Dagblaðið - 20.09.1980, Blaðsíða 16

Dagblaðið - 20.09.1980, Blaðsíða 16
16 DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 1980. I Menning Menning Menning Menning D VIDDIR 0G ÞRENGINGAR — Vilhjálmur Bergsson að Kjarvalsstöðum Um margra ára skeið hefur Vil- hjálmur Bergsson haft algjöra sér- stöðu meðal islenskra myndlislar- manna fyrir sérstæðan skilning sinn á markmiðum og leiðunt i málaralist. í stað þess að vinda sér yfir í hreint al'- strakt úr hinum myrku eldri myndum sinum, eða þá að hverfa aftur til hlul- lægrar listar, hefur hann fundið sér hillu einhvers staðar þarna á milli. I opnu rými sem lýsingarinnar vegna minnir á himingeiminn, svífa ýmiss konar fyrirbæri, annaðhvorl geó- metrisk: hnettir, strendingar, sívaln- ingar, þrihyrningar, trapisur o.fl. eða þá frjálsari í forminu: belgir alls konar, dularfullir massar sem minna á strúktúr eyrans, ullarlagðar og svo ókennilegar árur. Þennan stíl kallar Vilhjálmur sjálfur „biótíska synt- esu” eða „samlífrænar víddir” og scgisl hafa fundið hann upp á miðj- tim sjöunda áratugnum, samkvæmt þvi sem stendur i danskri sýningar- skrá sem liggur frammi á sýningu Vil- hjálms að Kjarvalsstöðum. Liststef nur missa aðdráttarafl I skránni segir listamaðurinn enn- frcmar: „Fyrir rúmlega áratug síðan sióð ég Irammi fyrir þeim vanda að lislslefnur samtíðarinnar, sem ég áðui var upptekinn af höfðu missl allt aðdrállarafl sitt hvað mig snerli. Súrrealisminn og afstrakl list höfðu komið sér upp fastmótuðum leikregl- um sem ég hafði ekki áhig.i á að fylgja lengur. Á því atignabliki breiddisl ný Dadastefna, Popplistin svokallaða, á ógnarhraða um allan heim. En þegar mér skildist að hún mundi einnig ganga sér til húðar, sá ég að hún mundi ekki koma mé: að gagni. Þær myndir sem ég var þá að mála voru myrkar og nær auðar, þar sem alls konar ógreinileg fyrirbæri teygðu sig móti Ijósinu. Brátt fengu þau á sig fastari mynd og hinir ljósu og dökku lletir myndanna drógu sig saman og skiptust niður. Þetta var upphafið að því samspili Ijóss og forma sem ég hef- síðan fengist við. Loks skildist mér að samræma þyrfti hina ýmsu „isma” nútímalistar og þá þyrfti að undirbyggja tæknilega. Um haustið 1967 fór ég til Spánar, þar sem Velazquez heillaði mig sérstak- lega. Ismum afneitað í samlífrænum víddum (biotisk syntese) eru formin bæði geómetrisk um að skýra þær forsendur sem hann leggur til grundvallar í list sinni. Ef ég skil Vilhjálm rétt (sem ég er engam veginn viss um) þá afneitar hann hinum ýmsu „ismum” vegna þess að þeir hafa ekki tekist á við það sem hann telur vera meginhlutverk mynd- listarmannsins: að kanna grunn mál- aralistar, eðli lita og forma. Enn- fremur virðist hann telja sig hafa uppgötvað þá einu leið sem dugar til slikra rannsókna, sambræðing sem auk þess tekur mið af klassískri Ijósnotkun og málunartækni. Gamla strangtrúin Þó sé ég ekki betur en þetta sé gamla afstrakt slrangtrúin endurbor- in. „Áður en segja má að mynd sýni hest, nakta konu eða einhvern at- burð, verður maður að gera sér Ijóst að hún er tvivíður flötur, þakinn litum sem raðað hefur verið.niður á sinn hátt," sagði málarinn Maurice Denis fyrir tæpri öld og opnaði þar með leiðina fyrir þá sem töldu, eins og svo ótalmargir hafa gerl fyrir daga Vilhjálms, að mynd ætti umfram alll Myndlist AÐALSTEINN INGÓLFSSON áLS/ Vilhjálmur Bergsson — Málverk. og lifræn. En þau hafa verið tekin úr því