Frjáls verslun - 01.01.1992, Blaðsíða 3
stultum þannig að halla þess má stilla eins
og notandanum finnst þægilegast. 17
hnappa talnaborð er hægt að fá sem auka-
búnað fyrir þá sem vinna mikið með tölur.
Innbyggður músargangur gerir kleift að
tengja mús um seríalportið en músin sjálf
fylgir ekki.
Eitt af því sem vekur athygli er að þessi
tölva er með gagnvirkan vinnsluhraða í
miðverki upp á 70 nanósekúndur (ein
nanósekúnda er einn þúsund milljónasti
hluti úr sekúndu, þ.e. ein sekúnda sem
hefur verið deilt í með 10 í níunda veldi).
Þessi aðgerðahraði, sem ætti að skila sér í
algengustu rútínum, þjónar fyrst og
fremst þeim tilgangi að auka endingu raf-
hlaðna.
í staðalútgáfunni er PS/2 N33 SX með
2ja megabæta vinnsluminni. Það nægir til
að keyra MS Windows og flest algeng
notendaforrit í því umhverfi. Hægt er að fá
sem aukabúnað 3,5 ytra lágdrif (þunnt)
fyrir 3,5 tomma diskettur. Það er hugsað
fyrir þá sem þurfa að geta farið með verk-
efni í aðrar tölvur eða í fistölvuna úr öðnrm
tölvum. Það mál má einnig leysa með sk.
IBM PS/2 N33 SX fistölvan: Fyrir-
ferðin er sú sama og símaskráarinn-
ar. Skjárinn er merkilega skýr.
Verðið er 136 þúsund krónur og get-
ur það ekki talist hátt verð fyrir 386-
vél sem kevrir undir MS Windows.
„Link-forriti“ og tilheyrandi kapli sem
tengdur er seríalporti fistölvunnar og PC
eða PS tölvu.
Til þess að spara raforku frá rafhlöðum,
en það er stórt mál þegar fistölva er ann-
ars vegar, er fasta disknum stýrt á sér-
stakan hátt frá miðverki, vinnsla beint út á
disk gerist sjaldan nema notandinn ákveði
það. Þess í stað er vinnsluminnið nýtt til
hins ýtrasta. Með þessu móti hefur reynst
unnt að ná allt að 1,5 klst. samfelldri notk-
un á hverri hleðslu miðað við orkufrekustu
verkefni. Sem dæmi um slíkt verkefni er
80 dálka 25 lína tafla sem er uppfærð að
meðaltali tvisvar á mínútu.
Utgangar eru fyrir ytra diskettudrif,
fyrir hliðtengdan prentara auk seríalports.
I tölvunni er öryggisrafhlaða sem tryggir
að gögn í vinnslu og geymslu í miðverki og
á diski glatast ekki þótt vinnslurafhlöður
tæmist í miðjum klíðum.
IBM PS/2 Model N33 SX fylgir stýri-
kerfið IBM DOS 4.01. Tölvan kostar 136
þúsund krónur hjá Sameind.
í erlendum tímaritum hefur einkum
verið fjallað um aðra gerð af þessari fis-
tölvu, Model 40 SX. Munurinn á henni og
N33 SX, fyrir utan verðið, er að 40 SX er
með innbyggt mótald og faxsendi, hægt er
að stækka minni í 18 megabæti, hún hefur
32ja grátóna skjá (sem þykir ekki eins vel
heppnaður) og er með gjörvann i387 SX.
PC-TOOLS
7.1
Eigum á lager
PC - TOOLS 7.1
Kr. 14.736,-
Uppfærsla Kr. 7.882,-
v_____________Jl
Harvard Graphics
3.0
Ómissandi verkfæri
við ársskýrslngerð
áætlanagerð, og m.fl.
verð Kr. 55.169,-
V__________________A
37