálftanum fylgdi mikil flóöbylgja og eldar brutust út. Um 80 prósent borg- arinns.r er algjörlega í rústum, en í henni bjuggu um 40000 manns. Allmargir jarðskjálftakippii u'rðu í borginni og var sá fyrsti og snarpasti snemma í gær-1 morgun. Jarðskjálftinn var svo harður, að jarðskjálftamæli-1 tæki i athuganastöð nálægt Casablanca gjöreyðilögðust. Símasamband rofnaði þegar við borgina, svo og allar sam- göngur. Var reynt að fá flug- vélar til að flytja lyf, lækn- ingatæki og vistir til borgar- innar, og til að koma slösuðu fólki þaðan. Hræðile.gt ástand Fréttaritarar sem komust til borgarinnar í gær sögðu að þar ríkti hin hræðilegasta eyðilegg- ing og eymd. Um 80 prósent borgarinnar eru algjörlega í rúst vegna jarðskjálftanna. Þúsundir manna eru lokaðir inni og grafnir undir > 1111 [ m 111111111111111111111111111111i1111111111111111111111111■111111m1111111111111111111 iit | 27 létu lífið í flugslysinu j E Stélið var heillegasti hluturinn, sem fannst í braki E 3 flugvélar þeirra'-, sem íórst sl. föstudag skömmu el'iir - = að hún hafði hafið sig til flugs af Shannon-flugvelli í E | írlandi áleiðís íil Neiv York. 27 létu lífið ý flugslysi E E þessu Flugvélin var eign ítalska flugféla.gsins ALITAL- § = IA af gerðinni DC 7C. Hún hafði liat't viðkomu á £ E Shannon-velli 'ii1 að taka þar eldsneyti á lcið sinni frá E E Napólí til New York. = hálfhrundum húsum. Jarð- skjálftanum fylgdi mikil flóð- hylgja sem grandaði hundruð- um manna, sem ekki var und- ankomu auðið. Eldar gusu upp víða i borginni og voru eng- in tök á að slökkva þá, enda allt á ringulreið vegna þeirrar skelfingar, sem greip um sig. Það jók líka á erfiðleikana að aðalsjúkrahús borgarinnar hrundi í rúst. Þúsundir af slös- uðu fólki beið í gær eftir að fá læknishjálp eða vera flutt burt ’í sjúkrahús annarsstaðar í landinu. Hjálp berst víða að Múhameð konungur í Mar- okkó, sem heimsótti slysastað- inn í gær, sendi þegar út hjálp- arbeiðni til Alþjóða Rauða krossins. Hefur Rauði kross- inn sent út áskorun til allra landa um að hjálpa hinu nauð- stadda fólki. Hjálp hefur þegar borizt víða að með flugvélum og í gær voru allmörg skip á leiðinni með lyf og vistir til að líkna hinum sjúku og heim- ilislausu. Rjörgpinarstarfið var skammt á veg komið í gær Byrjað var að grafa 'í 'húsarústirnar og hafði nokkrum mönnum verið bjargað, flestum mikið slösuð- um. f gærkvöld var enn ekki hægt að segja með neinni vissu, hversu margir hefðu týnt lífi í þessum náttúruhamförum. I opinberri heimild segir þó að óttast sé að tala hinna dauðu sé að minnsta kosti tals-1 vert á annað þúsund, og að um t'íu þúsund hafi slasazt Framhald á 2. siðu Þessi mynd, sem Gunnar lands og: af því tilefni Sverrisson hefur tekid, er birtist mynd, og frásiign á birt í tilefni öskudagsins 12. síðu. IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIUIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIHIIIIIIIIII áSþýðan myndi órjúfandi samsföðu um rétt sinn Stjórn Málarafélags Reykjavíkur vurð sjálfkjörin Á aöalíundi Málarafélags Reykjavíkur í fyrrakvöld var samþykkt ályklun, þar sem dýrtíöarlögum ríkisstjórn- arinnar var harölega mótmælt og skoraÖ á alla alþýöu aö mynda órjúfandi samstööu um aö ná rétti sínum. Ályktunin fer í heild hér ó eítir: „Aðalfundur Málarafélags Reykjavíkur, haldinn 29. febr. 1960, mótmælir harðlega dýr- tíðarfrumvarpi ríkisstjórnar- innar. Fundurinn telur að það feli í sér freklega kjara- skerðingu alls launafó'ks í landinu, sem leiða mun af sér aívinnuleysi og þá fyrst og fremst í byggingariðnaði. Sérstaklega mótmælir fund- urinn þeirri frelsisskerðingu sem felst í því að ríkisvaldið skuli afnema með lagasetn- ingu réttindi sem verkalýð- urinn hefur áunnið sér með frjá'sum samningum, svo sem vísitöluuppbót á laun. Fundurinn skorar á alla al- þýðu þessa lands að mynda órjúfandi samstöðu til að ná rétti sínum“. Sjájfkjörin félagsstjórn Stjórn Málarafélags Reykjavík- Lárus Bjarnfreðsson ur varð sjálíkjörin.' en hana skipa: Lárus Bjarnfreðsson for- maður, Iljálmar Jónsson vara- formaður. Leifur Ólafsson ritari, Halldór Gíslason ritarl stjórnar, Grímur Guðmundsson gjaldkesi. Framhald á 2.,.síðu.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.