Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.2002, Blaðsíða 2
2
MIÐVIKUDAGUR 8. MAÍ 2002
DV
Fréttir
Kvikmyndas j óður:
Fjármálastjóri
ekki ráðinn
Tillaga Þorfmns Ólmarssonar, fram-
kvæmdastjóra Kvikmyndasjóðs Is-
lands, um að ráðinn verði sérstakur
fjármálastjóri til stofnunarinnar náði
ekki fram að ganga á fundi stjórnar í
gær. „Þetta hlaut ekki undirtektir,"
sagði Vilhjálmur Egilsson, formaður
stjómar sjóðsins, í samtali við DV í
morgun. Hann segir ekkert í starfsem-
inni vera þess eðlis að þörf sé á íjár-
málastjóra. Umsýsla á sviði fjármála
sjóðsins fari að mestu leyti fram hjá
Ríkisféhirði og Ríkisbókhaldi. „Málið
snýst því ekki um annað en að halda
utan um fylgiskjöl og merkja þau rétt,“
sagði Vilhjálmur.
Kenningum um að Hrafni Gunn-
laugssyni sé hyglað við styrkjaúthlut-
andir hjá sjóðnum vísar Vilhjálmur á
bug. Bendir í því sambandi á að á því
hálfa niunda ári sem hann hafi verið
formaður sjóðsstjómar hafi Hrafh að-
eins einu sinni fengið styrk úthlutað til
gerðar kvikmyndar, það er Myrkra-
höfðingjans. Það var styrkur sem síðar
fluttist til Islensku kvikmyndasam-
steypunnar. „í mínum huga snýst
spumingin því frekar um hvort Hrafh
njóti sannmælis, fremur en að ég sé að
hygla honum," sagði Vilhjálmur.
-sbs
Krónan veiktist
talsvert í gær
Gengi krónunnar veiktist um 0,43%
í gær og endaði gengisvísitalan í 128,2
stigum eftir töluverð viðskipti á gjald-
eyrismarkaði.
Bandaríkjadalur endaði í 91,20 krón-
um en hann hafði farið niður fyrir 91
krónu í fyrradag. Evran kostar nú 83,40
krónur og breska pundið 133,81 kr.
Þrátt fyrir þessa veikingu krónunnar
hefur dollarinn lækkað um 11,4% gagn-
vart krónunni frá áramótum, pundið
um 10,3% og evran um 8,4%. -HI
Vaxtalækkun
strax 14. maí
- að mati forseta ASÍ - kominn tími á viðskiptabankana
Gylfi Ambjömsson, framkvæmda-
stjóri ASÍ, segfr mikinn létti fylgja því
að svo virðist sem rauða strikið muni
halda samkvæmt greiningu Seðlabank-
ans frá í gær. „Það er vissulega ánægju-
legt að tekist hefur að vinda ofan af
þeirri öfugþróun sem átti sér stað á síð-
asta ári. Það skiptir ákaflega miklu máli
fyrir okkar fólk,“ sagði Gylfi í samtali
við DV í morgun.
Seðlabankinn hefur í tvígang lækkað
vexti á stuttum tíma um alls 0,8 prósent
en bankinn segir að í ljósi þess slaka
sem nú sé að myndast í hagkerfinu sé
æskilegt að raunvextir Seðlabankans
lækki áfram á komandi mánuðum.
Þessu fagnar Gylfi. „Með því að ná tök-
um á verðbólgunni vorum við að skapa
forsendur til vaxtalækkunar og við hefð-
um gjaman viljað sjá það gerast hraðar.
Nú boða þeir frekari vaxtalækkanir og
ég á von á að skilyrði til þess skapist
strax eftir mælinguna 14. mai,“ segir
Gylfi.
Oftaka bankanna á hagnaði
Framkvæmdastjóri ASÍ telur að sam-
ræmi hafi verið milli aðgerða viðskipta-
bankanna og stýrivaxtalækkunar Seðia-
bankans en hins vegar telur hann að
bankamir eigi að ganga lengra. „Okkur
þykir augljóst með hliðsjón af afkomu
bankanna að þeir eigi að stfga stærri
skref. Þeir hafa verið að auka sinn
vaxtamun." Gylfi segir ekki eðlilegt að
bankakerfið sé rekið með 20-35% arð-
semi. „Það er einfaidlega oftaka á hagn-
aði og við höfum gagnrýnt bankana fyr-
ir að skila ekki hagnaðinum til baka til
viðskiptamannanna."
