Dagblaðið - 22.09.1979, Blaðsíða 6

Dagblaðið - 22.09.1979, Blaðsíða 6
6 DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 1979. T i S L U Volvo 244 GL árg. 1979 m/vökvastýri, aflbremsur. Litur gullsanseraður. Ekinn aðeins 10.000 km. Upplýsingar í síma 43559. RITGERÐASAMKEPPNI í tilefni barnaárs hefur stjórn Styrktarfélags vangefinna ákveðið að efna til ritgerðasamkeppni um efnið: Hinn vangefni í þjóðfélaginu Veitt verða þrenn verðlaun: 1. verðlaun kr. 150 þús. 2. verðlaun kr. 100 þús. 3. verðlaun kr. 50 þús. Lengd hverrar ritgerðar skal vera a.m.k. 6—10 vélritaðar síður. Ritgerðirnar, merktar dulnefni, skal senda skrifstofu félagsins að Laugavegi 11, Reykjavík, en nafn og heimilis- fang höfundar fylgi með f lokuðu umslagi. Félagið áskilur sér rétt til að birta opinberlega þær ritgerðir, er verðlaun hljóta. Skilafrestur er til 30. nóv. nk. Óskum eftir að leigja gott Eins manns herbergi með húsgögnum og aðgangi að baði á tímabilinu 8. til 26. október nk. fyrir erlendan verkfræðing. Þarf að vera á Stór-Reykjavíkursvæðinu. Tilboð sendist íslenzka Álfélaginu h.f. í síma 52365 (kl. 0800—1600 á virkum dögum) eða bréflega í pósthólf 244, Hafnarfirði. íslenzka Álfélagið h.f. Markll Gæéa kassettur á frábæru veréi 60 90 Hlgh Energl Ferro Chrome Studlo Quallty Kr. 1750, 2050 2100 2450 3600 4700 Gæöaprófun á MARK II kassettum I samanburói viö allar aörar kassettur á markaðnum llggur frammi á útsölu- stööum. BORGARTÚN118 REYKJAVlK SlMI 27099 SJÓNVARPSBÚDIN Guðmundur Armann Sigurjónsson — 45 ir sem skipasmiður, 1979. Við skulum hafa eitt á hreinu áður en lengra er haldið: íslensk myndlist er alls ekki illa á vegi stödd ef á heildina er litið. Landslagshefðin er í höndum nokkurra ötulla málara, afstraktið lifir enn góðu lífi, tals- verðar hræringar eru nú í fígúratífri myndlist, listiðnaður er á uppleið, grafík blómstrar og myndlist yngri manna er lífleg og fjölbreytt. Helst er að stöðnunar gæti í skúlptúr. Hins vegar mundi naskur út- lendingur sennilega draga þá ályktun af þeirri haustsýningu FÍM, sem nú stendur yfir, að islensk myndlist væri á flæðiskeri stödd og væri ekki hægt að lá honum það. Sýningin segir nefnilega ekkert um stöðu myndlistar á íslandi í dag og vafasamt er hvort hún á sér framtið í þessari mynd. Nokkrir harðjaxlar Lítum á stöðuna: 45 eru þátt- takendurnir en félagsmenn í FÍM einu erunálægflOOog 26 þeirra senda inn verk. Afgangurinn er utanfélags- fólk. Hér vantar nær alla eldri af- straktmálarana, svo og okkar bestu landslagsmálara, listiðnað má telja á fingrum annarrar handar, skúlptúr er aðeins til málamynda og ekki örlar á nýlist. Að visu líður haustsýningin fyrir fjarveru grafikfólksins, sem samankomið er í Norræna húsinu við mikinn orðstír, en að öðru leyti getur fyrirtækið vart borið hönd fyrir höf- uð sér. Þarna eru að vísu nokkrir harðjaxlar sem ávallt standa fyrir sínu: Ágúst Petersen, Eiríkur Smith, Hringur Jóhannesson, Leifur Breið- fjörð, Magnús Kjartansson, Ómar Skúlason og Sigrún Guðjónsdóttir — en enginn þeirra þó með verk af hæsta kalíber. Svo er stöku mynd eftir aðra þekkta menn, sem hverfa í glásinni, og verk eftir nokkra gutlara sem ávallt láta Ijós sín skína á