Dagblaðið - 04.04.1977, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 04.04.1977, Blaðsíða 1
 i í $ i i í i i 5 i S 3. ARG. — MANUDAGUR 4. APRIL 1977 — 79. TBL. RITSTJÓÍftN StÐUMÓLA 12, SlMl 833212. AUGJ.VSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 2„SIMI 27022 Barcelona hefur hug á Teiti Þórðarsyni! og Vilhjálmur Kjartansson, Val, ætlar að leika með Norrby í Svíþjóð — íþróttir ímiðju blaðinu Peysufata- dagurinn erfdag: Strákar með stromphatta —stelpur ísparifötum ommu sinnar „Maður hefði heldur átt að mæta í stakk og með sjóhatt heldur en í þessu,“ tautaði kjól- klæddur fjórðibekkingur úr Verzlunarskólanum í morgun, um leið og hann góndi upp í loftið til að gá til veðurs. Stór hópur Verzlunarskóla- nema safnaðist saman í morgun við Hljómskálann — strákarnir ankannalegir með stromphatt og hvítt brjóst og stél eins og út- dauðir geirfuglar — stelpurnar í sparifötum ömmu sinnar, peysu- fötunum. Svona klædd ætla þau að rölta um bæinn, syngja við styttur bæjarins, þverbrjóta umferðarreglur og sýna sig bæjarbúum. Peysufatadagurinn hefur verið föst hefð í Verzlunarskólanum síðan hann var stofnaður. Verð- andi verzlunarprófshafar gera sér þá glaðan dag áður en prófpúlið hefst, — Kvennaskólastúlkur hafa svipaða hefð til að fagna enduðu skólaári. ÁT Skoðanakönnun Dagblaðsins: Skattafrumvarpið nýtur lítils fylgis Aðeins tíu a£ hundraði segjast fylgjandi skatta- frumvarpinu nýja, sam- kvæmt skoðanakönnun, sem Dagblaðið hefur gert. Um helmingur hefur ekki mynd- að sér skoðun, annaðhvort ekki getað áttað sig á frum- varpinu, þótt reynt hafi ver- ið, eða ekki lagt í að reyna að skilja það. Um fjörutíu af hundraði segjast andvígir skattafrum- varpinu. Ef aðeins eru teknir þeir, sem sögðust fylgjandi eða andvígir, eru hlutföllin þannig um það bil þau, að fjórir eru andvígir á móti hverjum einum, sem fylgir frumvarpinu. Sjó blaðsíðu 4. íslenzka krónan fellur ekki strax: Verðlækkun á vörum f rá Norðurlöndum Ólíklegt er talið að gengi íslenzku krónunnar verði fellt strax til að fylgja öðrum Norðurlandakrónum í fallinu. Seðlabankayfirvöld ætla að bíða aðeins átekta. Því þýðir gengisfelling Norðurlanda- krónanna í fyrstu lotu verðlækkun á vörum, sem við flytjum inn frá Danmörku, Noregi og Svíþjóð. Ránsferð ístolnum bíl rannsókn frá því í I morgun voru tvö innbrotamál nótt. Brotizt var inn í biðskýlið við Urensásveg og voru þjófarnir staðnir þar að verki. Reyndust þeir hafa komið á innbrotsstað í stoln- um bíl. Var þarna um að ræða menn sem lögreglan hefur oft haft afskipti af. Þá var í morgun tilkynnt urri innbrot í Sendibíla- stöðina í Borgartúni. Rannsóknarlögreglumenn voru þar að störfum en ekki lá ljóst fyrir hverju hafði verið stolið. Þetta gildir um margvíslegar vörur. Frá Danmörku fluttum við inn á siðasta ári skepnu- fóður fyrir 1413 milljónir, ýms- ar vélar fyrir 766 milljónir og fatnað fyrir 471 milljón, og minna af öðrum vörutegund- um. Innflutningur frá Dan- mörku nam alls 8,1 milljarði. milljónir, öðrum vélum fyrir 694 milljónir, flutningstæki (bílar) fyrir 427 milljónir, pappírsvörur fyrir 622 milljónir og unnum málm- vörum fyrir 450 milljónir. Frá Noregi var flutt inn fyrir 7,1 milljarð. Þar bar hæst flutningstæki, skip, fyrir 1547 milljónir, tilbúinn áburður fyrir 646 milljónir, vörur úr trjáviði fyrir 709 milljónir, pappirsvörur 459 milljónir, vélar, aðrar en rafmagnsvélar, 712 milljónir. Frá Svíþjóð fluttum við inn fyrir 5,5 milljarða. Þar var nest af rafmagnsvélum f.vrir 830 Stjórnvöldum mun þykja freistandi að láta íslenzku krónuna lækka en á móti kemur ótti við að magna bálið fyrir kjarasamningana nú., Sænska krónan fellur í dag um sex prósent og sú norska og danska um þrjú prósent. -HH. Leirvogsmálið: Saksóknari vill rannsakavíð- tækari sakar- efni — sakadómurekki — sjá kjallaragrein Halldörs Halldórs- sonarábls. 10-11 Margraáraað- gerða-og úr- ræðaleysi í fangelsismálum — sjá kjallaragrein Kristjáns Péturs- sonarábls. 10-11 Bankarnir: Allir eru að gera það gott bls.20 Flugslysið: Upptökurn- ar birtar í þessari viku — sjá erlendar fréttir abls.6 1

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.