í ársfiórðungsriti Seðlabankans kem-
ur fram að undirliggjandi verðbólga er á
hröðu undanhaldi. Gengi krónunnar
hefur styrkst um 6% frá áramótum sam-
fara hraðminnkandi viðskiptahalla og
um leið hefur innlend eftirspum haldið
áfram að dragast saman. Útlit er fyrfr
nokkum samdrátt landsframleiðsiu á
þessu ári eftir langt og kröftugt hagvaxt-
arskeið, að mati Birgis ísleifs Gunnars-
sonar seðlabankastjóra. -BÞ
.S
I—
DV- MYND SKH
Nýtt landslag
Eins ogDV greindi frá í gær hrundu mannhæöarhá björg úr hlíöinni ofan Eystri-Péturseyjar í Mýrdal. Sigurjón bóndi og
hundurinn Veró skoöa hér verksummerkin, en björgin stefndu á bæinn og stöövuöust nokkra tugi metra frá.
ERU BESTU
TÆKIFÆRISGJAFIRNAR
Ljósmyndarar á íslandi
Inga Lára Baldvinsdóttir
„Bókin er einhver glæsilegasti
prentgripur sem ég hef séð."
„Sannkölluð gullnáma"
Erik Simensen/Lexico Nordica
Jpb
JRV ÚTGÁFA
Brædraborqarstígur 7 • Sími 575 5600
Hrafn Jökulsson/Rás 2
ísland í sjónmáll
Æsa Sigurjónsdóttir
„Kærkomið tímamótaverk."
Einar Falur Ingólfsson/Mbl.
um istmi*
■átaaTfim
Orðastaður
Jón Hiimar Jónsson
Ný.mikin 45.000 onSosnmiwrul
og endinskoóuð 15.000 notkunanlinni
ulgóiu 100.000 samsenorð
11.000 flettíori
1.100 mólshœttir
Sr. Hjálmar Jónsson í kosningaeftirliti:
Fyigist meö í Sierra Leone
„Þetta er spennandi verkefhi sem
felst einkum í því að sýna fram á að lýð-
ræðið geti virkað og að kosningamar
fari heiðarlega fram. Við eigum að heita
aflögufær þegar lýðræðið er annars veg-
ar,“ sagði Hjálmar Jónsson dómkirkju-
prestur við DV í morgun. Hjálmar
heldur í dag til Sierra Leone þar sem
þing- og forsetakosningar fara fram
þann 14. maí nk. Hjálmar verður eini ís-
lendingurinn í hópi eftirlitsmanna með
kosningunum. Hann segir Hjálparstofn-
un kirkjunnar hafa borist beiðni um
stuðning og i framhaldinu hafi Jónas
Þórisson haft samband við sig.
Sierra Leone er þjáð og þjakað af tiu
ára borgarastyrjöld en nú er friðarferli
komið í gang og lýðræðisöflum að vaxa
fiskur um hrygg. Kosningamar fram
undan verða að sögn Hjálmars próf-
steinn á hvort friður heldur í landinu.
„Þetta er virkilega verðugt viðfangs-
eftii og ég er reiðubúinn að leggja mitt
lóð á vogarskálamar. Það þarf að hvefia
til almennrar þátttöku í kosningunum
en f því andrúmslofti sem ríkir eftir
langvarandi innanlandsátök er fóik ekki
svo mikið að velta fyrir sér hefðbundn-
um kosningamálum."
Hjálmar gerir ráð fyrir að komast
heim aftur 18. maí og taka þátt í hátíð-
armessu í Dómkirkjunni að. morgni
hvítasunnudags. -aþ
Formaður Hnjúka á Blönduósi:
íhugar að flytjast úr bænum
Valdimar Guðmannsson, formað-
ur Bæjarmálafélagsins Hnjúka á
Blönduósi, segist alvarlega íhuga að
flytja úr bænum ef framboð félagsins
verði ekki tekið til greina. Hann átti
að skipa 2. sæti listans.
„Ég var með listann á mér og átti að
fara með hann til yfirkjörsfiómar
ásamt öðrum manni, en ég gleymdi
mér við aðra vinnu á kosningaskrif-
stofunni. Við erum búin að visa málinu
til Héraðsdóms Norðurlands vestra og
fara fram á flýtimeðferð, og ég geri mér
vonir um að úrskurður liggi fyrir strax
í næstu viku. Það hefúr fiöldi manns
haft samband við mig og fleiri í Hnjúk-
um og bent á fiölda dæma víða um land
þar sem málin voru leyst í kyrrþey, t.d.
vegna lítils háttar formgalla á framboð-
um. Okkur skilst nú að við hefðum get-
að skilað framboðinu hvenær sem var
til einhvers yfirkjörstjómarmeðlima
en ekki bara á þessum eina klukku-
tíma sem kjörsfiómin auglýsti. Við
vomm í 300 metra fiarlægð frá þeim og
kannski hafa þeir haldið að við ætluð-
um að vera eitthvaö sniðugir með því
að koma á síðustu stundu.