haust- sýningu. Loks koma nýliðarnir en enginn þeirra kemur á óvart. Deyfð 133 verk alls, færri en oftast áður. Nú er á engan hátt að sakast við sýningarnefnd því hún hefur lagt nótt við dag við að dekstra menn til að sýna. Hvað veldur þessu ástandi? Inntökureglur FÍM, t.d. sú staðreynd að á fimmta tug myndlistarmanna stendur utan við félagið, sumir af fúsum vilja, aðrir ófúsir? Hinar tíðu einkasýningar félagsmanna sem hafa það í för með sér að þeim er sárt um að lána verk á samsýningar? Klofningur innan félagsins? Eða eru menn cinfaldlega orðnirleiðir á sam - krulli af þessu tagi og vilja finna nýj- an sýningargrundvöll? Það er ekki gott að segja hvað af þessu á best við. En það liggur í augum uppi að þegar fjórðungur félagsmanna fæst ekki til að taka þátt i helstu maní- festasjón félagsskapar þá er eitthvað að. Hvað er til ráða? Það mætti halda haustsýningar annað hvert ár og fara þess á leit við ákveðinn fjölda félagsmanna að þeir mynduðu kjarna sýningar hverju sinni með eins konar miní-einkasýningum. í hugmynda- bankann Utan um þann kjarna mætti koma öðrum félagsmönnum fyrir, svo og utangarðsmönnum. Og félagið ætti fyrir alla muni að taka upp á því aftur að bjóða einum gesti til sýning- arinnar og velja hann af betri og þekktari sortinni. Það mætti koma upp verðlaunum til að örva menn til þátttöku, efna til funda um málefni myndlistarmanna og myndlist, sýna kvikmyndir, hafa sýnikennslu i ein- hverjum greinum, bjóða „einvöldum” að velja hluta sýninganna o.s.frv. Vona ég að nú- verandi stjórn fari nú í hugmynda- bankann, hefji skjótt hjálparstarf og bjargi félaginu. Það er vafasamt að draga á- lyktanir um stefnur og strauma af svo broguðu úrtaki sem þessi haustsýning er en þó fannst mér alhyglisvert hve sterk ítök figúratíf list á í hugum yngri þátttakenda — og reyndar hjá sumum eldri mönnum líka. Gæti það bent til þess að slík hreyfing sé að rísa upp og komi til með að breyta við- horfum hér á næstu árum. Við skul- um sjá hvaðsetur. Ólm hryssa En meðal þess sem ég hafði ekki séð áður og hafði ánægju af að skoða á haustsýningunni vil ég nefna mynd- ir Brynhildar Óskar Gísladóttur, teikningar Egils Eðvarðssonar með sínum finlegu töktum og blendingi af erótík, íróníu og persónulegum igrundunum og svo oliupastel Hrings Jóhannessonar að norðan. Kristján Jón Guðnason er samur við sig í ljóðrænum borgarmyndum og vildi ég feginn sjá meira eftir hann, og Leifur Breiðfjörð og kona hans, Sigriður Jóiiannsdóttir, vinna af þeirri fágun og natni sem þau eru þekkt fyrir. En sterkasta myndheild sýningarinnar held ég að hafi verið þrenna Magnúsar Kjartanssonar sem slær frá sér í allar áttir eins og ólm hryssa og það er ómögulegt að standa hlutlaus gagnvart henni. Fyrir slíka vakningu er maður innilega þakklátur, eftir allt sem á undan er gengið. Eirikur Smith — Fjöruspekúlantar, 1977. h 4 Myndlist AÐALSTEINN INGÓLFSSON FIM á flæðiskeri Magnús Kjartansson — Þrjú verk, blönduð tækni, 1978. ^ ...................---------- -------------------------------------- ^ Merkja- og blaðasala Styðjið fatiaða Sjalf sbjargar er a morgun Sjátfsbjörg landssamband fatlaðra

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.