Þjóðviljinn - 11.04.1984, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 11.04.1984, Blaðsíða 2
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 11. aprfl 1984 Friðarpáskar 1984 í Norræna húsinu „Friðarpáskar 1984“ er yfir- skrift samfelldrar menning- ördagskrár sem 16 friðar- samtök á íslandi standa fyrir í Norræna húsinu í Reykja- vík frá laugardeginum 14. apríl til mánudagsins 23. apríl (2. í páskum). Á laugar- daginn munu friðarsinnar safnast saman á Lækjartorgi og ganga saman að Norræna húsinu við undirleik Horna- flokks Kópavogs en við Nor- ræna húsið leikur Skóla- 1 hljómsveit Kópavogs. Þessa daga verða málverkasýn- ingar í Norræna húsinu og á hverj- um degi verða þar dagskrár frá því um nónbil og fram á kvöld. Dag- skrárnar eru mjög fjölbreyttar; leikrænar, sungnar , fræðandi og pólitískar. Daglega verður efni sér- staklega fyrir börn. Listamenn sem fram koma á dagskrám friðar- páskanna skipta hundruðum og samtökin sem að standa eru fulltrú- ar nær allrar þjóðarinnar. Málverkasýning verður opnuð í sýningarsölum Norræna hússins kl. 15.00 á laugardaginn. Friðarvikan verður opnuð af Jóhönnu Boga- dóttur og Sr. Gunnar Kristjánsson mun flytja ávarp. Þá syngja þrjár stúlkur; Marta Halldórsdóttir, Hildigunnur Hall- dórsdóttir og Hildigunnur Rúnars- dóttir. Að því loknu munu þau Andri ísaksson og Margrét Pála Ólafsdóttir flytja erindi um friðar- uppeldi og sitja fyrir svörum. Að loknu hléi mun Þorsteinn Ö. Stephensen lesa bréf indíánahöfð- ingjans Seattle til Washington for- seta. Edda Þórarinsdóttir syngur við undirleik Bjarna Jónatans- sonar. Þá verður leiklestur úr Alman- aki Jóðvinafélagsins eftir Ólaf Hauk Símonarson. Flytjendur: Er- lingur Gíslason, Guðbjörg Thor- oddsen, Kristbjörg Kjeld og Krist- ján Franklín Magnús. Bernard Wilkinson leikur undir á flautu, leikstjóri er Sigrún Valbergsdóttir en kynnir Steinunn Sigurðardóttir. Kl. 16.00 til 19.00 sama dag veður opin myndsmiðja fyrir börn og fullorðna undir handleiðslu myndlistarmanna. Á sama tíma sitja fulltrúar hinna ýmsu hreyfinga fyrir svörum og gefa upplýsingar. Um kvöldið kl. 20.30 leika og syngja þau Arnþór Helgason og Guðrún Hólmgeirsdóttir. Flutt verður leikrit „Eg læt sem ég sofi“ eftir Raymonds Briggs í þýðingu Bergþóru Gísladóttur og Kenevu Kunz. Guðrún Stephensen og Ró- bert Arnfinnsson flytja en Jill Bro- oke Árnason leikstýrir. Hér hefur verið rakin dagskrá laugardagsins en slík fjölbreytni verður í Norræna húsinu til annars í páskum. -óg Hefjast á laugardag Fulltrúar fri&arhreyfinganna kynntu dagskrá friðarvikunnar á páskum fyrir bla&amönnum í gær. Ljósm eik. KRON lækkar vöruverð um 10% „Langstærsta verkefnið hjá KRON um þessar mundir er að koma Miklagarði á öruggan rekstrargrundvöll. Það leikur ekki tveim tungum að Mikli- garður hefur leitt til lækunar á almennu vöruverði og við sem eigendur meirihlutans í versl- uninni höfum starfað heil og óskipt að því verkefni enda er það fyllilega í samræmi við til- gang KRON“, sagði Ingólfur Olafsson kaupfélagsstjóri í KRON í samtali við blaðið. „Hitt er svo annað mál að þessi stóra og mikla verslun hefur haft meiri áhrif á rekstur KRON en Tökum þátt í verð stríðinu segir Ingólfur Óskarsson kaupfélagsstjóri annarra verslana því félagsmenn í KRON líta eðlilega á Miklagarð sem sína búð og gera þar viðskipti í allmiklum mæli“, sagði Ingólfur ennfremur. KRON verslanir hafa auglýst 10% afslátt á öllum vörum hjá sér fram að páskum. Við spurðum Ing- ólf hvort þetta væru viðbrögð við slæmri útreið KRON verslana í ný- afstöðnum könnunum Verðlags- stofnunar. „Með þessu erum við fyrst og fremst að gera okkur gildandi í því verðstríði sem nú er háð hér á Reykjavíkursvæðinu. Hitt er svo annað mál að þessar kannanir segja alls ekki alla söguna. Þar má nefna að þar var alls ekki um að ræða athugun á verðinu almennt heldur á einstökum afmörkuðum vörutegundum. Við hefðum