Ef allt fer á versta veg á ég erfitt
með að horfast í augu við félaga
mína, ég ber fyrst og fremst ábyrgð-
ina, og hef þá bmgðist þeim algjör-
lega. Því hef ég þegar íhugað að flytja
úr bænum ef svo fer. En hvert er al-
gjörlega óráðið," segir Valdimar
Guðmannsson. -GG
formaður
Finnur Geirsson
var endurkjörinn for-
maður Samtaka at-
vinnulífsins á aðal-
fundi samtakanna í
gær. í ræðu sinni
gagnrýndi hann
hvemig hið opinbera
leiddi þróun launa-
mála í landinu. „Hið opinbera, sem
byggir á skattlagningu atvinnulífs og
almennings, hefúr tekið forystu um
kostnaðarhækkanfr í launum og öðr-
um starfskjörum sem atvinnulifið get-
ur ekki fylgt eftir. Slíkt getur ekki end-
að nema með ósköpum," sagði Finnur
m.a. í ræðu sinni.
Endurkjörinn
Lottóvinningshafi fundinn
Hjón með fiögur böm, búsett í Hafti-
arfirði, fengu rúmar 80 milljónir í
Lottóinu. Heimilisfaðirinn gaf sig ný-
verið fram við íslenska getspá en hann
kvaðst hafa geymt miðann í náttborðs-
skúffu meðan hann hugsaði sitt ráð.
Brjóstamjólkin eflir vit
Brjóstamjólkin hefur áhrif á gáfúr
bama ekki síður en heilsu þeirra. Þá
getur hún minnkað líkumar á að böm
þjáist af offitu síðar á lifsleiðinni. Þetta
er niðurstaða bandarísks prófessors í
bamalækningum sem hélt erindi hjá
Félagi íslenskra bamalækna um síð-
ustu helgi. mbl.is greindi frá.
Fjárhagslegur aðskilnaður
Samkeppnisráðs hefúr mælt fyrir að
fiárhagslegur aðskilnaður verði á milli
starfsemi Veðurstofú íslands, sem er á
samkeppnismarkaði, og hins vegar
þeirrar starfsemi sem stofnuninni er
skylt að veita samkvæmt lögum. Til-
efni úrskurðar Samkeppnisráðs er
kvörtun frá Halo sem rekur veðumpp-
lýsingakerfi og veðurþjónustu. Halo
taldi Veðurstofuna misnota aðstöðu
sína gagnvart öðrum fyrirtækjum.
Meint trúnaðarbrot
Landlæknir hefúr nú til skoðunar
meint trúnaðarbrot starfsmanns hjá
Heilbrigðisstoftiun Suðurlands gagn-
vart sjúklingi. Á mbl.is er haft eftir að-
stoðarlandlækni að kvörtunarmál er
varða trúnaðarbrot heilbrigðisstarfs-
fólks séu afar fátíð eða innan við tíu á
ári.
Stefnir á tindinn
Fjallagarpurinn
Haraldur Öm Har-
aldsson bíður nú
betra veðurs áður en
hann leggur til at-
lögu við tind Everest-
fialls. Veðurútlit þyk-
ir hagstætt til upp-
göngu á laugardag í
fyrsta lagi og bíður Haraldur átekta f
grunnbúðum. Ef allt gengur eftir ætti
hann að eiga möguleika á að virða fyr-
ir sér útsýni af hæsta tindi heims um
aðra helgi.
Bóhem neitað
Úrskurðamefnd um áfengismál hef-
ur staðfest synjun borgarráðs þess efti-
is að skemmtistaðurinn Bóhem fái
lengri afgreiðslutíma. Niðurstaðan var
kynnt á fundi borgarráðs í gær en for-
ráðamenn skemmtistaðarins höfðu far-
ið fram á að fá að veita áfengi til 5.30 á
morgnana. Staðan er hins vegar sú að
Bóhem má hafa opið til eitt virka daga
en til 5.30 um helgar.
Norðurljós áminnt
Verðbréfaþing ís-
lands hefúr áminnt
Norðurljós, sem rek-
ur m.a. Bylgjuna og
Stöð 2, fyrir að hafa
ekki skilað ársreikn-
ingi til þingsins fyrir
síðasta ár. Reglur
þingsins segja að út-
gefendum skuldabréfa beri að skila
þinginu ársreikningi innan þriggja
mánaða frá lokum reikningsárs. -aþ