samhengi sem fruntnkvöðlar nú- tímalistar settu þau í: lifræn fornt, súrrealísk, geómetrísk o.s.frv. Þaðer einfaldlega ekki nokkur leið að skipta litum og formum á bása á þennan hátl, hafi maður á annað borð löng- un til að skilja þau lögmál sem að baki þeim liggja. Blæbrigðabreyting- ar lita og útlitsbreytingar forma gefa manni kost á að byggja upp lifandi, lakmarkalausa myndveröld o.s.frv.” (lausl. þýð. úrdönsku AI). Svo mörg voru þau orð og er það út af fyrir sig lofsvert að islenskur myndlistarmaður skuli gcra sér far að takast á við frum-forsendur sínai, formin og litina, — ef þetta tvennl verður þá aðskilið. Skulu þau viðhorf alls ekki löstuð enda hal'a þau verið meiri háttar aflvaki í myndlist tutlug- ustu aldar. Hvernig tekst Vilhjálmi svo til með sínar víddir? Ef við gefum okkur að það myndmál sem hann brúkar hal'i nær engin takmörk, fremur en al- heimurinn, þá virðist hann ekki nýta nema brot af því. Við sjáum kúlur eða sporöskjur, strendinga, sívain- inga og siðan nokkur af þeim frjáls- legu formum sem getið er hér i upp- hafi. Vilhjálmur Bergsson á sýningu sinni að Kjarvalsstöðum. (DB-mynd, Einar) Utanbókar Sá hæfileiki Vilhjálms að magna upp stök, dularfull form og gefa þeim nær yfirskilvitlegan karakter hefur nú vikið fyrir einhvers konar þyrrkingslegu utanbókarstagli sem jaðrar við einræði. Formin eru endurtekin tilbreytingalítið og lita- skalinn er takmarkaður við blá eða fjólublátóna, skærgrænt, ljósbrúnt, skarlatsrautt eða grátt. Ljós er yfir- leitt notað á sama veg: sem eins konar útgeislun frá miðju eða jöðrum mynda, til að afmarka eða skerpa formin sem fljóta fremst i Ijósvakanum. Einstöku tilbrigði eins og geómetriskar tengilinur eða myndir-innani-myndum ná ekki heldur að vekja tilfinningalega svör- un í þeim sem þeita skrifar. En á göngu ntinni um sýninguna var mér hins vegar tiðlitið til hinna myrku eldri mynda sem liver og ein virtust liafa til að bera þá vídd sem mestu máli skiptir þótt sveipaðar væru dul- úð: hina manneskjulegu vidd. - AI ^ Þjónusta . ✓ Þjónusta Þjónusta c Viðtækjaþjónusta ) Sjónvarpsviðgerðir' Heima eða á Verksta'öi. Allar tegundir. 3ja mánaða ábyrgd. Skjárinn, Bcrgstaðastræti .t8. Dag-, kvöld- og hclgarsími 21940. Sjónvarpsloftnet. Loftnetsviðgerðir. Skipaloftnet, xK íslenzk framleiðsla. Uppsetningar á sjónvarps- og útvarpsloftnetum. Mr öll vinna unnin af fagmönnum. Árs ábyrgð á efni og vinnu. SJÓNVARPSMIÐSTÖÐIN HF.f , Siðumúla 2,105 Reykjavlk. jSfman 91-3^090 verzlun — 91-39091 verkstæði. c Jarðvinna-vélaleiga ) Véla- og tækjaleiga Ragnars Guðjónssonar, Skemmuvegi 34, símar 77620, heimasími 44508 Loftpressur Slfpirokkar Beltavélar Hrœrivélar Stingsagir Hjólsagir Hitablésarar Heftibyssur Steinskurðarvél Vatnsdœlur Höggborvélar Múrhamrar Traktorsgrafa til Traktorsgrafa til leigu í stærri sem minni verk. Auðbert, Högnason, sími 44752 og 42167. Tökum úr steyptum veggjum fyrir hurðir, glugga, loftræstingu og íýmiss konar lagnir.2". 3”, 4", 5". 6", 7” borar. Hljóðláll og ryklaust. Fjarlægum múrbrotið, önnumst ísetningar hurða og glugga :ef óskaðer, hvarsem erá landinu. Skjótoggóð þjónusta. KJARNBORUN SF. Sírnar: 28204 — 33882, L OFTPRESSU- LEIGA Vélaleiga HÞF. Sími52422. TEK AÐ MÉR MÚRBROT, FLEYGANIR OG BORANIR. MARGRA ÁRA REYNSLA. Traktorsgrafa til leigu Traktorsgrafa til leigu í stærri sem minni verk. Sími 72540.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.