ef- laust komið betur út ef allir vöru- flokkar hefðu verið kannaðir. Þá er ekki síður mikilvægt að gera sér grein fyrir því að til þess að vöru- tegund yrði samanburðarhæf í könnuninni á verði stórmarkað- anna, varð hún að vera til í öllum versiununum í úttektinni. Þetta gerði það að verkum að mikið af okkar vörumerkjum, sem við telj- um ódýr eins og t.d. Juvel hveiti og eru eícki í öllum verslununum, komu ekki til álita í athugun Verð- lagsstofnunar". „Þetta verðstríð sem nú hefur blossað upp hygg ég að stafi af þeim meginþáttum. Annars vegar tilkomu Miklagarðs eins og ég sagði áðan en hin ástæðan er hinn almenni samdráttur kaupgetunnar og minnkandi verslun af þeim sökum. Allar verslanir reyna að halda sínum hlut eftir sem áður og okkar lækkun á álagningu er til- raun til þess“, sagði Ingólfur Ólafs- son kaupfélagsstjóri KRON. -v Æskulýðsfylking á hljómgrunn Stofnun tveggja deilda í bígerð Lára Jóna Þorsteinsdóttir frá ÆskulýðsfyIkingunni er vel kunnug fiskverkun og deilir hér reynslu sinni með einni af stúlkunum í Hraðfrystihúsi Fá- skrúðsfjarðar. Ljósm Jón Ingi í síðustu viku voru haldnir fundir á Austurlandi á vegum Æskulýðsfylking- ar Alþýðubandalagsins og tókust svo vel að nú er í bígerð að stofna deildir á tveimur stóðum. Víða annars staðar varð vart við mikinn áhuga á starfi fylk- ingarinnar og lögð drög að stuðnings- mannakerfí. Að sögn Láru Jónu Þorsteinsdóttur sem ásamt öðru fylkingarfólki var drif- fjöður fundanna er nú fyrirhugað að stofna deildir bæði á Egilsstöðum og í Neskaupsstað, og í kjölfar fundanna fyrir heigi voru settir á laggir hópar til að undirbúa deildarstofnunina sem er fyrirhuguð í júnfbyrjun, ef guð lofar. Lára Jóna var feyki hress með þann áhuga sem víða var sýndur á starfsemi fylkingarinnar og taldi að margt yngra fólk kysi fremur að starfa innan hennar fyrst í stað, fremur en verða fullgildir meðlimir Alþýðubandalagsins. Með því að fylgja þessu eftir taldi Lára að áreiðanlega væri hægt að koma upp öflugu starfi á Austurlandi, en þar hafa ekki verið starfandi deildir á vegum Æskulýðsfylkingarinnar fram til þessa. -ÖS Starfsmenn Arnarflugs bjartsýnir Sækja fast í kaup á hlut Flugleiða „Við hljótum að vona að Flug- leiðamenn séu tilbúnir að selja okkur hlut sinn í Arnarflugi eftir að hafa gefið út opinbera yfirlýs- ingu um að þar sé um glatað fé að ræða því vart hefur fyrirtækið mikinn áhuga á að halda í slíka smámuni", sagði Stefán Bjarna- son formaður Starfsmannafélags Arnarflugs á blaðamannafundi í gær en þá átti fyrirtækið 8 ára afmæli. Starfsfólk Arnarflugs á 23.7% eignarhlut í fyrirtækinu en Flug- leiðir eiga stærsta hlutann eða 40.1%. Starfsmenn eru tilbúnir að kaupa hlut Flugleiða og hafa lýst þeirri skoðun sinni en ekki fengið svör unt þá málaleitan ennþá. Forsvarsmenn Starfsmannafé- lags Arnarflugs sögðu á fundin- um með fréttamönnum í gær að hlutabréf í fyrirtækinu væru hvorki verðlaus né glatað fé. Fé- lagið væri að rétta úr kútnum eftir nokkurt erfiðleikatímabil ag rekstur þess á árinu 1984 lofaði mjög góðu. Verðmætasta eign Arnarflugs væri velþjálfað starfs- fólk með mikla reynslu á sviði flugrekstrar og það hefði mikla trú á fyrirtækinu sem lýsti sér í áhuga á kaupum hlutabréfa. Sumaráætlun Arnarflugs gekk í gildi 1. aprt'l sl. Verða farnar tvær ferðir í viku til Amsterdam í apríl og maí auk fjöj>urra auka- ferða á föstudögum.I byrjun júní hefjast svo vikulegar ferðir til Zúrich í Sviss og Ðússeldorf ,í Þýskalandi. Síðar í suniar flýgur svo Arnarflug fjórum sinnum í viku til Amsterdam og tvisvar í viku til Zúrich. Arnarflug hefur einnig gengið frá leiguflugssamningum fyrir sumarið og má nefna sem dæmi að flogið verður með allt leigu- flug fyrir Útsýn til Spánar óg ftal- íu og allt leiguflug fyrir Samvinnuferðir Landsýn til ftal- íu. Starfsmenn Arnarflugs eru nú 105 en verða um 130 í sumar.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.